Morgunblaðið - 14.05.1987, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 1987
51
Þorbjörg G. Friðberts
dóttir — Minning
Fædd 14. ágúst 1905
Dáin 6. maí 1987
í dag er til grafar borin Þorbjörg
Guðrún Friðbertsdóttir, fædd á
Suðureyri við Súgandafjörð þann
14. ágúst 1905, elst sex bama
sæmdarhjónanna Elínar Þorbjam-
ardóttur og Friðberts Guðmunds-
sonar.
A Suðureyri var heimili hennar
alla tíð, að síðustu 6 ámnum undan-
skildum, en þau dvaldi hún í
Reykjavík. Hún giftist þann 26.
nóvember 1927 Gísla Guðmunds-
syni skipstjóra frá Grundarfirði.
Þau eignuðust fimm börn, þau Frið-
bert Elí, Jóhannes, Gísla Pál, Karl
Helga og Sesselju Sigurrós. Starfs-
svið Þorbjargar var innan heimilis-
ins og því starfi sinnti hún af
einstakri alúð og ræktarsemi. Er
ég kom fyrst á heimili hennar vakti
þegar aðdáun mína sá myndarskap-
ur í bakstri og matargerð sem
einkenndi hana. Hún bar mikla
umhyggju fyrir öllu sínu fólki, hún
naut þess að hlúa að því og veita
því allt sem í hennar valdi stóð.
Hún gerði einnig vel við þá sem
minna máttu sín og hennar dyr
stóðu þeim ávallt opnar.
Sorgin barði oft dyra og á þeim
stundum kom skýrast fram hve trú
hennar var einlæg og sálarstyrkur
mikill. Hún missti eiginmann og
þtjá syni. Gísli Páll lést af slysförum
1967. Ég minnist þess að er við
komum vestur til líkfararinnar
heilsaði hún okkur hlýlega og sagði
með sinni alkunnu ró: „Hér hafa
orðið snögg umskipti." Ekkert
æðruorð. Arið 1980 kom styrkur
hennar og trú aftur í ljós. Elsti
sonurinn, Friðbert Elí, var þá hel-
sjúkur og maður hennar á sjúkra-
húsi er yngsti sonurinn, Karl Helgi,
varð bráðkvaddur. Þegar sagt var
við hana að mikið væri á hana lagt
svaraði hún stillilega: „Guð er að
reyna mig.“ Ári síðar missti hún
eiginmann sinn.
Hún var trygglynd og þau vin-
áttubönd er hún batt entust ævi-
langt. Orðvör var hún með
eindæmum og þau 34 ár sem leiðir
okkar lágu saman minnist ég þess
aldrei að hún hafi hallmælt nokkr-
um manni. Hún gerði engar kröfur
sér til handa, var hlý og blíð, fyrir-
gaf og breiddi mjúkar hendur yfir
misgjörðir annarra. Hún trúði og
treysti guði sínum og fól honum
sig. Ég er fullviss að hún uppsker
sem hún sáði.
Hvíli hún í friði.
Guðrún Erla
í dag fer fram útför ömmu okk-
ar, Þorbjargar Guðrúnar Friðberts-
dóttur.
Það var alltaf gott að koma til
ömmu. Hún tók ávallt á móti okkur
opnum örmum og hvergi hefur
kaffiilmurinn eða kökumar verið
betri en hjá henni.
Hún var hæglát kona sem lét
ekki mikið yfir sér í daglegu lífi.
Nægjusöm og gerði ekki miklar
kröfur fyrir sjálfa sig. Vann verk
sín hljóð en það sem hún tók sér
fyrir hendur gerði hún vel og heils-
hugar. Hún sat aldrei auðum
höndum, alltaf með einhvetja
handavinnu. Þeir eru óteljandi vettl-
ingamir og sokkamir sem hafa
yljað ömmu- og langömmubörnum.
Hún hafði yndi af að veita vel og
gera öðrum gott.
Hún bjó yfir einstöku jafnaðar-
geði. Það kom best í ljós þegar hún
missti syni sína og eiginmann. Hún
trúði á guðlega forsjá og hún sagði
að þegar erfíðleikar hefðu steðjað
að hefði sér fundist sér styrkur
sendur frá æðri máttarvöldum sem
styrkti hana til að standast hverja
raun.
