Morgunblaðið - 30.05.1987, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 30.05.1987, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1987 Dagskrá ríkis- útvarps raskast vegna verkf'alls DAGSKRÁ ríkisútvarpsins og sjónvarpsins raskaðist verulega í gær vegna verkfalls rafeinda- virkja og rafvirkja sem vinna hjá ríkinu, en það hófst að- Leyft að reka á afréttinn á mánudag? Vogum, Mývatnssveit. Gróðurverndarnefnd Suður- Þingeyjarsýslu leggur til að leyft verði að reka fé á afréttinn vestan Jökulsár á Fjöllum frá fyrsta júni en reynt verði að dreifa upp- rekstrinum á hálfan mánuð. Þetta kom fram á fundi í Reynihlíð í gær sem haldinn var eftir skoðun- arferð á afréttinn. f skoðunarferðina fóru meðal ann- ars Sveinn Runólfsson landgræðslu- stjóri, gróðurvemdunamefnd Suður-Þingeyjarsýslu, Stefán Skaftason héraðsráðunautur, sveit- arstjóm Skútustaðahrepps, fulltrúar landeigenda og fleiri. Á fundinum kom fram að menn telja gróður á afréttinum lengra á veg kominn en um miðjan júní 1986 og mólendið að mestu fullgróið og því muni sauðfé síður leita í mel- grasið en vegna þurrka er hættta á foki. Kristján faranótt föstudagsins. Samn- ingafundur stóð yfir hjá ríkissáttasemjara í allan gær- dag en var í gærkvöldi frestað til klukkan 10 í dag. Verkfallið nær til 25-30 raf- virkja og um 100 rafeindavirkja. Rafvirkjamir sjá um viðhald á ríkisspítölunum, viðhald vita og um flugvalla- og aðflugsljós á flugvöllum. Rafeindavirkjamir vinna hjá Póst og símamálastofn- un og sem tæknimenn hjá ríkisút- varpi og sjónvarpi og því liggur dagskrárgerð þar að mestu niðri. Rafíðnaðarsambandið hefur þó geflð undanþágur fyrir ríkisspítal- ana þannig að regluleg starfsemi þar raskast ekki vegna verkfalls- ins og ekki verður komið í veg fyrir að veðurfréttir verði lesnar í útvarpi. Magnús Geirsson formaður Rafíðnaðarsambandsins sagði við Morgunblaðið í gærkvöldi að samningagerðin væri talsvert flókin og tímafrek. Sambandið væri að semja í fyrsta skipti fyrir þessa félagsmenn sína, en þeir gengu úr starfsmannafélögum opinberra starfsmanna í Rafíðn- aðarsambandið. Rafíðnaðarsam- bandið væri að reyna að samræma lq'ör þessara starfsmanna kjörum starfsmanna hjá öðmm ríkisfyrir- tækjum á borð við ríkisverksmiðj- umar og RARIK. BORGARRÁÐ samþykkti í gær tillögu launamálanefndar Reykjavíkurborgar um að vagn- stjórar hjá Strætisvögnum Reykjavíkur og brunaverðir fái tveggja launaflokka hækkun frá 1. júní. Fulltrúar brunavarða og vagnstjóra segja að þessi launa- hækkun sé ekki nægjanleg og talsmaður brunavarða segir að hætt sé við að allsherjar flótti bresti nú á úr brunavarðarstarf- inu í Reykjavík. Eftir hækkunina em lágmarks- laun vagnstjóra í Reykjavík 28.896 krónur en lágmarkslaun bmna- varða 30.656 krónur fyrir vísitölu- hækkun 1. júní. Að jafnaði þýðir þessi tveggja launaflokka hækkun 1.700-2.000 króna hækkun á gmnnlaun þessara stétta. Baldur S. Baldursson talsmaður bmnavarða sagði þá vera hund- óánægða með þessa hækkun en þeir höfðu gert kröfu um lágmarks- laun iðnmenntaðra manna sam- kvæmt ASÍ-VSÍ-samningunum sem em nú rúmar 37.000 krónur. Þetta væri langt frá þeim hugmyndum sem þeir hefðu gert sér miðað við þær kröfur sem gerðar em til bmnavarða í starfi og þeir væm hreinlega móðgaðir. „Það er alveg augljóst á þeim viðbrögðum sem hér hafa verið í dag að menn em mjög óánægðir," sagði Baldur. „Það er hætt við að það verði allsheijar flótti úr starfínu nú en það er þegar kominn töluverð- ur flótti í liðið. Raunar kom eitt uppsagnarbréf í dag. Þetta er að verða hættuástand fyrir borgarana og það væri vítavert ef Bmnamála- stofnun fer ekki að skipta sér af þessu rnáli," sagði Baldur S. Bald- ursson. Hannes H. Garðarsson 1. trúnað- armaður vagnstjóra SVR sagði að þessi hækkun leysti ekki þann vanda sem við væri að fást þar. Krafan hefði .verið um að byijunar- laun vagnstjóra væm ekki undir 30 þúsund krónum svipað og vagn- stjórar í Kópavogi hafa. „Þetta leysir ekki vanda fyrir- tækisins því það tekst ekki að