Morgunblaðið - 30.05.1987, Síða 57

Morgunblaðið - 30.05.1987, Síða 57
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1987 57 Guðni Ág. Þórarins- son húsasmíða- meistari—Minning Fæddur 17. júlí 1906 Dáinn 15. maí 1987 í dag, laugardaginn 30. maí, verður jarðsunginn frá Garðakirkju, tengdafaðir minn, Guðni Þórarins- son, Miðvangi 41, Hafnarfirði. Guðni var fæddur á Grunnavatni á Jökuldal 17. júlí 1906. Foreldrar hans voru hjónin Helga Guðnadótt- ir frá Kleif í Fljótsdal og Þórarinn Ketilsson frá Höfn í Borgarfirði eystra og var Guðni einn af fimm bömum þeirra hjóna, hin voru: Ólaf- ur, lést ungur, Bergljót látin, Signý, búsett á Akureyri og Alfreð, búsett- ur í Reykjavík. Frá Grunnavatni fluttist Guðni með foreldrum sínum og systkinum að Grund, en þar missti hann móð- ur sína, þá aðeins 11 ára gamall. Þórarinn flyst síðan með böm sín að Amarvatni en þar kvænist Þór- arinn seinni konu sinni, Salínu Einarsdóttur frá Þorbrandsstöðum í Vopnafirði. Áttu Þórarinn og Salína saman §ögur böm: Jónínu, búsetta í Reykjavík, Ólaf, látinn, Friðjón, látinn og Helga, búsettan í Reykjavík. Oft minntist Guðni þess hve Salína hafi verið þeim bömum góð og sem besta móðir. Um tvítugsaldur hóf Guðni nám hjá Sigurði Hannessyni, húsasmiða- meistara á Norðfirði og lauk þar námi með mjög góðum vitnisburði árið 1929. Guðni flyst til Akureyrar árið 1930, og þar kynnist hann konuefni sínu, Jóhönnu Kristjáns- dóttur, ættaðri úr Öxnadal. Guðni og Jóhanna gengu í hjónaband 14. maf árið 1931. Þau áttu tvö böm: Ólöfu Helgu, búsetta í Garðabæ, gift undirrituðum og Viðar, búsett- an í Kópavogi, kvæntur Guðríði Ólafsdóttur. Jóhanna tengdamóðir mín lést 6. desember 1983. Þau hjón Jóhanna og Guðni voru búsett á Akureyri til ársins 1945, en þá flytjast þau hingað suður og vann Guðni hjá Stefáni Thorarensen, lyf- sala, við byggingar o.fl. Voru þau hjón þá búsett í Saltvík á Kjalar- nesi og bjuggu þar í ellefu ár. Síðan flytjast þau hjón til Hafnarfjarðar og vann Guðni hjá Reykdal og síðan við skipasmfðar f Dröfn. Það mun hafa verið árið 1966 sem Guðni fann fyrst fyrir þeim sjúkdómi er síðar varð honum að aldurtila. Eftir það vann Guðni lítið enda mjög heilsutæpur þau ár sem hann átti eftir ólifuð, og ófáar ferðimar á sjúkrahús þessi ár. Árið 1960 kaupa þau sér hús í Garðabæ og búa þar til ársins 1977 Hótel Saga Simi 1 2013 Blóm og skreytingar við ölltœkifœri V^terkurog k J hagkvæmur auglýsmgamiðill! að þau minnka við sig og kaupa sér litla íbúð á Miðvangi 41, Hafnar- fírði og bjuggu þar til dauðadags. Ég kynntist Guðna fyrir 23 árum er ég kvæntist dóttur hans, og hafa það verið góð kynni svo ekki sé meira sagt. Guðni hafði kynnst bæði gleði og sorg í lífinu, en aldr- ei lét hann bugast þó móti blési, hann bar ekki veikindi sín á torg. Guðni fylgdist vel með öllu og var vfðlesinn. Þá kunni hann vel að segja frá og var minni hans óbrigð- uit til hinsta dags. Fyrir um það bil 10 ámm fórum við Guðni ásamt fleirum austur á Jökuldalsheiði og komum að Grunnavatni, sem nú em bara rúst- ir einar. Veður var eins og best getur verið, glampandi sól og hiti. Guðni mældi þá upp rústimar og kunni góð skil á öllu. Síðan teikn- aði hann bæinn upp þegar heim var komið og með því framtaki hafa bjargast góðar heimildir. Guðni var einn af stofnfélögum Bræðrafélags Garðakirkju og starfaði í því til æviloka. Guðni unni mjög bömum sínum og bamabömum og bar hag þeirra fyrir bijósti og ekki má gleyma langafastráknum sem hann hafði ómælda ánægju af. Guðni hafði hlakkað svo mjög til að geta verið við útskrift tveggja dætra okkar, en kallið kom viku of snemma til að það gæti orðið. Síðustu árin var hann af og til á verkstæði mfnu og ekki verða of- þakkaðar þær samverustundir sem við áttum þar. Það er mikil gæfa að fá að eiga slfkan vin sem Guðni var. Hann var mikill mannkosta- maður og ljúfmenni hið mesta. Minningin um hann mun verða geymd. Ég bið honum blessunar guðs. Benedikt Björnsson Með örfáum orðum viljum við minnast afa okkar, Guðna Þórarins- sonar, húsasmfðameistara, Mið- vangi 41, Hafnarfirði. Afi fæddist 17. júlí 1906 og hefði því orðið 81 árs í sumar. Við ætlum ekki að rekja langan og viðburðaríkan