Morgunblaðið - 30.04.1987, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1987
55
Lítið um að vera fyrir börn-
in á sumardaginn fyrsta
Kæri Veivakandi.
Eg vil kvarta yfir því að lítið er
um að vera fyrir börn á sumardag-
inn fyrsta, ekki einu sinni sjónvarp.
Mann langar til að gera eitthvað
fyrir bömin á þessum degi, en ekki
er einu sinni um að ræða skrúð-
göngu eins og í gamla daga. Það
sem bjargaði deginum núna var að
í Laugardalshöllinni var opnuð sýn-
ing sem við hjónin fórum með
bömin okkar á. Kom hún okkur
skemmtilega á óvart, m.a. hefur
verið komið fyrir yndislega falleg-
um garði með gróðurhúsum og
gosbmnnum. Bömin skemmtu sér
stórkostlega og fengu meðal annars
að fara í einhvers konar furðutæki
sem líkir eftir „rússíbana“. Ég sá
að þau ljómuðu eftir ferðina, en þvi
miður þorði ég ekki að fara sjálf í
slíka ferð. Þama var líka skemmti-
leg tískusýning og í stuttu máli
skemmtu allir sér vel. Þökk sé þeim
sem halda þessa sýningu._
Astrós
Fávísleg skrif um
Ríkisútvarpið
Stöð 2 og Bylgjan ná ekki til landsbyggðarinnar
Til Velvakanda.
Nokkuð hefur borðið á því að
undanförnu að birtar hafa verið
greinar hér í Velvakanda og víðar
eftir einhveija óvita, þar sem skrif-
að hefur verið af mikilli fávísi um
ríkisútvarp og sjónvarp, og helst
lagt til að réttast væri að leggja
þessa fjölmiðla niður.
Þessir óvitar virðast ekki sjá
langt frá sér eða vita ekki að stór
hluti af landsbyggðinni sér ekki
Stöð 2 og heyrir ekki útvarp
Bylgjunar. En það sem verra er —
þessi skoðun nær til fleiri en nok-
kurra óvita. Ef ég man rétt þá var
t.d. í Morgunblaðinu á sl. ári haft
eftir þingmanni að réttast væri að
taka nýja útvarpshúsið og gera það
að vöruhúsi eða kartöflugeymslu.
En sem betur fer fyrir alla þá
mörgu sem em ánægðir með mjög
gott ríkisútvarp og sjónvarp höfum
við duglegan og áhugasaman út-
varpsstjóra, sem er mikill sjálfstæð-
ismaður og hátt skrifaður í þeim
flokki. Við getum því treyst því að
hann standi vörð um ríkisútvarpið
og sjónvarpið og láti ekki ómerki-
legan áróður spilla þar fýrir.
3970-9457
Þessir hringdu . .
Seðlaveski
Seðlaveski tapaðist í Laugar:
dalshöll á sunnudagskvöld. í
veskinu vom skilríki og peningar.
’i’innandi vinsamlegast hringi í
Harold í síma 656005.
Er til fram-
hald af Þrífætl-
ingunum?
Birkir hringdi: Mig langar til
að koma þeirri fyrirspum á fram-
færi til sjónvapsins hvort til sé
framhald af Þrífætlingunum og ef
svo er hvort ekki sé hægt að sýna
þennan myndaflokk áfram. Þá vil
ég mælast til þess að meira verið
af barnaefni á helgum í sjónvarp-
inu.
Norsk
bóndanæla
Föstudagskvöldið hinn 24. apríl
tapaðist „norst bóndanæla" á leið-
inni frá Amarhvoli í Óperuna.
Nælan er af vönduðustu gerð og
er því missir eigandans tilfinnan-
legur. Skilvís fínnandi hringi í síma
3 96 58.
Fyrirspurn til yfirkjörstjórnar í Reykjavík;
Er heimilt að gefa
upp nafn kjósanda?
Til Velvakanda.
í kosningunum á dögunum
vom allmargir, sem sýndu per-
sónuskilríki í þeirri einlægu trú,
að nöfnin yrðu ekki gefin upp
til fulltrúa flokka, sem sáu
ástæðu til þess að hafa eftirlit
í kjördeildum.
I dreifibréfí, sem einn flokkur
sendi frá sér, segir: „Umboðs-
maður listans í kjördeild á rétt
á að fá upplýsingar um hveijir
hafa kosið og hver er að kjósa
hveiju sinni.“ Síðan er vitnað í
33. grein kosningalaganna, sem
að mínum dómi sker tæplega
úr um þetta atriði.
Nú hef ég fulla vissu fyrir
því, að á einum kjörstað hér í
bæ vom nöfn gefin upp að boði
yfírmanna þar, þegar kjósandi
fór út. Finnst mér þarna skjóta
skökku við það, sem fólk al-
mennt heldur, og vænti þess,
að yfírkjörstjórn í Reykjavík
greini afdráttarlaust frá því,
hvemig að þessu skuli staðið.
Það er öldungis óhæft, að hér
sé verið að „plata“ fólk, eins og
einn komst að orði.
Kjósandi 0122-5790
GEÆiBI
Hátíðarkaffi MÍR1. maí
Kaffisala verður ífélagsheimili MÍR, Vatnsstíg 10,
föstudaginn 1. maí kl. 15.00-17.00. Sovéskir lista-
menn — þjóðlagatríó, söngkona og sjónhverfinga-
maður — líta inn og leika listir sínar fyrir kaffigesti.
MÍR.
FERÐATÖSKUR
ALLTAF MESTA ÚRVALIÐ
GATT-VIÐRÆ0URNAROG
FRAMTÍÐ FRJÁLSRA VIÐSKIPTA
- í hverju felst styrkur GATT og veikleiki? -
LANDSNEFND
ALÞJÖÐA VERZLUNARRÁÐSINS
Iceland National Committee of the IC C
Arthur Dunkel, aðalframkvæmdastjóri
GATT, heldurfyrirlestur um GATT (HIÐ
ALMENNA SAMKOMULAG UM TOLLA
OG VIÐSKIPTI) Á HÁDEGISVERÐAR-
FUNDI Landsnefndar Alþjóða verzlunar-
ráðsins íÁtthagasal Hótel Sögu,
mánudaginn 4. maí kl. 11.45.
DAGSKRÁ:
11.45-12.00 MÆTING
12.00-12.40 HÁDEGISVERÐUR
12.40-13.00 ERINDI ARTHURS DUN-
KEL:
GATT-VIÐRÆÐURNAR OG
FRAMTÍÐ FRJÁLSRA VIÐ-
SKIPTA
- í HVERJU FELST STYRK-
UR GATT OG VEIKLEIKI? -
13.00-13.45 UMRÆÐUR OG FYRIR-
SPURNIR
ALLIR
VELKOMIMIR
Vinsamlega tilkynnið
þátttöku í sfma 83088.