Morgunblaðið - 30.04.1987, Qupperneq 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1987
Bandaríkin:
Bersyndugi
presturinn
var sviptur
laununum
Fort Mill, Suður-Karólínu, Reuter.
Trúarsöfnuður í Bandaríkjun-
um, sem verið hefur í fréttunum
að undanfömu vegna kynlífs- og
mútuhneyksla, ákvað í gær að
svipta sinn synduga prest öllum
launum og öðrum fríðindum.
Séra Jerry Falwell, bráðabirgða-
formaður í trúfélaginu PTL (ensk
skammstöfun fyrir „Lof sé drottni"),
tilkynnti, að safnaðarstjómin hefði
hætt launagreiðslum til Jims Bakker
og konu hans, Tammy Faye Bakker,
en talið er, að þau hafi numið 1,6
milljónum dollara á ári, 64 millj. ísl.
kr. Sagði Falwell einnig, að stuðn-
ingsmaður Bakkers, séra Richard
Dortsch, hefði verið knúinn til að
segja af sér.
Lögfræðingur PTL, Norman Roy
Grutman, sagði, að sjóðir safnaðarins
hefðu verið notaðir til að greiða
265.000 dollara til Jessicu Hahn,
fyrrum kirkjuritara, gegn því að hún
þegði og segði ekki frá skyndikynnum
þeirra Bakkers fyrir nokkrum árum.
Nú hefði hún hins vegar opinberað
málið og því yrði greiðslum til hennar
hætt.
Fagnaðboðskapur safnaða á borð
við PTL fer aðallega fram í sjónvarpi
og reksturinn íjármagnaður með
fijálsum framlögum. Sagði Falwell,
að vegna hneykslismálanna hefði orð-
ið trúnaðarbrestur milli safnaðarins
og fólksins og framlögin í lágmarki.
Reuter
Jessica Hahn, kirkjuritarinn, sem
átti vingott við Jim Bakker á hót-
eli í Florida fyrir sjö árum. Henni
voru greiddir 265.000 dollarar fyr-
ir að þegja um það.
THATCHER VIÐ STJÓRNVÖLINN
Margaret Thatcher, forsætisráðherra Breta, var fyrir nokkrum dögum her fékk að reyna gæðinginn var tiikynnt, að búið væri að selja 100
boðið að setjast undir stýri í nýjum bíl, Naylor TF 1700-sportbfl. Er bfla til Japans. Ekkert var sagt um verðið og ekki víst, að það sé einu
hann eftirlíking af kunnum fáki frá fyrri tíð, MG, og er smíðaður í sinni á færi breska forsætisráðherrans.
Hutson Motor-bflaverksmiðjunum í Norður-Englandi. Um leið og Thatc-
Afvopnunarmál:
Nýjuni skilyrðum Rússa
illa tekið í V-Evrópu
Haag, Reuter. JL
WIM van Eekelen, varnarmálaráðherra Hollands, sagði í
gær, að ný skilyrði og skilgreiningar Sovétmanna á skamm-
drægum eldflaugum gætu tafið mjög fyrir því, að ríkisstjórn-
ir í Vestur-Evrópu svöruðu afvopnunartillögum þeirra.
„Ef tillögur Sovétmanna eru aðr-
ar en kynntar voru George Shultz,
utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í
Moskvu, fæ ég ekki séð, að nein
afstaða verði tekin til þeirra á næSt-
unni. Bandaríkjastjóm verður fyrst
að leggja sitt mat á þær,“ sagði
van Eekelen á fundi með frétta-
monnum.
Einn af aðalsamningamönnum
Sovétmanna í Genf sagði í fyrra-
dag, að Moskvustjómin liti á 72
bandaríska kjamaodda, sem setja á
í vestur-þýskar Pershing lA-eld-
flaugar, sem skammdrægar eld-
flaugar Bandaríkjamanna í Evrópu
en Bandaríkjastjóm segir, að þetta
sé í fyrsta sinn, sem Sovétmenn
minnist á þessar vestur-þýsku
flaugar.
