Morgunblaðið - 30.04.1987, Qupperneq 2
2
MORGUNBLABIÐ, FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1987
Könnunarviðræður:
Enn beðið eftir af-
stöðu kvennanna
Morgunblaðið/Einar Falur.
Við upphaf aukafundar framkvæmdastjórnar Alþýðubandalagsins í gær. Þröstur Ólafsson framkvæmda-
stjóri Dagsbrúnar heilsar Össuri Skarphéðinssyni ritstjóra Þjóðviljans. Svavar Getsson formaður
Alþýðubandalagsins situr hugsi vinstra megin á myndinni en hægra megin er Ólafur Ragnar Grimsson
prófessor.
Framkvæmdastj órn Alþýðubandalagsins:
Dag’setningn miðstjórn-
arfundar ekki breytt
KVENNALISTAKONUR unnu í
gær í starfshópum að ýmsum
málaflokkum sem þær vilja
leggja til grundvallar fari þær
út í stjómarmyndunarviðræður.
Enn liggur ekkert fyrir um það
hvort þær em reiðubúnar til
formlegra viðræðna við Sjálf-
stæðisflokk og Alþýðuflokk, en
Búðardalur:
Salmon-
ella veldur
matareitr-
uninni
STAÐFEST er að sýkillinn
sem olli matareitruninni sem
kom upp eftir nokkrar ferm-
ingarveislur i Búðardal um
páskana er salmonella typ-
himurium. Þetta kom i Ijós
við ræktun saursýna úr sjúkl-
ingunum á sýklarannsókna-
deild Landspítalans.
Á rannsóknarstofu Hollustu-
vemdar ríkisins er unnið að
rannsókn á matarhráefnum úr
Búðardal, og liggja niðurstöður
ekki fyrir. Er því ekki búið að
rekja hvaðan salmonellan er
komin. Búist er við að rannsókn
ljúki í dag eða einhvem næstu
daga.
þess er vænst að það skýrist nú
fyrir helgi hvort slíkt stjómar-
samstarf gæti tekist.
Lítið gerðist í gær í könnunarvið-
ræðum um stjómarmyndun, eí
fulltrúar flokkanna funduðu þó tals-
vert og könnuðu málir með
símhringingum.
Ekki liggur fyrir hveijum frú
Vigdís Finnbogadóttir forseti ís-
lands mun afhenda umboð til
stjómarmyndunar, né hvenær hún
mun gera það. Svo er að heyra á
talsmönnum flestra stjómmála-
flokkanna að þeir búist við að
stjómarmyndun muni reynast erfið
og taka langan tíma.
Sjá einnig fréttir á bls. 24 og
- 25 og forystugrein.
FUNDUR var haldinn í fram-
kvæmdastjóra Alþýðubandalags-
ins á nýjan leik síðdegis í gær,
að beiðni Siguijóns Péturssonar.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins varð niðurstaða liðlega
tveggja tima fundar að fyrri
ákvörðun framkvæmdastjómar
frá því á mánudagskvöld, að
kalla saman miðstjórn flokksins
tU fundar dagana 16. og 17.
maí, stendur óhögguð. Siguijón
Pétursson hafði óskað eftir þvi
að þeim fundi yrði flýtt og hann
haldinn um næstu helgi, vegna
ummæla Guðrúnar Helgadóttur
um forystu Alþýðubandalagsins.
Siguijón mun hafa óskað eftir
því að miðstjómarfundi yrði flýtt,
þar sem hann hafði í huga að fá
traustsyfírlýsingu á Svavar Gests-
son formann Alþýðubandalagsins
samþykkta. Niðurstaða fundarins
varð sú að fyrri tímaákvörðun
stendur óbreytt. Siguijón flutti ekki
formlega tillögu þessa efnis en
umræður á fundinum leiddu það í
ljós, að ekki var vilji til þess að
breyta tímasetningunni.
Siguijón var með aðra tillögu á
fundinum þess efnis að fram-
kvæmdastjómin tæki af skarið með
það, að hún vildi ekki að tímasetn-
ingu landsfundar yrði breytt og
haldið yrði fast við það að halda
fundinn í haust. Eftir tveggja tíma
umræður á fundinum dró Siguijón
þessa tillögu til baka þegar ljóst
var að hún hafði ekki stuðning á
fundinum.
Þingflokkur Alþýðubandalagsins
samþykkti á fundi sínum í gær að
Svavar Gestsson hefði orð fyrir
Alþýðubandalaginu í hugsanlegri
þátttöku í stjómarmyndunarvið-
ræðum og var samskonar tillaga
samþykkt á fundi framkvæmda-
stjómar í gær.
Sjá nánar fréttafrásögn á bls. 24.
Vélhjóli
stolið í
Æsufelli
BROTIST var inn í hjóla-
geymslu í Æsufelli 6 í fyrri-
nótt og stolið þaðan vélhjóli.
Éinnig var stolið 10 gíra reið-
hjóli, en það fannst í gær.
Eigandi vélhjólsins er ungur
piltur og var hann nýbúinn að
kaupa það. Hann hafði fest það
við miðstöðvarofn með keðjum.
Innbrotsþjófamir bmtust inn
um glugga á geymslunni og
söguðu keðjumar í sundur.
Hjólið er af tegundinni Honda
MT-50 og ber einkennisstafina
R-1254. Þjófnaðurinn hefur ver-
ið kærður til lögreglu og eru
þeir, sem einhveijar upplýsingar
geta gefið um þetta mál, beðnir
um að láta lögregluna vita.
