Morgunblaðið - 30.04.1987, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FlMMTUDAGUR 30. APRÍL 1987
Sannleikanum verð-
ur hver sárreiðastur
eftir GuðmundÁrna
Stefánsson
Það er alltaf hálfdapurlegt, þegar
dagfarsprúðir og alla jafna mæt-
ustu menn missa stjom á skapi sínu.
En það gerist, því miður. Slíkt var
upp á teningnum í Morgunblaðinu
sl. laugardag, á kosningadag, en
þar geystist Jóhann Bergþórsson,
forstjóri Hagvirkis hf. og bæjarfull-
trúi Sjálfstæðisflokksins, fram á
ritvöllinn í þykkum moldarmekki í
miklu bræðiskasti og slettir óhróðri
og gífuryrðum á alla kanta.
Megininntak greinar Jóhanns er
hversu Guðmundur Ámi Stefáns-
son, undirritaður, er voðalegur
maður að hans mati; óhæfur stjóm-
andi og hreinlega vond manneskja.
Ég læt mér sleggjudóma og skítkast
pólitískra andstæðinga í léttu rúmi
liggja og kippi mér ekki upp við
vonskukast Jóhanns Bergþórsson-
ar; hann má mín vegna hafa allt á
homum sér í minn garð og kasta
úr skálum reiðinnar. Hitt þykir mér
lakara, þegar hann vegur að hags-
munum Hafnarfjarðarbæjar og
bæjarbúa. Því er ástæða til að
svara. Og skal gert.
Forstjórinn eða
bæjarfulltrúinn?
Grein forstjóra Hagvirkis úir og
grúir af efnislegum rangfærslum
og væri efni í heilan greinarflokk
ef ætti að elta ólar við öll þau ósann-
indi, og allan þann þvætting, sem
honum tekst að koma fyrir í einni
blaðagrein. Hér skal því aðeins
drepið á það helsta.
Áðeins þetta áður: Kveikjan að
sjóðandi reiði forstjóra Hagvirkis
virðist vera rammagrein sem birtist
í Alþýðublaði Hafnarfjarðar fyrir
skömmu. í þeirri grein var einföld
spuming lögð fram: Hvenær er
Jóhann Bergþórsson bæjarfulltrúi
og hvenær er hann forstjóri Hag-
virkis? Og tvö mál voru tekin sem
dæmi: Kjarasamingur Hafnarfjarð-
arbæjar við verkafólk hjá bænum
og bygging húss fyrir fískmarkað.
í þessum tveimur málum hafa bæj-
arfulltrúar óneitanlega velt dálítið
vöngum yfír því hvað hafí ráðið
orðum og gjörðum Jóhanns Berg-
þórssonar í þessum málum — þ.e.
ábyrgð hans og skyldur sem bæjar-
fulltrúi eða forstjóratrúnaður við
fyrirtæki hans, Hagvirki. Skýr
spuming og eðlileg. Jafnaðarmenn
leggja á það áherslu í stjómkerfínu
að siðferðis sé gætt; hafna því
gamla kerfí þegar fyrirgreiðslan og
klíkuskapurinn voru allsráðandi.
Þetta eiga hins vegar fulltrúar hins
gamla valdakerfís erfítt með að
skilja, eins og Hafskipsdæmin
sanna, jafnt í Hafnarfírði sem ann-
ars staðar.
Og það er svo langur vegur frá
að grein bæjarfulltrúans og for-
stjórans Jóhanns Bergþórssonar í
Morgunblaðinu á kosningadag hafí
svarað þessari lykilspumingu. Nei,
þvert á móti. Var það bæjarfulltrú-
inn Jóhann sem skrifaði greinina
og hafði áhyggjur af hagsmunum
bæjarins eða var það forstjórinn
Jóhann, sem óttaðist um hag fyrir-
tækis síns? Engin svör við því.
