Morgunblaðið - 14.05.1987, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 1987
3
Morgunblaðið/Kr. Ben.
Lax blóðgaður við eldiskerin hjá íslandslaxi. Signijón Þórhallsson
heldur á tveimur fiskum.
Grindavík:
Slátrun hafin
hjá íslandslaxi
Fyrsti farmurinn verður sendur á
markað í Englandi og Frakklandi
Gríndavík.
SLÁTRUN hófst í gær hjá íslandslaxi hf. í Grindavík, er
slátrað var þremur tonnum af eldislaxi. Laxinn er slægður
og frágengin til útflutnings hjá Gullvík hf.
Að sögn Siguijóns Þórhallssonar,
verkstjóra á útisvæðinu hjá íslands-
laxi hf., gekk slátrunin skínandi
vel. Þessi fyrsti farmur fer ferskur
á markað í Englandi og Frakk-
landi. Á næstu vikum verður síðan
slátrað tvisvar í viku og reynslu-
sendingar fara til Hollands, Belgíu,
Þýskalands og Bandaríkjanna.
Markaðsverð er talið mjög gott í
þessum löndum um þessar mundir.
„Við munum svo draga úr slátrun
í sumar þegar markaðurinn fyllist
af hafbeitarlaxi, enda hrapar verðið
vcnjulega þegar slíkt offramboð
verður,“ sagði Siguijón. „Okkur
liggur ekkert á að slátra, því við
getum slátrað allt árið og stýrt
framboðinu á þann tíma sem mark-
aðurinn gefur besta verðið," sagði
Siguijón einnig.
Á þessu ári er áætlað að slátra
um 300 tonnum af laxi, en ekki eru
nema þijú ár síðan fyrsta skóflu-
stungan að stöðinni var tekin,
þannig að uppbyggingin hefur
gengið hratt og áfallalaust fyrir
sig. Hjá fyrirtækinu vinna nú um
20 manns og við slátrunina í Gullvík
starfa 15 manns. Á þessu sést að
fiskeldið er að auka atvinnuna í
Grindavík svo um munar.
Kr. Ben.
Tjónið í Lysta-
dún um 40-45
milljónir króna
„ÉG hef verið að gera lauslega
samantekt á þessu og reiknað
verð véla, birgða og hússins
sjálfs. Tjónið er sjálfsagt ekki
undir 40-45 milljónum króna„“
sagði Kristján Sigmundsson,
framkvæmdastjóri Lystadúns-
verksmiðjunnar.
Verksmiðjan brann til kaldra
kola á örskammri stundu á þriðju-
dagsmorgun. „Mér sýnist sem
húsinu verði alls ekki bjargað, enda
hitnaði steypan mjög mikið," sagði
Kristján. „Slökkviliðsmenn sögðu
mér að hitinn í húsinu hefði farið
upp í 800 gráður á celsíus. Við
munum því strax fara að huga að
einhverri bráðabirgðalausn á hús-
næðisvandanum og kanna véla-
kaup. Það er engan bilbug á okkur
að finna og verksmiðjan rís aftur,
svo mikið er víst,“ sagði Kristján
Sigmundsson.
í miklu úrvali
ásamt öðrum nýjum sum-
arvörum.
Laugavegi 66, Austurstræti 22, Glæsibæ.
Umboðsmenn um land allt:
Adam og Eva, Vestmannaeyjum.
Báran, Grindavík.
Fataval, Keflavík.
Undin, Selfossi.
Nína, Akranesi.
ísbjörninn, Borgarnesi.
Tessa, Ólafsvik.
Þórshamar, Stykkishólmi.
Eplið, ísafirði.
Kaupfélag V-Húnvetninga, Hvamms-
tanga.
Sími 45800.
Sparta, Sauðárkróki.
Díana, Ólafsfirði.
Mata Hari, Akureyri.
Garðarshólmi, Húsavík.
Kaupfélag Langnesinga, Þórshöfn.
Nesbær, Neskaupstað.
Skógar, Egilsstöðum.
Viðarsbúð, Fáskrúðsfirð*..
Hornabær, Höfn Hornafirði.
Kaupfélag Rangæinga, Hvolsvelli.
Ylfa, Kópavogi.