Morgunblaðið - 30.04.1987, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 30.04.1987, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1987 Ljósm. Jónas Valdemarsson. SÖNGUR INNI OG ÚTI - Hvar sem farið var reyndust kórfélagar tilbúnir að taka lagið. Hér er sungið í rómversku hringleikahúsi í Caesareu fyrir botni Miðjarðarhafs. Hljómburðurinn í þessu tveggja alda leikhúsi var stórfenglegur. sækti burt frá kibbutzim og menn yrðu að gera eitthvað til að halda í það. Vesturlandabúanum er það und- arleg tilhugsun að vera staddur i „peningalausu" samfélagi. Því þama eru ekki greidd nein laun. Matsalurinn er sameiginlegur fyrir alla kibbutzna (félaga í kibbutz- num) og sem stofnun ber hann ábyrgð á allri velferð manna. Seinna skemmtum við Ámi okkur saman yfir þeim upplýsingum að hægrimenn í ísrael séu að leggja til að koma á ríkisreknum almanna- tiyggingum en vinstri menn leggist af öllum þunga á móti því þá yrði megintilgangurinn tekinn af kibb- utzim! Það er ekki bara ritmálið sem gengur i öfuga átt í þessu landi! Að vísu þurfa kibbutznar á pen- ingum að halda þegar þeir fara út fyrir samyrkjubúið. Þannig segir Meni mér að hann fái sérstakan fjárstyrk til þess að geta annast tengdaforeldra sem hann á í Tel Aviv. Það telst eðlilegt að hann þurfi að heimsækja þá reglulega. Hins vegar er bannað, segir hann, að eiga einkabíla, en kibbutzinn á Dálítil ferðasaga frá Landinu helga eftirHeimi Pálsson II. grein Hefur að segja af kibbutzum Eftir morgun í Tel Aviv, sem fyrir skipulagsfólki fór að mestu í samræður á skrifstofu, var lagt af stað til Kibbutz Givat Brenner eftir hádegið. Þar átti að taka gist- ingu fyrir næstu nótt og halda fyrstu tónleikana um kvöldið. Við höfðum lesið okkur til í hand- bókum um kibbutz. Fararstjórinn hafði reynt að rifja upp greinar og viðtöl úr Samvinnunni um þetta undarlega mannfélagsform. Kannski hafði engin uppriíjun né handbókarlestur þó eiginlega leitt mann til meiri skilnings en þess sem felst í að vita að kibbutz sé ein- tala, fleirtalan heiti kibbutzim. Kibbutzamir eru hugmyndalega og í framkvæmd miklu eldri en ísra- elsríki. Fyrsti kibbutzinn var stofn- aður árið 1909 (eða 1911) af hópi innflytjenda frá Austur-Evrópu. Hugmynd þeirra var byggð á því sem handbækur kalla „hugsjónas- ósíalisma" og fólst raunverulega í afnámi eignarréttarins (nema í fá- einum persónulegum munum) í þágu heildarinnar, félaganna í kibb- utznum. Ef borið er saman við sovésku samyrkjubúin, sem við höf- um víst öll hejrrt eitthvað um, virðist munurinn fyret og fremst fólginn í því að hin sovésku eru „ríkisbú" og hafa mjög takmarkaða sjálf- stjóm þar sem hin ísraelsku eru sjálfstaeðar einingar, enda venju- lega talið að hugmyndir vefaranna frá Rochdale og þar með hug- myndafræði samvinnustefnunnar hafi haft mikil áhrif á skipulag kibb- utzanna frá öndverðu. Það form þróaðist áfram yfir í það sem heitir moshavim og er samvinnubú smá- bænda. Annað meginatriði er það að allir geta að eigin vild yfirgefið kibbutzinn — a.m.k. samkvæmt kenningunni. Einhvem veginn þannig var myndin sem við fóram með út af þessum samyrkjubúum. Hið fyreta sem við