Góð tíð í Firðinum
En víkjum að nokkmm kjamaat-
riðum og látum staðreyndimar tala:
1. Fjárhagsstaða HafnarQarðar-
bæjar er sterk. Allar fullyrðinar um
annað eru rangar. Framkvæmdir í
bænum hafa verið miklar frá því
núverandi félagshyggjuflokkar
tóku við stjómartaumunum sl. sum-
ar eftir glæsilegan kosningasigur
Alþýðuflokksins. Það fer í taugam-
ar á gömlu stjómendunum, Sjálf-
stæðisflokknum, að það er þeirra
vandamál, ekki bæjarbúa. Jóhann
Bergþórsson og hans skoðanabræð-
ur geta haft allt á homum sér hér
eftir sem hingað til vegna úrslita
bæjarstjómarkosninganna sl. sum-
ar. Það er þeirra mál.
Kjör bæjarstarfsmanna hafa ver-
ið lagfærð og var ekki vanþörf á.
Ráðist hefur verið í brýnar fram-
kvæmdir af miklum krafti. Þjónusta
verið bætt. Framsýni og ferskleiki
einkenna stjóm bæjarins eftir
þreytu og stöðnun undangenginna
ára. Gott dæmi um það er bygging
húss fyrir fískmarkað sem ráðist
var í með skömmum fyrirvara og
er nú á lokastigi.
Osannindi
2. Fyrirtækið Hagvirki hf. á ekki
krónu útistandandi hjá Hafnar-
Qarðarbæ. Hefur fengið uppgert
vegna framkvæmda við fískmark-
aðshúsið og önnur verkefni sam-
kvæmt samningum upp á punkt og
prik. Annað er ósannindi. Hitt er
svo rétt að vekja athygli á að físk-
markaðshúsið hefur enn ekki
fengist afhent af hálfu verktaka,
Hagvirki, þótt verkinu sé lokið. Þar
ráða einhveijir óskiljanlegir hags-
munir. Þessi undarlega afstaða
Guðmundur Arni Stefánsson
„Grein forstjóra Hag-
virkis óir og grúir af
efnislegnm rangfærsl-
um og væri efni í heilan
greinarf lokk ef ætti að
elta ólar við öll þau
ósannindi, og allan
þann þvætting, sem
honum tekst að koma
fyrir í einni blaða-
grein.“
stefnir í tvísýnu þeirri áætlun bæj-
aiyfírvalda og væntanlegra rekstr-
araðila fískmarkaðarins að heija
rekstur í kringum 10.—15. maí nk.
Hitt er grundvallaratriði, að á með-
an húsið hefur ekki fengist afhent
fer lokauppgjör ekki fram við verk-
taka. Meira að segja hefur verktaki
ekki svarað erindum bæjarins, þar
sem lagt er til að hugsanlegum
ágreiningsefnum sé vísað í gerð,
eins og ráð er fyrir gert í verksamn-
ingi aðila.
Samstaða um fisk-
markaðinn
3. Allar fullyrðingar um að með
óréttmætum hætti hafí verið staðið
að ákvörðun varðandi tiltekin verk
í tengslum við fískmarkaðinn eru
úr lausu lofti gripnar. Það liggur
fyrir staðfestur leigusamningur við
væntanlega rekstraraðila fískmark-
aðarins og í honum er kveðið á um
aðstöðu fyrir skrifstofur og starfs-
menn inni í fiskmarkaðshúsinu.
Bæjarstjóm, og þar á meðal Jóhann
Bergþórsson bæjarfulltrúi, sam-
þykkti þennan samning einu hljóði.
Hafnarstjóm, sem er skipuð al-
þýðuflokksmönnum, alþýðubanda-
lagsmanni og sjálfstæðismönnum,
samþykkti með öllum atkvæðum
að taka tilboði Halldórs Guðmunds-
sonar, Hafnarfírði, í umrædda
skrifstofuaðstöðu fremur en tilboð-
um Hagvirkis. Ef Jóhanni forstjóra
er sárt um þá ákvörðun gæti hann
allt eins leitað huggunar og skýr-
inga hjá eigin flokksmörinum, eins
og að ráðast með látum að undirrit-
uðum, sem hefur ekki atkvæðisrétt
í hafnarstjóm, þótt bæjarstjórinn
og hafnarstjórinn séu fyllilega sam-
mála niðurstöðu allra.
