Morgunblaðið - 30.05.1987, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1987
41
Sýning’ á framleiðslu-
vörum Blikksmiðjunnar hf
BLIKKSMIÐJAN hf. sýnir í dag
framleiðsluvörur sínar ásamt
hlutum og tækjum til notkunar
í lofthita- og loftræstikerfum.
Verkstæðinu hjá Blikksmiðjunni
hf. hefur verið breytt í sýningarsal
og sýnisgripum verið komið fyrir
á borðum og veggjum.
Þetta er í fyrsta skipti sem
Blikksmiðjan hf. heldur slíka kynn-
ingu. Markmiðið með sýningunni
er að kynna þeim sem áhuga hafa,
s.s. hönnuðum, verktökum, blikk-
smiðum o.fl., þær vörur sem eru á
boðstólum.
Sönghópurinn The Flying Pickets, sem heldur tónleika í Há-
skólabíói 8. og 9. júní.
The Flying- Pickets
halda tvenna tónleika
Lágt
verð á
ferskum
fiski
VERÐ á ferskum fiski í Bretlandi
hefur verið fyrir neðan meðallag
síðustu daga og i Þýzkalandi hefur
verðið verið mjög lágt. Stafar
þetta meðal annars af hlýnaudi
veðri og auknu framboði, bæði
héðan og frá öðrum þjóðum.
Sólborg SU seldi á miðvikudag
62,8 lestir, mest ýsu og þorsk, í
Hull. Heildarverð var 3,5 milljónir
króna, meðalverð 55,11. Þijú skip
seldu í Bretlandi á þriðjudag og var
verð hjá þeim svipað. Verð úr gámum
hefur verið undir meðallagi þessa
viku og fór á fímmtudag niður í 50
krónur.
Mikið framboð og sumarhitar í
Þýzkalandi hafa valdið verðhruni þar
síðustu vikur. Nú hefur dregið úr
framboði héðan enda verð aðeins um
og yfir 40 krónur fyrir kíló að meðal-
tali. Verkföll í Færeyjum hafa hins
vegar haft þau áhrif, að mikið hefur
borizt af físki þaðan inn á þýzka
markaðinn og fellt verðið.
Söngleik-
ur í Tónabæ
SÖNGLEIKURINN Friðarplpuf-
aktorían 1, 2 og 3 eða 4, 5 eftir
meðlimi hljómsveitarinnar Jóa á
hakanum verður frumsýndur I
Tónabæ laugardaginn 30. maí.
Að söngleiknum stendur Happý og
harmónýhópurinn og alls taka um
30 manns þátt í uppsetningu hans.
Að sögn Ragnars Omarssonar með-
lims hljómsveitarinnar Jóa á hakan-
um fjallar söngleikurinn um baráttu
góðs og ills.
Friðarpípufaktorían verður sýnd
tvisvar sinnum. Fyrri sýningin verður
í Tónabæ laugardaginn 30. maí, eins
og áður segir, og hefst hún kl. 17.03.
Seinni sýningin verður á sama stað
kl. 21.02 mánudaginn 1. júní.
I sýningarsal Blikksmiðjunnar hf., talið frá vinstri: Steinn Þorgeirsson, Hinrik Winther og Ólafur A.
Jóhannsson.
Þrettánhundruð fjörutíu og einu sinni.„TAKK”
HLJÓMSVEITIN The Flying Pic-
kets heldur tónleika hér á landi I
Háskólabíói 8. og 9. júni næstkom-
andi.
The Flying Pickets ætti raunar
fremur að kalla söngsveit en hljóm-
sveit, því sexmenningarnir nota engin
hljóðfæri við tónlistarflutninginn,
heldur syngja sjálfír alla hljóma. Þeir
komust í fyrsta sæti í Bretlandi um
jólin 1983 með lagið Only you og var
lagið í fímm vikur í efsta sæti vin-
sældarlista þar í landi. Litla platan
með laginu var þriðja söluhæsta plat-
an í Bretlandi það ár og lagið náði
einnig miklum vinsældum hérlendis.
Nýjasta plata The Flying Pickets er
Take my breath away, en það lag
er úr kvikmyndinni Top Gun, sem
sýnd var hér á landi fyrir skömmu.
Það er ný umboðsskrifstofa sem
stendur að komu The Flying Pickets
hingað til lands og ber hún nafnið
Ice Management HF. Forráðamenn
umboðsskrifstofunnar ætla að standa
fyrir fleiri tónleikum erlendra gesta
hér á landi í framtíðinni. Miðar á
hljómleikana í Háskólabíói verða seld-
ir þar, á veitingastaðnum Duus og í
hljómplötuverslunum Steinars.
(Úr fréttatilkynningu)
Landsbankinn hefur ríka ástæðu til þess að þakka krökkum
um allt land fyrir framúrskarandi áhuga
og þátttöku í Landsbankahlaupinu 1987, 16. maí síðast liðinn.
Alls voru þátttakendur 1341, allir fæddir árin 1974 - 1977.
Fjölmargir unnu til verðlauna, sumir settu persónuleg met,
aðrir kepptu í hlaupi í fyrsta skipti á ævinni og þó nokkrir
urðu Kjörbók með dálítilli innstæðu ríkari.
En allir stóðu sig með mestu prýði.
Við þökkum öllum þátttökuna og FRÍ fyrir samstarfið
um framkvæmdina.
Vonandi sjáumst við
sem flest að ári
f Landsbankahlaupi 1988.
Landsbanki
Isiands
Banki allra landsmanna