Morgunblaðið - 30.05.1987, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 30.05.1987, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1987 23 Ijóam./Hans Vollertsen Úr Árbæjarsafni: f.v.: Smiðshús, Þingholtsstræti 9, Reykhólar, Dillonshús, Lindargata 43A. svolítið þorp með flestu því sem þar á heima — eiginlega má líkja staðn- um við lítinn heim sem lýtur sínum eigin lögmálum. Mér fínnst borgarjrfírvöld gera vel við safnið og sé ekki ástæðu til að kvarta. Þetta fjárhagsár höfum við t.d. 4 milljónir til viðhalds og endursmíði húsa og fleiri liði mætti upp telja. Við sem hér vinnum fínnum fyr- ir því að fólki þykir vænt um þetta safn. Sumir sem hafa komið hingað fyrir mörgum árum koma aftur með böm og bamaböm. Við stefnum líka að því að gera safnið hér og umhverfið eins lifandi og hægt er — hafa starfsemina fjölbreytta svo staðurinn geti orðið sjálfsagður áfangastaður í útivistarlífí fjöl- skyldunnar. Ég legg líka áherslu á mikilvægi kennslu fyrir skólaböm hér. Það er gott að leggja snemma gmnd- völlinn að kynnum bama við fortíð sína því þannig em tryggðir vinir og stuðningsmenn safnsins í fram- tiðinni - og starfsemin hér nær aldrei tilgangi sínum nema þeir sem eiga það — borgarbúar — veiti því brautargengi." Grímsey- ingar kom- ast í sam- band við lottóið 40 milljónir kr. greiddar eignaraðilum lottósins GRÍMSEYINGAR geta tekið þátt í lottóinu eins og allir aðrír lands- menn eftir mánuð eða svo ef allt fer samkvæmt áætlun. Þórður Þorkelsson, stjómarformaður íslenskrar getspár, segir að for- ráðamenn lottósins og fyrirtæk- isins sem leigir þeim kassana hefðu áhuga á að koma upp kassa í Grímsey, til að spanna allt landið, og hefðu þessir aðilar ákveðið að kosta það sameigin- lega að koma kassanum þar upp. í kringum húsin. En nú er verið að vinna að heildarskipulagi fyrir allt svæðið á vegum borgarskipulags — bæði að því er varðar staðsetningu húsa og götu og útilýsingar. Ragnheiður Þórarinsdóttir var spurð hvað fleira væri helst á döf- inni varðandi sumarstarfíð en safnið verður opnað 31. maí næstkomandi. „Þá má geta þess að í Eimreiðar- skemmunni verður í sumar sýning um slökkviliðið í Reykjavík. Þar hefur verið komið fýrir gömlum glæsibifreiðum úr eigu borgarinnar sem eru hreint augnayndi og ýms- um tækum sem tengjast starfí slökkviliðsins. Þar er einnig sýning um gatna- og hafnargerð. I ráði er að opna smiðjuna andspænis gamla Árbænum svo fólk geti séð þar inn. Þá er í ráði að girða í kring- um einhver húsanna og koma upp húsagörðum eins og tíðkuðust áð- ur. Haldið verður áfram viðgerð á skipinu „Aðalbjörgu" RE5 sem var gefín safninu í fyrra og víkingaskip- ið, þjóðargjöf Norðmanna tillslend- inga á 11 hundruð ára afmælinu, er komið í hús og viðgerð á því er hafin. Þegar henni er lokið verður það sett út og viðgerð hefst á göml- um nótabát en þeir tilheyra nú liðinni tíð. Ætlunin er að fara að huga að viðgerð á Suðurgötu 7 sem sett var hér niður til bráðabirgða og við verðum að búa okkur undir að taka á móti Lækjargötu 4. Uppgröftur- inn í Viðey fer einnig fram á vegum safnsins