Fjölskylda hennar öll var henni
kær og hugleikin. Hún lét sig miklu
varða hvemig þeim leið og vegn-
aði. Það var svo gott að finna hlýju
hennar og góðvild. Við eigum eftir
að sakna þess að geta ekki skropp-
ið til hennar, rætt um daginn og
veginn og liðna daga. Oft áttum
við það líka til að hlæja lengi og
innilega, kannski yfir einhverju
smávægilegu. Hún hafði svo oft á
orði: „Það er svo gott að hlæja inni-
lega.“
Það er ómetanlegt að eiga góða
ömmu og við munum eiga ljúfar
minningar um hana í hjörtum okkar
meðan við lifum.
„Kærleikurinn er langlyndur,
hann er góðviljaður; kærleikurinn
öfundar ekki,
kærleikurinn er ekki raupsamur,
hreykir sér ekki upp;
hann hegðar sér ekki ósæmilega,
leitar ekki síns eigin;
hann reiðist ekki, tilreiknar ekki
hið illa;
hann gleðst ekki yfir óréttvísinni,
en samgleðst sannleikanum;
hann breiðir yfir allt, trúir öllu,
vonar allt, umber allt.“
(1. Kor. 13, 4-7.)
Þorbjörg Hulda,
Guðrún, Sigrún.
Kveðjuorð:
Jóhann Kr. Þorsteins
son trésmiður
Fæddur 30. ágúst 1927
Dáinn 27. febrúar 1987
Sortnar þú ský, suðrinu í og siga brúnir
lætur.
Eitthvað að þér, eins og að mér, amar ég
sé þú grætur.
(Jðn Thoroddsen)
Þann 27. febrúar síðastliðinn
andaðist í Landspítalanum í
Reykjavík Jóhann Kr. Þorsteinsson
eftir löng og ströng veikindi, er
hann bar af stakri hetjulund. Jó-
hann varð 59 ára að aldri. Þó ég
sé aðeins 26 ára tókst með okkur
góð vinátta. Jóhann var eldhugi og
vildi hvers manns vanda leysa.
Hann var einnig með afbrigðum
skemmtilegur. Sérstaklega var
hann góður heim að sækja. Fannst
mér ævintýri líkast að heimsækja
hann. Síðasta heimili hans var
Eggjavegi 3 í Smálöndum. Var
hann búinn að endurbæta og laga
hús sitt, svo þar var orðið mjög
vistlegt. Jóhann var mikill dýravin-
ur og átti kött einn er var i miklu
uppáhaldi. Hef ég sjaldan séð stærri
kött enda var hann vel fóðraður. í
Smálöndum er mjög sumarfagurt
og þótti mér paradís líkast að kom-
ast þar að sumarlagi. Þessi perla
er rétt við Reykjavík. Jóhann var
maður músíkalskur og frábær
harmonikkuleikari. Þá var oft tekið
lagið og sungið undir. Man ég enn
hvernig blómin ilmuðu í sumardýrð-
inni og skreyttu holt og móa.
Fuglamir sungu, er við sátum úti
í garði við stórt viðarborð. Það var
svo yndislega gaman. Móðir mín
og stjúpi sögðu stundum í gamni
að líkja mætti búgarðinum við hinn
bandaríska „Southfork" úr Dallas-
sápuþáttunum. Það var meira að
segja gamall flugvöllur rétt við
bæjardymar. Sá völlur var síðan
úr stríðinu og mátti muna sinn fífíl
fegri. En nú var hann kjörinn þyrlu-
völlur, rétt eins og hjá Éwing-unum
í Dallas. María, vinkona Jóhanns,
bar ávallt fram veitingar af mikilli
rausn og skörungsskap, og sá um
að ekkert skorti á í mat og drykk.
Hún var hans hægri hönd. En nú
hefur sól brugðið sumri. Maðurinn
með ljáinn kom og Jóhann vinur
minn er allur. Ég mun ætíð minnast
hans með eftirsjá og votta öllum
vinum hans, ættingjum og aðstand-
endum samúðarkveðjur. Verum
þess minnug að aldrei er svo svart
yfir sorgarranni að ekki geti birt
fyrir eilífa trú. Ég bið guð að blessa
minn kæra vin. Hvíli hann í friði.
