Morgunblaðið - 30.05.1987, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1987
deild Borgarspítalans, sem kostar
um þrjátíu milljónir króna.“
— Flest ykkar störf vinnið þið
í kyrrþey, er það rétta leiðin að
þínu mati?
„“Já, það er rétt að við leggjum
áherslu á að mikla okkur ekki af
verkum okkar eða auglýsa þau.
Ég tel þó að það séu að verða
úrelt viðhorf að kynna ekki þá
góðu vinnu, sem félög og samtök
kvenna standa að.“
— Hyggist þið beita ykkur á
nýjum vettvangi í framtíðinni?
„Við lifum á upplýsingaöld og
ég er þeirrar skoðunar, að banda-
lagið verði að færa sig inn á nýjar
brautir með hag kvenna framtí-
ðarinnar að leiðarljósi. í því skyni
fínnst mér að Bandalag kvenna í
Reykjavík ætti að beita sér fyrir
því að setja á stofn eins konar
fræðslumiðstöð fyrir konur, hvort
sem þær starfa úti í atvinnulífínu,
vilja fara út á vinnumarkaðinn eða
vilja helga sig félagsmálum. Marg-
ar konur finna sig vanbúnar til
að takast á við ýmis verkefni á
þessum sviðum og eiga rétt á að
geta leitað sér leibeininga."
— Innan Bandalags kvenna í
Reykjavík starfa konur með mis-
munandi stjómmálaskoðanir,
hvemig gengur þeim að vinna
saman?
„Ef ég ætti að nefna aðeins eitt,
sem mér finnst merkilegt í starfi
Bandalags kvenna í Reykjavík þá
er það hve vel konumar vinna
saman þrátt fyrir mjög ólíkar
skoðanir á þjóðmálum. Þann tíma,
sem ég hef gegnt formennsku í
bandalaginu, sem er reyndar ekki
langur, man ég ekki eftir því að
skorist hafí í odda. Við setjum
okkur ákveðin markmið og beij-
umst síðan sameinaðar og af
hörku að því að ná þeirn."
— Hver er skoðun þín á stöðu
konunnar nú?
„Hún hefur breyst mikið til
batnaðar. Margt mætti þó betur
fara. Fyrst og síðast þarf að breyta
hugsunarhætti varðandi afstöðu
til kynjanna og ala bömin upp við
jafnrétti á heimilunum, því þar
mótast viðhorf þeirra. Þá er afar
brýnt, að hægt verði að lifa af
lágmarkslaunum og koma á raun-
hæfu launajafnrétti kynjanna.
Þörf er á því að konur sæki inn á
sem flest svið atvinnulífsins, en
einblíni ekki á hefðbundin kvenna-
störf. Atvinnurekendur þyrftu líka
að breyta viðhorfum sínum og
gefa konum í auknum mæli tæki-
færi á svokölluðum karlastörfum.
— Aðalfundur Bandalags
kvenna í Reykjavík skoraði nýlega
á alla landsmenn að standa vörð
um hagsmuni heimilanna og hag
húsmóðurinnar. Berið þið ugg í
bijósti varðandi framtíð fjölskyld-
unnar?
„Eins og kom fram í þeirri
ályktun, sem við létum frá okkur
fara um þetta mál, þá telur banda-
lagið heimilið homstein þjóðfé-
lagsins, þar sem fjölskyldan ber
jafna ábyrgð. í vestrænum þjóð-
félögum bendir ýmislegt til
upplausnar fjölskyldunnar, eins og
auknir hjónaskilnaðir og vímu-
efnavandamál. Það þarf því að
hlúa betur að fjölskyldunni og að
því þurfa að vinna bæði opinberir
aðilar, atvinnurekendur og foreldr-
ar. Það væri til dæmis æskilegt
að koma á sveigjanlegum vinn-
utíma, þar sem það er mögulegt.