en starfsmaður héðan, Mjöll Snæsdóttir, hefur stjóm þess verks með höndum. Loks má geta þess að árbók safnsins sem gefín verður út í tilefni 30 ára afmælisins er í vinnslu og kemur út í sumar, en starfsmenn safnsins skrifa þar hver um sinn þátt. Kirkjan verður leigð út að venju og gefnar hafa verið út reglur varð- andi leiguna til hagræðingar fyrir alla aðila og þá er einnig í bígerð að setja upp vandaða vegvísa á safnsvæðið til að auðvelda gestum yfirferð. Þá má geta þess að þótt við séum mest í gamla tímanum höfum við tekið í okkar þjónustu nýtísku tækni og höfum tölvuvæðst og gerir það alla skráningu safnmuna miklu auð- veldari. Á efri hæðinni í Laugavegi 62 hefur verið innréttað fundaherbergi og kennslustofa fyrir skólabama- hópana. Þar er líka aðstaða til myndbandasýninga og ráðgert er að sýna Reykjavíkurmynd Lofts Guðmundssonar þar í sumar. Og þar geta félög fengið leigða fundar- aðstöðu á kvöldin. Áhugi fyrir safninu er alltaf að aukast," segir Ragnheiður. „Á því er enginn vafí. Menn eru famir að gera sér betur grein fyrir því að Arbæjarsafn er meira en safn húsa. Hér em geymdir merkir gripir úr sögu Reykjavíkur og sumir hvergi annars staðar til. Hér er að skapast Úr Smiðshúsi. . LjÓ8m./Hans Vollertaen Ljósm./Hans Vollertsen Nýlenda, Smiðshús og Hábær. Ljósm./Hans Vollertsen Gamall stigabíll úr eigu slökkviliðsins í Reykjavik. Ljósm./Hans Vollertsen Ford 1923 í eigu Þjóðminjasafnsins. „Bríet“ í baksýn. Eigandi lottókassanna, Gteck corporation í Bandaríkjunum, legg- ur til lottókassann sem Grímseying- ar fá, en hann kostar 350 þúsund krónur, en íslensk getspá kostar símalínuna. Stefnt er að því að kassinn verður settur upp um mán- aðarmótin júní-júlí að viðstöddum fulltrúum frá bandaríska fyrirtæk- inu. Þessar vikumar er verið að fjölga lottókössum, en viðbótar- kassamir eru einkum settir upp á helstu sumdardvalarstöðum lands- ins. Stjóm íslenskrar getspár ákvað í vikunni að greiða eignaraðilum sínum 40 milljónir kr. af hagnaði lottósins. Með þessu hefur íslensk getspá greitt 115 milljónir til eig- endanna, sem er 34% af heildarsöl- unni. íþróttasamband íslands hefur fengið 53,7 milljónir af hagnaðin- um, Öryrkjabandalag íslands 46 milljónir og Ungmennafélag íslands 15,3 milljónir kr. 40% af veltunni fer í vinninga. Þórður sagði að reikningsári Islenskrar getspár lyki 1. júní og eftir uppgjör þá yrði Ijóst hver rekstrarkostnaður og raun- verulegur hagnaður eigendanna yrði. Krístín Ómarsdóttir Ljóðabók eftii’ Kristínu Ómarsdóttur ÚT ER komin ljóðabókin „í hús- inu okkar er þoka . . .“ eftir Krístínu Ómarsdóttur. Bókin inniheldur ljóð, ljóðabálka og ljóðaleik. Bókin er 100 síður og myndskreytt af Lars Emil Ámasyni sem einnig hannaði kápu. Þetta er fyrsta bók höfundar en áður hafa birst ljóð eftir Kristínu í blöðum og tímaritum auk þess sem Þjóðleikhúsið frumsýndi einþáttung hennar „Draumur á hvolfí" á litla sviðinu sl. vetur. Bókin er til sölu í Bókabúð Máls og menningar og hjá höfundi en það er höfundur sem gefur bókina út.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.