Morgunblaðið - 30.04.1987, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 30.04.1987, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1987 15 Myndlist Valtýr Pétursson Tveir ungir myndlistarmenn sýna verk sín þessa dagana í Nýlistasafninu við Vatnsstíg og kalla sýningu sína Sjá. Þeir eru í fyrsta sinn á ferð hér í borg, en hafa haldið sýningar norður á Akureyri og munu norðanmenn, ef ég hef rétt skilið sýningar- skrána. Ungu mennimir bera nöfnin Aðalsteinn Svanur Sig- fusson og Hlynur Helgason. Þessir ungu menn nálgast við- fangsefni sín á nokkuð ólíkan hátt. Annar þeirra hallast nokkuð að hinu abstrakta málverki og færir hugmyndir sínar í þann bún- ing, að úr verða form og litir, frekar en þekkjanlegar fyrir- myndir. Það er Hlynur Helgason, sem þannig vinnur og sýnir okkur nokkur tök á litameðferð, en það fer ekki milli mála, að hér er byij- andi á ferð. Enginn dómur skal lagður á, hvert framhaldið verður, en fátt er eins eðlilegt og að vaði nokkuð á súðum hjá byijendum í faginu, en nú til dags eru menn að flýta sér og sumir um of. Hlyn- ur nær ekki alltaf sem beztum tökum á því, sem hann ætlar sér í málverkinu, en hann á skemmti- lega spretti. Aðalsteinn Svanur byggir myndgerð sína meir á manneskj- unni. Hann fæst við að túlka samband manns og konu, en HAMSUN Myndlist Valtýr Pétursson í anddyri Norræna hússins stendur nú yfír sýning á teikning- um við ritverk Hamsuns. Þar eru grafísk verk, gerð við eftirtalin verk Hamsuns: Norðurland, Pan, Benoni, Gróður jarðar, Villikórinn og Björger, alls eru þetta 60 myndir. Það er samlandi Hamsuns, Karl Erik Harr, sem gert hefur þessi verk og er nú hingað kominn til að lofa okkur að njóta starfs síns. Hamsun er óþarft að kynna fyrir þeim, er á annað borð eru læsir á íslenzka tungu. Hann hefur allt frá fyrstu tíð verið mikið lesinn hér á landi stundum er það konan ein, sem í hlut á. Nokkuð á Aðalsteinn í vandræðum með litameðferð í þeim verkum, sem eru einna fíguratívust, ef svo vafasamt orðalag má láta frá sér fara, en uppi á lofti í Nýlistasafninu eru nokkrar smámyndir, sem sýna landslag og kirkjur, og fundust mér þær bera einna bezt merki um litasjón Aðalsteins Svans. Auðvitað eru þetta byijendaverk eins og hjá félaga hans, en það er viss spenna í verkum þeirra beggja, sem er af hinu góða og því eftirtektarverð. Það er svo margt, sem boðið er upp á í myndlist nú um stund- ir, að vart gefst tóm til að fylgjast með öllu því, sem fram kemur. Margir eru vart tilbúnir í slaginn, ef svo má segja, og héldur fljótir á sér með að haída sýningar. Hér á árum áður luku menn námi og sýndu síðan, þegar nokkurri leikni og þroska hafði verið náð, nú eru menn hins vegar uppteknir af ýmsu því, sem þeir flokka undir frelsi og önnur fögur hugtök, en því miður ber afraksturinn iðulega ekki svip annars en meðal- mennsku. og dáður, enda til snilldarþýðingar á verkum hans á okkar máli. Fáir eða engir höfundar á Norðurlönd- um hafa veitt þeim, sem þetta ritar aðra eins ánægju og Hams- un, að Halldóri Laxness einum undanskildum. Það er langt síðan Sultur barst á fjörur mínar, en síðan hefur mér ætíð verið mikil veizla í að rýna í verk þessa ein- staka snillings. Innviðir bókmenntaverka Hamsuns eru margir úr kunnug- legu umhverfí fyrir íslending, og það eru myndir Karls Eriks Harr einnig. Það er lífíð í Norður- Noregi, sjósókn og smábærinn, sumarið og ástin, mannlegur breyskleiki og baráttan við nátt- úruöflin. Allt er þetta í lesmáli Hamsuns og einnig í myndmáli Harrs. Hann færir yfir í grafísk