Morgunblaðið - 14.05.1987, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 14.05.1987, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 1987 19 Flj ótsdalshérað: Tún orðin græn og birki að laufgast Geitagerði, Fljótsdal. EFTIR mildan og snjóléttan vetur hefur vorað vel. Tún eru orðin mikið til græn, sama er að segja um ierkiskóga og birki er að byrja að laufgast. Látlausir þurrkar hafa tafið fyrir öllum gróðri, eins svali á næturnar vegna heiðríkjunnar, þó hitinn hafi oft verið þetta 8-10 gráður og meira á daginn. Sauðburður hefst hér yfirleitt um miðjan mánuðinn. Nú stendur yfir á Hallormsstað vinnuvika kennara við grunnskól- ann þar en skólanum verður slitið 15. maí. Verið er að einangra að utan og klæða Húsmæðraskólann en það hús var reist 1930. Þar er nú rekinn eini húsmæðraskóli landsins og voru 18 nemendur þar eftir áramót í vetur en fyrir áramót eru haldin námskeið í heimilis- fræðum fyrir efri bekki grunnskól- anna á Austurlandi. Þann 23. maí hefst í Húsmæðraskólanum nám í sérkennslufræðum fyrir starfandi kennara á Austurlandi. Berit John- sen á Hallormstað hefur skipuiagt þetta nám en Kennaraháskóli Is- lands ber faglega og fjárhagslega ábyrgð á því. Teknar verða 20 daga lotur tvisvar á ári í fjögur ár og samsvarar það eins áré heilsdags- námi á háskólastigi og gefur 30 punkta. greina um skólamál í dreifbýli og er hún gefín út í tilefni af sextugsaf- mæli Guðmundar Magnússonar fræðslustjóra á Reyðarfírði. G.V.Þ. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson. Inga Kristín Guðlaugsdóttir með Brúðu og lömbin fjögur. Snæfellsnes: Svefninn gleymist við sauð- burðinn á bjartri vornótt Á næstunni Litríkt land — kemur út bókin lifandi skóli, safíi Borg í Miklaholtshreppi. MESTU annadagar ársins eru nú þar sem sauðburður er kom- inn í fullan gang. Allar ær hér um slóðir bera I húsi, víðast hvar eru gemlingar fengnir. Öll um- hirða um burð við þessi skilyrði eykur vinnu verulega. Á mörgum bæjum koma sjálfboðaliðar heim til foreldra og frænda til hjálp- Borgarfjörður: Ekki langt í næga nál handa lambám Grund, Skorradal. NÚ þegar sauðburður fer í hönd lítur vel út með gróður í Borgar- firði. Er gróðurinn yfirleitt kominn af stað og grænn litur farinn að færast á tún. Ef hlýnar og sólfar verður næstu daga, verður ekki langt þangað til næg nál verður handa lambánum á ræktuðu landi, því ldakalaust er að verða og mikill raki í jörðu eftir óvenjum- ikla úrkomu undanfarnar vikur. ar. Á bjartri vornótt við slík störf er svefninn aukaatriði og vill gleymast, sllk er ánægjan við sauðburðinn. Gott útlit er með gróður þó nokk- uð vætusamt hafi verið undanfarið. Jörð er klakalítil og tekur því gróð- ur fljótt við sér. Fréttaritari veit ekki annað en að sauðburður gangi vel og heilbrigði §ár sé í besta lagi. Það er fleira en lömb sem fæð- ast nú um þessar mundir. Nýbú- greinum eins og refa- og minkabúum er óðum að fjölga hér. Aflaði ég mér upplýsinga um ástand á gottíma hjá þremur búum sem eru hér í grennd við mig. Ekki er vitað með vissu um hvolpafjölda hjá minkum þar sem ekki má