Morgunblaðið - 30.04.1987, Page 54
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1987
54
ást er...
... aðfara með rus/ið.
TM Reg. U.S. P«t Off.—atl rights reserved
• 1987 Loc Angeíes Tvnes SyndicMe
» -R»RNOV'jSA<-'
Með
morgunkafftnu
Vertu róleg Magga mín.
Ég mun reyna að vinna þig
aftur!
HÖGNI HREKKVlSI
Fyrirspum um ávísanaviðskipti
Ágæti Velvakandi.
Eilítið vandamál á ég við að
stríða. Mig langar semsagt til að
fá birtar nokkrar línur og athuga
hvort hægt sé að fá umsögn
manna sem vit hafa á almennum
samskiptum og sérstaklega sam-
skiptum á því sviði sem vandamál
mitt snýr að. Svo er mál með
vexti að ég rek kjörbúð þar sem
inn koma jafnvel hundruð þús-
unda í ávísunum á viku hverri.
Þær eru ýmist gefnar út af við-
skiptavinum eða viðskiptavinurinn
er með ávísun útgefna af ein-
hveijum öðrum aðila. Stundum
kemur það fyrir að einhver fer
lítillega yfir á ávísanaheftinu sínu
og verslunin verður að innheimta
ávísunina í sínum viðskiptabanka.
Þá hefst stríðið við að grafa upp
Kæri Velvakandi.
Útvarpshlustandi skrifar:
Mig langar til að senda nokkrar
þakkarlínur fyrir tvo úrvalsþætti í
Ríkisútvarpinu okkar.
Annar er þáttur Ólafs Ragnars-
sonar, „Þjóðlíf og þjóðtrú" sem er
á sunnudagsmorgnum. Þessi þátta-
röð er afburðavel flutt hjá Ólafi og
efnið varðar okkur íslendinga —
heimilisfang viðkomandi og síðan
símanúmer og hringja síðan í hann
og láta hann vita hvar ávísunin
sé, en oft er umræddur aðili ekki
skrifaður fyrir síma. Þetta er oft
tafsamt verk.
Fyrir kemur að reikningi hefur
verið lokað og einstöku sinnum
kemur fyrir að ávísun er fölsuð.
Margir eru með bankakortið sitt
þó reikningi hafí verið lokað.
Einnig er nú oft misbrestur á því
að afgreiðslufólk biðji um per-
sónuskilríki. Það er einnig
misjafnt hvaða reglur eru settar
í hinum ýmsu verslunum og fyrir-
tækjum um greiðslur með ávís-
unum. Ég gæti haldið áfram og
komið inn á hin og þessi atriði
varðandi ávísanaviðskipti en líkast
tii yrði það nokkuð langt mál og
við megum ekki gleyma okkar þjóð-
trú. Kann ég Ólafi bestu þakkir
fyrir.
Hinn þátturinn er „Rökkurtónar"
Svavars Gests, á sunnudagskvöld-
um kl. 22.00. Marga aðra þætti
mætti þakka, en ég nefni þessa
sérstaklega fyrir gott efni og frá-
bæran flutning.
Hafi þeir bestu þakkir fyrir.
því best að snúa sér að þvi sem
er að veltast fyrir mér.
Afgreiðslustúlkan hjá okkur
kom til mín með níuþúsund króna
ávísun og spurði mig hvort hún
mætti skifta henni. Viðkomandi
aðili var að kaupa lottómiða fyrir
rúmar þijúþúsund krónur en laun
okkar fyrir sölu lottómiða eru 5
prósent. Ávísunin var útgefin af
syni viðskiptavinarins og veit eg
ekki hvar hann á heima.
Þar sem ég þekkti til viðskipta-
vinarins sagði ég já, en bað
stúlkuna um að biðja fólk um að
skrifa símanúmer aftan á ávísanir
sem útgefnar væru af öðrum aðil-
um en því sjálfu, auk nafns og
nafnnúmers. Stúlkan setti upp
hundshaus og tilkynnti mér að það
væri hvergi gert og benti mér á
að viðskiptavinurinn ætti heima
rétt hjá. Eg ítrekaði ósk mína við
hana og maldaði hún enn í móinn
og virtist vera að setja ofaní við
mig. Voru þetta að verða stælur
á milli mín og hennar.
