Morgunblaðið - 30.04.1987, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1987
Séð fyrir endann á um fjögurra ára „sorgarsögu“:
Raðsmíðaskíp Stál-
víkur í Garðabæ
selt til Keflavíkur
Kaupandi Jarlinn hf. og kaupverð rúmar 200 milljónir króna
ÚTGERÐARFÉLAGIÐ Jarlinn
hf. í Keflavík hefur keypt
raðsmíðaskip Stálvíkur hf. í
Garðabæ. Aðaleigandi Jarlsins
hf. er Páll Axelsson. Kaupverð
skipsins er 206 milljónir og 586
þúsund krónur og er miðað við
að skipið verði afhent í desember
nk. Stálvik hefur átt i miklum
fjárhagslegum vandræðum og
hefur umrætt skip aukið á vand-
ann, þar sem það hefur verið í
smíðum í tæplega fjögur ár. Að
sögn Jóns Sveinssonar, forstjóra
Stálvíkur, er nú unnið að skuld-
breytingu hjá fyrirtækinu. Þá
mun sala raðsmíðaskipsins kalla
á ráðningu um 50 starfsmanna
til að ljúka smíði þess.
Raðsmíðaskip þessi voru upphaf-
lega fimm og smíði þeirra ákveðin
af stjómvöldum í þeim tilgangi að
útvega skipasmíðastöðvum verk-
efni. Eitt var smíðað í Stálvík, tvö
á Akranesi og tvö á Akureyri. Að
sögn Jóns Sveinssonar, forstjóra
Stálvíkur, hefur raðsmíðaskipið hjá
þeim verið ein sorgarsaga, en með
sölu þess og sérstökum aðgerðum
rofar til með fjárhagsstöðu fyrir-
tækisins. Smíði smábáta af stærð-
inni 9,9 tonn hefur verið helsta
verkefni Stálvíkur síðustu mánuði.
Tveir bátar hafa þegar verið af-
hentir en pantanir eru á annan tug
talsins.
Kaupsamningur Jarlsins og Stál-
víkur var undirritaður 24. apríl sl.
Skipið verður að sögn Jóns Sveins-
sonar 42,5 metrar að lengd og á
flórða hundrað tonn. Það mun fá
leyfi til rækjuveiða.
VEÐURHORFUR í DAG:
YHRLIT á hádegi f gasr: Um 200 km vestur af Bjargtöngum er
1000 millibara djúp lægð sem þokast austur.
SPÁ: Breytileg átt, gola eða kaldi (3-5 vindstig). Léttskýjað á aust-
ur- og suðausturlandi en dálítil él á víð og dreif í öðrum landshlutum.
Hiti á bilinu 3 til 8 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
FÖSTUDAGUR: Norðanátt og kalt i veðri. Él um noröanvert landiö
en lóttskýjað sunnanlands.
LAUGARDAGUR: Minnkandi norðanátt og áfram svalt í veðri. Él
einkum á norðausturlandí en bjart veður í öðrum landshlutum.
TAKN:
___/4
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
x Norðan, 4 vindstig:
' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
10 Hitastig:
10 gráður á Celsius
SJ Skúrir
— Þoka
= Þokumóða
* / #
/ * / * Slydda
/ * /
# # #
## * * Snjókoma
’, ’ Súld
OO Mistur
—J- Skafrenningur
[T Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
Akureyri hhl 7 veöur úrkomaígr
Reykjavlk 1 haglél
Bergen 17 léttskýjað
Helsinki 20 lóttskýjað
Jan Mayen 0 úrkomafgr
Kaupmannah. 17 léttskýjað
Narssarssuaq -3 hélfskýjað
Nuuk -8 snjókoma
Osló 15 léttskýjað
Stokkhólmur 21 léttskýjað
Þórshöfn 6 rlgnlng
Algarve 20 léttskýjað
Amsterdam 22 mistur
Aþena Barcelona 18 vantar skýjað
Berlfn 21 léttskýjað
Chicago 14 helðskfrt
Giasgow 19 léttskýjað
Feneyjar 17 helðskfrt
Frankfurt 23 skýjað
Hamborg 23 lóttskýjað
Las Palmas London 17 vantar rlgning
LosAngeles 18 þokumóða
Lúxemborg 18 akýjað
Madrfd 20 mlstur
Malaga 20 mlstur
Mallorca 19 alskýjað
Miaml 20 lóttskýjað
Montreal 3 skýjað
NewYork 8 lóttskýjað
Parfa 22 akýjað
Róm 18 helðskfrt
Vfn 19 lóttskýjað
Washington 8 lóttskýjað
Winnipeg 3 lóttskýjað
Ágreiningur
um dagskrár-
stefnu Stöðvar 2
Jónas R. Jónsson dagskrárstjóri
hættur og Goði Sveinsson tekinn við
GOÐI Sveínsson hefur verið ráð-
inn sem dagskrárstjóri á Stöð 2 í
stað Jónasar R. Jónssonar, sem
hætti störfum sfðastliðinn mánu-
dag vegna ágreinings við sjón-
varpsstjóra Stöðvar 2 um þá
dagskrárstef nu, sem f mótun var.
