Morgunblaðið - 14.05.1987, Page 48
%
T'QA f TM
» r»rrrt ryt/~r »
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 1987
Stefán Agúst
Krisljánsson
Afmæliskveðja:
Það var haustið 1919, þegar við
Stefán Ágúst hittumst fyrst á
Bændaskólanum á Hólum í Hjalta-
dal og áttum þar saman tvo indæla
vetur í námi og leik. Sú vinátta, sem
þar myndaðist okkar á milli hefur
haldist síðan í nærfellt 70 ár.
Á Hólum voru þá, einsog jafnan
fyrr og síðar, mikilhæfír skólastjór-
ar og kennarar. Má þar nefna
Sigurð Baldvinsson, sem var ættað-
ur úr S-Þingeyjarsýslu og stjómaði
skólanum í forföllum Sigurðar Sig-
urðssonar, er þá var kallaður til
starfa í Búnaðarfélagi íslands í
Reykjavík, en síðari vetur okkar á
Hólum var Páll Zóphóníasson skóla-
stjóri. Kennarar auk þeirra voru þá
Loftur Rögnvaldsson, Gunnlaugur
Bjömsson, Friðbjöm Traustason og
Jón Sigurðsson. Þessir menn eru
okkur minnisstæðir og gerðu námið
hver á sinn hátt skemmtilegt og
áhugavert.
Eg tel raunar, að nám í bænda-
skólum sé yfirleitt litríkt og standi
náttúmfræði nær en nám í flestum
skólum öðmm. Reyndin varð sú,
að Stefán Ágúst og við flestir skóla-
bræður hans tókum miklum fram-
fömm í námi og starfi vetuma á
Hólum og hafði dvölin þar mikil
áhrif á lífsstarf okkar og framtíð.
Félagslíf við bændaskólann var
mjög gott. Málfundir vom haldnir
hvert laugardagskvöld og oft dans-
að á sunnudögum, þótt kvenfólk
væri af skomum skammti, enda
fátt um farartæki til þess að nálg-
ast þær. Það kom fljótt í ljós, að
Stefán Ágúst var liðtækur svo að
um munaði á þessu sviði, ekki síður
en við lærdóminn. Hann varð fljótt
besti söngmaður skólans, söng
bassa. Var æfður skólakór og sung-
um við einu sinni eða oftar á
Sæluviku Skagfirðinga á Sauðár-
króki undir stjóm Friðbjöms
Traustasonar. Var að sjálfsögðu
farið fótgangandi og tók hvor ieið
5—6 klukkustundir.
Á öðm sviði vom þó hæfileikar
Stefáns með enn meiri yfirburðum
yfír aðra skólabræður hans, en það
var upplestur á sögum og kvæðum.
Varla var nokkur samkoma haldin
af okkur nemendum, að Stefán
væri ekki fenginn til að lesa upp.
Það þótti jafnan einn besti
skemmtiþátturinn. Best man ég
eftir upplestri hans á kvæðinu Kon-
an í Hvanndalabjörgum eftir Jón
Trausta.
Stefán Ágúst fæddist f Glæsibæ
við Eyjafjörð 14. maí 1897. Foreldr-
ar hans vom hjónin Kristján bóndi
og smiður þar Jónsson og Guðrún
Oddsdóttir. Stefán ólst upp og vann
að búi foreldra sinna þar til hann
fór í Hólaskóla, en eftir það urðu
áhrif félagsmálastarfa meiri. Hann
fór að fást við kennslu, skrifstofu-
störf og margskonar félagsmál. Hér
verður aðeins drepið á nokkra
veigamestu þætti í lífsstarfi hans.
Eitt aðaistarf hans á Akureyri
var framkvæmdastjórastaða við
Sjúkrasamlag Akureyrar
1936—1970, en þá flutti hann til
Reykjavíkur. Jafnframt var hann
framkvæmdastjóri Almannatrygg-
inga 1946-1957.
Söngmálin áttu hug hans á Akur-
eyri og liggur þar eftir hann mikið
og ijölþætt starf. Hann var einn
af stofiiendum Karlakórsins Geysis
1922 og um árabil í stjóm hans.
Var einn af stofnendum Tónlistafé-
lags Akureyrar 1943 og formaður
þess og framkvæmdastjóri um ára-
bil. Á 30 ára afmæli þess félags
1973 var starfsins minnst með tón-
leikum Sinfóníuhljómsveitar íslands
og veglegu samsæti. Þar voru hjón-
in Stefán Ágúst og Sigríður Frið-
riksdóttir heiðursgestir. Bjami
Einarsson þáverandi bæjarstjóri lét
svo ummælt í ræðu við það tæki-
færi: „Þakkarskuld bæjarbúa við
þetta félag og forystumenn þess
er mikil, en ég held að ég lasti
engan, þótt ég nefni hér sérstaklega
nafii eins manns, sem lengst allra
hefur staðið í fylkingarbijósti tón-
listamnnenda á Akureyri og í
forystu Tónlistafélagsins. Á ég þar
við Stefán Ágúst Kristjánsson."
