Morgunblaðið - 30.04.1987, Qupperneq 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1987
Ný brú yfír Glerá-
tilbúin í haust
NÝ BRÚ yfir Glerá á að verða
tilbúin til umferðar í haust. Hún
mun tengja Krossanesbraut og
Hjalteyrargfötu.
Smíði brúarinnar verður boðin
út fijótlega en á fundi sínum á
þriðjudag heimilaði bæjarráð bæjar-
verkfræðingi að bjóða verkið út.
Ekki þarf að fara mörgum orðum
um hve gífurlega miklu þessi brú
mun breyta varðandi umferð á
þessu svæði. Hinar löngu biðraðir
við Glerárbrúna á Glerárgötu heyra
þá væntanlega sögunni til, eða
styttast að minnsta kosti allveru-
lega. Þar eru nú ætíð langar raðir
í hádegi og um það leyti sem menn
fara heim úr vinnu síðdegis, en
reikna má með því að starfsmenn
hinna stóru vinnustaða á Eyrinni,
Slippstöðvarinnar og Útgerðarfé-
lagsins, sem búa norðan ár, komi
til með að nota nýju brúna. Hún
liggur í beinu framhaldi af Hjalteyr-
argötunni, ekið verður milli Nóta-
stöðvarinnar Odda og Sandblásturs
og málmhúðunar í norðvestur og
síðan götuna milli véladeildar KEA
og hússins þar sem DNG er til
húsa þegar yfír er komið.
Brúarsmíði þessi er stærsta
framkvæmdin í gatnagerð á Akur-
eyri í sumar. Einnig verður nokkuð
um malbikun gatna og gangstétta
í bænum, svo og endurbyggingu
gatna.
Stórmót hjá Skák-
félagi Akureyrar
SKÁKFÉLAG Akureyrar heldur
veglegt minningarakákmót. nm
HaUdór Jónsson fyrrum skák-
meistara Akureyrar og Norð-
lendinga, en hann lést á sl. ári
tæplega fímmtugur.
Keppnin hefst í dag, 30. apríl,,
kl. 20.00, og það verður síðan teflt
næstu þijá daga og mótinu lýkur
kl. 19.00 sunnudaginn 3. maí. Teflt
verður í Félagsheimili Skákfélags
Akureyrar, Þingvallastræti 18. Það
verða tefldar 7 umferðir eftir
Monrad-kerfí, norræna afbrigðinu.
Umhugsunartími verður 1 V2klst. á
keppanda, og síðan'/2 tími að Ijúka
skákinni. Vegleg verðlaun verða á
mótinu, og eru þau hæstu sem
Skákfélagið hefur verið með, en tíu
keppendur geta fengið peninga-
verðlaun sem nema kr. 90.000,-.
Verðlaun eru fyrir fímm efstu sæt-
in sem er, 1. sætið kr. 25.000,- og
síðan kr. 15.000, kr. 10.000,-, kr.
8.000,- og kr. 7.000,-. Öldunga-
verðlaun (50 ára eða eldri) fyrir
bestan árangur kr. 5.000,-. Einnig
verða veitt verðlaun fyrir besta
frammistöðu keppenda á tilteknum
stigabilum, kr. 5.000,- á hverju bili
2050 - 2200 stig, 1900 - 2049
stig, 1750 — 1899 stig og 1749
stig og minna. Unglingaverðlaun
f. 1971 og síðar eru, fyrir 1. sætið
farseðill með Flugleiðum til
Reykjavíkur og 2.-5. sæti eru
skákbækur. Auk þess verða veittir
ýmiss konar verðlaunagripir á mót-
inu.
Þátttökugjald er kr. 800,- fyrir
fullorðna, en kr. 400 fyrir unglinga.
Fjöldi manns hefur þegar skráð sig
á mótið, og verða m.a. allir sterk-
ustu skákmenn Akureyrar og
Eyjafjarðarsýslu með og einnig
koma keppendur víðs vegar að af
landinu, þar af 15 til 20 keppendur
frá Reykjavík. Tilkynna þarf þátt-
töku eigi síðar en miðvikudaginn
29. apríl kl. 19.30 til Siguijóns Sig-
urbjömssonar eða til Gylfa Þór-
hallssonar.
Leikklúbburinn Saga:
Víkurskarðs-
vegnr vígður
MATTHÍAS Bjamason, sam-
gönguráðherra, vígir í dag
vegarkaflann frá Akureyri og
austur að nýju Fiyóskárbrúnni um
Víkurskarð. Hér er um að ræða
Leiruveginn, frá Drottingarbraut-
inni og þar með talin brúin á
Leirunum. Á hennj klippir hann
einmitt á borða kl. 17.00 í dag og
vfgir mannvirkið.
Unnið hefur verið að því að und-
anfömu að setja jöfnunarlag til
bráðbirgða á Leiruveginn fyrir
vígsluna en síðar í sumar verður
vegurinn svo klæddur endanlega. Að
öllum líkindum verður hluti hans
malbikaður, en svokölluð klæðing
sett á önnur svæði.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Séð niður eftir Krossanesbrautinni í suðaustur. Vegurinn liggur
áfram, milli véladeildar KEA og DNG-hússins. í baksýn sést yfir
að athafnasvæði Slippstöðvarinnar, en Hjalteyrargatan liggur vestan
Nýtt íslenskt leikrit
frumsýnt á sunnudag
Bubbi kóng-
uríMA
LEIKFÉLAG Menntaskólans á
Akureyri frumsýndi miðvikudag-
inn 29. apríl ærslaleikinn Bubbi
kóngur eftir Alfred Jarry. Leik-
stjóri er Einar Jón Briem og er
tónlistin eftir Atla Heimir Sveins-
son.