Nýi dagskrárstjórinn hefur starfað
hjá Stöð 2 síðan um áramót, meðal
annars við gerð erlendra samninga.
Áður starfaði Goði hjá Amarflugi.
Sighvatur Blöndal, markaðsstjóri
Stöðvar 2, sagði í samtali við Morg-
unblaðið að megindrættimir í
dagskrárstefnu sjónvarpsstöðvarinn-
ar væri að auka efni frá öðrum
þjóðlöndum en Bandaríkjunum.
„Þegar við vomm að byija sem ný
sjónvarpsstöð, þurftum við vissulega
Ottó Watne
seldi í Hull
OTTÓ Wathne NS seldi 129 lestir,
mest þorsk, í Hull á miðvikudag.
Heildarverð var 7,5 milljónir
króna, meðalverð 57,89. Þetta er
heldur lægra verð en að undanf-
örnu hefur fengizt fyrir þorsk i
Bretlandi. Það hefur verið í kring
um 70 krónur sfðustu daga
Talsvert af grálúðu er nú á leið á
markaðinn í Þýzkalandi og óttast
menn verðfall á henni. Eftirspum
hefur verið umfram framboð að und-
anfömu og verð því hátt, eða allt
að 60 krónum á kíló. Hins vegar
berast þær fréttir nú að utan, að
Þjóðveijar bjóði grálúðu til sölu í
Englandi á 42 krónur kílóið. Ein-
hveijir hér heima hafa hætt við sölu
á grálúðu af þessum sökum.
að gera samninga við stóra aðila, sem
helst var að fínna í Bandaríkjunum.
Smærri aðilamir vildu hinsvegar sjá
okkur komast á fætur áður en til
samninga kæmi.“
Jónas sagðist ekki geta keyrt
áfram með bílstjóra í aftursætinu
sem vissi allt betur en hann sjálfur.
„Ég fékk mig fullsaddann sl. mánu-
dag og gekk út. Þetta er fyrst og
fremst persónulegur ágreiningur
milli mín og Jóns Óttars sem því
miður þurfti að Ijúka svona. Við höf-
um haldið með okkur marga spennu-
fundina og sprengingar hafa átt sér
stað með reglubundnu millibili frá
því stöðin fór fyrst í loftið. Lengi vel
gerði ég mér vonir um að sættir
tækjust með okkur, en ég get ekki
unnið ef ég hef ekki vinnufrið. Jón
Óttar er með fínguma í öllu og rek-
ur stöðina með miklum ærslagangi.
Haldnir em þriggja tíma fram-
kvæmdastjómarfundir tvisvar í viku
þar sem hann einn hefur framsögu.
Þess á milli tekur hann upp þætti
með sjálfum sér og þegar ég er í
útlöndum heldur hann blaðamanna-
fundi um dagskrárdeild eða situr
fyrir svörum á „Opinni línu“ um
dagskrána."
Jónas sagðist álíta að fólk vildi
heldur sjá gott bandarískt sjónvarps-
efni heldur en lélegt efni annars
staðar frá. Bandaríkjamenn gætu
nánast selt hvað sem er, en Evrópu-
menn væm bundnir af strangari
samningum. Til dæmis væm leikara-
samningar í Bretlandi þannig úr
garði gerðir að ekki væri leyfilegt
að selja vandað sjónvarpsefhi til
áskriftarsjónvarps.
Jón Óttar Ragnarsson er erlendis
og náðist ekki í hann í gær.
Skartgripum stolið
BROTIST var inn í gullsmíða-
stofu og verslun Þorgríms
Jónssonar í Reykjavík aðfaranótt
gærdagsins og þaðan stolið miklu
magni skartgripa.
Fyrirtækið er til húsa að Lauga-
vegi 20b og er gengið inn í verslun-
ina Klapparstígsmegin. Þjófurinn,
eða þjófamir, spörkuðu upp hurð
verslunarinnar og höfðu á brott
með sér mikið magn skartgripa.
Að sögn rannsóknarlögreglu er enn
ekki ljóst hveijir vom þama að
verki eða hversu mikils virði skart-
gripimir em. Ekkert þjófavamar-
kerfi er í versluninni.