lífsferil afa, heldur með fáum og fátæklegum orðum þakka fyrir allar stundimar sem við áttum saman. Afi var óþijótandi sagnabrunnur og eyddi ófáum stundunum í að ri§a upp með okkur liðna atburði úr lífí sínu og ömmu, en hún lést fyrir fjórum árum. Afi sagði skemmtilega frá, skildi sig frá skarkala nútímans og endurlifði atburðina sem hann var að segja frá. Starfsviljinn og minnið var óhagganlegt fram á hans síðasta dag. Ymsir sjúkdómar hijáðu hann en lífsviljinn var þeim ávalit yfir- sterkari. Á verkstæðinu hjá pabba vann hann heilu dagana við trésmíði og fékkst einnig við að binda inn og lagfæra gamlar bækur. Um helgar hittist flölskyldan oft í Garðabænum hjá mömmu og pabba og var það þá ljósið í bæn- um, Ingvar, fyrsta bamabama- bamið, sem átti þá hug hans allan. Ingvar tveggja ára og „afí lang“ fengu sér þá gjaman í nefið saman og þótti báðum ansi skondið. Þrátt fyrir harða baráttu við sjúkdóma vildi afi alltaf vera þátt- takandi í lífi okkar systranna. Við kveðjum nú afa og þökkum honum fyrir allar samverustundim- ar og þann kærleika sem hann veitti okkur. Guð blessi minningu hans. Jóhanna, Rósa, Hrönn og Hildur. Birting afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting- ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafn- arstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki eru tek- in til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfílegt er að birta ljóð eftir þekkt skáld, 1—3 erindi og skal þá höfundar getið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú, að minningargreinar birtist undir fullu nafni höfundar. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar em birtár af- mælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin, vélrituð og með góðu línubili. t Móðir okkar, tengdamóöir og amma, KRISTRÚN V. JÓNSDÓTTIR, Nýlendugötu 29, verður jarðsungin fró Fríkirkjunni mánudaginn 1. júní kl. 15.00. Jón Ásbjörnsson, Fríða V. Ásbjörnsdóttir, Ásbjörn Jónsson, Baldur Steingrímsson, Halia Danfelsdóttir, Stelngrímur Baldursson. Asdfs Jónsdóttir, Hóðlnn Steingrfmsson, Gunnar Steingrfmsson. t Útför konunnar minnar, KRISTÍNAR HALLDÓRSDÓTTUR, Böðvarsgötu 10, Borgarnesi, fer fram frá Borgarneskirkju laugardaginn 30. maf kl. 14.00. Þeir sem vilja minnast hennar vinsamlegast ióti Ifknarstofnanir njóta þess. Haukur Kristinsson. t Bróðir okkar, JÓHANN SIGMUNDSSON, Miðstræti 1, Neskaupstað, andaðist í Landspítalanum 27. maí. Kveðjuathöfn fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 1. júní kl. 15.00. Sigrún Sigmundsdóttir Sveinlaug Sigmundsdóttir, Árnfna Sigmundsdóttir, Guðrfður Sigmundsdóttir, Guðrún Sigmundsdóttir, Stefán Sigmundsson. t Þökkum innilega auðsýnda samúö við andlát og útför föður okkar og tengdaföður, DANÍELS KRISTINSSONAR, Einarsnesi 54. Sveinn Magni Danfelsson, Fanney Dóra Kristmannsdóttir, Halla Danfelsdóttir, Jón Ásbjörnsson, Auður Danfelsdóttir, Jakob Ágúst Hjálmarsson. t Alúöar þakkir fyrir vinsemd og samúð við andlát og jaröarför móður okkar, tengdamóður og ömmu, FREYGERÐAR A. ÞORSTEINSDÓTTUR, Strandgötu 9, Ólafsfirði. Andrés Sigurðsson, Guðrún Sigurðardóttir, Sigríður Sigurðardóttir, Jón Sigurðsson, Margrót Sigurðardóttir, Valgerður Sigurðardóttir, og Jensfna Þórarinsdóttir, Baldur Snorrason, Halldór Jónsson, Matthlidur Antonsdóttir, Ólafur Þór Jónsson, Hilmar Þorsteinsson barnabörn. t Þökkum auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför sonar mfns og bróður okkar, GEIRS GUÐBRANDSSONAR frá Sigluflrði. Ásgerður fsaksdóttir og systkini. t Þökkum af alhug öllum þeim sem vottuðu okkur samúð og vin- áttu við andlát og útför míns elskulega eiginmanns, föður okkar, tengdaföður og afa, JÓNS H. JÚLÍUSSONAR hafnarstjóra, Hlfðargötu 23, Sandgerði. Rósa Jónsdóttir, Júlíus Jónsson, Ingibjörg Magnúsdóttir, fna Jónsdóttir, Guðmundur Jónasson, Alma Jónsdóttir, Jón Friðriksson, Birgir Jónsson, Hallvarður Þ. Jónsson, Vfðir S. Jónsson, og barnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúö og vinarhug við fráfall og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, SIGURÐAR ÁRMANNS MAGNÚSSONAR stórkaupmanns. Guðrún Lilja Halldórsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.