Morgunblaðið - 30.04.1987, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1987
ÚTVARP/SJÓNVARP
Hringhugar
Sitthvað má Sanki þola hét
páskaleikrit ríkisútvarpsins sem
var endurtekið síðastliðið þriðju-
dagskveld. Titlinum hefði eins mátt
snúa uppá hlustendur, í það minnsta
barðist undirritaður hetjulegri bar-
áttu við nafna lokbrá þá þeir Erling-
ur Gíslason í hlutverki Don Kíkóta
og Róbert Amfínnsson í hlutverki
skjaldsveinsins Sankó Pansa brugðu
á leik uppí útvarpsleikhúsi. Ég held
nú að rótsterkt leikhúskaffið hafi
bjargað kveldinu en hvar var hinn
bráðfyndni texti Miguels de Cervant-
es Saavedra er kitlaði hláturtaugar
undirritaðs hér á árum áður? í fyrsta
lagi passaði Erlingur Gíslason hreint
ekki í hlutverk Don Quixote riddar-
ans hugumstóra er gekk nánast af
riddarabókmenntunum dauðum. Erl-
ingur Gíslason virðist sjálfkjörinn í
aðalhlutverkin uppí útvarpsleikhúsi
og vissulega hef ég oft borið lof á
þennan ágæta leikara en það ætti
að vera hvetjum manni ljóst að hann
passar hreint ekki í herklæðin hans
Don Quixote einsog sást á kynning-
armyndinni hér í þriðjudagsblaðinu
þar sem Erlingur stóð galvaskur
með korða í hendi og brynjuna gyrta
utanum jákkann, næstur stóð svo
leikstjórinn Guðmundur Ólafsson og
lamdi á hjálm kappans er hvíldi í
höndum Róberts Amfinnssonar, hins
trúa þjóns og skjaldsveins Sankó
Pansa.
Don Quixote var einsog allir læs-
ir menn vita hinn dæmigerði kleyf-
hugi, sennilega sá dæmigerðasti í
gervöllum bókmenntunum. Og
hvemig er þá hinum dæmigerðu
kleyf- og hringhugum lýst af sál-
fræðingunum, hér vísa ég til kenn-
inga Kretschmers er birtust meðal
annars í bókinni: Physique and
character (N.Y.: Harcourt, Brace &
World). En þær þróuðust frekar í
verkum Sheldons: Atlas of men: a
guide for somatotyping the adult
mala at all ages (N.Y. Harper), og
einnig í samvinnu Sheldons, Stevens
og Tucker er sjá má stað í verkinu:
The varieties of human physique
(N.Y.: Harper). Almennt má segja
að þessir vísindamenn lýsi kleyf-
huganum þannig að hann hafi
fíngerða húð, og hárið er sömuleiðis
fíngert og taugakerfið viðkvæmt.
Kleyfhuginn er gjaman hávaxinn,
grannur og með innfallinn bijóst-
kassa. Að slíkum mönnum þrengja
ekki brynjur. Hvað varðar sálgerð
kleyfhugans þá er hann talinn við-
kvæmur, að jafnaði áhyggjufullur,
óttast margmenni og þarfnast ein-
vem. Ekki get ég troðið leikaranum
Erlingi Gíslasyni í þetta mót. Nú og
þá er ég kominn að hinum dæmi-
gerða hringhuga er Cervantes
persónugerir svo snilldarlega í skó-
sveininum Sankó Pansa, en sam-
kvæmt kenningunni em meltingar-
færi hringhugans sérlega þroskuð
og mikilvirk enda elskar hann góðan
mat og sækist eftir mjúkum klæðum,
notalegum híbýlum og félagsskap
meðbræðranna. Róbert fellur ágæt-
lega að þessari skilgreiningu sem
leikari.
En?
En hvemig stendur á því að dóm-
ur um útvarpsleikhúsverk snýst að
mestu um sálfræðikenningar en ekki
þetta hefðbundna formúlusnakk um
leikstjórann, leikarana og verkið
sjálft? Ástæðan hlýtur að liggja í
augum uppi, ég var einfaldlega
ósáttur við valið á aðalleikaranum
og því fór sem fór að leikritið hans
James Saunders: Sitthvað má Sanki
þola, féll marflatt á hlustimar og
var máski marflatt frá upphafs-
punkti. Annars var þýðing Karls
Guðmundssonar fagmannleg en þó
fannst mér íslenskun viðumefna
leikpersóna fremur tilgerðarleg.
Ágætu leikstjórar og leikarar, næst
er þið veljið i hlutverk kíkið þá út-
fyrir múra leikhússins, til dæmis í
sálfræðiskruddur eða önnur fræði, í
leit að hinum eina sanna tón!
Ólafur M.
