Morgunblaðið - 30.04.1987, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1987
13
Vorferðalag
barnastarfs
kirkjunnar á
Seltjarnamesi
BARNASTARF kirkjunnar á Selt-
jamamesi lýkur vetrarstarfi sinu
nk. laugardag, 2. maf, með þvi að
farið verður i vorferðalag.
Lagt verður af stað frá kirkjunni
kl. 13.00 til Þingvalla, þar sem
grillaðar verða pylsur og farið í leiki.
Nauðsynlegt er að foreldrar eða
eldri systkini fylgi bömum yngri en
fimm ára, en auðvitað eru allir for-
eldrar velkomnir með, segir í frétt
frá sóknarpresti. Kostnaður vegna
rútu er 200 kr. fyrir bam, en annars
má fá allar aðrar upplýsingar um
ferðalagið á skrifstofu sóknarprests.
Frá og með nk. sunnudegi breytist
messutími í Seltjamameskirkju og
verður því hér eftir kl. 11.00 f.h. I
stað kl. 14.00 eins og verið hefur (
vetur.
Svart á hvítu:
Gefur í annað
sinn út Háva-
mál og Völuspá
BÓKAFORLAGIÐ Svart á hvitu
hf. hefur öðru sinni sent frá sér
bókina Hávamál og Völuspá sem
kom út skömmu fyrir siðustu jól
og seldist upp á þremur dögum.
Að þessu sinni er útgáfan aukin
frá þvi sem hún var því nú birtast
Hávamál öll en i fyrri útgáfunni
var einungis Gestaþáttur auk
Völuspár. Kvæðin eru með
nútfmastafsetningu og skýringum
eftir Gisla Sigurðsson sem einnig
ritar eftirmála.
Hávamál eru einstök í bókmennt-
um heimsins. Þau geyma siðfræði
sem á rætur sínar að rekja til nor-
raennar heiðni en er sígild og á við
í dag á sama hátt og fyrir þúsund
árum. í kvæðinu eru ráðleggingar
um almenna hegðun, viskuleit,
menntun og hófsemi, umræða um
félagsþörf mannsins og trygglyndi,
ástamál og undirferli, galdra og
heiðna speki. í skýringum við Háva-
mál er stuðst við nýjustu rannsóknir
á kvæðinu og bryddað upp á ferskum
hugmyndum.
Völuspá er eitt stórbrotnasta
kvæði norrænnar menningar. Þar er
sagt frá sköpun heimsins, tilkomu
hins illa og stigmögnun þess þar til
óvinir goða og manna láta til skarar
skríða í ragnarökum þar sem allt
sekkur og brennur til þess þó að rísa
upp aftur, fegurra og bjartara en
fyrr. í kvæðinu er borin fram þung
siðferðisáminning sem er brýn í heimi
þar sem menn ljúga og drepa í bar-
áttu um auð og völd.
Texti Völuspár er eingöngu tekinn
úr aðalhandriti Eddukvæða, Kon-
ungsbók, og verður það til þess að
kvæðið birtist almenningi í nokkuð
annarri mynd en hingað til. Við það
falla stoðir undan ýmsum hugmynd:
um fræðimanna um Völuspá. í
eftirmala bókarinnar gerir Gísli Sig-
urðsson grein fyrir þeim helstu og
ennfremur hvemig hægt er að skýra
kvæðið í ljósi texta Konungsbókar.
'.J-tóR TBV iöfi mi(j?rlfrétt*tUkjrp«ingu)
TOL VU-SUM ARBUÐIR
fyrir æskuna
IITllirL Á sumri komanda mun Tölvufræðslan leggja sitt af mörkum
ll * w Ull\l fyrir æskuna með því að gefa unglingum á aldrinum 9-14
1 m ||*|%« ára kost á ógleymanlegri dvöl í sumarbúðum skólans á
ijivAJl D1 Varmalandi í Borgarfirði, undir handleiðslu reyndra starfs-
manna á sviði tölvu- og íþróttakennslu.
VARMALANDI
BORGARFIRÐI
Sumarbúðirnar eru staðsettar i sér-
lega fögru umhverfi, þar sem aðstaða
til kennslu og iþróttaiðkana er til
fyrirmyndar. A staðnum er einnig
nýleg og vönduð sundlaug. Dvalið er
á heimavist grunnskólans á Varmal-
andi.
ÞATTTAKENDUR
Námskeiðin standa yfir 5 daga frá
mánudegi til föstudags. Þau eru optn
drengjum og stúlkum á aldrinum 9
til 14 ára hvaðanæva af landinu.
Þátttakaendum er ekki skipt i ald-
urshópa heldur smærri starfshópa
eftlr þekkingu og reynslu á tölvum.
T0LVUKENNSLA
Markmið tölvukennslunar er að
þjálfa unglingana i notkun tölva, for-
ritun og notkun tllbúinna forrita.
Kennd eru m.a. eftirfarandt atriði:
★ Grundvailarhugtök tölvufræðlnnar.
★ Notkunarniögulelkar og notkunarsvlð tölva.
★ Forrltunarmállð BASIC og verkefnl leyst.
★ Notkun ritvinnslu-oggagnasafnskerfa.
★ Framtiðarhorfuri tölvumálum.
IÞROTTA
KENNSLA —
KVOLDVOKUR
Markmið íþróttakennslunar er að
veita unglingum sem fjölbreyttasta
þjálfun i algengum íþróttagreinum
og leikjum. Stunduð er m.a. þjálfun
í fótbolta, handbolta, blaki og helstu
greinum fijálsra iþrótta auk leikja. Á
kvöldvökum sem eru i umsjón ungl-
inganna og starfsfólks er farið í
þroskandi leiki, sagðar sögur, mynd-
bandasýningar o.fl. o.fl.
Efnt verður til aðeins 7 námskeiða
FJÖLDI á tímabilinu 1. júní ttl 24. Júli. Nám-
NÁMSHÓPA skeiðshóparntr eru eftirfarandi: Hópur 1 1. júní-5. Júní
Hópuril 9.júní-I5.Júní
HópurlII 21.júni-26.júní
HópurlV
Hópur V
Hópur VI 13. Júlí-17. Júlí
HópurVII
ATHUGIÐ:
Væntanlegum þátttakendum er
bent á að innritanir hefjast
mánudaginn 4. maí klukkan
09.00 á skrifstofu skólans að
Borgartúni 28.
FORELDRAR
Verið framsýn — tryggið framtíð
barna ykkar á tölvuöld.
Nanari Nánari upplýsingar fást á skrifstofu skóians, símar 687590 og 686790
* s|nffar allavirkadagafrákl. 09.00 til 12.00 og 13.00 til 17.00. Stutturkynning-
uppiysasigar arbaeklingurerfáanleguráskrifstofuskólans.
TÖLVUNÁH ER F JÁRFESTING í FRAHTÍÐ ÞINNI
TÖLVU FRÆÐSLAN
Borgartúni28, Reykjavík