Morgunblaðið - 30.04.1987, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1987
Kaup Landsvirkjun-
ar á nýium kerfiráð
Athugasemd vegna greinar Jóhönnu
Tryggvadóttur í Mbl. 28. apríl 1987
eftirJóhann
Má Maríusson
Þann 15. júlí 1986 bárust Lands-
virkjun tilboð frá sex erlendum
fyrirtækjum í búnað í nýjar stjóm-
stöðvar fyrirtækisins sem komið
verður upp í Reykjavík og á Akur-
eyri og reiknað er með að kominn
verði í fullan rekstur ekki síðar en
árið 1989. Með gangsetningu þessa
nýja búnaðar, sem gengur undir
nafninu kerfíráður, mun stjómun
rafmagnsframleiðslu og afhending-
ar raforku um land allt verða mun
öruggari og hagkvæmari en nú
gerist.
Unnið var að rannsókn þeirra
tilboða sem bámst í u.þ.b. hálft ár
og bar rekstrardeild fyrirtækisins
ásamt sænskum ráðunautum frá
sænska ráðgjafarfyrirtækinu
SwedPower hitann og þungann af
þeim umfangsmiklu könnun.
í október sl. var ljóst að tvö hag-
stæðustu tilboðin að dómi Lands-
virkjunar og ráðúnauta fyrirtækis-
ins væm tiiboð frá bandaríska
fyrirtækinu Harris Corporation og
enska fyrirtækinu Westinghouse
Systems.
Við opnun tilboða í þann búnað
sem Landsvirkjun taldi henta best
fyrir fyrirtækið (tilhögun C í út-
ix>ðsgögnun) vom tilboðsverð
þessara tveggja fyrirtækja um-
reiknuð í ísl. krónur á tilboðsdegi
sem hér segin
Harris 185,4 millj. kr.
Westinghouse 159,7 millj. kr.
Mismunur 25,7
Harris bauð fast verð í banda-
rískum dollumm en tilboð Westing-
house, sem var í enskum pundum,
var háð verðbreytingarformúlu.
Við rannsókn tilboða vom fyrir-
tækin Westinghouse og Harris sótt
heim til að fá endanleg svör um
ýmis atriði sem vom óljós í tilboðun-
um jafnframt því sem framleiðsla
þessara fyrirtækja á svipuðum bún-
aði var skoðuð bæði í verksmiðju
og hjá notendum. í ljós kom að
bæði fyrirtækin buðu upp á búnað
sem er tæknilega fullnægjandi, en
Harris hefur meiri reynslu á þessu
sviði. Þá kom einnig í ljós að það
var vemlegur munur á milli aðila
hvað varðar viðhaldskerfín. West-
inghousekerfið gerir ráð fyrir að
notandinn geri viðhaldssamning við
þjónustufyrirtæki vegna búnaðar-
ins en Harris-kerfíð gerir aftur á
móti ráð fyrir því að notandinn sé
sjálfum sér nógur með því að kaupa
sér tölvu til bilanaleitar og með
sérstakri þjálfun eigin starfsmanna.
Þegar óljós atriði í tilboðunum
DANSKA kammersveitin Con An-
ima heldur tónleika á sunnudag-
inn kl. 17.00 í Norræna húsinu.
Kammersveitin var stofnuð árið
1977 í framhaldi af samstarfi í
Tónlistarháskólanum í Kaup-
mannahöfn og í henni eru: Ingrid
Holck flautuleikari, Helle
Hanskov fiðluleikari, Ulla Knud-
sen lágfiðluleikari, Nille Hovman
seUóleikari, Maria Topperzer
hörpuleikari og Annemarie Buhl
Pedersen pianóleikari. Þessi
hljóðfærasamsetning gefur mögu-
leika á að leika verk allt frá
barokktónlist tíl nútímatónlistar.
Con Anima hefur fengið styrk frá
höfðu verið skýrð og þau leiðrétt í
samræmi við það og tekið tillit til
þess að tilboð Harris var á föstu
verði, en tilboð Westinghouse háð
verðbreytingum, varð samanburður
tilboða þessi:
Núvirði, gengi á tilboðsdegi
Westinghouse 196,1 millj. kr.
Harris 177,0 millj. kr.
Mismunur 19,1 millj. kr.
