Morgunblaðið - 30.05.1987, Síða 10
10 *
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1987
Um lágmarkslaun
eftirBjörn Björnsson
og Vilhjálm Egilsson
í viðræðum Sjálfstæðisflokks,
Alþýðuflokks og Kvennalista um
stjórnarmyndun var meðal ann-
ars rætt um lágmarkslaun og
hvemig unnt væri að tryggja
hækkun þeirra. Meðal þeirra
gagna, sem stuðst var við í við-
ræðunum, var álitsgerð um
lágmarkslaun frá Birai Björns-
syni, hagfræðingi Alþýðusam-
bands Islands, og Vilhjálmi
Egilssyni, framkvæmdastjóra
Verslunarráðs íslands og fyrrum
hagfræðingi Vinnuveitendasam-
bands íslands. í bréfi til Þor-
steins Pálssonar, sem fylgdi
ritsmíðinni, tóku höfundar fram,
að hér væri um að ræða vanga-
veltur, sem bæru þess vafalaust
merki, að þær hefðu verið teknar
saman á skömmum tíma. Þá létu
þeir þess og getið, að pistillinn
væri á ábyrgð höfunda og honum
væri ekki ætlað að túlka sjónar-
mið þeirra samtaka, sem höfund-
arnir starfa eða hafa starfað
fyrir.
1. Inngangur
Setning laga um lágmarkslaun
hefur af og til komið til umræðu
meðal stjómmálamanna hér á landi.
í þessu sambandi hefur m.a. verið
vísað til þess, að lög um lágmarks-
laun eru allvíða til í löndum hins
vestræna heims, t.d. í Bandaríkjun-
um og Frakklandi.
I kjarasamningum er hækkun
lægstu launa stöðugt viðfangsefni,
þótt jafnan hafi mönnum þótt of
lítið miða. Nokkrar tilraunir hafa
þó verið gerðar til sérstakrar hækk-
unar þeirra tekjulægstu. Má þar
t.d. nefna samningana 1981, en þá
var samið um lágmarkstekjur fyrir
dagvinnu. Þessi tilraun sætti vem-
legri gagnrýni frá upphafi og þau
ákvæði sem giltu í þessu efni vom
látin deyja í áföngum með samning-
unum í nóvember 1984. Síðustu
kjarasamningar eiga að vera mönn-
um í fersku minni, en hér á eftir
verður þó mjög vikið að því sem
þá var gert.
í umræðu um þessi mái vill oft
gleymast, að við búum við löggjöf
sem að ýmsu leyti er einstök. Hér
er átt við lög um starfskjör launa-
fólks, sem kveða á um að „Laun
OKKUR VANTAR
EOTISTABFSFOLK
í GUESILEGA VERSUIN
í ágúst nk. opnum við nýjar verslanir í Kringlunni.
Okkur vantar því konur og karla til að vinna með
okkur í þessum glæsilegu verslunum.
Um er að ræöa þæði hluta- og heilsdagsstörf í
matvöruverslun, sérverslun og á lager. Þú þarft að
vera eldri en 18 ára og hafa einhverja starfsreynslu.
Þú þarft helst að geta byrjað á tímabilinu 15. júlí til
1. ágúst.
Við bjóðum þér mjög góða vinnuaðstöðu og góða
starfsmannaaðstöðu.
Komdu á skrifstofu Hagkaups í Skeifunni 15 n.k.
laugardag frá kl. 13-16 og ræddu við einhvern
eftirtalinna: Kristján Sturluson starfsmannastjóra,
Karl West og Valdimar Hermannsson
verslunarstjóra. Athugaðu, að upplýsingar eru ekki
veittar í síma.
HAGKAUP
og önnur starfskjör, sem aðildar-
samtök vinnumarkaðarins semja
um, skulu vera lágmarkskjör fyrir
alla launamenn í viðkomandi starfs-
gjein á svæði því, er samningurinn
tekur til. Samningar einstakra
launamanna og atvinnurekenda um
lakari kjör en hinir almennu kjara-
samningar ákveða skulu ógildir".
Þetta lagaákvæði, ásamt með
fleiri ákvæðum og almennri aðild
að verkalýðsfélögum, markar mikla
sérstöðu m.t.t. lágmarkslauna.
Flest bendir til þess, að þar sem
slík lög hafa verið sett hafí mark-
mið lagasetningarinnar verið að
koma í veg fyrir áníðslu gagnvart
ófélagsbundnu fólki, sem hefur tak-
markaða möguleika til þess að
veijast, einkum ef atvinnuástand
er bágt. Slíkar aðstæður eru engar
hér á landi.
