Morgunblaðið - 14.05.1987, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 1987
27
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Bæjarstjórn Kópavogs gróðursetti tré við Nýbýlaveg á afmæli bæjar-
ins 11. maí síðastliðinn.
Kópavogur:
Átak hafið í trjá-
rækt og snyrtmgu
í tilefni 32 ára afmælis Kópavogs plantaði bæjarstjóm Kópavogs
trjám við Nýbýlaveg og er það liður í áætlun um fegrun bæjarins
á næstu ámm. Með gróðursetningunni vill bæjarstjórnin minna á
átak í tijárækt og snyrtingu sem
Umhverfisráð Kópavogs, sem
stofnað var síðastliðið haust, tók
yfir starfssvið náttúruverndar- og
fegrunarnefndar bæjarins. Með
sameiningunni vilja bæjaryfirvöld
tryggja framgang umhverfis- og
náttúruverndarmála í landi kaup-
staðarins, segir í frétt frá ráðinu.
Framlög til þessara mála voru auk-
in við gerð íjárhagsáætlunar fyrir
árið 1987 og eru útgjöld til um-
hverfismála 40 milljónir króna.
Með stofnun umhverfisráðs er
sett á laggimar garðyrkjudeild í
bænum og hefur Einar E. Sæ-
mundsen landslagsarkitekt verið
ráðinn garðyrkjustjóri. Megin verk-
nú er að hefjast.
efni á sviði umhverfismála í sumar
innan bæjarmarkanna verða í norð-
ur- og austurhluta Kópavogs og er
ætlunin að ljúka þar ýmsum fram-
kvæmdum. Má meðal annars nefna
frágang í kjölfar holræsafram-
kvæmda, útlit verslunarsvæðis í
Hamraborg, frekari framkvæmdir
á skólalóðum og frágangur við nýja
smáhúsabuggð aldraðra við Vogat-
ungu. Þá vill umhverfisráð og
garðyrkjudeild hvetja eigendur fyr-
irtækja til að taka á með bæjaryfir-
völdum í því umhverfisátaki sem
nú er að hefjast. Starfsmenn garð-
yrkjudeildar munu veita ráð í þeim
efnum ef óskað er.
Hlaut 1. verðlaun
á alþjóðlegri grafík
sýningu á Italíu
ALÞJÓÐLEG grafíksýning
var opnuð í Biella á Norður-
Ítalíu þriðjudaginn 12. mai sl.
og var Sigrid Valtingojer,
grafiklistamanni, boðið að
vera viðstödd opnunina og
taka þar á móti 1. verðlaunum,
sem hún hefur hlotið fyrir
verk sín.
Þetta er 10. grafíksýningin
sem haldin er í Biella og var
verk Sigrid, „Landslag V.“ var
valið til verðlauna úr 337 inns-
endum verkum. Sýningarnefndin
skýrði val sitt með þessum orð-
um: „Vegna mikilla hæfileika
hennar og tæknikunnáttu sem
gera henni kleift að búa til mynd-
ir sem hvetja ímyndunarafl
áhorfandans og búa yfir hljóðl-
átri fegnrð."
Verkin sem verðlaun hljóta á
þessari sýningu eru síðan eign
Listasafnsins í Biella. í fréttatil-
kynningu segir, að þessi verð-
laun séu mikill heiður fyrir
listamanninn því auk þeirra
verka sem verða í eigu safnsins
í Biella verður 35 eintökum
myndarinnar dreift á stærstu
söfn á Ítalíu og í öðrum löndum
Evrópu.
Annað verk eftir Sigrid sem
sýnt var á grafíksýningu í
Wakayama í Japan nýlega hlaut
einnig verðlaun. Var þar um að
ræða sýningu á 108 grafíkmynd-
Sigrid Valtingojer grafíklista-
maður.
um sem valdar voru úr miklum
Qölda verka eftir grafíklista-
menn frá 46 löndum. Sigrid var
ein af 12 listamönnum sem hlutu
viðurkenningu fyrir verk sín á
þessari sýningu.
Tvenn ný umferðarljós
TVENN ný umferðarljós fyrir
gangandi vegfarendur verða tek-
in í notkun í Reykjavík næstkom-
andi laugardag, 16. maí, þar sem
áður voru gangbrautir.
Önnur umferðarljósin er á Elliða-
vogi á móts við DAS, en hin eru á
Lönguhlíð við Háteigsveg. Grænt
ljós logar á móti umferðinni, en
gangandi vegfarendur geta stöðvað
umferðina og fengið grænt ljós með
því að ýta á hnapp.
Þá verður einnig innan skamms
kveikt á nýjum umferðarljósum á
gatnamótm Ármúla, Síðumúla og
Vegmúla.
FIAT UNO stendur óumdeilanlega framar
öðrum bílum í sama stæröarflokki - sannur braut-
ryöjandi sem sýnir aö nútíma hönnun eru lítil tak-
mörk sett.
Hann er lítill aö utan, en stór aö innan og býöur
upp á rými og þægindi sem nútímafólk kann aö
meta.
Þegar tekið er tillit til útlits, aksturseiginleika,
þæginda, hagkvæmni, öryggis, notagildis og síðast
en ekki síst hversu mikið fæst fyrir peningana,
kemur í Ijós að FIAT UNO er einfaldlega einstakur. 1
FIAT UNO 45 :283.000 kr.
FIAT UNO 45S : 312.000 kr.
F // A T
FIAT UMB0ÐIÐ
SKEIFUNNI 8 108 REYKJAVlK S: 91-68 88 50