Morgunblaðið - 28.05.1987, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 1987
57
Réttur
dagsins
Margrét Þorvaldsdóttir
I okkar ágætu „íslensku orðskvið-
um“ segir.
— Betra erað vera föðuriandsins æra,
en að það sé hans æra,
— þarflig lærdómsregla —
Þessa lærdómsreglu mættu menn
gjaman hafa hugfasta þegar seldar
eru á erlendri grund viðkvæmar út-
flutningsvörur eins og hvalafurðir
og fiskur, — því betra er mannorð
gott er mikili auður — segir í „Isl.
orðskviðum".
íslenski fiskurinn getur verið hinn
besti matur ef hann er rétt með-
höndlaður. Gott dæmi er:
Fiskur bakaður
m/kryddjurtum
og parmesanosti
600—700 gr fiskur
(ýsa eða þorskur)
1 sítróna
1 lárviðarlauf
1 msk. steinselja eða
1 tsk. þurrkuð
hvítlauksduft
salt
pipar
2 msk. parmesanostur
1 msk. brauðmylsna
2 msk. bráðið smjörlíki
1. Fiskurinn er roðflettur og
skorinn í hæfílega stór stykki.
2. Vatn er sett á pönnu eða í
pott, það á rétt að vera um 2—3 cm
að dýpt. Út í vatnið er bætt 1 msk.
af sítrónusafa og lárviðarlaufí, brot-
ið í tvennt, suðan er látin koma upp.
3. Fiskurinn er settur út í sjóð-
andi vatnið og soðinn þar til hann
er rétt soðinn í gegn.
4. Fiskstykkin eru síðan færð upp
eldfast fat og er dreypt yfir þau 2
msk. af sítrónusafa. Yfir fiskinn er
síðan stráð hvítlauksdufti og stein-
selju, salti og pipar. Blandað er
saman hvítlauksdufti, brauðmylsnu
og því stráð á fiskstykkin og að
síðustu er bráðnu smjörlíki hellt yfír
ostamylsnuna. (Smjörlíki má þó
sleppa).
4. Fiskurinn er síðan bakaður í
200 gráðu heitum ofni í 5—10 mínút-
ur eða þar til osturinn hefur fengið
ljósbrúnan lit.
Þetta eru mjög bragðmiklar fisk-
steikur en ekki bragðsterkar. Með
þeim er gott að bera fram bragð-
mild gijón eða bragðbætt eins og:
Grjón með
kryddjurtum
2 msk. matarolía
1 bolli grjón
'/2 lítill laukur, saxaður
1 hvítlauksrif pressað
2 bollar vatn
1 ten. kjúklingakraftur
V< tsk. timian
1 tsk. steinselja, söxuð
‘/2 lárviðarlauf
1. Matarolían er hituð í potti og
eru grjón, laukur og hvítlaukur látin
krauma í feitinni á meðan laukurinn
er að linast upp.
2. Því næst er vatni, timian, lár-
viðarlaufi, steinselju og kjúklinga-
krafti bætt út í og blandað vel saman
við gijónin. Þau eru síðan soðin í
15 mínútur.
Sem meðlæti með þessum fisk-
rétti og gijónum er gott að bera
fram ferskt grænmeti eins og niður-
skoma tómata.
Verð á hráefni
700 gr. ýsa.......kr. 147,00
1 sítróna.........kr. 15,00
V2 pk gijón..........kr. 12,95
Vinningshafar ásamt fulltrúum frá myndbandaleigunum sem efndu
til getraunarinnar.
Vinningar dregnir
út í ferðagetraun
í VETUR efndu tvær mynd-
bandaleigur í Reykjavík,
Stjömuvídeó og Viron-vídeó, til
getraunaleiks meðal viðskipta-
vina sinna. Dregið hefur verið í
getrauninni og fengu Bjarni Þór
Olafsson, Margrét Ingibergs-
dóttir og María J. Þráinsdóttir
ferðavinninga frá Samvinnu-
ferðum—Landsýn að verðmæti
samtals 90 þúsund krónur.
Getraunin fólst í því að viðskipta-
vinir fengu afsláttarkort þar sem
fimmta hver spóla var ókeypis.
Þegar kortið var fullnýtt bauðst
korthafa að svara einfaldri spum-
ingu og skila svarinu í getrauna-
kassa. Leikur þessi mun halda
áfram hjá báðum myndbandaleig-
unum út þetta ár og verður næst
dregið úr ferðavinningum 1. janúar
nk.
VJterkurog
k-/ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
Dreymir þig stundum að þú liggir á strönd og
borðir góðan mat, að þú siglir á fallegum bát, spilir
golf, akir um grænt landslag, stundir leikhús, tónleika,
diskótek og hver veit hvað? Við þekkjum drauminn og
bjóðum þér að upplifa skemmtilega og fjölbreytta
daga hjá góðum grönnum okkar, Bretum. Flugleiðir
fljúga allt að átta sinnum í viku til London í sumar og
þrisvar í viku tii Giasgow. Hér koma örfá dæmi um
ljúfa „breska daga“.
fara hreinlega í „golfferð" um Skotland, aka milli
spennandi golfvalla og góðra hótela.
Flug og bátur
Þú lætur þig líða urnkyrrlátt lcindslag Norfolk á
bát eftir síkjum og ám, leggur að bryggjum lítilla bæja
eða freistandi veitingastaða og kráa sem liggja víða
meðfram bökkunum. Norfolk er náttúruvemdarsvæði
ríkt af fuglalífi og vatnágróðri.
Flug, bfll, hús og golf
Á bíl ertu pinn eiginn fararstjori, heimsækir þá
staði sem þig hefur dreymt um og hagar tímanum
eftir þínum hentugleika. Skemmtilegt væri t.d. líka að
leigja eitt af rómantískum BLAKES-SUMARHÚSUNUM
í nokkra daga og aka stuttar ferðir í nágrenninu eða
BLAKES-BÁTAR
Flug+bátur í 1 viku kr. 20,824 á mann. Verð miðað við 2
fullorðna og Caribou bát. Mjög margir aðrir möguleikcir.
L0ND0N
Flug+bíll í 2 vikur kr. 14,605 á mann. Verð miðað við 2 fullorðna
og 2 böm, 2-11 ára, í Ford Fiesta.
GLASG0W
Flug+bíll í 2 vikur kr. 13.169 á mann. Verð miðað við 2 fullorðna
og 2 böm, 2-11 ára, í Ford Fiesta.
Nánari upplýsingar veita söluskrifstofur Flugleiða,
umboðsmenn um allt land og ferðaskrifstofumar.
Ath. Öll flugumferð Flugleiða til og frá Heathrow
fer um Terminal 1.
FLUGLEIÐIR
Flugleiða: Lækjargötu 2, Hótel Esju og Álfabakka 10. Upplýsingasími 25 100
<
S
Kr. 174,95
AUK hf.