Jóhannesson
Bylgjan:
Spjallað
við Harald
Olafsson
Gestur Jónínu
9H00 að þessu sinni
"'i- er Haraldur Ól-
afsson mannfræðingur og
fráfarandi þingmaður
Framsóknarflokksins.
Hann mun væntanlega
spjalla við Jónínu um
mannfræði, stjórnmál og
ýmislegt fleira og kynna
hlustendum þá tónlist sem
hann hefur dálæti á.
Rás 2:
Tónlistar-
krossgátan
■■■ Tónlistarkross-
-| pr 00 gáta nr. 77 er á
ðdagskrá Rásar 2
kl. 15 sunnudagin 3. maí.
Það er Jón Gröndal sem
leggur gátuna fyrir hlust-
endur.
UTVARP
©
FIMMTUDAGUR
30. apríl
6.45 Veðurfregnir. Bæn.
7.00 Fréttir
7.03 Morgunvaktin. Jón Bald-
vin Halldórsson og Jón
Guðni Kristjánsson. Fréttir
eru sagðar kl. 7.30 og 8.00
og veöurfregnir kl. 8.15. Til-
kynningar eru lesnar kl.
7.25, 7.55 og 8.25. Guð-
mundur Sæmundsson talar
um daglegt mál kl. 7.20.
9.00 Fréttir. Tilkynningar.
9.05 Morgunstund barn-
anna: „Antonía og Morgun-
stjarna'' eftir Ebbu Henze.
Steinunn Bjarman þýddi.
Þórunn Hjartardóttir les (9).
9.20 Morguntrimm. Lesið úr
forystugreinum dagblað-
anna. Tónleikar.
10.00 Fréttir. Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir
10.30 Ég man þá tið. Her-
mann Ragnar Stefánsson
kynnir lög frá liönum árum.
11.00 Fréttir. Tilkynningar.
11.06 Samhljómur. Umsjón:
Anna Ingólfsdóttir.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Hádegisfréttir
12.45 Veðurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.30 ( dagsins önn. Umsjón:
Anna G. Magnúsdóttir og
Guðjón S. Brjánsson.
14.00 Miðdegissagan: „Fall-
andi gengi" eftir Erich Maria
Remarque. Andrés Krist-
jánsson þýddi. Hjörtur
Pálsson les (7).
14.30 Textasmiðjan. Lög við
texta eftirTólfta september.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
16.20 Landpósturinn. Um-
sjón: Sverrir Gauti Diego.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
16.05 Dagbókin. Dagskrá.
16.16 Veöurfregnir
16.20 Barnaútvarpið
17.00 Fréttir. Tilkynningar.
17.05 Síðdegistónleikar.
a. Ensk svíta í d-moll eftir
Johann Sebastian Bach.
Gísli Magnússon leikur á
píanó.
b. „Funérailles” og Konsert-
etýða nr. 2 i f-moll eftir Franz
Liszt. Halldór Haraldsson
leikur á píanó.
17.40 Torgið — Menningar-
straumar. Umsjón: Þorgeir
Ólafsson.
18.00 Fréttir. Tilkynningar.
18.05 Torgið, framhald.
Tilkynningar
18.46 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir
19.30 Tilkynningar
Daglegt mál. Endurtekinn
þáttur frá morgni sem GmA.
mundur Sæmundsson
flytur.
19.46 Að utan. Fréttaþáttur
um erlend málefni.
20.00 Frá tónleikum Sinfóníu-
hljómsveitar (slands í
Háskólabíói 25. þ.m. Stjórn-
andi: Arthur Weisberg.
a. „Myrkraverk" eftir Oliver
Kentish.
b. „Karnival í Róm“ eftir
Hector Berlioz.
c. Sinfónía nr. 5 eftir Gustav
Mahler.
Kynnir Jón Múli Árnason.
21.40 „Hænan", smásaga eft-
ir Mercé Rodoveda. Hólm-
fríður Matthíasdóttir þýddi.
Ari Matthfasson les.
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orð kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir
22.20 „Þeir deyja ungir. ..“
Þáttur um þýska skáldið
Karl Georg Buchner. Um-
sjón: lllugi Jökulsson.
23.00 Kvöldtónleikar
a. Píanósónata í B-dúr op.
106 eftir Felix Mend-
elssohn. Rena Kyriakou
leikur.
b. Strengjakvartett nr. 1 í
D-dúr eftir Pjotr Tsjaíkovskí.
Borodin kvartettinn leikur.
c. Divertimento í B-dúr
K.317 eftir Wolfgang Ama-
deus Mozart.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
Næturútvarp á samtengd-
um rásum til morguns.
SJÓNVARP
FOSTUDAGUR
1. maí
18.30 Nilli Hólmgeirsson.
Fjórtándi þáttur. Sögumaö-
ur örn Árnason. Þýðandi
Jóhanna Þráinsdóttir.
