Morgunblaðið - 30.04.1987, Síða 59

Morgunblaðið - 30.04.1987, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1987 59 Nýliðinn Micciche kom Frökkum á bragðið Tvö slysamörk réðu úrslitum Frá Skúla Unnari Sveinssyni, blaöamanni Morgunblaðsins í Frakklandi. FRAKKAR unnu sér það til ágætis í gærkvöldi að vinna loksins í landsleik í knatt- spyrnu. Fórnarlömbin vorum við íslendingar, en viðureign þjóðanna í Evrópukeppni lansliða á Parc des Princes leikvangingum í París lauk með sigri Frakka sem skor- uðu tvö mörk. Frakkar höfðu ekki unnið lands- leik í knattspyrnu frá því þeir lögðu Belga að velli, 4:2, í heimsmeist- arakeppninni í Mexíkó í fyrra og þeim hafði ekki tekist að skora mark í síðustu fjórum leikjum sínum. í gær unnu þeir loksins og skoruðu auk þess tvö mörk, en leikur þeirra var langt frá því að vera sannfærandi. Dæmigerð frönsk knattspyrna, róleg lengst af en vel skipulagðar skyndisóknir inn á milli. íslenska liðið sýndi í gær að það getur staðið fremstu knattspyrnu- þjóðum á sporði. Það er að koma alvörusvipur á okkar lið. Ef til vill kemur það niður á því hversu gam- an er að horfa á leiki liðsins, en á móti kemur að við fáum ekki stóra skelli eins og stundum kom fyrir hér áður fyrr. Leikur liðsins er mjög yfirvegaður og í gær skoruðu Frakkar bæði mörk sín eftir smá- vægileg mistök hjá okkar mönn- um. Leikurinn var mjög rólegur og Frakkar komu verulega á óvart með því að pressa ekki meira á varnarmenn okkar, þeir bökkuðu og gáfu vörninni frið til að athafna sig. Miðjuleikmennirnir fóru sér ekki að neinu óðslega. Byggðu upp sóknir í rólegheitum og keyrðu síðan upp hraðann. íslenska liðið hafði náði þ'ví að skipuleggja varn- arleikinn og var leikurinn fyrir bragðið aldrei fjörugur fyrir áhorf- endur þó hann svo hann væri ágætlega leikinn. Nýliðinn skoraði Það þurfti nýliða til að skora langþráð mark fyrir Frakka. Mic- ciche fékk sendingu frá sjálfum Platini eftir að stutt þríhryninga- spil Ragnars og Ásgeirs á miðjunni hafði misheppnast og boltinn bo- rist til Platinis. Síðara markið skoraöi síðan Stopyra eftir fyrirgjöf Micciche. Sævar og Stopyra renndu sér báðir í fyrirgjöfina, en einhvern veginn skrúfaðist boltinn af þeim og f netið án þess að Bjarni ætti möguleika á að verja. Það er frekar erfitt að gera upp á milli leikmanna íslenska liðsins. Allir léku vel þó flestir gerðu sig seka um smávægileg mistök. Bjarni varði það sem hann átti möguleika á að verja, enda skot Frakka hvorki mörg né hnitmiðuð. Ágúst Már, Sævar og Gunnar voru sterkir í vörninni og á vængjunum stóðu þeir Siguröur og Atli sig vel, sérstaklega Sigurður. Símamynd/Reutor • Ragnar Margeirsson reynir hér að ná til Michel Piatini f leiknum f gærkvöldi. Platini var potturinn og pannan í leik franska liðsins. Frakkar unnu sinn fyrsta leik í Evrópukeppninni og eygja nú möguleika á að komast í úrslitakeppnina. Ásgeir var sterkur, mjög yfirveg- aður og rólegur. Ragnar komst einnig vel frá leiknum og Ómar barðist vel. Frammi voru þeir Arn- ór og Pétur, en þeir máttu sín lítið gegn besta manni vallarins, hinum bráðskemmtilega þeldökka varn- armanni, Boli. Sigurður Grétars- son stóð sig ágætlega eftir að I hann kom inn á fyrir Pétur Péturs- son. Auk Boli voru þeir Amaros o&* | Fernandez bestir í liði Frakka. Morgunblaðiö/Símamynd/B. Valsson • Um hundrað fslenskir áhorfendur voru á leiknum og studdu fslenska iiðið dyggilega. Franskir blaðamenn ósáttir við úrslitin Michel þjálfari og leikmenn ánægðir Frá Bemharði Valssynl, fróttaritara Morgunblaðsins í París. Michel, þjálfari Frakka, var þeim Á blaðamannafundi eftir leikinn í gærkvöldi kom fram að franskir blaðamenn höfðu vonast eftir stórsigri gegn íslandi og sættu sig alls ekki við 2:0 sigur. Henri Asgeir var Platini - sagði Sigi Held landsliðsþjálfari „ÉG HELD að betra liðið hafi ekki unnið f dag. Frakkar voru ekkert betri en við. Þeir skoruðu bæði