Hins vegar er mergurinn málsins
sá að verðhugmjmdir Hagvirkis
vom einfaldlega of háar. Aðdáend-
ur fijálsrar samkeppni geta tæpast
vegið að mönnum fyrir að taka
hagstæðustu tilboðum — eða hvað?
Ég hlýt að ætla að bæjarfulitrúinn
Jóhann Bergþórsson sé innst inni
ánægður með það fyrir hönd bæjar-
ins, að hagstæðasta tilboði sé tekið
og hagsmuna bæjarins þar með
gætt. Ég skil hins vegar jafnvel að
Jóhann Bergþórsson forstjóri Hag-
virkis kunni að vera sár og súr yfír
því að ná ekki verkefni fyrir fýrir-
tækið.
En aðalatriðið er þetta í fisk-
markaðsmálinu: Á öllum stigum
þess hefur verið mikill einhugur og
áhugi um málið í hafnarstjóm og í
bæjarstjóm. Þegar málið er að kom-
ast í ákveðna höfn hefst flugelda-
sýning forstjórans. Hvað ræður
þessum undarlegu sinnaskiptum?
En hið alvarlega í málinu er að
framtíð fískmarkaðarins er verið
að stefna í voða.
Sanngjarnir samningar
við verkafólk
3. Samningar hafa tekist við
bæjarstarfsmenn, bæði þá sem em
í starfsmannafélagi bæjarins og
einnig verkafólk í ijórum stéttarfé-
lögum. Þessir samningar em mjög
í anda þeirra samninga sem gerðir
hafa verið að undanfömu. Meðal-
talshækkun til verkafólks er í
kringum 15%. Ef Jóhann Berg-
þórsson skilur ekki þá samninga
er það hans vandamál, en þeir hafa
verið skýrðir ítarlega í bak og fyrir
og öllum hlutaðeigandi ósköp auð-
skiljanlegir. Það er hins vegar ekki
á valdi bæjarstjórans í Hafnarfírði
þótt einstakir bæjarfulltrúar eða
forstjórar neiti að innbyrða upplýs-
ingar og skilja þær.
Hagsmunir bæjar-
búa aðalatriði
Ég hef ekki í hyggju að standa
í stríði við Jóhann Bergþórsson á
síðum dagblaðanna, a.m.k. ekki á
þeim grandvelli sem hann lagði í
Morgunblaðsgrein sinni sl. laugar-
dag. Þetta verða því lokaorð mín á
þessum vettvangi. Persónur em
ekki aðalatriði þegar hagsmunir
heils bæjarfélags eiga í hlut. Þann-
ig verða mikilvæg mál ekki leidd
til lykta. Ég sem bæjarstjóri og
bæjarfulltrúi læt mig varða afkomu
fyrirtækja í Hafnarfírði og þ.á m.
Hagvirkis. Hef ég í gegnum tíðina
ekki átt nokkuð sökótt við það fyrir-
tæki og óska því og starfsfólki þess
góðs gengis. En þegar hagsmunir
skarast, þá era það hagsmunir
Hafnaifyarðarbæjar, allra bæj-
arbúa, sem ráða mínum gjörðum.
Því grandvallarsjónarmiði fær ekk-
ert hnekkt. Sumir gætu tekið það
sér til eftirbreytni.
Jóhanni Bergþórssyni og Hafn-
firðingum öllum óska ég gleðilegs
sumars og alls hins besta í fram-
tíðinni.