kynntumst heitir Kibbutz Givat Brenner og myndi víst út- leggjast „Samyrkjubúið í Brenner- hæð“ en Chaim Brenner þessi var þjóðhetja úr liðnu stríði og féll þar sem nú er við hann kenndur kibb- utz. Þetta er eitt stæreta samyrkju- búið í ísrael og rekið á kommúnísk- um grundvelli. Þar er samt verið að gera ýmsar skipulagsbreytingar, sagði talsmaður þess okkur. Meðal annars er búið að leggja niður þann sið sem Vest.urlandabúar hafa ein- att talið einna vafasamastan í kibbutzum: að hafa böm allt frá því á fyreta ári ævinnar í sérstökum húsum við sérmenntaða bama- gæslu nema ákveðnar stundir þegar þau fá að heimsækja foreldra sína. Umræðumar stóðu í fimm ár og fyrir þrem áram var ákveðið að leggja formið af, sagði Meni Tsafr- ir, leiðbeinandi okkar. Nú koma menn í pílagrímsferðir frá öðram kibbutzim til þess að læra hvemig eigi að fara að þessu. Þegar Ámi Sigfússon, formaður félagsmála- ráðs Reylqavíkurborgar, spurði nánar út í málið fékk hann að vita að ástæðan væri sú að ungt fólk Ljósm. HP. FYRIRLESTUR UM SAMYRKJUBÚ - Ferðafélagamir reyndu að fræðast um land og þjóð þegar færi gafst. Hér segir Meni Tsafrir hópnum frá kibbutzum og leynir sér ekki af svip áheyrenda að þeim þykja þetta merkileg tíðindi. í EYÐIMERKURSÓLINNI - Þorgerður Ingólfsdóttir og greinar- höfundur hafa ljóslega heyrt eitthvað skemmtílegt af vörum Ijós- myndarans, Knut Ödegard — nema þeim sé einfaldlega svona skemmt með eyðimörkina í baksýn. Undir fótum eru rústir Jerikóborgar. nokkra bíla og „þurfi ég að fara eitthvað á bíl fæ ég afnot af ein- hveijum þeirra". Þegar þarf að kaupa föt er sótt um ijárveitingu til þess. Okkur byijar að skiljast að við verðum lengi að skilja þetta samfélag og hjá einhvetjum kviknar strax sú vitund að við höfum enga heimild til að fordæma, jafnvel ekki til að hafa skoðun á þessari tilvera. Sú vitund á eftir að styrkjast og staðfestast á næstu dægram. Auðvitað eiga kibbutzim sér sögulega skýringu. Þegar ísra- elsríki var stofnað lá í augum uppi að efnahagslegar forsendur væra bágar til þess að byggja upp „evr- ópskt" samfélag — og flestir inn- flytjendumir vora einmitt evrópskir eða vesturlenskir í hugsun. Það þurfti að koma í veg fyrir einka- neyslu, einkum þar sem þegar í upphafí varð ljóst að nauðsynlegt væri að koma upp hervömum. Er vant að sjá hvaða aðferð önnur hefði getað gert hinu nýja ríki kleift að lyfta þeim grettistökum sem við manni blasa í ræktun og allri upp- byggingu. 011 neysla er sparleg á kibbutzum hvar sem við komum. Húsnæðið er HÉR VAR BLÁSIN EYÐIMÖRK ÞEGAR VIÐ KOMUM Víða voru samyrkjuhúin reist við aðstæður sem okkur þættí ómenn- skar. Þar sem þessi tré og þykkblöðungar byrgja nú útsýn var blásin eyðimörk „þegar við komum“ eins og leiðsögumaðurinn orð- aði það. Reyndar er staðurinn í útjaðri Góbí-eyðimerkurinnar. ALLT ER BREYTINGUM UNDIRORPIÐ - Margt hefur breyst við Genesaretvatn frá dögum Jesú Krists. Samt bregður þar enn fyrir fiskimönnum— sem ekki hafa snúið sér að því að veiða menn. Þessi piltur hefur sjálfsagt látið sig dreyma um lostætíð Sanktí-Péturs- fiskinn úr Genesaretvatni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.