Morgunblaðið - 30.04.1987, Síða 47
47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1987
Kveðjuorð:
Guðmundur Sveins-
son frá Góustöðum
Fæddur 9. apríl 1913
Dáinn 9. apríl 1987
Mig setti hljóðan þegar ég frétti
lát góðvinar míns, Guðmundar
Sveinssonar, að morgni dags 9.
apríl sl. Mér var það alls ekki ljóst
að hann ætti við alvarlega vanheilsu
að stríða, þessi síkviki athafnamað-
ur, sem ávallt var örvandi, hress
og viðmótsþýður. Hann virtist alltaf
ráða yfir svo miklu starfsþreki til
allra verka sem hann tók að sér,
og hann gerði þá kröfu til sam-
verkamanna sinn að þeir legðu sig
alla fram. Hjá honum var aldrei hik
eða hálfvelgja. Hann var hugsjóna-
maður, hvort heldur var í leik eða
starfi.
Ég hef lengi þekkt Guðmund
Sveinsson, en ég kynntist honum
vel þann tíma sem við unnum sam-
an að bæjarmálum á ísafirði. Við
vorum ekki pólitískir samheijar, en
við vorum samheijar í því að vinna
bæjarfélaginu okkar allt það sem
við gátum. Hann var mikill ísfírð-
ingur. Ég minnist samstarfs okkar
frá þeim árum. Oft stóðum við
frammi fyrir erfiðri ákvarðanatöku,
og hann þurfti ekki að taka á sig
ábyrgð öðrum fremur, en hans
lífsviðhorf mótaðist af drengskap
og heiðarleika, en ekki pólitík.
Þó var Guðmundur Sveinsson
eldheitur framsóknarmaður og sú
stefna samvinnu og jafnréttis sem
hann fylgdi var honum mikils virði,
enda vann hann þeirri stefnu mikið
og óeigingjamt starf. Þessi eldheiti
baráttumaður félagshyggju og rétt-
lætis var mikill og traustur vinur
allra þeirra sem kynntust honum.
Hann var ávallt reiðubúinn að ta-
kast á með öðrum og leysa málin.
Þess vegna var hann líka svo vel
kynntur, bæði í sinni heimabyggð
sem og vítt um land, því Guðmund-
ur Sveinsson og fyrirtæki hans,
Netagerð Vestfjarða, naut virðingar
og álits hvarvetna.
Á samstarfsárum okkar kynntist
ég því hversu mikils virði það var
að eiga traustan vin sem hann var.
Ég man það vel hversu einlæglega
hann fagnaði þegar vel gekk, en
var hvetjandi og síleitandi góðra
ráða til að ná málum fram þegar
hægar lét. Uppgjöf eða úrtölur var
aldrei það sem hann mælti fyrir.
Hann vildi takast á við málefnin
og leysa þau. Stundum var ákafí
hans og dugnaður svo mikill að
samverkamönnum þótti nóg um, og
kenndu við fyrirhyggjuleysi, en at-
hafnamaðurinn vill láta hlutina
ganga og það gerði Guðmundur
Sveinsson. Fyrir yngri menn var
hann leiðandi, en setti þó sitt traust
á þá. Hann var réttlátur og mildur
stjómandi og bar fullt traust til
samstarfsmanna sinna, sem end-
urguldu honum með virðingu og
góðu starfí. Guðmundur var glað-
vær maður og naut þeirrar ham-
ingju í ríkum mæli að eiga ástríka
og góða eiginkonu, sem með honum
hefur mótað fagurt heimili þeirra.
Böm þeirra, tengdaböm og bama-
böm vom honum til mikillar ánægju
og vildi hann allt fyrir þau gera.
Nú er þessi mæti maður allur.
Ég minnist hans með virðingu og
þökk. Ég og kona mín vottum eftir-
lifandi eiginkonu Guðmundar,
Bjameyju Ólafsdóttur, bömum
þeirra og öðmm aðstandendum,
einlæga samúð.