Samið til skemmri tíma en
áður við Long- John Silver’s
Ástæðan óvissa um framboð og markaðsverð
LITLAR líkur em nú taldar á
því að íslenzku fisksölufyrirtæk-
in í Bandaríkjunum senyi til
Iangs tíma við Long John Silv-
er’s um sölu á fiski eins og
undanfarin ár. Ástæðan er fyrst
og fremst óvissa með markaðs-
verð á fiski og mikil óvissa um
framboð. Verð samkvæmt gild-
Hólmavík.
NÝTT fiskvinnslufyrirtœki hefur
tekið til starfa á Hólmavík. Er
þetta einkaf jrrirtæki, en til þessa
hefur Kaupfélag Steingrímsfjarð-
ar verið einrátt í fiskvinnslu og
reyndar nær öllu atvinnullfi hér.
Tilkoma þessa nýja fyrirtækis
hefur hleypt nýju lífi i atvinnulíf
staðarins.
Að þessu nýja fyrirtæki, sem ber
nafnið Hlein sf, standa aðallega
nokkrir ungir athafnamenn á staðn-
um, meðal annars menn sem eiga
aðild að útgerð. Framkvæmdastjóri
er Gunnar Jóhannsson, skipstjóri.
Vinna við undirbúning fyrirtækisins
hófst fyrir alvöru þegar nokkrir bát-
ar héðan urðu að hætta hrefnuveið-
um. Fiskverkunarhúsið var byggt í
haust og fyrri hluta vetrar og hefur
stðan verið unnið að frágangi innan-
andi samningi er 1,70 dalir fyrir
hvert pund af þorskflökum, en á
almennum markaði hefur verðið
verið 2,15 til 2,40 dalir á pundið
undanfarna mánuði.
Núverandi samningur íslenzku
físksölufyrirtækjanna við Long
John Silver’s rennur út 30. júní
næstkomandi og hefur þá gilt í 12
húss. Starfsemi hófst nýlega. Í
húsinu verður einkum saltfiskverk-
un, en einnig verða unnin grásleppu-
hrogn og skreið.
FJÖLMENNT leitarlið hefur leit-
að konu í Vestmannaeyjum síðan
á þriðjudag, en án árangurs.
Konan, sem er 51 árs gömul, fór
að heiman frá sér um kl. 3 að-
faranótt þriðjudagsins. Þegar
ekkert hafði til hennar spurst á
þriðjudagsmorgun voru ættingjar
hennar mjög famir að óttast um
hana og gerðu lögreglunni viðvart.
Björgunarfélag Vestmannaeyja og
mánuði. Verð samkvæmt honum
hefur verið hið sama frá upphafí,
en á sama tíma hafa hækkanir á
almennum markaði verið í kringum
30%. Kanadamenn sömdu til sama
tíma við LJS um sölu á flökunum
fyrir 1,60 dali pundið. Allir aðilar
hafa á þessum tímabili staðið fylli-
lega við gerða samninga. Óljóst er
hafa bátamir veitt mjög vel hér rétt
fyrir utan og einnig hefur verið góð
grásleppuveiði. Hefur tilkoma nýja
fiskvinnslufyrirtækisins því komið
sér vel. Baldur Rafn
Hjálparsveit skáta voru fengin til
aðstoðar og hófst leit þeirra um
hádegið. Um sjötíu manns leituðu
um alla eyjuna fram í myrkur. Þá
var einnig notaður sporhundur, en
leitin bar engan árangur.
í gærmorgun hófst leitin aftur
og var þyrla Landhelgisgæslunnar
fengin til aðstoðar. Seint í gær-
kveldi var konan enn ófundin.
hver verðþróun verður á næstunni,
en þá skiptir miklu máli hvemig
þorskveiði Kanadamanna í sumar
gengur og hvemig gengur að nýta
aðrar ódýrari físktegundir til sölu
á veitingahúsum. Verðið á fyrsta
flokks flökum er enn hátt, en
Kanadamenn hafa orðið að lækka
verð á annars flokks flökum.
„Stefna Coldwater er að halda
háu verði og að reiða sig á stöðug-
leika. Við berum framleiðslu okkar
ekki saman við annars flokks físk
frá öðrum löndum og vonumst til
að halda verðinu uppi," sagði Magn-
ús Gústafsson, forstjóri Coldwater,
í samtali við Morgunblaðið. Magn-
ús sagði, að vegna óvissu um verð
og framboð, yrði líklega ekki samið
við Long John Silver’s til langs tíma
nú. Viðskiptin við veitingahúsakeðj-
una væru mikilvæg, 16% af veltu
Coldwater, en engu að síður yrði
að taka upp aðrar aðferðir við söl-
una. „Báðir aðilar hafa áhuga á því
að halda viðskiptum áfram og þá
verður væntanlega tekið á móti
pöntunum og verð staðfest til
skemmri tíma en undanfarið," sagði
Magnús.
I tímaritinu Nation’s Restaurant
News, sem gefíð er út í Banda-
ríkjunum, er sagt að veitingahúsin
leiti nú eftir ódýrara hráefni en
þorskinum, þar sem hátt innkaups-
verð á honum gleypi hagnaðinn af
sölunni. Long John Silver’s er þar
tekið sem dæmi og sagt að fyrir-
tækið standi frammi fyrir að
minnsta kosti 20% hækkun á inn-
kaupsverði á þorskflökum. Slíkar
hækkanir hljóti að einhveiju leyti
að koma fram í verði fískréttanna
og veikja stöðu fyrirtækisins í sam-
keppninni við hamborgarana og
aðra ódýra fæðu.
Hólmavík:
Ný fiskvinnsla í sam-
keppni við kaupfélagið
Frá því fyrirtækið hóf starfsemi
Konu leitað í Eyjum