Ég sagði þá við hana: „Ég held
að ég sé búinn að starfa við við-
skipti lengur en þú, auk þess er
ég eldri en þú“. (Hún er 21 árs
en ég er 54 ára, en það er kannski
aukaatriði). Nú bar ég þetta und-
ir aðra manneskju og hennar álit
var að það væru takmörk fyrir
því hve langt ætti að ganga gagn-
vart kúnnanum í sambandi við
ávísanagreiðslur. Þessi manneskja
taldi að það væri nóg að hafa
nafnnúmerið og of langt væri
gengið með því að biðja um síma-
númer.
Nú er ég ekki sammála þessari
manneskju né afgreiðslustúlk-
unni, og veit reyndar að ávísana-
viðskipti eru í mörgum tilfellum
vandamál hjá aðilum sem selja
þjónustu eða vöru. Þeir vita oft
ekki hvemig á að standa að þess-
um málum.
Því þætti mér gott að fá álit
góðra manna. Og ég býst við að
fleirum þætti gott að fá leiðbein-
ingar varðandi þetta, því ógjaman
vill maður missa kúnna vegna
þess þeir telji sér misboðið til
dæmis með þessum hætti.
0835-9660
Góðir útvarpsþættir
Yíkverji
*
Astæða er til að vekja at-
hygli á ljósmyndasýningu
þeirri sem opnar í dag í Lista-
safni Alþýðusambands íslands.
Þar eiga margir af viðurkennd-
ustu fréttaljósmyndurum í heimi
myndir frá síðasta ári. Auk
heimsatburða í sorg og gleði em
þama mörg augnablik líðandi
stundar og leifturskot, sem ekki
verða endurtekin. Myndimar
spegla stríð og frið, mannlegar
raunir og gleði, íþróttir og listir.
Sviðið spannar nánast allt það
sem er í fréttum og á fömum
vegi hveiju sinni.
Myndir sem ljósmyndarar víða
um heim sendu í samkeppni
þessa skiptu þúsundum, en þátt-
takendumir vom tæplega eitt
þúsund. Flestir þátttakendumir
koma frá Bandaríkjunum, en
meðal þeirra em fulltrúar víðs
vegar að úr heiminum. Einn
norrænn fulltrúi fékk sérstaka
viðurkenningu í þessari sam-
keppni, Ragnar Axelsson. Mynd
hans af Ronald Reagan og
Vigdísi Finnbogadóttur er að
finna í bók með myndum úr sam-
skrifar
keppninni og hún fer víða um
heim á stærri sýningunni, sem
sett var upp í framhaldi af sam-
keppninni. Mynd hans er ekki á
sýningunni í Listasafni ASÍ, þar
sem hingað kom aðeins minni
„útgáfan" af ljósmyndasýning-
unni.
XXX
að þótti nokkmm tíðindum
sæta er námsmenn í Kaup-
mannahöfn söfnuðust saman á
Ráðhústorginu í Kaupmanna-
höfn á dögunum í tengslum við
heimsókn Steingríms Her-
mannssonar þangað á heimleið
frá Sovétríkjunum. Námsmenn-
imir vom þó ekki þama í
kurteisisskyni heldur til að mót:
mæla lágum námslánum. í
Nýjum Hafnarpósti, sem gefínn
er út af íslendingafélaginu og
Félagi íslenzkra námsmanna í
Kaupmannahöfn er nýlega fjall-
að um mótmælastöðu náms-
mannanna.
í blaðinu segir svo: „Vegna
verðlagsbreytinga á íslandi em
námslán nú um 3.800 kr. á
mánuði fyrir einstakling. Þetta
virðist nægja flestöllum náms-
mönnum ef dæma má af þátt-
töku í mótmælunum á
Ráðhústorginu 5. marz sl. Af
um 500 námsmönnum í Kaup-
mannahöfn vom aðeins 50
mættir.
Hvemig stendur á þessu? Em
námsmenn í Kaupmannahöfn
meðvitundarlausir eða jafnvel
tregir??? Getur einstaklingur lif-
að á 3.800 krónum á mánuði.
Þymirós vaknaði þegar kon-
ungssonurinn kyssti hana (hver
haldið þið að komi og kyssi ykk-
ur?) Hvað þarf til að vekja
námsmenn af Þymirósarsvefnin-
um? Starfshópur FÍNK/SÍNE er
orðinn dauðþreyttur á að þjóna
undir rassinum á ykkur.
Framtíð ykkar er undir ykkur
sjálfum komin, aumingjar!!!"
Undir þessu em stafimir
FÍNK/SÍNE. Víkveiji veltir því
fyrir sér hvort svona skrif auka
málstaðnum fylgi.