Grímur Þ. Jónasson
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
ÓSKAR JÓSEFSSON,
Faxabraut 10,
Keflavfk,
verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju laugardaginn 16. maí kl.
14.00.
Ólaffa Guðmundsdóttir,
Sólveig Óskarsdóttir, Júlíus Guðmundsson,
Sigríður Óskarsdóttir, Bragi Finnsson,
Trausti Óskarsson,
Jónas Óskarsson Jóhanna Long
og barnabörn.
t
SVEINN S. BJÖRNSSON,
Vföimel 21,
verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu föstudaginn 15. maí kl.
10.30.
Fyrir hönd aöstandenda.
Gunnar Þorláksson.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
ÖRNÓLFUR M. ÖRNÓLFSSON
rafvirkjameistari,
Gautlandi 1,
verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu mánudaginn 18. maí kl.
13.30.
Þeim sem vildu minnast hans er vinsamlegast bent á Hjartavernd.
Stefanfa
Ingileif Örnólfsdóttir,
Margrét Örnólfsdóttir,
Örnólfur Örnólfsson,
Sóley Örnólfsdóttir,
Eva Ornólfsdóttir,
Ólöf Örnólfsdóttir,
AAalsteinn Örnólfsson
og
Guðmundsdóttir,
Marinó Óskarsson,
Jón Kristinn Valdimarsson,
Elfa Sveinsdóttir,
Kristján G. Bergþórsson,
Ragnar Jónasson,
Þorsteinn Bragason,
Unnur Sæmundsdóttir
barnabörn.
t
Maðurinn minn, fósturfaðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ÓLI S. HALLGRÍMSSON,
Stórholti 24,
verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni föstudaginn 15. maíkl. 13.30.
Blóm afþökkuð. Þeim sem vildu minnast hans er vinsamlega
bent á Hjartavernd eða aörar líknarstofnanir.
Guðrún Ólafsdóttir,
Ólafur Lárusson,
Hulda Lárusdóttir, Stefán Jónasson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þakka hjartanlega sýnda samúð og vinarhug við andlát og útför
mannsins míns,
BJÖRNS HÖGNASONAR
múrara,
Stóragerði 12,
Sigurdrífa Jóhannsdóttir.
t
Innilegt þakklæti fyrir auösýnda samúð og vinarhug við andlát
og útför föður okkar, tengdaföður og afa,
GUÐMUNDAR VALDIMARS TÓMASSONAR
vörubifreiðarstjóra,
Hrafnistu.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á Hrafnistu.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð
og hlýhug við andlát og jarðarför
GUÐNÝJAR STEFANÍU GUÐMUNDSDÓTTUR,
Vffilsgötu 22,
Reykjavfk.
Magnús Brynjólfsson,
Guðmundur H. Magnússon, Guðbjörg Richter,
Hrafn Magnússon, Kristín Erlingsdóttir
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við fráfail og jarðarför
SVEINBJÖRNS EGILSSONAR
útvarpsvirkjameistara.
Rannveig Helgadóttir,
Kristín Sveinbjörnsdóttir, Þorgeir Þorsteinsson,
Úlfar Sveinbjörnsson, Kristfn Steingrímsdóttir,
Helgi Sveinbjörnsson, Björg Ólafsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
ÞÓRNÝJAR ÞORSTEINSDÓTTUR,
Stigahlfð 34,
Reykjavfk.
Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks deildar 32-A Landspítala.
Nína Sveinsdóttir, Óli M. Andreasson,
Sólrún Sveinsdóttir, Gauti Arnþórsson,
Þorsteinn Sveinsson, Þurfður Kristjánsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
LOKAÐ
Vegna jarðarfarar ÓLA S. HALLGRÍMSSONAR, verður lokað
hjá okkur föstudaginn 15. maí frá kl. 12.00-15.00.
Hellusteypa Stétt,
Hyrjarhöfða 8.