Morgunblaðið - 30.04.1987, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1987
19
Árleg kaffisala
Svalanna 1. maí
SVÖLURNAR, félag fyrrverandi Á síðasta starfsári hafa Svölum-
og núverandi flugfreyja, munu ar m.a. gefið Skálatúnsheimilinu
halda sina árlegu kaffisölu, sérhannað baðker fyrir fatlaða að
fimmtudaginn 1. mai nk. i Súlna- upphæð kr. 650.000. Einnig hafa
sal Hóteis Sögu. Húsið verður þær veitt Ösp, íþróttafélagi lamaðra
opið gestum kl. 14.00-16.00 og og fatlaðra styrk til utanfarar á
mim þar verða auk kaffisölu Olympíumót fatlaðra og gefið
tiskusýning, þar sem Svölumar Kópavogshæli sérhönnuð leikföng.
sýna sjálfar fatnað, og skyndi- Ennfremur veittur Svölumar 10
happdrætti þar sem margir einstaklingum námsstyrki.
vinningar em í boði. Þærviljaþakkavinumogvelunn-
Merkasti þátturinn í félagsstarfi urum fyrir veittan stuðning, enn-
Svalanna er flársöfnun til styrktar fremur þeim fyrirtækjum og
þeim er minna mega sín i þjóð- einstaklingum sem auk þeirra
félaginu og til að stuðla að menntun sjálfra, hafa gefíð vinninga fyrir
þeirra sem sinna fjölfötluðum böm- skyndihappdrættið 1. maí.
um. Kaffisalan 1. maí og jólakorta- (Fréttatiikynning)
sala em drýgstu tekjulindimar.
Mynd sem tekin var þegar kaffisala Svalanna var 1. maí á síðast-
iiðnu ári.
Dregið í
happdrætti
viðskipta-
fræðinema
DREGIÐ hefur verið í happ-
drætti Félags viðskiptafræði-
nema og komu vinningar á
eftirtalin númer:
259, 537, 292, 1390, 151, 115,
572, 829, 831, 1195, 291, 1214,
1639, 429, 137, 1612, 226, 821,
692, 280, 392.
Vinningsnúmer em birt án
ábyrgðar.
Vinninga skal vitjað hjá verslun-
arstjóra Japis að Brautarholti í
Reykjavík.
Sumargleði
aldraðra
í Neskirkju
SÍÐASTA samverustund aldraðra
í safnaðarheimili Neskirkju á
þessu misseri verður laugardag-
inn 2. maf. Verður þá vandað til
dagskrár.
Sigurður Pétur Bragason syngur
íslensk lög og aríur við undirleik
Reynis Jónassonar. Valgeir Guðjóns-
son tónlistarmaður, höfundur lagsins
Hægt og hljótt, sem sigraði í söngva-
keppni sjónvarpsins nýverið, leikur
og syngur nokkur lög. Halldór E.
Sigurðsson fyrrverandi ráðherra
skemmtir með frásögum af ýmsu
tagi og kvenfélagskonumar bera
fram veislukaffi. í sumar verður far-
ið í lengri og skemmri ferðir innan-
lands og utan, m.a. norður á Strandir
og til Þýskaland og dagsferðir í
næsta nágrenni borgarinnar.
Allar upplýsingar um ferðimar
veitir sr. Frank M. Halldórsson í við-
talstíma sínum kl. 17.00-18.00 alla
virka daga. (Frá Neskirkju)
Klæðingar á
Vesturlandi:
Hagvirki
með lægsta
tilboð
HAGVIRKI átti lægsta tilboðið í
lagningu samtals 23 km af
bundnu slitlaði, svokallaðar
klæðingar, á Vesturlandi f sum-
ar. Hagvirki bauð 13,2 milljónir,
sem er 84,2% af kostnaðaráætl-
un. Tvö önnur fyrirtæki lögðu
inn tilboð.
í útboði Vegagerðarinnar í
Fljótshlíðarveg, frá Kirkjulæk að
Deild, bárust 10 tilboð. Lægsta til-
boðið var sameiginlegt tilboð Grefils
sf og Fannars Olafssonar, 3,4 millj-
ónir kr., sem er 75,9% af kostnað-
aráætlun. Lengd vegarkaflans er
2,7 km og á verktaki að ljúka verk-
inu fyrir 1. september í haust.
Fjörður sf. átti lægsta tilboð í
styrkingu og malarslitlög í Vestur-
Húnavatnssýslu í sumar, 2,4 millj-
ónir kr., sem er 99,9% af
kostnaðaráætlun. Fjögur önnur til-
boð bárust í verkið. Lengd vegar-
kafla er 11,5 km og á verkinu að
vera lokið fyrir 30. september í
haust.
Þegar tœknilegir yfirburðir
og glœsileg hönnun fara saman,
-er útkoman: Volkswagen Golf
t
Peir sem kunna að meta bíl sem er
allt í senn: Fallegur og vandaður,
netturog rúmgóður, kraftmikill og sterk-
byggður - þeir velja V.W. Golf.
Aksturseiginleikar V.W. Golf eru
frábærir. Þar kemur fyrst og fremst til
framhjóladrifið, sérstaklega mikið
fjöðrunarsvið, bæði áfram- og afturási,
hæfilega mjúk fjöðrun, afar rásfast
tannstangarstýri og tiltölulega langt
hjólahaf, ásamt mikilli sporvídd áfram-
ási. Allt þetta ásamt mjög lágum vind-
stuðli gerir V.W. Golf að óskabíl við
allar aðstæður.
V.W. Golf er með vélbúnað, sem
erfitt er að finna samjöfnuð við. Sjálfur
hreyfillinn hefur viðbragðsflýti og afl,
sem kröfuharðir bílstjórar kunna vel að
meta. Niðurfærsluhlutföll ágírkassaog
drifi eru valin með tilliti til hámarksaf-
kasta en lágmarkseyðslu eldsneytis. All-
ur vélbúnaður ( Golf er gerður til að end-
ast og þess vegna er viðhaldskostnaður
ótrúlega lítill.
V.W. Golf er bíll, sem hefur öðlast
fastan sess í vitund manna fyrir alhliða
kosti og áreiðanleika. Hann heldur
verðgildi sínu lengur og betur en flestir
aðrir bílar vegna þess hversú endingar-
góður og vinsæll hann er.
HEKLAHF
Laugavegi 170-172 Slmi 69 55 00
ekkert annað er Volkswagen