Morgunblaðið - 14.05.1987, Qupperneq 52
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14 MAÍ 1987
ffclk í
fréttum
Karólína með vöndinn. Reuter
Blómarósin Karólína
Nú hefur liðið a.m.k. vika síðan síðast birtist mynd af einhverjum.
meðlimi Mónakó-slektisins og verður því snarlega úr því bætt hér.
Myndin var tekin um sl. helgi og sýnir Karólínu prinsessu með rósavönd
í hendi. Rósimar fékk hún þegar hún kom til að vera viðstödd alþjóðlega
bómavandakeppni, sem fram fór í Monte Carlo.
Theotheruigíil
milka Imfof
ca«e
ofAIDS.
Koch snýst gegn alnæmi
Gene Edwards og Don Shanks kynntu myndina „The Legend of
Grizzly Adams“, eða Þjóðsöguna um Bangsa-Adam, eins og hægt
væri að snara heitinu yfir á íslensku. Sem sjá má er bangsi ekki
vitund hættulegur, heldur gæðir hann sér á ís í mestu makindum.
Reuter
Paul Newman og Joanne Woodward létu sig ekki vanta, en þau
voru að kynna myndina Glerdýrasýningin, sem Burt Harris (t.h. við
Newman) framleiddi. Með i för var leikkonan Karen Allen.
Misklíð er nú komin upp milli
Ástrala og Líbýumanna.
Astæðan er sú að Líbýumönnum
þykir leiðtoga sínum hafa verið
sýnd óvirðing með gamanþætti, þar
sem óspart var gert gys að ótrúleg-
ustu hlutum, þ.m.t. Moammar
Gadhafi. Hafa Líbýumenn sagt að
þátturinn, „Villihunda-reglan", sé
hluti ófrægingarherferðar Ástralíu-
stjómar á hendur byltingarleið-
toganum.
Baráttan gegn vágestinum
ógurlega, alnæmi, harðnar
æ, enda stendur hið fomkveðna
að illt skuli með illu út reka. Hafa
menn gripið til ýmissa ráða og
höfða til alls litrófs mannlegra
tilfinninga — frá móðurást til
ofsahaturs. Á góðum stað stendur
að sannleikurinn muni gera oss
ftjáls og í samræmi við það telja
menn að sjúkdómurinn verði helst
heftur með því að upplýsa almenn-
ing um staðreyndir málsins og
höfða til skynseminnar. Ekki þyk-
ir þó saka að grípa til myndræns
kvíðavaka í bland og það er gert
á auglýsingunni á myndinni.
Það er borgarstjóri New York-
borgar, Ed Koch, sem stendur við
hlið auglýsingarinnar, er hann
kynnti auglýsingaherferð borgar-
innar gegn alnæmi sl. mánudag.
Telja menn að berorðar auglýsing-
amar eigi eftir að vekja ákafar
Astralska
„Villihunda-
reglan“
reitir
Líbýumenn
til reiði
Koch við auglýsinguna, en á henni er mynd af manni með innkau-
papoka og við hliðina stendur: „Um daginn kom Kalli heim með
einn litra af mjólk, brauðhleif og alnæmistilfelli". Neðst stendur:
„Haldir þú þig öruggan, geturðu hengt þig upp á það að þú hef-
ur rangt fyrir þér“.
deilur í herbúðum klerka og engin önnur ráð reynist til nokk-
stjómmálamanna, en Koch verst urs nýt, viti fólk ekki um þau og
fímlega fyrirfram og bendir á að þekki óvininn.
Hin gullfallega Diane Keaton var komin til Cannes til þess að kynna myndina „Heaven“, sem hún leik-
stýrði. Sú mynd var framlag hennar til leikstjórakeppni, sem fram fer samsíða kvikmyndakeppninni í
Cannes.
Ennum . . .
Ekki minnkar umferð stór-
stima um Cannes eftir því
sem úrslitin dragast nær. Er þar
saman komið allt helsta stórmenni
kvikmyndaiðnaðar hins fijálsa
heims, að ógleymdum Qölda smá-
Cannes
menna sem ætla sér að verða stór.
Og miðað við myndaflóðið þaðan
hefur slíkur fjöldi Ijósmyndara
sjaldan safnast saman, enda
gegndarlaus gnótt ljósmyndunar-
tækifæra.