kíkja í ból þeirra fyrr en eftir nokkra daga, en það sem vitað er munu vera 5-6 hvolpar hjá læðu. Refalæður eru að byija að gjóta. í Söðulsholti eru gotnar 13 iæður, undan 5 sem skoð- að hefur verið hjá eru 65 hvolpar. Vonandi er að velgengni fylgi þess- ari búgrein. — Páll A-Landeyjar: Venjulega þrílembd — nú fjórlembd í annað sinn Selfossi. ÆRIN Brúða á Voðmúlastöðum í Austur-Landeyjum bar nýlega fjórum lömbum sem öll eru hin sprækustu. Brúða er 8 vetra og hefur verið þrilembd frá því hún bar fyrst, þriggja vetra, og þetta er í annað sinn sem hún er fjór- lembd. Á sex árum hefur Brúða þvi borið 20 lömbum. Eigandi Brúðu, Inga Kristín Guð- laugsdóttir, neitaði því ekki að Brúða væri í uppáhaldi hjá sér. Á Voðmúlastöðum voru í fyrra tutt- ugu þrílembur af 150 ám og í ár, þegar bomar vom 15 ær, vom 3 þrílembdar og ein fjórlembd. Sig. Jóns. Aðaldalur: Bændur bjartsýnir eftir mildan vetur Töluvert kal í Kinn og Fnjóskadal Straumnesi, Aðaldal. ÞAÐ VORAR vel eftir óvenjumildan vetur. Suðvestanátt og hlýindi hafa verið hér ríkjandi i vor þar til á föstudag í síðustu viku en þá kólnaði og snerist í norðanátt með slydduéljum. Tún hafa grænkað eðlilega og klaki er mjög lítill í jörðu. Kal er í túnum í Kinn og Fnjóskadal, tilfinnanlega mikið hjá einstaka bónda. Annars virðist jörð komast vel heylausir en næg hey em í héraðinu undan vetri og bændur bjartsýnir til að miðla. Bændur em byijaðir um sumarið. Hey em nú víða lítil vorverk, einstaka byijaður að bera og nokkrir bændur þegar orðnir á tún og sá grænfóðri. St.Sk. Febrúar, mars og apríl, em að jafnaði þurrviðrasamir mánuðir. En nú, samkvæmt mælingu í Andakíls- árvirkjun, var úrkoma í febrúar 111,1 millimetrar, í mars 155,8 mm og í apríl 203,8 mm. Þessa þijá mánuði komu því V12 hlutar af meðalársúrkomunni, sem er mjög óvenjulegt. Vegir hér í uppsveitum Borgar- íjarðar hafa víða verið illfærir síðustu vikumar sökum aurbleytu, enda viðhaldi þeirra mjög ábóta- vant, sumsstaðar er þeim ekkert haldið við. Vegimir em nú óðum að þoma og em þeir að verða fær- ir flestum bflum. Á þeim bæjum sem ár vom sædd- ar hófst sauðburður fyrstu daga maímánaðar en annars staðar byij- ar hann um eða uppúr 15. maí. D.P. Skagafjörður: Meðalland: Ærnar taka ekki mið af væntanlegri skerðingu Margar tvílembur og sumsstaðar þrílembur Hnausum ( Meðallandi. NÚ ER sauðburður nær allstaðar hafinn hér og gengur vel þar sem vitað er. Ekki munu ærnar taka mið af væntanlegri skerðingu þvi margt er tvílembt og sumstaðar ber nokkuð á þrflembi. Veður hefur verið sæmilegt það sem af er sauðburði. Hefur það mikið að segja því hús eru ekki meiri en það hér víðast hvar að ærnar bera á túnun- um. Sauðburði seinkað vegna kvóta og nýs kjötmats Voríð heilsar með þúsundum helsingja, folöldunum og lömbunum VannahlSð. HÉR í Skagafirði, svo sem víðast á landinu, höfum við lifað einn mildasta vetur í manna minnum. Stanslaust blíðviðri frá haustnóttum til vors ef frá eru taldir kaflar í lok nóvember og svo nú um mánaða- mótin mars/apríl, en þá gerði hér alvörustórhríð á norðlenska vísu og setti