Strangar æfingar hafa verið und-
anfamar vikur og hafa krakkamir
lagt mikla vinnu í þetta. Þetta leik-
rit er e.t.v. frægast fyrir það hér á
íslandi að núverandi borgarstjóri
Davíð Oddson fór með aðalhlutverkið
á sfnum tíma þegar leikritið var sett
upp í Menntaskólanum í Reykjavík.
Meðal meðleikara hans voru þau
Signý Pálsdóttir fyrrverandi leik-
hússtjóri og Kristfn Ólafsdóttir
borgarfulltrúi.
Nú fer með aðalhlutverkið Þorgeir
Tryggvason. í sýningunni taka alls
20 leikarar.
Önnur sýning er 3. maí kl. 20.30
í Samkomuhúsinu og 3. sýning er
5. maí á sama stað.
(Úr fréttatilkynningu)
NÝTT íslenskt leikrit verður
frumsýnt hér á Akureyri sunnu-
daginn 3. maí. Það er leikklúbb-
urinn Saga sem heldur með þessu
móti upp á tíunda leikár sitt.
Leikritið nefnist „Smámyndir"
og er eftir Helga Má Barðason,
„ungan Akureyring" eins og seg-
ir í fréttatilkynningu frá Sögu,
en Helgi er kunnur útvarpsmað-
ur og starfaði einmitt mikið með
leikklúbbnum meðan hann bjó
hér norðan heiða.
Þetta er annað verkið sem klúbb-
urinn setur upp á þessu leikári og
er það einstakt í sögu klúbbsins.
Leikklúbburinn Saga er áhugafélag
ungs fólks á aldrinum 14—22 ára.
Leikritið Smámyndir fjallar um
„ungt fólk nútímans sem tengist
innbyrðis með ýmsu móti en á þó
hvert sína sögu,“ eins og segir í
fréttatilkynningunni. Leikstjóri
Smámynda er Guðbjörg Thorodd-
sen, sem leikur nú í Kabarett hjá
Leikfélagi Akureyrar.
Sýningar Sögu eru í Dynheimum,
frumsýning verður á sunnudag sem
fyrr segir og hefst hún kl. 20.30.
Önnur sýning verður þriðjudaginn
5. maí. Nánari upplýsingar eru
gefnar í Dynheimum kl. 17.00—
19.00 í síma 22710.
Á myndinni eru Bubbi og Bubba.
Verk Auðar
Vésteins-
dóttur
kynnt
í Alþýðu-
bankanum
NÚ STENDUR yfir sýning í AI-
þýðubankanum á Akureyri á
verkum textillistakonunnar Auð-
ar Vésteinsdóttur. Sýningin er á
vegum Menningarsamtaka Norð-
lendinga og Alþýðubankans hf.
Auður er fædd 31. mars 1950,
hún Iauk námi í textildeild Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands 1972,
er meðlimur í Textilfélaginu og hef-
ur tekið þátt í flestum sýningum
. félagsins.
Auður tók þátt í samnorrænni
Nýja útvarps-
stöðin nafnlaus
„í loftið“ í dag
NÝJA útvarpsstöðin á Akureyri hefur útsendingar í dag kl. 13.00.
Útsending hefst með ávarpi útvarpsstjórans, Gests Einars Jónasson-
ar. Síðan verður útvarpað samfleytt þar til kl. 3.00 aðfaranótt
föstudags og að morgni föstudags hefst útsending að nýju kl. 6.30
og stendur til kl. 5.00 að morgni laugardags.
Útvarpsstöðin hefur rekstur sinn að hljómplötusafni Dynheima til að
textilsýningu, Ny Nordisk Kunst,
sem var farandsýning í Danmörku
og Færeyjum 1984—1985. f saftia-
húsinu á Húsavfk hélt Auður síðast
einkasýningu, 1986. 1976—1979
kenndi Auður við Húsmæðraskólann
á Laugum og síðan 1978 hefur hún
kennt við Bamaskóla Skútustaða-
hrepps í Reykjahiíð mynd- og
handmennt.
Á listkynningunni í Alþýðubank-
anum eru fímm textilverk unnin í
ull, bómull, hör, poliacril og viskos.
Tvö verkanna samanstanda af þrem-
ur myndhlutum og tvö eru í tveimur
myndhlutum.
Kynningunni í Alþýðubankanum
lýkur 5. júnf næstkomandi.
nafnlaus. Ákveðið hafði verið að
nota nafnið Útvarp Norðurland, en
Útgáfufélag Norðurlands, mál-
gagns Alþýðubandalagsins í
Norðurlandskjördæmi eystra, hót-
aði þá að láta setja lögbann á
starfsemina, þar sem félagið á
einkarétt á notkun nafnsins Norð-
urland í tengslum við alla fjölmiðl-
un. Að sögn Gests útvarpsstjóra
verður því farið af stað með nafn-
lausa stöð, en hlustendum gefínn
kostur á að hringja inn tillögur að
nafni.
Eins og Morgunblaðið hefur áður
greint frá fær útvarpsstöðin aðgang
byija með. Æskulýðsráð hafði gefíð
til þess leyfí. Málið var síðan tekið
upp í bæjarstjóm á dögunum; mál-
inu vísað þaðan til bæjarráðs og
þaðan aftur til æskulýðsráðs, til að
fá nánari rökstuðning á umræddri
lánveitingu. Mál þetta er nú leyst
með þeim hætti að útvarpsstöðin
fær plötur úr safni Dynheima að
láni, enda mýmörg dæmi um það
að félög og aðilar úti í bæ hafi feng-
ið lánaðar plötur og tæki hússins.
Segja kunnugir að með því að taka
málið sérstaklega upp í bæjarstjóm
hafí verið gerður úlfaldi úr mýflugu.