Van Eekelen var spurður hvort
þessi nýja skoðun Sovétmanna, sú
að telja Perhing-flaugamar með
skammdrægum, bandarískum
flaugum, gæti dregið á langinn svör
Vestur-Evrópumanna við tillögum
Sovétmanna og svaraði hann því
játandi. „Já, svo sannarlega," sagði
hann.
Van Eekelen, sem sat fund Vest-
ur-Evrópubandalagsins í Luxembo-
urg, kvaðst vilja telja til
skammdrægu flauganna eldflaug-
ar, sem draga 300 km, en Sovét-
menn hafa mikla yfirburði hvað þau
vopn varðar. Sovétmenn vilja hins
vegar draga mörkin við flaugar,
sem draga 500 km eða lengra, en
van Eekelen sagði, að sú skilgrein-
ing væri út í hött.
AMSTRAD
EIGEIMDUR
Loksins eru eftirfarandi
tölvubækur tilbúnar:
AMSTRAD CPC 464/6128
AMSTRAD PCW
Bækurnar eru til sölu á skrifstofu
Tölvufræðslunnar, Borgartúni 28.
Sendum einning í póstkröfu.
TÖLVUFRÆÐSLAN
Borgartúni 28, Reykjavík, símar687590og686790
Ásakanir á hendur bresku leyniþjónustunni:
Thatcher hvött til að
fyrirskipa rannsókn
hann bæri fullt traust til yfirmanna
leyniþjónustunnar en hvatti jafn-
fram til þess að skipuð yrði nefnd
til að fylgjast með aðgerðum MI5.
David Steel, leiðtogi Frjálslynda
flokksins, lýsti sig sammála sjónar-
miðum Callaghans í gær. „Við
getum ekki sætt okkur við að hér
í landi ríki sams konar ástand og
í einræðisríkjum þar sem öryggis-
lögreglu- og leyniþjónustumenn eru
einungis ábyrgir gagnvart leiðtoga
þjóðarinnar. Hvað Harold Wilson
varðar virðist trúnaður við hann
einnig hafa verið brotinn," sagði
hann. „Ef brugguð voru launráð
gegn Wilson og samtöl hans hleruð
eftir að hann hafði verið kjörinn
forsætisráðherra í lýðræðislegum
kosningum er óhjákvæmilegt að
einhveijir verði að víkja,“ bætti
hann við.
London, Reuter.
MARGARET Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, sætir nú vax-
andi þrýstingi um að beita sér fyrir opinberri rannsókn vegna
áskana um að leyniþjónustan hafi ráðgert að steypa stjórn Verka-
mannaflokksins undir forsæti Harolds Wilson árið 1974.
„Ég tel að stjóminni sé skylt að
beita sér fyrir rannsókn," sagði
Wilson í viðtali við Daily Mail.
„Sams konar launráð kunna enn
að vera brugguð," bætti hann við.
James Callaghan, eftirmaður
Wilsons forsætisráðherra, lét fara
fram rannsókn vegna svipaðra
ásakana og var leyniþjónustan,
MI5, sýknuð af öllum ákæruatrið-
um árið 1977. Fréttir herma að
Callaghan hafi snúið sér til Margar-
et Thatcher á þriðjudagskvöld og
spurt hana hvemig stjómin hygðist
bregðast við þessum ásökunum. Að
sögn ónefndra embættismanna
hyggst Thatcher ekki fýrirskipa
opinbera rannsókn.
Forsaga þessa máls er sú að
Peter Wright, fyrrum leyniþjón-
ustumaður, hefur fullyrt í endur-
minningum sínum að 30 embættis-
menn lejmiþjónustunnar hafí lagt á
ráðin um að koma stjóm Wilsons
frá. Deilan magnaðist enn frekar
er þijú dagblöð birtu kafla úr bók
Wrights. Stjómin höfðaði mál gegn
dagblöðunum þar sem útgáfa bókar
Wrights hafði verið stöðvuð í nafni
þjóðaröryggis.
í viðtalinu við Daily Mail kvaðst
Harold Wilson ekki telja að ráða-
gerðir lejmiþjónustumannanna
hefðu ógnað stjóminni. James Cal-
laghan sagði í síðasta mánuði að