P.S. Rétt í þá mund sem undirrit-
aður var að ganga frá grein þessari
til Morgunblaðsins barst bréf frá
Hagvirki, þar sem samþykkt er af-
hending fiskmarkaðshússins með
nokkram fyrirvöram. Ég fagna
sinnaskiptum.
Höfundur er bæjarstjóri í Hafnar-
firði.
Hótelbygging í Mývatnssveit:
Frestum framkvæmd-
um fram á næsta ár
- segir Pétur Snæbjörnsson, hótelsljóri á Húsavík
AMSTRAD
EIGENDUR
Loksins eru eftirfarandi
tölvubækur tilbúnar:
AMSTRAD CPC 464/6128
AMSTRAD PCW
Bækurnar eru til sölu á skrifstofu
Tölvufræðslunnar, Borgartúni 28.
Sendum einning í póstkröfu.
TÖLVUFRÆÐSLAN
Borgartúni28, Reykjavík, símar687590og686790
„Við bíðum ennþá eftir lóð í
Mývatnssveit. Boltinn er sem
stendur hjá hreppsnefnd Skútu-
staðahrepps, sem ég held að sé
að bíða eftir umsögn frá Skipu-
lagsstjórn ríkisins og Náttúru-
verndarráði," sagði Pétur
Snæbjörnsson, hótelstjóri á
Húsavík, í samtali við Morgun-
blaðið í gær.
Pétur, ásamt nokkrum félögum
sínum úr Mývatnssveit, sótti um lóð
undir hótelbyggingu í marsmánuði
síðastliðnum og var ætlunin að drífa
hótelið upp fyrir sumarið, að sögn
Péturs, hefði jákvætt svar komið
strax. Nú er hinsvegar ljóst að bíða
verður með framkvæmdir fram á
næsta ár þar sem aðeins er gert
ráð fyrir að hafa hótelið opið á
sumrin.
Pétur sagði að þeim félögum
hefði verið boðin lóð á Húsavík
undir hótelbyggingu eftir að þeir
höfðu sótt um lóð í Mývatnssveit,
en sá kostur væri mun síðri og
óæskilegri. „Við ætlum að sníða
hótelið að erlendu ferðamönnunum,
sem hingað koma á sumrin. Leiðir
þeirra liggja gjaman til Mývátns-
sveitar og er oft hápunkturinn á
Jfösr&mnMafrtfr
Áskriflarsímirm er 83033
ferðalagi þeirra hér á landi. Það Áætlanir um hótelbygginguna
hlýtur því að vera mjög æskilegt gera ráð fyrir 45 tveggja manna
að fá að gista þar,“ sagði Pétur. herbergjum.
Sýnir í
Gallerí
Gangskör
OPNUÐ verður föstudaginn 1.
mai kl. 14.00 i Galleri Gangskör
við Lækjargötu sýning á klippi-
myndum (collage), silkiþrykki
(serigrafi) og gvassmyndum
(gouachemyndum) eftir Guðr-
únu Sigurðardóttur Urup
listmálara.
Guðrún er búsett í Danmörku
en lauk námi frá Myndlista- oe
hand-
íðaskóla íslands á sínum tíma
undir handleiðslu Kurt Zier og
Þorvaldar Skúlasonar. Hún
kenndi myndlist um skeið hérlend-
is, en hélt síðan utan og lauk
námi frá Kunstakademíunni í
Kaupmannahöfn. Ennfremur á
hún að baki námsdvalir í Frakkl-
andi, Ítalíu, Rússlandi og Mexíkó.
Guðrún hefur unnið að glerlist
og vann að gerð glugganna í
Guðrún Sigurðardóttir Urup.
Sauðárkrókskirkju ásamt manni
sínum Jens Urup listmálara.
Guðrún hefur tekið þátt í sýn-
ingum í Danmörku en ekki sýnt
hérlendis fyrr en nú.
Sýningin í Gallerí Gangskör er
opin ki. 12.00-18.00 virka daga
og kl. 14.00-18.00 um helgar.
Sýningunni lýkur föstudaginn 15.
maí.