Morgunblaðið - 30.04.1987, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1987
GEFÐU
ÞÉR TÍMA
og lestu þetta!
VÆIIií?
tómatsósa er framleidd eingöngu
úr ómenguðum efnum náttúrunnar.
án gerviefna til litunar án gervihleypiefna
án gervibragdefna án gervirotvarnarefna
Heinz treystir betur gömlu
og góðu náttúruetnunum, sem eru:
sykur ★ edikt ★ salt
Heinz ómengud úrvalsvara.
\
Minningartónleikar um Jean-Pierre Jacquillat:
Viljum sýna virðingu
okkar og þakklæti
Jean—Pierre Jacquillat
-segir Guðný
Guðmundsdótt-
ir, fiðluleikari
MINNINGARTÓNLEIKAR um
Jean—Pierre Jacquillat verða
haldnir í Bústaðakirkju i kvöld.
Tónleikarnir hefjast klukkan
20.30 og á efnisskránni eru
verk eftir Beethoven, Schu-
mann, Debussy; Messiaen og
César Franck. Agóðinn af tón-
leikunum mun renna til bygg-
ingar tónlistarhúss hér í
Reykjavík. Flytjendur á þessum
minningartónleikum verða
Guðný Guðmundsdóttir, fiðlu-
leikari, Gunnar Kvaran, selló-
leikari, Einar Jóhannesson,
klarinettleikari, Anna Málfríð-
ur Sigurðardóttir, píanóleikari
og Martin Berkovsky, píanó-
leikari.
Blaðamaður Morgunblaðsins
spurði Guðnýju Guðmundsdóttur,
fíðluleikara, hvort Jacquillat hefði
átt einhvem þátt í því að ákveðið
var að ráðast í byggingu tónlistar-
húss á íslandi.
„Hann sýndi þessu máli mjög
mikinn áhuga," sagði Guðný, „og
okkur fannst það vera mjög mikið
í hans anda að láta ágóðann renna
til þessa málefnis. Það er þó enn
langt þangað til tónlistarhús verð-
ur að veruleika hér, því okkur
skortir svo mikið íjármagn.
Jacquillat hafði mikil áhrif á
íslenkt tónlistarlíf. Hann var aðal-
stjómandi Sinfóníuhljómsveitar
íslands í sex ár, eða frá 1980 til
1986. Áður hafði hann verið
gestastjómandi frá árinu 1972.
En hann ætlaði að halda áfram
að koma til íslands þótt tímabil
hans sem aðalhljómsveitarstjóra
væri útrunnið. Á döfínni var
áframhaldandi samstarf við hann
og búið að leggja drög að því að
hann kæmi til að vinna með okk-
ur í vetur.
Jacquillat hafði verið svo lengi
í nánu samstarfí við okkur og
þarna höfðu myndast sterk bönd
og hann var mikill vinur okkar í
hljómsveitinni. Við sem stöndum
að þessum tónleikum emm bæði
samstarfsfólk hans úr Sinfóníu-
hljómsveit íslands og vinir hans.
Með þessum tónleikum viljum við
sýna honum virðingu okkar og
þakklæti."
Bygging tónlistarhúss:
Eigum enn langt í land
-seg’ir Ármann Örn Ármannsson
„JACQUILLAT var einn af
hvatamönnum þess að hér yrði
byggt tólistarhús“ sagði Ár-
mann Örn Ármannsson, einn
af forsvarsmönnum um bygg-
ingu hússins. „Hann átti mjög
marga vini á íslandi og ég
kynntist honum gegnum aðal-
vini hans, hjónin Eddu Jóns-
dóttur og Örn Jóhannsson.
Hann var einnig aðalhvatamað-
urinn að því að við legðum
áherslu á að byggja upp tónlist-
arlif i landinu og til þess þarf
að byggja yfir tónlistarflutn-
ing. Hann var því kveikjan að
því að farið var að huga að
þessum málum.
Þetta er að vísu viðamikið verk-
efni og við eigum langt eftir. Þó
er nú búið að skrifa undir samn-
ing við arkitektinn sem teiknar
húsið og gert er ráð fyrir að aðal-
teikningum verði lokið á þessu
ári. Þessi samningur á eftir að
hljóta staðfestingu fulltrúaráðs-
fundar í næstu viku. Það tók mjög
langan -tíma að ganga frá samn-
ingnum, því arkitektinn er búsett-
ur í Noregi.
Við erum að reyna að reisa hús
sem uppfyllir ströngustu kröfur.
Það er gífurlega mikil vinna að
teikna og hanna svona hús og
ekki talið óeðlilegt að 15% af
byggingakostnaði sé fyrir hönn-
un. Við stórbyggingar af þessu
tagi tekur sjálf hönnunin lengri
tíma en byggingin. En eins og ég
segi, við vitum að við eigum langt
í land, en erum ákveðin í að láta
dráuminn rætast," sagði Ármann.
OPEL
GM
Þú ættir aö slást í hóp þeirra öruggu
og vera viss um aö komast
á leiöarenda.
OPEL
CORSA
haö er ekki aö ástæöulausu
aö OPEL CORSA er nú einn söluhæsti
og vinsælasti bíll Evrópu
jafnt meðal einstaklinga sem bílaleiga.
Peir vita
aö þaö má treysta á OPEL CORSA
þótt hann vökni, þótt hann snjói,
þótt hann frysti.
ju^uímmri
Vertu viss!
Veldu CORSA!
BÍLVANGUR st=
HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300