18.55 Litlu Prúðuleikararnir.
Fyrsti þáttur. Nýr teikni-
myndaflokkur í þrettán
þáttum eftir Jim Henson.
Þýöandi: Guðni Kolbeins-
son.
19.15 Á döfinni. Umsjón:
Anna Hinriksdóttir.
19.25 Fréttaágrip á táknmáli
19.30 Poppkorn. Umsjónar-
menn: Guðmundur Bjarni
Harðarson, Ragnar Hall-
dórsson og Guðrún Gunn-
arsdóttir. Samsetning: Jón
Egill Bergþórsson.
20.00 Fréttir og veöur
20.35 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Söngvakeppni sjón-
varpsstöðva í Evrópu 1987.
Lögin í úrslitakeppninni.
Kynnir: Kolbrún Halldórs-
dóttir.
21.00 Göngum í reyklausa lið-
ið. Umsjón: Ingvi Hrafn
Jónsson.
21.10 Landsmót íslenskra
lúðrasveita 1986. Svip-
myndir frá landsmóti i
Reykjavík í fyrra. Sveitirnar
flytja nokkur lög i Langholts-
kirkju og Laugardalshöll.
21.30 Mike Hammer. Tólfti
þáttur í bandarískum saka-
málamyndaflokki. Þýöandi:
Stefán Jökulsson.
22.25 Kastljós. Þáttur um inn-
lend málefni.
22.55 Seinni fréttir
23.05 María Skotadrottning
(Mary Queen of Scots).
Bresk bíómynd frá árinu
1971. Leikstjóri: Charles
Jarrett. Aðalhlutverk: Van-
essa Redgrave, Glenda
Jackson, Trevor Howard,
Patrick McGoohan og Nigel
Davenport. Á sextándu öld
kom upp sú staða í Eng-
landi að tvær konur þóttust
eiga tilkall til krúnunnar, þær
Elisabet Túdor og María
Stúart Skotlandsdrottning.
Maria var kaþólsk og lenti i
illdeilum við þegna sina og
varð að flýja til Englands.
Lýsir myndin siðan sam-
skiptum þeirra drottning-
anna og illdeilum stuðnings-
manna þeirra. Þýðandi:
Dóra Hafsteinsdóttir.
01.15 Dagskrárlok.
(í
0
STOD2
FIMMTUDAGUR
30. apríl
i 17.00 Myndrokk
i 18.00 Knattspyrna
19.06 Teiknimynd
19.30 Fréttir
20.05 Opin lína. Áhorfendur
Stöðvar 2 á beinni línu í
síma 673888.
20.25 Ljósbrot. Valgeröur
______^
Matthiasdóttir kynnir helstu
dagskrárliði Stöðvar 2
næstu vikuna og stiklar á
helstu viöburöum menning-
arlífsins.
21.05 Morðgáta (Murder
She Wrote). Bandarískur
sakamálaþáttur með Ang-
ela Lansbury i aðalhlutverki.
i 21.50 Af bæ í borg (Perfect
Strangers). Bandarískur
myndaflokkur.
i 22.15 Tilgátan (Nosenko).
Bandarísk sjónvarpsmynd
með T ommy Lee Jones, Jos-
ef Sommer, Ed Lauter og
Oleg Rudnik í aðalhlutverk-
um. Þrem mánuöum eftir
morðið á John F. Kennedy
er Warren-rannsóknar-
netndin að kanna allar
mögulegar tilgátur og sam-
særiskenningar. Var Lee
Harvey Oswald einn að
verki eða voru þeir fleiri?
KGB-maðurinn, Yuri Nos-
enko, lekur upplýsingum
sem nefndinni finnst
ástæða til að kanna nánar.
i 23.45 Charley Hannah
(Charley Hannah).
Bandarísk sjónvarpsmynd
með Robert Conrad, Red
West, Shane Conrad og
Joan Leslie í aðalhlutverk-
um. Leikstjóri er Peter Hunt.
Þrautreyndur lögreglumað-
ur veitir þrem afbrotaungl-
ingum eftirför. Fyrir slysni
verður hann einum þeirra
að bana. Vinur drengsins
er mikilvægt vitni í málinu
og í Ijós kemur að hann er
með glæpamenn á hælun-
um. Hannah tekur að sér
að leysa mál, drengsins.
01.15 Dagskrárlok.
1GB
FIMMTUDAGUR
30. apríl
00.10 Næturútvarp. Hjörtur
Svavarsson stendur vakt-
ina.
6.00 i bítið. Erla B. Skúladótt-
ir léttir mönnum morgun-
verkin, segir m.a. frá veðri,
færð og samgöngum og
kynnir notalega tónlist í
morgunsárið.
9.05 Morgunþáttur I umsjá
Kristjáns Sigurjónssonar og
Siguröar Þórs Salvarssonar.