verk sín svipmyndir, sem hann hefur valið úr verkum rithöfund- arins og gerir þær tæknilega mjög vel úr garði. En mér fínnst eins og vanti það átak í myndir þess- ar, sem svó einkennir snilld Hamsuns. Það er eins og sum þessara veka séu ofunnin og missi við það nokkum myndrænan kraft, sem maður hlýtur að sakna í samanburðinum við ritverk eins og Pan. Myndimar frá sjónum og af fískimiðunum fundust mér gefa meira af lífínu í Norðurlandi en annað af þessum myndum. þar fer Harr á kostum við og við, og allt er þetta afskaplega fágað. Meira að segja spjátmngurinn Benoni verður fínn karakter í þessum umbúðum. Hann á það ef til vill skilið, ég unni honum þess ágætlega. Þetta em skemmtileg verk og það er óvenjulegt að tvær sýning- ar á teikningum skuli vera í gangi hér í borg á sama tíma. Hin er í Gallerí Borg og er allt annars eðlis. Þar sem ég er óforbetran- legur aðdáandi meistara Hamsuns þakka ég sérlega fyrir þessa snotm sýningu, sem er skemmti- leg í alla staði. Borg, Mikla- holtshreppi: Alhvítjörð flesta morgna Borg, Miklaholtshreppi. Þótt almanakið segi okkur að bráðum sé komin vika af sumri, er lítill sumarsvipur á umhverf- inu ennþá. Flesta morgna er alhvít jörð, því vestlæg átt hefur verið ríkjandi undanfarið með snjó- og slydduéljum. Sólin hefur þó brætt þetta snjóföl að degin- um. Hitastig er fremur lágt. Jörð er klakalítil. Ef hlýnaði, væri gróður fljótur að taka við sér. Ástand vega er afar bágborið hér. Þungatakmarkanir hafa nú verið hertar, sem þýðir margvísleg óþægindi. Mikið er eftir að flytja hingað af áburði, sem nú tefst vegna þessa átands. Bóndi hér í sveitinni, sem verið hefur á vertíð í Ólafsvík síðan í byijun þessa árs, kom heim af vertíðinni síðastliðinn sunnudag. Svo slæmir vom vegirnir á Fróðárheiði og Kerlingaskarði, að hann varð að fara um Heydal til að komast heim. Er það æði rnikill krókur. Vegir hér þurfa skjótra endurbóta við. Aukið fjár- magn til vega í héraðið er sú krafa, sem við óskum eftir og það allvem- lega. Páll A EFLUM STUÐNING VIÐ ALDRAÐA. MIDIÁ MANN FYRIR HVERN ALDRAÐAN. Umboð í Reykjavík * * og nágrenni: A0ALUMB0Ð: Tjarnargötu 10, símar: 17757 og 24530.1 Sparisjódur Reykjavíkur og nágrennis. Austurströnd 3, Seitjarnarnesi, sími: 625966. Bókaverslunin Hugföng, Eiðistorgi, sími: 611535. Verslunin Neskjör, Ægissíðu 123, símar: 19832 og 19292.0 Bókaverslunin Ulfarsfell, Hagamel 67, sími: 24960. Sjóbúðin Grandagarði 7, sími: 16814. Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis, Skólavörðustíg 11, sími: 27766. Passamyndirhf., Hlemmtorgi, sími: 11315. Sparisjóðurinn Pundið, Hátun 2 B, sími: 622522. Bókaverslunin Griffill, Síðumúla 35, sími: 36811. Hreyfill, bensínafgreiðsla, Fellsmúla 24, sími: 685521. Paul Heide Glæsibæ, Álfheimum 74, sími: 83665. Hrafnista, skrifstofan, símar: 38440 og 32066. Bókabúð Fossvogs, Efstalandi 26, sími: 686145. Landsbanki Islands, Rofabæ 7, sími: 671400. Bókabúð Breiðholts, Arnarbakka 2, sími: 71360. Straumnes, Vesturberg 76, sfmar: 72800 og 72813. KÓPAVOGUR: Bóka- og ritfangaverslunin Veda, Hamraborg 5, sími: 40877. Borgarbúðin, Hófgerði 30, sími: 40180. GARDABÆR: Bókaverslunin Gríma, Garðatorg 3, sími: 656020. HAFNARFJÖRÐUR: Kári- og Sjómannafélagið, Strandgötu 11-13, sími: 50248. Hrafnista Hafnarfirði, sími: 53811. MOSFELLSSVEIT: Bóka- og ritfangaverslunin Ásfell, Háholt 14, sími: 666620. Þökkum okkar traustu viðskiptavinum og bjóðum nýja veikomna. Happdrætti Dvalarheirrúlis Aldrnöm Sjómanna

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.