Morgunblaðið - 14.05.1987, Page 49

Morgunblaðið - 14.05.1987, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 1987 49 1906, dó 26. febrúar 1927 eftir tæplega tveggja ára sambúð. Síðari konu sinni giftist Stefán 22. febrú- ar 1930. Það var Sigríður Friðriks- dóttir bónda í Amamesi Guðmundssonar og konu hans Önnu Guðmundsdóttur. Sigríður fæddist 10. febrúar 1912, dó 6. ágúst 1980. Þau Sigríður og Stefán áttu tvö böm: Önnu Gabríellu, sem er gift Magnúsi Ólafssyni lækni í Reykjavík, og Friðrik Daníel við- skiptafræðing og framkvæmda- stjóra Stangaveiðifélags Reykjavík- ur. Hann er kvæntur Ölafíu Sveinsdóttur. Frú Sigríður var glæsileg kona og framúrskarandi myndarleg í öll- um störfum innan heimilis sem utan, enda eru ljóð Stefáns til henn- ar í „Angan bleikra blóma" nokkuð af því fegursta, sem eftir hann ligg- ur. í blaðið Einingu 6.-7. tölublað 1967 skrifaði ritstjórinn Pétur Sig- urðsson afmælisgrein um Stefán Ágúst sjötugan. Þar lýsir hann vel áhuga og dugnaði hans að hveiju sem hann gekk og tekur meðal annars lýsingu úr norska blaðinu Folket eftir ritstjóra þess Öystein Söraa á vinnubrögðum Stefáns sem hann hafði að nokkru kynnst í för sinni til íslands 1964. Ummæli Söraa eru tekin úr Einingu í þýð- ingu Péturs Sigurðssonar: „Hann er hugkvæmi eldhuginn og athafnamaðurinn gæddur sam- starfs- og samningshæfileikanum flestum fremur, fróður um allt og alla. Ávallt á staðnum hlýr og morg- unhress, jafnvel langt fram á nótt, í veisluskapi jafnt á fámennum mannfundum sem í meiriháttar samkvæmum." Og Pétur Sigurðs- son bætir við frá eigin bijósti: „Ég gat þess, að Stefán Ágúst virtist oft vera að minnsta kosti tvíefldur maður og væri það ekki einleikið. Minntist ég þá orða Stefáns Zweig, sem segir: „Ástfanginn maður er tífaldur maður." Ég er ekki í nein- um vafa um það, að hin ágæta kona Stefáns, Sigríður Friðriks- dóttir, hefur verið honum aflgjafi og hin styrka stoð í athafnasömu lífsstarfi. Hinum góðu konum má ekki gleyma, þegar dugnaðarmönn- um þeirra er að verðleikum hrósað. Það er hveijum manni vorkunnar- laust að vera ástfanginn af góðri konu, þótt orðinn sé hann sjötugur. Veit ég að Stefán vinur minn er mér sammála um þetta.“ Hólasveinar gengu stundum upp í Gvendarskál í Hólabyrðu og töldu sig finna þar altarí Guðmundar biskups hins góða á blágrýtissteini. Spor okkar Stefáns þar eru löngu máð og svo verður einnig um önnur spor okkar, þegar tímar líða. Ég þakka Stefáni fyrir þau spor, sem við höfum gengið saman frá því um haustið 1919 á Hólum og vona, að við megum enn ganga saman nokk- um spöl. Guðmundur Jónsson frá Hvanneyri Nýja fiskverkunarhúsið í Hólmavík. Morgunbiaðið/Baldur Rafn Nýtt fiskverkunar- hús í Hólmavík Hólmavik. UM MIÐJAN aprU hófst vinnsla í fiskverkunarhúsi Hleinar hf. Er hér um að ræða 860 fermetra hús og er það byggt af Loftorku hf. í Borgamesi. Loftorkumenn komu tii Hólmavíkur um miðjan september á siðasta ári og tók það þá um tvo og hálfan mánuð að reisa húsið. Það má því segja að Loftorkumenn hafi gengið rösklega fram við að reisa hús þetta. Eigendur hússins og jafn- framt eigendur að bátunum Sæbjörgu og Sigurbjörgu eru Jóhann Guðmundsson og synir hans, Guðmundur og Gunnar, Gústaf Guðmundsson