Stefán átti mikinn þátt í stofhun
Heklu, Sambands norðlenskra
karlakóra og var þar formaður og
framkvæmdastjóri 1935—1942.
Stefán var í framkvæmdanefnd
Stórstúku IOGT (kanslari)
1956—1958, umboðsmaður há-
templars og forstjóri Borgarbíós
IOGT um árabil. Hann var vígður
{ Oddfellowregluna 1940.
Stefán Ágúst var kosinn heiðurs-
félagi Stórstúku IOGT, st. Brynju
nr. 99 á Akureyri og Tónlistafélags
Akureyrar, einnig sæmdur fslensku
Fálkaorðunni.
í tómstundum sínum og eftir að
hann lét af embætti vegna aldurs
hefur Stefán fengist talsvert við
skáld- og tónsmíðar. Skal hér talið
nokkuð af því helsta, sem mér er
kunnugt um: Hátíðarljóð á aldaraf-
mæli Akureyrar 1962, Tónlistasaga
Akureyrar, ágrip 1962, Hörpukliður
blárra fjalla, ljóð 1977, Úr sagna-
djúpi, söguleg ljóð í handriti o.fl.,
Ávarp Fjallkonunnar á Akureyri 17.
júní 1954 og 1957, Angan bleikra
blóma 1981. Sú bók er 200 tölusett
eintök og tileinkuð minningu konu
hans, Sigríðar Friðriksdóttur. í dag
kemur út ljóðabók eftir Stefán —
Þijátíu úrvalsljóð. Auk þess á hann
í fórum sínum allmikið af ljóðum,
sem ekki hafa verið prentuð. Má
þar nefha ljóð um Hólaskóla í
Hjaltadal 100 ára, Systir goðans
o.fl.
Stefán Ágúst var tvígiftur. Ifyrri
kona hans var Biynhildur Eyjólfs-
dóttir jámsmiðs á Akureyri Jóns-
sonar. Hún fæddist 13. september
Yfirbyggingin { smíðum inni á verkstæðinu.
Bílgrindin fyrir framan verkstæðið.
Selfoss:
Við fáum bílana eins
og við viljum hafa þá
— segir Guðmundur Tyrfingsson á Selfossi sem smíðar
sínar rútur sjálfur ásamt starfsmanni sínum
_ Moi^unblaðið/SigurðurJónaaon.
Guðmundur Laugdal og Guðmundur Tyrfingsson í rútunni sem er
i smfðum.
Selfossi.
GUÐMUNDUR Tyrfingsson, hóp-
ferðaleyfishafí á Selfossi, vinnur
að þvi ásamt einura starfsmanna
sinna að byggja yfir 62 manna
rútubifreið á verkstæði sínu. Þetta
mun vera eina rútan sem er í yfír-
byggingu á landinu, en algengast
er að rútubifreiðir séu fluttar inn.
Þetta er tíundi bíllinn sem þeir
félagar byggja yfir frá haustinu
1968 þegar þeir byijuðu slika
starfsemi.
Guðmundur Tyrfingsson vinnur
þetta verk frá grunni ásamt starfs-
manni sínum, Guðmundi Laugdal.
Þeir taka bílgrindina með mótor og
stýri inn á verkstæðið og út fer bíllinn
fullfrágenginn. Guðmundur Laugdal
sér um hönnun og teikningar og síðan
smíða þeir yfirbygginguna í samein-
ingu.
„Þetta er eins og þegar smiður
byggir hús frá grunni," segir Guð-
mundur Laugdal. Bíllinn sem þeir
félagar vinna að núna er sá stærsti
sem þeir hafa smfðað yfir. Þeir byij-
uðu á verkinu f september og áætla
að fara í reynsluaksturinn um miðjan
maí. Grindin og stærsti hluti efnisins
er frá Þýskalandi.
Guðmundur Tyrfingsson segist
ekki sáttur við annað, en að smíða
allt f rútuna. Sætin eru að þessu sinni
keypt inn frá verksmiðju í Þýska-
landi, en Guðmundur segir hægt að
skapa mikla Qármuni með því að
smíða sætin iíka og það hafa þeir
reyndar gert í flesta bílana. Eina
ástæðan fyrir þvf að sætin eru keypt
tilbúin er sú að það sparar tíma. En
sæti í 60 manna rútu kosta um eina
milljón.
„Með því að smfða bílana fáum við
þá eins og við viljum hafa þá. Við
fáum hús sem er miklu stöðugra og
betra en á innfluttum bflum og sterk-
ara að öllu leyti, gagnvart ryði og
þau liðast miklu síður sundur," segir
Guðmundur Tyrfingson um ástæðuna
fyrir bílasmíðinni. „Með þessu nýtum
við líka dauða tímann yfir veturinn."
„Við göngum út frá því að það
fari sem best um fólkið og við reynum
að útiloka allan hávaða," segir Guð-
mundur Laugdal þegar hann er
spurður út frá hvaða grundvallarat-
riðum sé gengið við hönnun bílanna.