mörkin eftir smávægilega mistök okkar manna,11 sagði Sigfried Held landsliðsþjálfari. „Ef þú skoðar leikinn sérðu t.d. að Ásgeir var betri en Platini í kvöld. Allir leikmenn fslands stóðu sig vel að þessu sinni og ég er ánægður með leikinn en alls ekki úrslitin. Leikkerfið sem ég setti upp fyrir leikinn gekk upp nema hvað þessi mörk voru gerð eftir smávægileg mistök, að öðru leyti er ég ánægð- ur." Ágúst Már Jónsson: Ekkert erf itt „f SVONA leikjum er númer eitt að halda einbeitingunni. Ef maður er í sæmilegrí líkamlegri þjálfun og heldur einbeítingunni er ekk- ert svo erfitt að leika gegn þessum köllum, raunar léttara en ég bjóst við,“ sagði varnarmaður- inn Ágúst Már Jónsson eftir leikinn." „Frakkarnir léku rólega á miðj- unni en ruku síðan upp í sókninni og það er mikið auðveldara aö verjast slíkum sóknum, en ef mik- ill hraði er allan tímann, fyrir okkur sem lítið höfum leikið undanfarna mánuði. Núna þegar við erum komnir með landslið þar sem Ásgeir og Arnór eru innanborös gerir maöur sér óneitanlega von um sigur í leik sem þessum. Við erum þó ef til ekki mjög vonsviknir með úrslit leiksins en heldur ekki. neitt yfir okkur ánægðir." SævarJónsson: Jtr Odýr mörk „ÞETTA voru ódýr mörk sem við fengum á okkur og mér fannst vera dálftlll heppnis- stimpill á þeim,“ sagði Sævar Jónsson eftir leikinn en hann lék mjög vel í vörninni. „Með smá heppni hefðum við getað náð jafntefli hér og það hefði verið mjög gott. Ég held að þetta sé á réttri leið hjá okkur. Við höldum boltan- um betur en við höfum gert og stöndum fyrir bragðið betur í bestu knattspyrnuþjóðunum." ósammála, sagði úrslitin góð og undir það tóku leikmennirnir Yannick Stopyra og Jose Toure. Frönsku blaðamennirnir áttu von á meiru frá sínum mönnum og fannst þeir ekki gefa sig í leik- inn á fullu. Frönsku leikmennirnir vísuðu þessu á bug. Stopyra sagði að íslenska liðið hefði leikið mjög vel og skynsamlega og Frakkar mættu vera ánægðir með úrslitin. Toure sagði að sigurinn skipti máli en ekki úrslitin, sem voru sanngjörn að hans mati miðað við gang leiksins. „Ég vanmat þá ekki fyrir leikinn, en geta þeirra kom mér á óvart. En menn verða að gera sér grein fyrir því að við kom- umst ekki í úrslitakeppnina með því að bursta Island, heldur verð- um við að sigra Sovétmenn til a^ eiga möguleika." Leik Sovétmanna og Austur- Þjóðverja lauk klukkutíma áður en flautað var til leiks í París og vissi Michel úrslitin en ekki leikmenn hans. Hann var ánægður í leikslok og sagði að þeir hefðu Evrópu- meistaratitil að verja, þó róðurinn væri erfiður í riðlinum. „Það er lið- in tíð að hægt sé að bursta íslend- ingana. Þeir hafa sýnt að þeir eru erfiðir heim að sækja og tapa með litlum mun á útivelli. Því voru þetta góð úrslit og við munum halda baráttunni áfram," sagði Michel. Ragnar Margeirsson: Þeir nýttu færin „FRAKKAR nýttu marktækifærin sem þeir fengu mjög vel og því fór sem fór, en tæklfærín má telja á fingrum annarar handar,“ sagöi Ragnar Margeirsson eftir leikinn. „í sjálfu sér eru þetta ekkert slæm úrslit en það hafði óneitan- lega niðurdrepandi áhrif á mann að fá markið á sig í fyrri hálfleiks- ins. Það er erfitt að leika gegn Frökkum. Þeir leika þannig að það þýðir ekkert fyrir okkur að keyra upp hraðann því þá koma þeir með góðar skyndisóknir þar sem þeir eru þrír á móti fjórum og þá er voöinn vís. Við miðjumennirnir urðu því að vera á varðbergi og passa okkur á að keyra ekki upp hraöann í sókninni." - Ertu þú á leiðinni heim til aö leika knattspyrnu? „Nei, ég á síður von á því. Ég ætla að reyna að vera áfram í at- vinnumennskunni og það hafa nokkur lið spurst fyrir um mig ejfc þeir hjá Watershei veröleggja mig svo hátt að enginn hefur verið til- búinn til að kaupa. Ég á von á því að þeir lækki verðið fljótlega þann- ig að ég geti farið til annars félags," sagði Ragnar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.