Guðmundur H. Ingólfsson
Fyrir nokkmm dögum var ég í
sjúkravitjun á Landakotsspítala. Þá
heyri ég sagt með rólegri rödd úr
næsta rúmi: „Komdu sæl, Þor-
björg." Sá sem ávarpaði mig var
Guðmundur Sveinsson frá Góustöð-
um. Við vomm góðir kunningjar,
og ég innti hann eftir hvers yegna
hann væri þama staddur. Hann
kvaðst vera nýkominn — þennan
sama morgun og lét ekki mikið
yfír veikindum sínum. Mér brá því
ónotalega þegar ég frétti látið hans
daginn eftir. Þetta, eins og oft áð-
ur, minnti mig á — „hve örstutt er
bil milli blíðu og éls“ — og enginn
veit, hvenær kallið kemur.
Guðmundur, sem alltaf var svo
hress og glaður þegar maður hitti
hann, var nú allur. Hann var einn
af þeim, sem setti svip á bæinn sinn,
athafnamaður, sem rak traust og
gott fyrirtæki og tók dijúgan þátt
í stjómun bæjarmála um árabil. Ég
ætla ekki að rekja sögu hans á
þeim vettvangi, það hafa aðrir gert.
En ég hafði þá ánægju að starfa
með honum í stjóm Norræna fé-
lagsins á ísafírði í meira en áratug.
Hann hafði mikinn áhuga á nor-
rænni samvinnu, var boðinn og
búinn til að leggja henni lið. Honum
var umhugað um að koma á meiri
samvinnu við granna okkar á
Grænlandi og greiddi götu græn-
lenskra unglinga, sem vildu heim-
sækja ísafjörð og kynnast landi og
þjóð. Norræna félagið á þar á bak
að sjá góðum velunnara sínum.
Guðmundur var mikill áhuga-
maður um skíðaíþróttir. Hann tók
virkan þátt í að byggja upp góða
aðstöðu í Seljalandsdal. Oft hitti
maður hann þar uppfrá á sólbjört-
um útmánaðardögum, glaðan og
reifan við að leggja starfseminni
þar liðsinni sitt. Hann gerði sér
ljóst, hve mikilvægt það var ísfírskri
æsku að nota sér þessa paradís
skíðaíþróttarinnar og hvatti ungl-
ingana óspart til að láta þar hvergi
deigan síga.
Guðmundur var einn að þessum
mönnum, sem gjaman var leitað
til, ef koma átti góðum málum í
höfn. Veit ég, að margur saknar
hans sem góðs vinar og samverka-
manns, og ísafjörður er vissulega
svipminni að honum látnum. Hann
var einn af þessum traustu og góðu
Vestfírðingum, sem ekki liggja á
liði sínu við að byggja upp og bæta
atvinnulífíð og treysta búsetu — „í
faðmi fjalla blárra"—.
Ég votta eiginkonu hans, Bjam-
veigu Ólafsdóttur, bömum hans og
öðmm aðstandendum, mína einlæ-
gustu samúð. Guð blessi minningu
hans.
Þorbjörg Bjarnadóttir
frá Vigur.
t
Eiginkona mín,
ELÍSABET SUMARLIÐADÓTTIR,
Fannarfelll 10,
lést í Landspítalanum 10. apríl. Jarðarförin hefur farið fram í kyrr-
þey að ósk hinnar látnu.
Lárus Ingólfsson.
t
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
RÓSANT SKÚLASON,
Faxabraut 7, Keflavík,
andaðist á Landspítalanum 29. apríl sl.
Sofffa Gunnlaugsdóttir,
Guðrún Rósantsdóttir, Per Kærsgaard,
Skúli Rósantsson, Guðrún Lára Brynjarsdóttir
og barnabörn.
t
Móðursystir mín,
GUÐBJARTSÍNA ÞÓRARINSDÓTTIR
frá Ólafsvfk,
Meðalholtl 6, Reykjavfk,
lést 17. apríl. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey.