Þannig kom m.a. í ljós að tilboð
Westinghouse var í raun hærra en
tilboð Harris þó upplesnar tölur á
tilboðsdegi virtust gefa annað til
kynna. Munaði mestu um það að
tilboð Harris var á föstu verði og
þeir tóku þannig á sig alla verð-
bólguáhættu. Vegna áætlaðs
viðhalds til næstu aldamóta var
verð beggja síðan hækkað um áætl-
aðan kostnað vegna kaupa á
varahlutum og bilanaleitartölvu frá
Harris og kaupa á varahlutum frá
Westinghouse og viðhaldssamningi
við tölvuþjónustuaðiia í þágu West-
inghouse-kerfísins. Þegar þessum
ýmsum stofnunum til þess að halda
tónleika á öllum Norðurlöndunum,
þar á meðal frá Norræna menningar-
málasjóðnum, Nomus og fleirum. í
þessari tónleikaför leika þær ein-
göngu verk eftir norrænar, núlifandi
konur, sem hafa lagt fyrir sig tón-
skáldskap. Fulltrúi íslands er Ka-
rólína Eiríksdóttir og verkið sem þær
leika eftir hana er „Four Pieces"
fyrir flautu, fiðlu og selló. Það hefur
áður verið leikið á íslandi, í Noregi
og Bandaríkjunum.
Tónleikamir heflast kl. 17.00
sunnudaginn 3. maí og aðgöngumið-
ar eru seldir við innganginn.
Dönsk kammersveit
í Norræna húsinu
Jóhann Már Maríusson
„Þannig kom m.a. í ljós
að tilboð Westinghouse
var í raun hærra en til-
boð Harris þó upplesn-
ar tölur á tilboðsdegi
virtust gefa annað til
kynna. Munaði mestu
um það að tilboð Harris
var á f östu verði og
þeir tóku þannig á sig
alla verðbólguáhættu.“
kostnaði var bætt við leit dæmið
þannig út:
Núvirði, gengi á tilboðsdegi
Westinghouse 217,9 millj. kr.
Harris 188,2 millj. kr.
Mismunur 29,7 millj. kr.
Mikil áhersla var lögð á það frá
hendi Landsvirkjunar að íslensk
þátttaka í tilboðum þessum væri
sem allra mest. Samkvæmt upplýs-
ingum fyrirtækjanna gerðu þau
bæði ráð fyrir um 15% íslenskri
þátttöku og var þannig enginn
munur á tilboðunum að þessu leyt-
inu.
Á grundvelli þessara upplýsinga,
sem tóku af allan vafa um að Harr-
is væri með hagstæðasta tilboðið,
tók stjóm Landsvirkjunar síðan þá
ákvörðun í desember sl. að ganga
til samninga við Harris. Það var svo
gert og voru samningar um kaup
á umræddum búnaði frá Harris
undirritaðir þann 26. janúar sl.
Það er mat undirritaðs að öll
vinna við samanburð þeirra tilboða
sem bárust í umræddan búnað hafí
verið vönduð að öllu leyti og jafn-
framt að sú gagnrýni sem fram
kemur í áðumefndri grein umboðs-
manns Westinghouse Systems,
Jóhönnu Tryggvadóttur, eigi ekki
við rök að styðjast.
Höfundur er aðstoðarforstjóri
Landsvirkjunar.
Danska kammersveitin Con Anima heldur tónleika nk. sunnudag í
Norræna húsinu.
Aðalfundur
Samvinnubankans
Aðalfundur Samvinnubanka fslands hf. verður
haldinn í dag, fimmtudaginn 30. apríl 1987 að
Hótel Loftleiðum, Kristalssal og hefst kl. 14.30.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður lögð
fram tillaga um heimild bankaráðs til útgáfu jöfn-
unarhlutabréfa og tillögur til breytinga á
samþykktum bankans, ef fram koma.
Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar til fundarins
verða afhentir íaðalbanka, Bankastræti 7, dagana
27. - 29. apríl svo og á fundarstað.
Bankaráð Samvinnubanka íslands hf
Veiðifélag EUiðavatns
Stangveiði á vatnasvæði Elliðavatns hefst
1. maí. Veiðileyfi eru seld á Vatnsenda og
Elliðavatni. Á sömu stöðum geta félagar
úr Sjálfsbjörg, unglingar (12-16 áraj og
ellilífeyrisþegar úr Reykjavík og Kópavogi
fengið afhent veiðileyfi án greiðslu.
Veiðiféiag Elliðavatns.
IMÁHflSKEIÐ
foreldra og barna
Næstu námskeið byrja miðvikudaginn 6. maí.
Skráning og upplýsingar í síma 621132 og 82804.