Morgunblaðið - 14.05.1987, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 1987
39
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Ritstjóri óskast
til að hafa umsjón með útgáfu Stúdenta-
blaðsins. Stúdentaráð HÍ gefur blaðið út og
er því dreift til 5000 námsmanna við Háskólann.
í boði er líflegt og krefjandi starf, vinnutími
og laun eftir samkomulagi sbr. taxta Blaða-
mannafélags Islands.
Okkur vantar mann sem býr yfir dugnaði,
reynslu og þekkingu á málefnum náms-
manna, eða vilja til að kynna sér þau.
Til greina kemur að fleiri en einn skipti með
sér starfinu.
Upplýsingar eru veittar á skrifstofu stúdenta-
ráðs í síma 621080.
Umsóknir skilist á auglýsingadeild Mbl. fyrir
29. maí merktar „Stúdentablaðið — 5153“.
SHI
STÚDENTARAÐ HÁSKÓLA ÍSLANDS
STÚDENTAHEIMIUNU V HRINGBRAUT
Ritari
— Lögmannsstofa
Ritari óskast á lögmannsstofu sem allra fyrst.
Góð íslensku- og vélritunarkunnátta nauðsyn-
leg. Reynsla í meðferð tölvu æskileg.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir
20. maí nk. merktar: „Stundvísi og sam-
viskusemi — 2182“.
Framtíðarstarf
Ein af stærri heildsölum landsins á sviði leik-
fanga og gjafavöru óskar að ráða starfskraft
í heilsdagsstarf. Starfið er fjölbreytt og tekur
til flestra þátta heildsölunnar. í því felst sölu-
mennska þ.m.t. söluferðir um landsbyggð-
ina, pökkun og útkeyrsla.
Viðkomandi (karl eða kona) þarf að vera
áreiðanlegur og drífandi, geta unnið sjálf-
stætt og eiga einnig gott með að vinna með
öðrum.
Reynsla af viðlíka störfum er æskileg en
ekki nauðsynleg. Bílpróf er áskilið. Hér er
um framtíðarstarf að ræða. Viðkomandi þarf
að geta hafið störf sem fyrst.
Umsóknir er greini aldur, menntun og fyrri
störf skilist á auglýsingadeild Mbl. merktar:
„J - 11439“ fyrir 22. maí.
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ Á ÍSAFIRÐI
Hjúkrunarfræðingar
— sjúkraliðar
— meinatæknar
Óskum að ráða nú þegar:
★ Hjúkrunarfræðinga
★ Sjúkraliða
★ Meinatækni
Nánari upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í
síma 94-3014 eða 94-3020 alla virka daga
milli kl. 8.00 og 16.00.
Matreiðslumeistari
óskar eftir góðu starfi, helst dagvinnu. Margt
kemur til greina.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. merkt:
„Matreiðslumeistari — 1535“.
Franska sendiráðið
óskar að ráða blaðafulltrúa frá og með 1.
júní. Starfið er fólgið í þýðingum á íslensku
dagblöðunum. Nánari upplýsingar í símum
17621 eða 17622 milli kl. 14.00 og 17.00.
Laus staða
Við verkfræðideild Háskóla íslands er laus
til umsóknar dósentsstaða í vélaverkfræði.
Fyrirhugað er að rannsóknir og aðalgreinar
verði á sviði vélhluta- og burðarþolsfræði
með áherslu á sjálfvirkni og tölvuvædda
hönnun.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna
ríkisins.
Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um
vísindastörf umsækjenda, ritsmíðar og rann-
sóknir, svo og námsferil og störf skulu
sendar menntamálaráðuneytinu, Hverfis-
götu 6, 150 Reykjavík, fyrir 10. júní nk.
Menntamálaráðuneytið,
7. maí 1987.
Hafnarfjörður
Ritari óskast á lögfræðiskrifstofu til afleys-
inga í júní, júlí og ágúst.
Umsóknir sendist í pósthólf 234, Hafnarfirði.
ST. JÓSEFSSPÍTALI,
LANDAKOTI
Sumarafleysing
Starfsfólk vantar til sumarafleysinga við
ræstingar á skurðstofugangi. Umsækjandi
þyrfti að vera 18 ára eða eldri.
Upplýsingar gefur ræstingarstjóri í síma
19600-259 alla virka daga milli kl. 10.00 til
kl. 12.00.
Reykjavík 12. maí 1987.
Afgreiðslumaður
Óskum eftir röskum afgreiðslumanni í verslun
okkar. Framtíðarstarf fyrir góðan mann.
Upplýsingar veittar á skrifstofunni (ekki í síma).
Bílanaust hf.,
Borgartúni 26.
Trésmiðir ath!
Okkur vantar trésmiði til starfa á Reykjavíkur-
svæðinu sem fyrst.
Nánari upplýsingar gefur Sigríður í síma
641488.
HAMRAR SF.
Vesturvör 9 — 200 Kópavogi
Sími 91-641488
Fatahönnuður
Fatahönnuður, með klæðskeraréttindi og mikla
reynslu getur tekið að sér einstök verkefni.
Þeir sem hafa áhuga sendi nafn og símanúm-
er merkt: „Fatahönnun", í pósthólf 1597,121
Reykjavík.
Rafvirkjar
Vantar rafvirkja strax. Upplýsingar daglega
milli kl. 13.00 og 14.00 í síma 681181.
Rafþórhf.,
Síðumúla 29.
Kennarar
— kennarar
Okkur vantar kennara í eftirtaldar stöður við
grunnskólana á Akranesi:
Við Grundaskóla sérkennara, raungreina-
kennara, m.a. í tölvukennslu, tónmennta-
kennara, smíðakennara og nokkra almenna
kennara, einkum yngri barna.
Upplýsingar veita skólastjóri Guðbjartur
Hannesson, vinnusími 93-2811, heimasími
93-2723, og yfirkennari Ólína Jónsdóttir,
vinnusími 93-2811, heimasími 93-1408.
Við Brekkubæjarskóla skólastjóra, sérkenn-
ara, smíðakennara og almenna kennara.
Upplýsingar veita skólastjóri Viktor Guð-
laugsson, vinnusími 93-1388, heimasími
93-2820, og yfirkennari Ingvar Ingvarsson,
vinnusími 93-2012, heimasími 93-3090.
Umsóknarfrestur er til 1. júní.
Skólanefnd.
Starfsfólk óskast
Óskum eftir að ráða starfsfólk á karla- og
kvennasalerni. Góð laun í boði.
‘ÍCA SABLA NCA.
* DJSCOTHEQUE
Félagsmálastjóri
Staða félagsmálastjóra hjá Borgarneshreppi
er laus til umsóknar. Starfshlutfall 50%.
Menntun og/eða reynsla á sviði félagsráð-
gjafar áskilin.
Umsóknir, með upplýsingum um menntun
og fyrri störf, sendist skrifstofu Borgarnes-
hrepps, Borgarbraut 11, 310 Borgarnesi,
fyrir 26. maí nk.
Nánari upplýsingar veitir sveitarstjóri í síma
93-7224.
Sveitarstjórinn í Borgarnesi.
Stýrimaður óskast
á 54 rúml. bát sem gerður er út frá Norður-
landi. Báturinn er á netaveiðum en fer síðan
á rækjuveiðar.
Upplýsingar í síma 95-6440 frá kl. 08.00 til
kl. 17.00.
Starfsfólk óskast
Óskum eftir að ráða starfsfólk í eftirtalin
störf:
★ Dyraverði.
★ Starfsfólk á bar.
★ Starfsfók í sal.
★ Ræstingar.
Upplýsinga í síma 10312.
NliWJ