Fyrir hönd vandamanna,
Kristján Sigurðsson.
t
Föðurbróðir minn og mágur,
ÁSGEIR MAGNÚSSON,
Vesturgötu 54a,
lést 21. þessa mánaðar.
Útförin hefur farið fram.
Ólafur Slgurðsson og fjölskylda,
Guðrún Árnadóttlr.
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
SIGURLAUG M. JÓNSDÓTTIR,
Langholtsvegl 97,
Reykjavfk,
andaðist f Landakotsspítala 29. aprfl.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar og sonur,
SIGURÐUR ANDRÉS SIGURÐSSON,
Vesturbergi 36,
lést mánudaginn 27. apríl.
Sesselja Magnúsdóttir,
Kristinn Sigurðsson,
Hildur Sigurðardóttir,
Sigurður Andrós Sigurðsson,
Svava Sfmonardóttir.
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
GUÐMUNDUR HREINN GÍSLASON,
bóndi á Uxahrygg,
lést í Borgarspítalanum 18. apríl. Útförin veröur gerð frá Odda-
kirkju á Rangárvöllum iaugardaginn 2. maí kl. 14.00.
Magnús Guðmundsson,
Dýrfinna Guðmundsdóttir,
Erlingur Guðmundsson,
Árný Guðmundsdóttir,
Ingibjörg Guðmundsdóttir,
Gfsli Guðmundsson,
Guðmundur Hólm Bjarnason,
Kristjana Ólafsdóttir,
Trausti Runólfsson,
Sigurvina Samúelsdóttir,
Kristmann Jónsson,
Emil Ragnarsson,
Helga Narfadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
GUÐNÝ STEFANÍA GUÐMUNDSDÓTTIR,
Vffilsgötu 22,
Reykjavfk,
verður jarðsungin frá Fossvogskapellu fimmtudaginn 30. apríl.
kl. 13.30.
Magnús Brynjólfsson,
Guðmundur H. Magnússon, Guðbjörg Richter,
Hrafn Magnússon, Kristfn Erlingsdóttir
og barnabörn.
t
Útför eiginkonu minnar,
ÖNNU MAGNÚSDÓTTUR,
Skálholti,
fer fram frá Skálholtskirkju laugardaginn 2. maí kl. 14.00.
Ferð veröur frá BSÍ kl. 12.00.
Guðmundur Óli Ólafsson.
t
Innilegt þakkiæti fyrir auðsýnda samúö og vinarhug viö andlát
og útför eiginmanns míns, föður okkar, afa og langafa,
SÍMONAR TEITSSONAR,
Þórólfsgötu 12, Borgarnesi.
Guð blessi ykkur öll.
Unnur Bergsveinsdóttir,
Örn R. Sfmonarson, Sonja Ásbjörnsdóttir,
Teitur Símonarson, Margrót Jónsdóttir,
Sigrún Sfmonardóttir, Ólafur A. Steinþórsson,
Sigurbjörg Sfmonardóttir, Sigurður Óskarsson,
Bergsveinn Sfmonarson, Jenný Johansen,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
móður minnar, tengdamóður og ömmu,
JOHANDINE AMALIE SÆBY,
Slglufirði.
Hallfrfður NJálsdóttir,
Sverrir Guðmundsson,
Johandine, Vlgdfs og
Frfða Sverrisdætur,
Njáll og Hallgrfmur Sverrissynir.
t
Innilegustu þakkir til allra þeirra er sýndu okkur samúð og hlýhug
við fráfall og útför
SÉRA BENJAMÍNS KRISTJÁNSSONAR.
Þóra Björk Kristlnsdóttir, Jósep H. Þorgelrsson,
Margrét Þorsteinsdóttir, Björn Ingvarsson.
Lokað
Vegna útfarar ÞÓRARINS GÍSLA JÓNSSONAR verður
Skattstofu Reykjanesumdæmis lokað kl. 14.30 í dag.
Skattstofa Reykjanesumdæmis.