og sonur hans, Guðmundur, og Jónas Ragnarsson. Framkvæmdastjóri Hleinar hf. er Gunnar Jóhanns- son. Fréttaritari heimsótti hið nýja fiskverkunarhús Hólmvíkinga og var þar mikið um að vera. Fólk var á þönum við að salta fisk og vinna hrogn. Guðmundur Jóhannsson verkstjóri var einnig á hlaupum hingað og þangað um húsið. Bauð hann fréttaritara að litast um. Vinnslusalurinn var mjög bjartur og rúmgóður. Þá var mikið rými fyrir skrifstofur, snyrtingu fyrir starfsfólk og kaffistofu. Veiðar- færageymsla var og mjög stór og beitningarpláss. í veiðarfærageymslunni hitti fréttaritari einn eigendanna, Jó- hann Guðmundsson, og kvaðst hann vera mjög ánægður með það hversu vel hefði gengið með húsið. „Hús þetta gerbreytti öllu fyrir út- gerð Sigurbjargar og Sæbjargar,. því beitningar- og veiðarfærapláss var að hruni komið, svo við urðum að fara að byggja. Hér er mjög gott að vinna við net og gera að afla,“ sagði Jóhann. Inni í vinnslusal ræddi fréttarit- ari við einn starfsmann Hleinar hf., Sigurð Vilhjálmsson, þar sem hann var í óða önn að skera hrygg úr fiski. Sigurður kvaðst hafa unn- ið hjá Hlein í nokkra daga og hefði jafnan verið unnið fram á kvöld. Einnig taldi Sigurður húsið vera mjög vel fallið til fískverkunar. Guðmundur Jóhannsson verk- stjóri mátti rétt vera að því að svara spumingum fréttaritara. En það fyrsta sem hann var spurður að, var hver hefðu verið tildrög þess að Hlein hf. hefði verið stofrað. Guðmundur kvað það hafa verið áhuga eigendanna um nokkurt skeið að vinna afla úr sínum eigin bátum. Svo var veiðarfæra- og beitningarpláss orðið ónýtt. Einnig voru stöðvaðar hrefnuveiðar og ýtti það frekar á eigendur bátanna Sig- urbjargar og Sæbjargar að koma upp verkunar- og geymsluaðstöðu. „Én við höfum ekki gefíð upp alla von með hrefnuveiðar og ætlum okkur þegar leyfi fæst að verka hana í þessu húsi. Einnig munum við kaupa allan þann afla sem okk- ur býðst," sagði Guðmundur Jóhannsson. Að lokum kvað hann Kaupfélag Steingrímsflarðar hafa veitt þeim alla þá aðstoð sem það hefði verið beðið um, en vissulega myndi koma til einhverrar sam- keppni á milli þessara aðila og væri það jákvætt fyrir báða aðila. — Baldur Rafn Færibðnd fyrir ailan iðnað Getum útvegaö meö stuttum fyrirvara allskonar færibönd úr plasti og stáli fyrir smáiðnað sem stóriðnað; matvælaiðnað, fiskvinnslu og verksmiðjuiðnað. Fjölbreyttir möguleikar. Leitið upplýsinga. UMBOÐS- OC HEILDVERSLUN tískuhús Austurstræti lOa, 4. hæð. Sími 22226. 1 BÍLDSHÖFÐA 16 SÍML672444 T ^^i^æthiðun^bara að minna þig á ljúffenga PRINCE súkkulaðikexið. Metsölublad á hverjum degi! fyrir æskuna Nýjung á Islandi Á sumri komanda mun Tölvufræðslan leggja sitt af mörk- um fyrir æskuna með því að gefa unglingum á aldrin- um 9-14 ára kost á ógleymanlegri dvöl í sumarbúðum skól- ans á Varmalandi í Borgarfirði, undir handleiðslu reyndra starfsmanna á sviði tölvu- og íþrótta- kennslu. Staður: Varmaland í Borgarfirði. Boðið er uppá eftirfarandi: Tölvukennslu,- íþróttakennslu, kvöldvök- ur, hestamennsku. Foreldrar, verið framsýn — tryggið framtíð barna ykkar á tölvuöld. Innritun í símum: 687590 — 686790. TÖLVUFRÆÐSI Borgartúni 28, Reykjavik.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.