niður fönn sem fjöllin skarta enn um hríð. Ekki þarf allstaðar að kvíða önn- um vegna sauðburðar. í Skál á Síðu var sauðfénu slátrað núna í aprfl vegna gruns um riðuveiki, en á síðasta ári var skorið niður sauðfé í Austurhlíð og Hvammi í Skaftár- tungu. Eru þetta vondar fréttir því fram að þessu hefur héraðið milli Mýrdals og Skeiðarársands verið laust við sauðfjársjúkdóma þá sem í seinni tíð hafa heijað hér á landi. Var mikið flutt héðan af sauðfé vegna Qárskipta þegar niðurskurð- ur var vegna mæðuveiki. Sumarfuglar eru allir komnir. Englendingar hafa merkt álftir undanfarið. Hafa þessir merktu fuglar verið nokkuð áberandi hér. Álftin er allmikið hér á vetrum en sumt af henni hefur vetursetu á Englandi. — Vilhjálmur Félagslíf í héraði hefur staðið með blóma, svo sem fyrr. Kóramir Heimir og Rökkurkórinn hafa lokið vetrarstarfinu, nema karlakórinn Heimir mun halda í söngferð suður síðar í vor. Leikfélag Skagfírðinga hóf æf- ingar síðla vetrar á sjónleiknum Sálir Jónanna og sýndi í Miðgarði í kringum páskana. Aðsókn hefur verið allgóð. Síðasta sýning var fyrirhuguð 15. maí. Vorið hefiir heilsað og helsingj- amir hafa tyllt sér niður í Hólmin- um svo þúsundum skiptir á sinni árlegu reisu til varpstöðvanna á Grænlandi. Vom þeir fyrr á ferð- inni miðað við undanfarin ár, en nokkm fyrir síðustu mánaðamót sáust fyrstu fuglamir. Fleira minnir á komu vorsins. Blessuð folöldin koma í heiminn eitt af öðm. Koma manni þá í hug orð Jóhannesar úr Kötlum, er kvað: „Og í logni ljósrar nætur, lítill hestur brölti á fætur, enn eitt lífsins undur skeði, inn við hjarta þessa lands.“ Sauðburður er hafínn og sam- kvæmt heimildum munu sauðfjár- bændur hafa seinkað burði þetta vorið. Má ætla það afleiðingar af kvóta, nýju kjötmati og fleiru, sem er farið að setja svip sinn á búskap- arhætti nú á tímum. Fyrir tilstuðlan Sauðfjárveikivama hefur í vetur verið unnið að samræmdum aðgerð- um til útiýmingar riðu í sauðfé á svæðinu milli Héraðsvatna og Blöndu og em uppi hugmyndir um að þær aðgerðir nái allt vestur í Miðfjörð. Vitað er að skorið var niður á nokkmm bæjum síðastliðið haust og er ætlunin að fylgja því eftir á komandi hausti og fullkomna verkið. Samkvæmt heimiidum em bygg- ingarframkvæmdir með minna móti hér í sveitinni. Nokkrir aðilar hafa þó í hyggju að hefja loðdýrarækt og hafa þá einkum í huga mink, sem þykir vænlegasti kosturinn svo sem staðan er í dag. Fyrirhuguð er bygging á einu íbúðarhúsi hér í Varmahlíð í sumar og því til við- bótar em í byggingu tvö íbúðarhús á vegum stjómar verkamannabú- staða. Þá verður baðklefabygging við sundlaug Varmahlíðarskóla fok- held síðar í vor. Skólamir em í þann mund að ljúka vetrarstarfí sínu og haida nemendur sælir og glaðir í annir vordagsins í sveitinni þar sem þeir komast í beina snertingu við at- vinnulífið og það sem meira virði er, komast í snertingu við náttúmna sjálfa og gang lífsins. Sú reynsla sem þannig fæst reynist mörgu ungmenninu haldgott veganesti í lífshlaupinu, það hefur reynslan sýnt. P.D.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.