Morgunblaðið - 14.05.1987, Side 16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 1987
SMÁMYNDIR
Veikko Myller: Smáskúlptúr 1982.
Myndlist
Bragi Ásgeirsson
„Litlar stærðir" eða smáskúlpt-
úrar frá norðrinu, nefnist sýning,
sem þessa dagana prýðir anddyri
Norræna hússins og Norræna
myndlistarbandalagið stendur að.
Það eru fimm myndlistarmenn,
sem eiga verk á sýningunni og
eru það Claes Hake frá Svíþjóð,
Finn Hjortskov Jensen frá Dan-
mörk, Veikko Myller frá Finn-
landi, Michael O’Donnell frá
Noregi og Ragna Róbertsdóttir
frá íslandi. Er hér um farandsýn-
ingu að ræða, sem Maaretta
Jukkuri hefur valið en hinn nýi
forstöðumaður norrænu menning-
armiðstöðvarinnar í Svíaríki,
Gertrud Sandqvist, er ábyrgur
fyrir sýningarskrá, sem er einföld
og handhæg. Skrifar frúin einnig
formála.
Hér mun um kynningarsýningu
að ræða sem gengur á milli hinna
ýmsu menningarstofnana á Norð-
urlöndum og sem slík hefur hún
vafalítið dijúgan tilgang. Lista-
mennimir eru og óþekktir utan
heimalanda sinna og flestir á svip-
uðum aldri, fæddir 1945—50 —
undantekning er þó Finn Hjorte-
skov Jensen, sem fæddur er 1936,
en hann hóf seint listnám og er
þannig séð af sama árgangi.
Það verður frekar lítið úr sýn-
ingunni í hinu þunga anddyri
Norræna hússins en slíkar sýning-
ar þurfa helst sérstaka létta og
lifandi umgerð til að njóta sín til
fulls, og um leið góða lýsingu.
Það felst engu síður fegurð og
þokki í litlum skúlptúrum en hin-
um stærri en það er öllu vanda-
samara að láta þá litlu njóta sín
í sama mæli og hina fyrirferðar-
meiri en þó hefur maður séð
glæsileg dæmi þess og þá helst á
söfnum. Áhersla er þá lögð á sér-
kenni hvers grips fyrir sig og að
þau skili sér áreynslulaust til
skoðandans. Þetta gera gripimir
í anddyrinu ekki því að ef menn
á annað borð taka sérstaklega
eftir þeim þarf að leggja á sig
nokkra skoðun til að vera með á
nótunum. Af þeim sökum er erfitt
að fjalla um þá nema á hreint
Ragna Róbertsdóttir: Textíl-
skúlptúr 1983.
fræðilegan hátt, en slík skrif les
enginn.
En kynningargiidi slíkrar sýn-
ingar er hafið yfir allan vafa þótt
slíkt eitt sé ekki nóg.
Vantar
fyllingu
í líf þítt?
Sprungur í vegg lokast ekkí af sjálfu sér.
Þaö veistu.
Lausnarorðiö er Thorlte. EfniÖ sem
fagmennírnír kalla demantssteypu.
Harkan og endíngín — þú skilur.
Thoríte viögerðarefnið hefur góða viðloöun. Þú notar
það jafnt á gamla steypu sem nýja.
Mótauppsláttur er óþarfur: eftir 40—60 mínútur er
veggurinn þurr, sléttur og tilbúinn undir málningu.
Iönaðarmenn þekkja Thorite af Iangri reynslu.
Nú er komið aö þér.
Thorite fæst í Iitlum og stórum umbúðum með
íslenskum leiðbeiningum.
Spuröu eftir Thorite í næstu byggingarvöruverslun.
Þeír þekkja nafnið.
15 steinprýði
Stangarhyl 7. s. 672777
Útsöfasta&lr:
BYKO • B.B. Byggingarvðrur • Húsasmiðjan • Skapti,
Akureyri • Málningarþjónustan, Akranesi • G.E.
Saemundsson, ísafirði • Baldur Haraldsson, Sauðár-
króki • Dropinn, Keflavík • Kaupfélag Vestmannaeyja
• Kaupfélag A-Skaftfellinga, Homaflrði.
Fjórar
deildir í fé-
lagi kvenna
í fræðslu-
störfum
ÞING Landssambands Delta
Kappa Gamraa, félags kvenna í
fræðslustörfum, var haldið í
Varmalandi í Borgarfirði 1.—3.
maí sl. Innan þessara samtaka
eru konur sem vinna að fræðslu-
og menntamálum. Á íslandi
starfa nú 4 deildir og var fjórða
deildin stofnuð á hátíðarfundi í
Varmalandi. Tíu ár eru liðin frá
stofnun samtakanna á íslandi,
en þau eru hluti af alþjóðasam-
tökum kvenna. Meginverkefni
samtakanna er að styrkja konur
til framhaldsnáms, og hafa
nokkrar islenskar konur hlotið
slika námsstyrki.
Gestur fundarins var dr. Theresa
Fechek, framkvæmdastjóri frá að-
alstöðvum í Austin í Texas. Á
kvöldvöku á föstudagskvöldið
kynntu konur úr Beta-deild á Akur-
eyri verk listakonunnar Elísabetar
Geirmundsdóttur, sem lifði og starf-
aði á Akureyri. Sýndu þær lit-
skyggnur af útskurði og
höggmyndum eftir listakonuna en
auk þess voru um 20 málverk eftir
hana til sýnis þingdagana. Einnig
voru flutt ljóð og lög eftir Elísa-
betu. Aðalefni þingsins van Áhrif
myndefnis á börn og unglinga.
Framsöguerindi fluttu Þorbjöm
Broddason dósent og Anna G.
Magnúsdóttir. Spunnust miklar
umræður út frá erindunum. Mynd-
efni er svo sterkur áhrifavaldur í
nútíma þjóðfélagi, að full ástæða
er til að vekja uppalendur til um-
hugsunar um hann. Mjmdbönd og
myndefni ýmislegt gefur ótæmandi
möguleika í kennslu. Á hinn bóginn
vekur hið gífurlega flóð myndefnis
sem hellist yfir böm og ungmenni
ugg í bijósti margra, og töldu þing-
fulltrúar rétt að beina því til for-
eldra og forráðamanna bama að
þeir fylgdust eftir megni með því
myndefni, sem böm þeirra horfa á
og ræddu efni myndanna við böm
sín.
Fráfarandi forseti samtakanna
er Pálína Jónsdóttir, Kópavogi, en
forseti til næstu tveggja ára var
kjörin Sjöfn Sigurbjömsdóttir,
Reykjavík. Aðrar í stjóm em: Jó-
hanna Þorsteinsdóttir, Akureyri,
Jenny Karlsdóttir, Akureyri, Gerður
G. Óskarsdóttir, Reykjavík og Sig-
rún Klara Hannesdóttir, Reykjavík.
(Fréttatilkynning.)