2. Hvaða tekjur á
að miða við?
Fyrsta spumingin sem hlýtur að
vakna varðandi hugsanlega setn-
ingu laga um lágmarkslaun e_r
hvaða tekjur eigi að tryggja. A
lagasetningin að fela í sér ákvæði
um lágmarkslaun fyrir dagvinnu
eða lágmark fyrir heildartekjur?
,Eða á að lágmarka dagvinnu að
viðbættum bónusgreiðslum? Hvern-
ig á að fara með yfirvinnu, vakta-
álag, ferða-, flutnings-, fæðis-,
vaktaskipta- og pokagjald, svo örfá
dæmi séu nefnd? Hvað með hrein
akkorð, uppmælingu og pKemíu-
kerfí?
Reynslan af ákvæðunum um lág-
markstekjur frá 1981 er í stuttu
máli sú, að réttlætið í þessum efnum
er ákaflega afstætt. Þá var farin
sú leið, að yfirvinna og bónusar
reiknuðust á lægri grunn en sem
nam lágmarkstekjunum. Þetta var
kallað „tvöfalt kerfí“ og þýddi í
raun, að lægst launaða fólkið hafði
lægri álagsprósentu fyrir yfírvinnu
en aðrir. I kjarasamningunum í
febrúar 1984 voru lágmarkstekjur
hækkaðar nokkuð umfram önnur
laun. En „tvöfalda kerfið" reyndist
síðan aðal gagnrýnisatriðið í samn-
ingaviðræðunum haustið 1984 og
var afnumið, sem þýddi að kaup-
máttur lægstu launa fór lækkandi
í kjölfarið. Einu gildir hvaða viðmið-
un er notuð, hún verður óvinsæl
w
Björa Björnsson
„ Að óbreyttu verður
það eitt helsta viðfangs-
efni aðila vinnumark-
aðarins á næstu
mánuðum að verja ný-
afstaðna breytingri á
launahlutf öllum hinum
lægst launuðu í hag.
Inngrip löggjafans í
það starf gæti beinlínis
stefnt í hættu því sem
áunnist hefur.“
og almennur þrýstingur verður frá
fyrsta degi að breyta henni.
Nýlegri dæmi af sama toga má
rekja frá samningunum í febrúar
1986, þegar deilt var um það hverj-
ir ættu að njóta sérstakra launabóta
sem þá var samið um. Þá var reynt
að hækka laun hinna lægst launuðu
umfram aðra með tveimur greiðsl-
um, að hámarki 3.000 kr. í hvort
skipti. Þegar á reyndi voru gerðar
kröfur um að þessar greiðslur færu
upp allan launastigann.
Tæknileg vandamál við lagasetn-
ingu af þessu tagi eru mýmörg, enn
kannski skipta hin sálrænu meira
máli. Það er ekki bara fyrir klaufa-
skap að ýmsar tilraunir af þessum
toga hafa runnið út í sandinn.
S0LUSTJ LARUS Þ VALDIMARS
L0GM J0H Þ0RÐARS0N HDL
SIMAR 21150-21370
Til sýnis og sölu m.a. eigna:
Úrvals eign í Háaleitishverfi
Parhús 212,4 fm nettó, með 6 svefnherb., húsbóndaherb. m. w.c.,
sólríkum stofum og skála. Bflskúr 23,9 fm nettó. Húsið er á einum
vinsælasta staö borgarinnar. Allar nánari uppl. aðeins á skrifst.
Glæsileg raðhús m.a. við:
Hvassaleiti með innb. bílskúr, 184,6 fm nettó, með 6 herb. íb. á tveim
hæðum. Nýtt eldhús. og fl. 40 fm nýr sólskáli. Skrúögarður.
Neðstaleiti meö innb. bílsk. 234,3 fm nettó, meö 7 herb. íb. á tveim
hæðum. Ný úrvals eign. Frábært útsýni.
Hulduland. 177 fm nettó, meö stórglæsil. 6 herb. ib. á tveim hæðum.
Bílskúr í sambyggingu.
Funafold. Úrvals eign í smiðum með tvöf. bílsk. Allur frág. fylgir utan-
húss. Útsýnisstaöur. Eitt hús óselt.
Skammt frá Landspítalanum
4ra herb. endurnýjuö efri hæö í þrib. 93,3 fm nettó. Innrétting, tæki
og gler allt nýtt. Sólsvalir. Sanngjarnt verö. Laus strax.