Einnig þyrfti að gera foreldrum
kleift að vera meira heima hjá
börnum sínum en nú er. Aherslu
verður að leggja á að að báðir
foreldrar beri jafna ábyrgð á
umönnun og uppeldi bama sinna
og samfélagið verður að láta sig
uppeldismál varða.“
— Hvaða ósk átt þú til handa
Bandalagi kvenna í Reykjavík á
sjötíu ára afmælinu?
„Ég ber þá von í bijósti að
Bandalag kvenna í Reykjavík haldi
áfram að vera traustur vettvangur
félagsstarfs kvenna í Reykjavík,
eins og til var stofnað í upphafí.
MIÐ-EVRÓPA Ertu með?
Flug, bdl, sumaihús!
<
1
ö
E
*
Viltu njóta lífsins
við fagurt vatn í friðsælu fjallaþorpi þaðan sem stutt er í
stórborgarmenninguna?
Ertu kannski einn þeirra fjallhressu sem alftaf þurfa
að glíma við ný og stærri fjöll og endalaust þurfa að kanna
eitthvað nýtt / gamalt?
Dreymir þig e.t.v. um að drífa þig á seglbretta-
námskeið og skora svo á íslandsmeistarann þegar heim
kemur eða liggja á vef völdum vatnsbakka, grilla þig í
sólinni og taka þátt í keppninni „Hver er brúnastur“?
Ertu sælkerinn sem þýðir ekki að bjóða nema það
besta í mat og drykk?
Þá eru Biersdorf í Þýskaiandi, Waichsee
eða Zeil am See í Austurríki staðir fyrir þig
Þú getur haft bflaleigubfl til umráða og ekið hvert sem þú
vilt eða tekið þátt í skipulögðum skoðunar-
ferðum með okkar traustu og reyndu fararstjórum.
FLUGLEIDIR
— fyrir þig _
Vlltu fara þínar eigin leiðir?
Sértu einn þeirra ferðavönu eða þeirra sem geta
ekki hugsað sér að ferðast eftir fyrirfram gefinni áætlun er
það að sjálfsögðu engin spuming hvað þú gerir. Þú hlýtur
að velja flug og bfl. Spumingin er bara: Hvar viltu byija?
í Lux, Frankfurt, París eða Salzburg? Það er auðvitað þitt
mál en staðreyndin er sú að bflaleigubflarnir í Lux em þeir
ódýmstu í Mið-Evrópu.
Leiðsögumappan og Mið-Evrópu
bækiingurínn Fiug, bfll og sumarhús
em komin. Komdu við á söluskrifstofum okkar eða
ferðaskrifstofunum, fáðu þér eintak og lestu þér til um
sumardvalarstaðina okkar í Mið-Evrópu. Dragðu fram
gamla landakortið, ræddu málin við fjölskylduna í ró og
næði og hringdu svo í okkur.
LUXEMBORG:
Elug+híll í 2 viknr frá kr 11 903 á mann. SUPER-APEX verð. Miðað
við 2 fullorðna og 2 börn, 2ja-l 1 ára, og bíl í B-flokki.
WALCHSEE:
Elug+íbúð á llgerhnf í 2 viknr frá kr 18 2fin* á mann.
Flogið til Salzburg. Tímabilið 17. maí til 5. júlí.
ZELLAMSEE:
Ebig+íbúð í Hagleitner í 2 viknr frá kr 10 Ílfi7* Flogið til Salzburg.
Tímabilið 7. júní til 5. júlí.
BIERSDORF:
Hug+íbúð í 2 yiknr frá kr 15 834* á mann. Flogið til Luxemborgar.
Tímabilið 13. júní til 11. júlí.
*MedaltaIsverd á mann midad við 2 fullorðna og 2 böm, 2ja—11 ára.
Nánari uppiýsingar veita söluskrifstofur Flugleida, umboðsmenn um allt land og ferðaskrifstofumar.
FLUGLEIÐIR
Söluskrifstofur Flugleiða: Lækjargötu 2, Hótel Esju og Álfabakka 10. Upptýsingasími 25 100