„Maður skoðar mikið af bílum og á
sér svo sjálfur drauma, en sérstaka
fyrirmynd hefur maður ekki. Grunn-
atriðin eru íslenskar þarfir, að hafa
bílinn hærri frá götu en gengur og
gerist og gott lestaipláss, heldur
meira en f innfluttum bílum. Við not-
um staðlaða innflutta hluti f bílana
eins og lúgur og þess háttar en öll
smfðin fer fram hér,“ sagði Guð-
mundur.
Skipulagning vinnunnar fer fram
á haustin og öllu er hagað þannig
að verkið geti gengið snurðulaust
fyrir sig. „Það er enginn bfll eins, en
grundvallaratriðin eru þau sömu. Það
er nauðsynlegt að þekkja alla hluti
sem koma við sögu svo þeir passi á
þá staði sem þeir eiga að fara á f
bflnum,“ sagði Guðmundur Laugdal.
Verkstæði Guðmundar Tyrfings-
sona er í litlum bragga austan
Suðurlandsvegar áður en komið er
að Selfossi. Rútan sem þeir félagar
vinna við fyllir verkstæðið, en með
lagni og útsjónarsemi gengur verkið
fljótt fyrir sig.
Dóttir Guðmundar Laugdal segir
þá sögu frá Frakklandi að þar eigi
fólk bágt með að tfua þvf að á ís-
landi séu smfðaðar rútur og svo er
um fleiri. Eftirgangsmuni hefur þurft
við fulltrúa í fjármálaráðuneytinu til
þess að fá eftirgefna tolla á hlutum
til smfðinnar eins og lög gera ráð
fyrir. Jafnvel þó fulltrúi frá ráðuneyt-
inu væri fenginn á staðinn til að sjá
rútuna í smfðum.
Framtak þeirra félaga er eftirtekt-
arvert, ekki sfst fyrir það að bifreifr
asmfði er mjög á undanhaldi. Á
verkstæðum á Selfossi hefiir undan-
farin ár nokkuð verið unnið við það
að byggja yfir jeppa, en það hefur
lagst af með breyttum tollalögum.
Þeir félagar eru því þeir einu sem
stunda raunverulega bflasmíði.
Nýja rútan er sú nfunda í flotan-
um, en Guðmundur Tyrfingsson
hefiir stundað hópferðaakstur í 25
ár og er með bfla frá 12 til 62
manna. Þegar bflasmfði vetrarins lýk-
ur tekur við hópferðaakstur á sumrin.
Þetta eru hópferðir fyrir hvem sem
er eins og Guðmundur orðar það.
Hópferðamiðstöðin er milliliður milli
hans og ferðaskrifstofanna. Við
hvem bfl sem byggður er hefiir Guð-
mundur selt einn af eldri bflunum og
segist gera það einnig nú.
— Sig. Jóns.
Ólafsvík:
Margar
afmælis-
kveðjur
bárust
BÆJARSTJÓRN Ólafsvíkur
sendir alúðarþakkir til allra
þeirra, sem sendu Ólafsvikingum
gjafir og skevti 26. mars siðast-
liðinn, þegar Ölafsvíkingar héldu
upp á 300 ára verslunarafmæli
kaupstaðarins.
Eftirtaldar gjafír bárust: Frá Li-
onsklúbbi Ólafsvíkur, útiskreyting
á íþróttahús staðarins, frá Jóhann-
esi Amasyni bæjarfógeta, gestabók
f skinnbandi, frá embætti Bæjarfóg-
etans í Ólafsvík, sveitabók frá árinu
1886, frá Þuríði Snorradóttur Sand-
holti 34, mynd af Þorsteini SH,
fyrsta dekkbátnum sem smíðaður
var fyrir Ólafsvíkinga, frá mennta-
málaráðherra, Sverri Hermanns-
syni, Landnámabók frá Ragnari
Kjartanssyni listamanni, líkan af
kútter Ásu ásamt tveim líkönum
af bátum, annað með breiðfirska
laginu, frá Brunabótafélagi íslands,
blómakarfa ásamt }rfirlýsingu um
gjöf, frá Amarflugi, blómakarfa.
frá bæjarstjóm Akraness, blóma-
karfa, frá verslunareigendum í
Ólafsvík, blómakarfa ásamt yfirlýs-
ingu um gjöf, frá hreppsnefnd
Neshrepps utan Ennis, blómakarfa,
frá hreppsnefnd Fróðárhrepps,
blómakarfa, frá verkalýðsfélaginu
Jökuli, blómakarfa, frá kennurum
og nemendum við Grunnskóla Ól-
afsvíkur, myndbönd um Ólafsvík.
Aðalfundur
Húnvetninga-
félagsins
Húnvetningafélagið í
Reykjavík heldur aðalfund sinn
mánudaginn 20. maí nk. kl. 20.00
i heimili félagsins Skeifunni 17.
Á fundinum fara fram venjulega
aðalfundarstörf.