Morgunblaðið - 30.04.1987, Síða 45

Morgunblaðið - 30.04.1987, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1987 45 Guðmundur Magn ússon - Kveðjuorð Vegna mistaka sem urðu er birt voru kveðjuorð frá „Viðeyj- arhópi“ vegna fráfalls Guðmund- ar Magnússonar verkfræðings birtast þau hér aftur um leið og beðist er velvirðingar á mistök- unum. Fæddur 28. september 1927 Dáinn 14. apríl 1987 Okkur grunaði ekki að svo fljótt kæmi að kveðjustund. Eins og að jafnaði áður var margt á döfinni hjá nágrönnunum við Norður- og Kleppsveg á þessu ári. En nú er skarð fyrir skildi þegar Guðmundur Magnússon er svo óvænt brottkall- aður úr hópnum, aðeins 59 ára. Það var á sjöunda áratugnum sem reiturinn milli Austurbrúnar og Kleppsvegar í Reykjavík byggð- ist og nýir íbúar fluttu í hverfíð. Smám saman efldust kynni ná- granna og vinahópur myndaðist, sem síðar fékk nafnið Viðeyjar- hópurinn. Upp á ýmsu var fítjað og er margs að minnast frá skemmtileg- um samverustundum. Fljótlega komst á sú venja hjá hópnum að koma saman á nýársnótt eftir að hefðbundnum fjölskylduboðum var lokið og fagna saman nýju ári. Það var sama í hvaða húsi komið var saman, alls staðar blasti við Esjan og hin sögufræga Viðey. Þegar það síðan kom í ljós að fæstir höfðu komið út í eyjuna, dreif einn félag- inn sem átti bát, hópinn út í Viðey og síðan varð það að venju að fara árlega fjölskylduferð saman út í eyjuna, þegar sumri tók að halla og fékk hópurinn nafn af því. Guðmundur var góður félagi og hrókur alls fagnaðar. Hann hafði víða farið, var víðlesinn og fróður og ólatur að miðla okkur af þekk- ingu sinni. Við kveðjum þennan félaga okkar með söknuði og geym- um minningu um góðan dreng og nágranna. Margréti, börnum þeirra og öðr- um vandamönnum vottum við okkar innilegustu samúð og biðjum guð að styrkja þau á þessari erfiðu stund. Viðeyjarhópurinn, Þuríður og Páll, Katrín og Vífill, Sigrún og Einar, Steinunn og Magni, Helga og Finnbjörn. KJARVALSSTAÐIR VORU BYGGÐIR ÁRÐ 968 Það er okkur mikil ánægja aö hafa framleitt steypuna í þessa glæsilegu mistöö lista og menningar. Frá því að Steypustöðin hóf starfsemi sína hefur það veriö aöal markmiðið að vinna að rannsóknum og þróun á steinsteypu til hagsbóta fyrir steypukaupendur. Við vitum hversu mikil- vægt það er að geta tryggt viðskiptavinum okkar aðeins þá bestu steypu sem til er. Rétt efni og öflugt eftirlit tryggja gæðin. STEYPUSTOÐINm 33600SÆVARHÖFÐA 4 cro GLÆSILEG BYGGING ÚR GÓÐRI STEYPU

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.