Morgunblaðið - 14.05.1987, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 1987
Morgunblaðið/KGA
Eldurís-vodka
til Bandaríkjanna
TVEIR fyrstu gámarnir af
Eldurís-vodka, sem framleitt
er af Áfengis- og tóbaksversl-
un ríkisins, fóru með skipi
áleiðis til Bandarikjanna í
gær. Myndin var tekin við
aðalleger ÁTVR við Stuðla-
háls í gær þegar verið var að
setja vodkað í gámana. Á inn-
felldu myndinni er Eldurís-
vodkað í flöskum eins og
fluttar eru út.
Áhrif verkfalls flugumf erðarstj óra:
Hætta á afbókunum
erlendra ferðamanna
ÍSLENSK flugfélög segja að
verkfall flugumferðastjóra, ef
af verður, muni hafa mjög slæm
áhrif á ferðamannaiðnaðinn á
íslandi og jafnvel sé hætta á að
erlendir ferðamenn sem hafa
bókað sig í ferðir hingað í sumar
hætti við þegar þeir frétta af
þessu boðaða verkfalli. Verk-
fallið hefur verið boðað frá og
með 25. maí.
Halldór Sigurðsson deildarstjóri
hjá Arnarflugi sagði við Morgun-
blaðið að Amarflug fyrirhugaði
meira flug til landsins í sumar en
áður með ferðamenn frá meginlandi
Evrópu og bókanir væru meiri í
sumar en áður. Halldór sagðist
hinsvegar telja að þegar þær ferða-
skrifstofur erlendis sem sjá um
bókanir í ferðir til Islands, fréttu
af verkfallsboðuninni mætti reikna
með að fólk vildi breyta sínu sum-
arfríi og hætti við að koma til
íslands.
Sigurður Helgason forstjóri
Flugleiða sagði að verkfallsboðunin
kæmi á sama tíma og sumarvertíð-
in væri byrjuð hjá ferðamannaiðn-
aðinum á íslandi og hótel í
Reykjavík og annarstaðar væru vel
bókuð. Ef af verkfallinu yrði væri
það álitshnekkir fyrir landið og
gæti haft mjög skaðleg áhrif.
Haft var eftir Pétri Einarssyni.
flugmálastjóra í Morgunblaðinu á
þriðjudag að hætta væri á að íslend-
ingar misstu umsjón með flugum-
ferð yfír landið sem þeir hafa haft
samkvæmt samningi frá 1947 þar
sem tæknilega væri hægt að stjórna
þeirri flugumferð frá Skotlandi og
Kanada eftir að fjarskiptatæknin
er orðið jafn fullkomin og raun ber
vitni. Þau flugfélög sem fljúga yfir
Atlantshafíð inn í flugstjómarsvæði
íslands greiða fyrir þá þjónustu og
því gætu, samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins, vaknað spurning-
ar um hvort ekki væri hagkvæmara
að sú þjónusta sé veitt af öðrum
aðilum. Því gæti tækifærið verið
notað til að endurskoða þessi mál
ef einhver röskun yrði í starfsemi
flugumferðarstjómar hér.
Morgunblaðið hafði samband við
Alþjóða flugmálastofnunina í
Kanada vegna þessa en íslenska
flugumferðarstjómin yfír Atlants-
hafí er í umboði þeirrar stofnunar.
Fyrir svömm varð Gunnar Finnsson
deildarstjóri og sagði hann að þang-
að hefði ekki komið nein formleg
tilkynning frá Flugmálstjóm ís-
lands um verkfallsboðun flugum-
ferðarstjóra. Þess vegna gæti
stofnunin ekki tjáð sig um þetta
mál fyrr en nánari upplýsingar
bæmst. Aðgerðir vegna verkfalls
íslenskra flugumfrðarstjóra yrðu
einnig skipulagðar í samráði við
önnur flugumferðarsvæði.
SVEINAFÉLAG rafeindavirkja
undirbýr nú verkfallsboðun, eftir
árangurslausan fund félagsins
með viðsemjendum hjá ríkis-
sáttasemjara á þriðjudaginn, þar
sem ekkert miðaði í samkomu-
lagsátt. Nýr samningafundur
hefur ekki verið boðaður. Félag-
ið getur boðað verkfall með viku
fyrirvara.
Það em 90 rafeindavirkjar og
25 rafvirkjar, sem munu leggja nið-
ur vinnu, ef til verkfallsins kemur.
Þeir starfa hjá Pósti og Síma, Vita-
og Hafnarmálastjóm, Flugumferð-
arstjóm, Ríkisspítölunum og
Ríkisútvarpinu.
Að sögn Magnúsar Geirssonar,
formanns Rafíðnaðarsambands ís-
lands er meginkrafan í samningun-
um að gerðir verði sambærilegir
samningar við rafeindavirkja og
Rafíðnaðarsambandið hefði /, gert
fyrir félaga sína, sem starfa hjá
Rafmagnsveitum ríkisins, Lands-
virkjun og Ríkisverksmiðjunum.
Könnun Kjararannsóknanefndar
hefði sýnt að rafeindavirkjar hefðu
talsvert lægri laun en aðrir rafíðn-
aðarmenn, enda væm samningar
við ríkið samningar um hámarks-
laun. Þar tíðkaðist ekki, eins og á
almennum vinnumarkaði, að semja
um ákveðin lágmarkslaun og síðan
eftir á um sérstakar greiðslur til
viðbótar. Þetta ylli fólksflótta hjá
þessum fyrirtækjum og því að þeir
sem eftir yrðu ynnu óhóflega mikla
yfírvinnu. Á þessu yrði að fást leið-
rétting.