manna flotann í sumar," sagði Hannes. „Síðan er ljóst að menn eiga eftir að hætta í framhaldi af þessu. Það stríð sem verið hefur hjá okkur hefur síðan ekki eingöngu verið vegna gmnnlaunanna heldur ýmislegs annars sem tengist raunar kjömnum og þau mál em ekki að fullu afgreidd ennþá," sagði Hannes H. Garðarsson. Yfirtekur Víkingur rekstur leikskóla? Knattspymufélagið Víkingur hefur óskað eftir formlegum við- ræðum við borgaryfirvöld um möguleika á að taka yfír rekstur á leikskólum og gæsluvöUum á starfssvæði félagsins. Erindinu var vísað tíl stjómar dagvistar bama. í bréfí knattspymufélagsins segir að ný og markviss stefna borgar- yfírvalda gagnvart íþróttahreyfíng- unni sé farin að skila sér. Þar með sé hreyfíngunni gert kleift að end- urskipuleggja starf sitt og leggja nýjan grundvöll að almennri félags- starfsemi. Reykjavík: Húsin tíu í könnun félagsmálaráðherra SAMKVÆMT upplýsingum frá Davíð Oddssyni borgarstjóra nær könnun á burðarþoli bygg- inga er gerð var á vegum félagsmálaráðuneytis til eftir- talinna tíu húsa. Rétt er að taka fram að burðarþol húsa A og B hefur ekki verið kannað þar sem teikningar lágu ekki fyrir hjá embætti byggingarfulltrúa. Hús Samþ. í bygg- ingamefnd Lýsing áteikningum Mat á burðarþoli A Eldshöfði 18 B Eldshöfði 16 14.03.85 br. 30.04.87 14.02.85 Vantar að miklum hluta Engar Ekki athugað Ekki athugað C Skipholt 50c D Foldaskóli 23.08.84 30.08.84 Vel gerðar Vel gerðar Ekki fullnægjandi Fullnægjandi en festing- ar útveggjaeininga skemmast við staðalálag Gögn vantar Áfátt Áfátt Áfátt Áfátt Áfátt E Suðurlandsbr. 24 F Réttarháls 2 G Eldshöfði 14 H Bfldshöfði 16 I Bíldshöfði 18 J Suðurlandsbr. 22 28.07.83 30.04.81 30.10.84 13.05.82 24.06.82 1 ■§ | Morgunblaðið/Júlíus Sendibifreiðin gjöreyðilagðist í árekstrinum við Elliðaárnar í gær, en ökumaður hennar slapp ómeiddur. Sendibifreið vafðist um staur MJÖG harður árekstur varð á mótum Sævarhöfða og Bílds- höfða um kl. 16 í gær og þykir mikil mildi að enginn slasaðist. Áreksturinn varð með þeim hætti að sendibifreið var ekið norður Sævarhöfða. Fólksbifreið var ekið niður Bfldshöfða, í vestur- átt, og skall hún á hlið sendibif- reiðarinnar. Höggið var mjög mikið og kastaðist sendibifreiðin jrfír veginn og stöðvaðist á staur. Þykir það lán í óláni, því ella hefði bifreiðin farið í Elliðaárnar. Bif- reiðin er ónýt, en ökumaðurinn skreið út úr flakinu heill á húfí. Fólksbifreiðin er einnig mikið skemmd, en ökumaðurinn slapp ómeiddur. Lögreglumaður, sem fór á vettvang, sagði að hann hefði verið þess fullviss að stór- slys hefði orðið, þegar hann sá bifreiðartiar tvær, og ótrúlegt væri að ekki skyldi hafa farið verr. Reykjavíkurborg: Vagnstjorar og bruna- verðir hækkaum 2 flokka Skýrsla um burðarþol húsa: Byggingarfulltrúi skilar grein- argerð til byggingarnefndar „ÞAÐ ER engin spurning um að burðarþol húsa er mál sem við verðum að taka á,“ sagði Hilmar Guðlaugsson formaður byggingar- nefndar Reylqavíkur, en embætti byggingarfulltrúa heyrir undir byggingarnefnd. „Ég hef óskað eftir skriflegri greinargerð frá byggingarfulltrúa, sem verður lögð fyrir næsta fund í byggingamefnd," sagði Hilmar. Hann benti á að borgarráð er búið að samþykkja nýjar reglur varðandi hönnun húsa sem fela í sér strang- ara og betra eftirlit hvað teikningar varðar. „Burðarþolsteikningar koma aldrei fyrir byggingamefnd," sagði Hilmar. „Það eru einungis byggi ngamefndarteikningar sem koma fyrir nefíidina, það er útlit og fyrirkomulag húsa sem við at- hugum og að byggingamar séu í samræmi við hverfaskipulag auk annarra reglna sem við vinnum eft- ir. Burðarþolsteikningar og útreikn- ingar em lagðir beint fyrir embætti byggingarfulltrúa sem fer yfír þær og stimplar en með þessum nýju reglum þarf uppáskrift verkfræð- inga á teikningar af öllum eininga- húsum, opinberum byggingum, skrifstofu- og atvinnuhúsnæði og íbúðarhúsum, sem em hærri en fjór- ar hæðir, áður en þær em lagðar fyrir byggingamefnd."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.