Morgunblaðið - 30.04.1987, Side 49

Morgunblaðið - 30.04.1987, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1987 49 ■ 1 Reuter. Gestir og gestgjafar Karl Bretaprins og kona hans Díana hafa undanfömu verið í opinberri heimsókn á Spáni eins og sagt hefur verið frá í dálki þessum. Ferðin hefur gengið mjög vel og krónprinsinn og kona hans hafa látið í ljósi ánægju með móttökur. Á síðasta degi hinnar opinberu heimsóknar var þessi mynd tekin í Toledo, en Karl og Díana ætluðu síðan að dvelja á Spáni í nokkra daga í einkaerindum. Frá hægri talið sjáum við Elenu prinsessu af Spáni, föður hennar Jóhann Karl, Spánarkonung, hjónin Díönu og Karl af Wales, Soffíu Spánardrottiningu og dóttur hennar Cristinu prinsessu af Spáni. Tölvunámskeið fyrir fullorðna Fjölbreytt, gagnlegt og skemmtilegt byrj- endanámskeið fyrir fólk á öllum aldri. Dagskrá: * Þróun tölvutækninnar. Grundvallaratriði við notkun tölva. * Notendahugbúnaður. * Ritvinnsla meðtölvum. * Töflureiknir. Gagnasafnskerfi. * Tölvurogtölvuval. ☆ Umræður og fyrirspurnir. Leiðbeinandi: Yngvi Pétursson stærðfrœðingur Tími: 5., 7., 12. og 14. maí kl. 20-23. Innritun daglega frá kl. 8—22 i símum 687590, 686790, 687434 og 39566. Tölvufræðslan Borgartúni 28, Reykjavík. —Feiti er okkar fag Djúp steikingar feiti Dreifing: Smjörlíki hf. Pverholti 19. Framleiðandi: Hydrol hf. v/Köllunarklettsveg Reykjavík Rússneska þjóðlagatríóið „Bylina", söngkonan Galina Borisova og Arútjan Akopjan, einn frægasti sjónhverf- ingamaður Sovétríkjanna, skemmta á vegum MÍR næstu daga sem hér segir: HLÉGARÐI föstudaginn 1. maí kl. 21.00. HÓTEL SELFOSSI laugardaginn 2. maí kl. 16.00. ÍSLENSKU ÓPERUNNi (Gamla Bíói) sunnudaginn 3. maí kl. 15.00. Miðasala v!ð innganginn í Hlégarði og á Selfossi, en miðar að skemmtuninni í íslensku óperunni verða seldir í félagsheimili MÍR, Vatnsstíg 10, kl. 13.30-18.00 hinn 1. maí og kl. 14.00-18.00 laugardaginn 2. maí — við innganginn í Gamla bíói. Missið ekki af sérstæðri skemmtun frábærra lista- mams. MÍR Tónleikar og töfrabrögð Hótel Saga og Gildi hf. eru stolt af að bjóða gestum sínum að heyra og sjá endanlega útfærslu á lagi Valgeirs Guðjónssonar, Hægt og hljótt, sem söngkonan unga Halla Margrót syngur með dyggri aðstoð Valgeirs, Egils Ólafssonar, Sverris Guðjónsson- ar og Diddúar, en þessi hópurfer til Belgíu eldsnemma sunnudags- morguninn 3. maítil þátttöku í Eurovision söngvakeppninni. Sýnið þeim stuðning með góðri mætingu í Súlnasalinn föstudags-, og laugardagskvöldíð n.k. Komum og hvetjum, komum og kveðjum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.