Með frábærum greiðslukjörum
3ja og 4ra herb. úrvals fbúðlr í smíöum viö Jöklafold. Byggjandi Húni
sf. Mánaöargreiösiur eftlr vali í allt aö tvö ár fyrir þá sem kaupa í
fyrsta sinn. Fullnaöar frág. á allri sameign. Húsnæöismálalán tekin
uppí kaupverö án affalla. Vinsaml. leitiö nánari uppl.
Húsnæði um 1000 fm
Sem má vera: tvö samb. hús eöa tvö hús sitt á hvorri saml. lóö eöa
eitt rúmg. hús óskast til kaups fyrir fjársterk og skilvis félagasamt.
Nánari uppl. trúnaöarmál.
Fjöldi fjársterkra kaupenda
Höfum á skrá óvenju marga fjársterka kaupendur. Margir bjóöa út-
borgun fyrir rétta eign.
Opið í dag laugardag
frákl. 11.00 tilkl. 16.00.
Njótið ráðgjafar og traustra
viðskipta.
ALMENNA
FASTEIGNASAL AN
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150 - 21370
Vilhjálmur Egilsson
3. Hvernig bregst vinnu-
markaðurinn við?
Öllum má ljóst vera, að lög um
lágmarkslaun geta haft víðtækar
afleiðingar á allan launastigann.
Auðvitað velta þessi áhrif á ýmsu,
almennu ástandi á vinnumarkaði
og því hversu mikla hækkun um
væri að ræða. Ekki fer á milli mála,
að nú ríkir mikil og almenn þensla
á flestum sviðum og að vinnumark-
aðurinn ber ýmis merki uppboðs-
markaðar, sem lítt stjórnast af öðru
en lögmálum framboðs og eftir-
spurnar. Afmarkaðar greinar og
landsvæði fara á undan með launa-
skriði, sem fyrr en síðar segir til sín
í öðrum greinum. Við þessar kring-
umstæður leikur enginn vafí á, að
áhrif verulegrar hækkunar lág-
markslauna hefði á tiltölulega
skömmum tíma áhrif á launastigið
yfir höfuð að tala. Spumingin er
þá sú hvort einhver væri bættari á
eftir.
Af þessu leiðir líka, að allt mat
á því hvað hækkun Iágmarkslauna
í tiltekið mark kosti þjóðfélagið í
launaútgjöldum er nánast út í hött.
Kostnaðaraukinn myndi á nokkrum
tíma, mánuðum eða misserum,
stefna í að vera í réttu hlutfalli við
hækkun lágmarksteknanna. Þetta
verður auðvitað ekki sannað, nema
menn séu tilbúnir til þess að gera
tilraunina, en þá verður ekki aftur
snúið. Þetta er vafalaust mörgum
erfiður biti að kyngja, en mikilvægt
er, að menn geri sér ljósar þær
ástæður sem þessu ráða. Þær eru
ekki illmennska eða viljaskortur,
heldur viðurkenning á því að vinnu-
markaðurinn lýtur almennum
lögmálum markaðskerfisins.
Hækkun lægstu launa umfram
önnur laun var höfuðviðfangsefni
desembersamninganna í fyrra.
Lægstu launin höfðu í raun setið
mjög eftir meðan launaskrið mæld-
ist verulegt í greiddu kaupi. Því var
ljóst að hækkun lægstu launa væri
að miklu leyti leiðrétting á undan-
gengnu misgengi. Vikum saman
var leitað leiða til þess að koma í
veg fyrir að hækkun lægstu laun-
anna flæddi yfír línuna og að lokum
var tekin sú áhætta að rústa gjör-
samlega allt almenna taxtakerfið
með starfsaldurshækkunum og
flokkaskipan og byija alveg upp á
nýtt.
Því var samið um lágmarkslaun
sem drekktu að langmestu leyti
fyrri starfsaldurshækkunum og
flokkum, en ákveðið að gera þess
í stað fastlaunasamninga á af-
mörkuðum sviðum vinnumarkaðar-
ins þar sem unnt væri að taka tillit
til aðstæðna á hveiju sviði, umfram
það sem mögulegt var í gamla
taxtakerfinu.
Enginn ágreiningur var í samn-
ingaviðræðunum um að hækkun á
töxtum um eina tiltekna prósentu
myndi aðeins gera viðleitnina til
þess að ná til lægst launaða fólks-
ins að engu. Það yrði að byija frá
grunni.
Á almennum vinnumarkaði hefur
á síðustu vikum verið unnið að gerð
fastlaunasamninga. Allur þrýsting-
ur í þessari samningsgerð hefur
verið á að byggt yrði á nýjan leik
upp kerfí aldurshækkana í stað
þess kerfís sem var við lýði fyrir
desembersamningana. Innan verka-