VEÐURHORFUR í DAG:
YFIRLIT á hádegi f gœr: Um 200 km suöur af Dyrhólaey er 998
millibara djúp lægö sem þokast austsuðaustur. Norðaustur af
Labrador er önnur lægð, vaxandi 992 millibara djúp, og þokast
norðaustur.
SPÁ: Hæg breytileg átt. Skýjað að mestu og smá skúrir á stöku
stað einkum um sunnan- og vestanvert landið. Hiti á bilinu 3 til 7
stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
FÖSTUDAGUR: Sunnanátt og hlýnandi veður, einkum norðanlands
og austan. Víða rigning, einkum um sunnan- og vestanvert landið.
Snýst í suðvestanátt með skúrum vestanlands undir kvöld.
LAUGARDAGUR: Suðvestanátt og skúrir sunnanlands og vestan
en léttir til noröanaustanlands. Aftur lítið eitt kólnandi.
•J0 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
*
V El
= Þoka
= Þokumóða
’ , 5 Súld
OO Mistur
—J- Skafrenningur
Þrumuveður
ý Skúrir
TAKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Mfjk Alskýjað
y, Norðan, 4 vindstig:
' Vindörín sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
r r r
r r r r Rigning
r r r
* r *
r * r * Slydda
r * r
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 i gær að ísl. tíma
hhi veður
Akureyri 9 hálfskýjað
Reykjavik 6 rigning
Bergen vantar
Helsinki S rigning
Jan Mayen 0 léttskýjað
Kaupmannah. 18 skúr
Narssarssuaq 2 slydda
Nuuk 0 snjókoma
Osló vantar
Stokkhólmur 11 hálfskýjað
Þórshöfn S skýjað
Algarve vantar
Amsterdam 10 skýjað
Aþena 20 léttskýjað
Barcelona vantar
Berlín 11 skýjað
Chicago 9 láttskýjað
Feneyjar 19 skúr
Frankfurt 11 hálfskýjað
Hamborg 10 skýjað
Las Palmas 22 léttskýjað
London 13 léttskýjað
LosAngelos 16 þoka
Lúxemborg vantar
Madrfd 21 skýjað
Malaga 27 léttskýjað
Mallorca 26 léttskýjað
Miami 26 léttskýjað
Montreal 9 léttskýjað
NewYork 13 hélfskýjað
París 9 háglél
Róm 20 skýjað
Vín 11 rignlng
Washington 16 skýjað
Winnipeg 19 skúr
íslenskur flugstjóri á Trinidad:
Lífgaði mann úr dái
Frá Elinu Hansdóttur, Luxemborg.
KRISTJÁN Richter flugmaður
hjá flugfélaginu Cargolux bjarg-
aði breskum ferðamanni frá
drukknun við smáeyju rétt við
Trinidad og Tobago í Karabíska
hafinu fyrir nokkru, en þangað
hefur Cargolux flogið í leigu-
flugi undanfarið með ferðamenn
frá Bretlandi. Kristján þurfti að
lífga manninn við með hjarta-
hnoði þar sem hann var hættur
að anda.
28. apríl síðastliðinn var áhöfn
flugvélar Cargolux stödd í Port of
Spain, höfuðborg Trinidad og To-
bago, en Cargolux hefur undan-
fama mánuði tekið að sér
farþegaflutninga frá London þang-
að fyrir British West India Airlines.
Þennan umrædda dag hafði flugá-
höfnin farið í ferð með fetju til
eyjar sem er í um 30 mínútna sigl-
ingar fjarlægð frá meginlandinu.
Þar átti að vera grillveisla og fleira
til skemmtunar.
Út frá eyjunni gengur um það
bil 100 metra langt kóralrif og þar
var fólk að leika sér í sjónum.
Kristjáni sagðist hafa orðið starsýnt
á um það bil fertugan mann sem
þar var að leika sér með tveimur
bömum því hann þóttist sjá að stað-
urinn gat verið varhugaverður. Því
hefði sér ekki komið á óvart þegar
hann heyrði kallað á hjálp.
Við það ruku til Kristján Aðal-
steinsson aðstoðarflugstjóri og
írskur aðstoðarflugmaður og syntu
að manninum sem þá var kominn
með krampa en á meðan náði Krislj-
án Richter í bátinn sem þeir komu
á til eyjarinnar og sigldi honum að
manninum og náði honum upp í
bátinn.
Þegar maðurinn kom upp í bátinn
var hann hættur að anda og enginn
púls fínnanlegur. Kristján Richter
hóf þegar lífgunartilraunir og með
hjartahnoði og öndunarhjálp tókst
honum að lífga manninn við aftur.
Alls tóku lífgunartilraunimar um
15 mínútur áður en blóðrásin fór
af stað aftur.
Maðurinn sem Kristján bjargaði
á þennan hátt var breskur ferða-
maður sem hafði komið með
Cargoluxvélinni til Trinidad og To-
bago ásamt fjölskyldu sinni. Kristj-
án sagði að þessi maður hefði áður
haft við orð að hann ætlaði sér
ekki að fljúga með þessu sama flug-
félagi aftur til Bretlands því honum
leist ekki á flugvélina. Þegar hann
hafði jafnað sig eftir óhappið skipti
hann um skoðun og lýsti því yfír
að hann myndi fljúga hvert á land
sem væri með þessari áhöfn Cargo-
lux.