Morgunblaðið - 14.05.1987, Page 2

Morgunblaðið - 14.05.1987, Page 2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 1987 Morgunblaðið/KGA Ný borgarstjórabifreið komin á götuna Ný bifreið embættis borgarstjóra í Reykjavík kom á götuna í gær. Hún er af gerðinni Cadillac Fleetwood Sixty Special og kostaði tilbúin rúm- lega 2,8 milljónir. Hún kemur i stað fjögurra ára gamallar bifreiðar af Buick-gerð, sem þjón- að hefur borgarstjóraembættinu undanfarin ár. Hvassaleitisskóli: Mál sem þessi hafa forgang - segir Böðvar Bragason lögreglustjóri „ÉG ER búinn að setja hér allt í gang til að finna út hvernig þessu hafi verið háttað frá okkar hendi,“ sagði Böðvar Bragason lögreglustjóri, vegna ummæla Herdísar Hupfeldt í Morgun- blaðinu í gær um viðbrögð lögreglunnar þegar tilkynnt var um afbrigðilega hegðun manns gagnvart 9 ára dóttur hennar við Hvassaleitisskóla um páskana. Að sögn Herdísar fékk hún þau svör að lögreglan kæmi á staðinn þegar hún hefði tima sakir ann- arra verkefna en aldrei sást til ferða hennar. „Það sem gerir okkur erfítt fyrir með að fínna hvað þeim fór á milli er að fjarskiptin sem öll eru tekin Áfengi og tóbak hækka um 15—16% í dag: Tekjur ríkisins aukast um 594 milljónir króna ÁFENGI og tóbak hækka í verði í dag. Útsöluverð áfengis hækkar að meðaltali um 16% og tóbak um 15%. Hækkunin er við það miðuð að skil ÁTVR á áfengis- og tóbaksskatti í ríkissjóð hækki um 475 milljónir kr., eða úr 2.650 milljónum kr. í 3.125 milljónir. Tekjur af söluskatti hækka að auki um 119 milljónir vegna verðbreytinganna. Útsöluverð léttra vína hækkar að meðaltali minna en sterkra. Rauðvín hækkar um 14,6%, hvítvín um 15,5% og freyðivín um 12,9%. St. Emilion-rauðvín hækkar úr 560 í 630 krónur flaskan og Piat de Beaujolais úr 430 í 470 krónur. Liebfraumilch Nahe Anh.-hvítvín hækkar úr 310 í 370 krónur og Dry Poully Fuisse úr 1.280 í 1.340 krónur. Chablis Thorin lækkar úr 880 í 820 kr. vegna lækkunar á innkaupsverði. Viský hækkar að meðaltali um 17,7% og vodka um 18,1%. Sem dæmi um þetta má nefna að flaska Verðhækkun á fiski til Sovét 26 til 62% Heimild til sölu 100 lesta af gnllaxi af Ballantine’s viský hækkar úr 1.200 kr. í 1.430 og Smimoff-vodka úr 1.040 í 1.220 kr. Bandarískir vindlingar hækka um 15%, píputóbak að meðaltali um 17,8% og vindlar um 14,1%. Talið er að skatttekjur ríkisins hækki um 304,8 milljónir kr. vegna áfengishækkunarinnar og um 170,3 milljónir kr. vegna tóbakshækkun- arinnar. Að auki hækkar söluskatt- urinn. ÁTVR áætlar að áfengis- hækkunin leiði til 0,13% hækkunar framfærsluvísitölunnar og tóbaks- hækkunin leiði til 0,40% hækkunar hennar. upp á bönd eru ekki tiltæk nema í tíu til fímmtán daga,“ sagði Böðv- ar. „Ég verð því að tala við alla sem svara í síma lögreglunnar, því reyn- ist þetta vera rétt þá er það mjög alvarlegt mál að fólk skuli fá svona afgreiðslu.“ Böðvar sagði að mál sem bærust lögreglunni væru mis alvarleg og að ákveðnar reglur giltu um hvem- ig bregðast bæri við. Sum mál hefðu forgang umfram önnur. „Ég held að það sé enginn ágreiningur um að hlutir af þessu tagi eru efstir á lista, sem þýðir að menn eiga ekki að fá þau svör að lögreglan muni koma þegar hún er búin að sinna öðmm verkefnum," sagði Böðvar. Hann sagðist hafa óskað eftir því við sína menn að þeir færu og könnuðu þessi mál nánar eftir því sem hægt væri. Maðurinn virtist stunda þessa iðju sína í þessu hverfi og þá við skólann. „Þó svo að rann- sóknarlögreglan vinni að málinu, er ekki nema sjálfsagt að lögreglan reyni að leggja sitt af mörkum, því fyrirbyggjandi starf er eitt af meg- inverkefnum nútíma lögreglu,“ sagði Böðvar. „Við verðum að vinna á þeim grundvelli eins og ummæli borgarstjóra gefa til kynna, að vandamálið er ekki girðingin heldur maðurinn. Ég þekki að vísu ekki aðstæður þama við göngustíginn en það hlýtur að vera mál sem for- eldrar og skólayfirvöld verða að komast að samkomulagi um.