Meðal efnis: Tvennir timar
á vinsældalistum, tónleikar
um helgina, verðlaunaget-
raun og Feröastundin með
Sigmari B. Haukssyni.
12.20 Hádegisfréttir
12.45 Á milli mála. Leifur
Hauksson kynnir létt lög við
vinnuna og spjallar við
hlustendur.
16.05 Hringiðan. Umsjón:
Broddi Broddason og
Margrét Blöndal.
19.00 Kvöldfréttir
19.30 Vinsældalisti rásar 2.
Gunnar Svanbergsson og
Georg Magnússon kynna
og leika vinsælustu lögin.
20.30 i gestastofu. Sonja B.
Jónsdóttir tekur á móti gest-
um.
22.05 Nótur að Norðan frá
Ingimar Eydal. (Frá Akur-
eyri).
23.00 Við rúmstokkinn. Guð-
rún Gunnarsdóttir býr
hlustendur undir svefninn
með tali og tónum.
00.10 Næturútvarp. Snorri
Már Skúlason stendur vakt-
ina til morguns.
02.00 Á frívaktinni. Þóra Mar-
teinsdóttir kynnir óskalög
sjómanna. (Endurtekinn
þáttur frá mánudegi, þá á
rás 1.)
Fréttir kl. 7.00, 8.00, 9.00,
10.00, 11.00, 12.20, 15.00,
16.00, 17.00, 18.00, 19.00,
■ 22.00 og 24.00.
SVÆÐISÚTVARP
AKUREYRI
18.03—19.00 Svæöisútvarp
fyrir Akureyri og nágrenni —
FM 96,5
M.a. er leitaö svara við
spurningum hlustenda og
efnt til markaöar á Markað-
storgi svæðisútvarpsins.
Umsjón: Þórir Jökull Þor-
steinsson.
FIMMTUDAGUR
30. apríl
07.00—09.00 Á fætur með
Sigurði G. Tómassyni. Létt
tónlist með morgunkaffinu.
Sigurður lítur yfir blööin og
spjallar við hlustendur og
gesti. Fréttir kl. 7.00, 8.00
og 9.00.
09.00—12.00 Páll Þorsteins-
son á léttum nótum. Palli
leikur uppáhaldslögin ykkar,
gömul og ný. Tapað fundiö,
opin lína, mataruppskrift og
sitthvaö fleira. Fréttir kl.
10.00, 11.00
12.00—12.10 Fréttir
12.10—14.00 Þorsteinn J. Vil-
hjálmsson á hádegi. Frétta-
pakkinn, Þorsteinn og
fréttamenn Bylgjunnar fylgj-
ast með því sem helst er í
fréttum, segja frá og spjalla
við fólk í bland við létta tón-
list. Fréttir kl. 13.00 og
14.00.
14.00—17.00 Pétur Steinn á
réttri bylgjulengd. Pétur spil-
ar síödegispoppiö og spjall-
ar við hlustendur
Fréttir kl. 15.00, 16.00 og
17.00.
17.00—19.00 Ásta R. Jóhann
esdóttir í Reykjavlk síðdeg-
is. Þægileg tónlist hjá Ástu,
hún lítur yfir fréttirnar og
spjallar við fólkið sem kemur
við sögu. Fréttir kl. 18.00.
19.00—20.00 Anna Björk,
Birgisdóttir á flóamarkaöi
Bylgjunnar. Flóamarkaður
og tónlist. Fréttir kl. 19.00.
20.00—21.30 Jónína Leós
dóttir á fimmtudegi. Jónína
tekur á móti kaffigestum og
spilar tónlist að þeirra
smekk.
21.30—23.00 Spurningaleikur
Bylgjunnar. Jón Gústafsson
stýrir verðlaunagetraun um
popptónlist.
23.00—24.00 Vökulok. Frétta-
tengt efni og þægileg tónlist
í umsjá Elínar Hirst frétta-
manni.
Fréttir kl. 23.00.
24.00—07.00 Næturdagskrá
Bylgjunnar. Tónlist og upp
lýsingar um veður og flug
samgöngur.
Fréttir kl. 03.00.
Útrás
FIMMTUDAGUR
30. apríl
17.00-18.00 MR kveikir á
tækjunum.
18.00—19.00 MR tjáir sig í
talstofu.
19.00—20.00 Tónlist. glens
og rifrildi við símann? (FA).
20.00—21.00 Þáttur í umsjón
umsjónarmanna (IR).
21.00—23.00 Frægð og frami.
Umsjón Hlynur o.fl. (FB).
23.00—01.00 Bara viöl
Hjördís Arnardóttir velur sér
karlmenn í þáttinn og slær
botninn í Útrás þetta fyrsta
útsendingarár (MH).