“ VERÐHÆKKUN á fiski í ný- gerðum fisksölusamningi við Sovétmenn er 26,4% til 62,1% eftir tegundum frá verði siðasta samnings, sem rann út um ára- mótin. Alls var samið um sölu á 11.500 lestum af fiski, en á síðasta ári var umsamið magn 26.000 lestir. Vegna lækkandi gengis dollars og hækkandi verðs á fiskafurðum á vestræn- um mörkuðum á síðasta ári, náðist ekki að standa við sölu á flökunum. Um 6.000 lestir skorti þar á, en með samningum nú, er faUið frá kröfu um það magn og bótum vegna vanefndanna. Alls var nú samið um sölu á 10.000 lestum af flökum og 1.500 lestum af heilfrystum fiski. Flökin skiptast þannig að 6.500 lestir verða af karfa og öðrum tegundum og 3.500 af ufsa. Verðhækkun á karfa og öðrum tegundum er 26,4%, 62,1% á ufsa og 47% á heilfrysta fiskinum. Það er aðallega karfi, grálúða og annar flatfískur, sem er heilfrystur fyrir Sovétmenn, en nýmæli í þessum samningi er heim- ild til að afgreiða til þeirra 100 lestir af heilfrystum gullaxi. Magn þetta skiptist á milli frystihúsa SH og Sambandsins í samræmi við heildarframleiðslu húsanna. Hjá Sölumiðstöð hraðfrsytihús- anna er reiknað með því að afskip- anir geti hafízt í þessum mánuði. Talið er að með þessum samningi verði framleiðsla á karfa- og ufsa- flökum fyrir Sovétríkin samkeppn- isfær við svipaða framleiðslu fyrir markaði í Vestur-Evrópu og Banda- ríkjunum. Hannesmeð fullt hús HANNES Hlífar Stefánsson vann skák sína gegn Englendingnum Adams í 4. umferð heimsmeist- aramóts unglinga í skák, sem haldið er í Innsbriick í Aust- urríki. Hann er einn í efsta sæti með 4 vinninga að fjórum um- ferðum loknum. Brennu- vargur staðinn að verki TILRAUN var gerð til íkveikju í Stálhúsgögnum að Skúlagötu 61 í gærkvöldi. Komið var að manninum og eldurinn slökktur. Maðurinn komst undan og var ekki búið að finna hann þegar Morgunblaðið hafði síðast spurn- ir af. Eigandi Stálhúsgagna sá eld í húsinu um klukkan 23 í gærkvöldi, fór inn og kom að manni sem var að bera eld að húsinu. Tókst að slökkva eldinn og hóf lögreglan þegar ákafa leit að manninum. Bensínlítnnn hækkar í 30,60 kr. Fargjöld í innanlandsflugi og með leigubílum hækka um 10% VERÐLAGSRÁÐ samþykkti í gær heimild til olíufélaganna að hækka bensínlítrann úr 28 krón- um í 30,60 kr., eða um 9,3% og svartolíutonmð úr 5.700 í 7.100 kr., eða um rúmlega 24%. Einnig var samþykkt 10% hækkun á farseðlum í innanlandsflugi og 10% hækkun á fargjaldi með leigubílum. Georg Ólafsson verðlagsstjóri sagði að hækkun á bensíni og svart- olíu væri vegna hækkunar á innkaupsverði fyrr á árinu. í mars hefði verið ákveðin hækkun til bráðabirgða en hægt hefði verið að fresta frekari hækkunum þar til nú vegna hagstæðrar stöðu á inn- kaupajöfnunarreikningum. Nú hefði hins vegar gengið mjög á þessa reikninga og væru þeir orðn- ir neikvæðir vegna bensíns og svartolíu. Gasolíuverð hækkaði ekki að þessu sinni. Sniffbylgja: Lögreglan varar við kveikjaragasi TÖLUVERT er um notkun unglinga á sniffefnum um þess- ar mundir, einkum kveikjara- gasi. Þetta var staðfest í könnun sem fíkniefnadeild lög- reglunnar í Reykjavík gerði I gær og fyrradag í 15 verslun- um. Flestir verslunarmennimir sem rætt var við sögðu að ungl-. ingar sæktu mjög í kveikj- aragasið og höfðu sumir orðið varir við misnotkun þess strax fyrir utan verslanimar. Amar Jensson, lögreglufulltrúi í fíkniefíiadeildinni, sagði í gær að svona sniffbylgjur kæmu af og til. Hann sagði að unglingam- ir sprautuðu gasinu upp í sig og önduðu að sér. Krakkamir kæm- ust í vímu af þessu og misstu oft meðvitund. Hann sagði að efnið hefði áhrif á miðtaugakerfíð og væri lífshættulegt, eins og reynd- ar kæmi fram á brúsunum. Amar sagði að fíkniefnalög- reglan vildi benda unglingum og foreldrum á hættuna sem stafaði af þessum efíium. Þá vildi hann beina þeim tilmælum til kaup- manna að vera á varðbergi, til dæmis að selja unglingum ekki efhin nema þau hafi miða upp á það að heiman. ■ " './ X Morgunblaðið/Bj arni Amar Jensson lögreglufulltrúi með nokkra brúsa af kveikjara- gasi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.