Morgunblaðið - 30.05.1987, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1987
11
lýðshreyfmgarinnar er afnám
aldurshækkana það sem harðast
hefur verið gagnrýnt af efnisatrið-
um síðustu samninga. í þeim
fastalaunasamningum sem þegar
hafa verið gerðir fara hæstu laun
í 36 þúsund krónur m.v. maí. Nýtt
lágmark myndi að engu gera launa-
liði þessara samninga og þá yrði
auðvitað að byrja upp á nýtt.
Þegar litið er til baka er ljóst að
mörg dæmi má finna um fólk sem
hefur hækkað frá 21 til 24 þúsund
króna mánaðarlaunum í fyrrahaust
upp í 32 til 36 þúsund krónur nú.
Þetta eru í mörgum tilfellum allt
að 50% hækkun á launum á stuttum
tíma meðan verðlagshækkunin hef-
ur verið innan við 10%. Aldrei fyrr
hafa lægstu laun hækkað svo mikið
umfram önnur laun. í þessu efni
hefur mikill árangur náðst eins og
fram kemur í hjálögðu yfírliti sem
sótt er í greinargerð launanefndar
ASÍ/VSÍ nú í maí. Hins vegar er
líka ljóst, að allmikill þrýstingur er
á að bijóta niður þessa breytingu
á launahlutföllum og endurvekja
þau eldri.
Að óbreyttu verður það eitt
helsta viðfangsefni aðila vinnu-
markaðarins á næstu mánuðum að
veija nýafstaðna breytingu á launa-
hlutföllum hinum lægst launuðu í
hag. Inngrip löggjafans í það starf
gæti beinlínis stefnt í hættu því sem
áunnist hefur.
Enn má nefna, að lágmarkslaun
sem nálguðust 35—40 þúsund
myndu skara laun ófaglærðra og
faglærðra annars vegar og laun
skammmskólagenginna og lang-
skólagenginna hins vegar. Ekki
þarf að velta lengi vöngum yfir því
hvort vinnumarkaðurinn myndi þola
slíka stökkbreytingu ofan á það sem
gert var í desember.
4. Lágmarkslaun
og verðtrygging
í verðbólguþjóðfélagi hefði litla
þýðingu að setja lög um. lágmarks-
laun án þess að einhver viðmiðun
fylgdi um hvemig lágmarkið ætti
að breytast. Eiga lágmarkslaun að
fylgja almennri þróun greiddra
launa? Eiga þau að fylgja kauptöxt-
um? Það myndi þýða, að Iaunaskrið
gerði viðmiðun laganna úrelta á til-
tölulega skömmum tíma. Eða á
lágmarkið að fylgja vísitölu fram-
færslukostnaðar? Slíkt jafngilti í
reynd ákvörðun um almenna verð-
tryggingu launa.
5. Lágmarkslaun og
aðrar viðmiðanir
Samkvæmt gildandi lögum og
reglum hreyfast ýmsar greiðslur í
samræmi við lága viðmiðunartaxta.
Hér má nefna elli- og örorkulífeyri,
atvinnuleysisbætur o.fl. Ljóst er að
slíkar bætur hlytu að hækka sam-
hliða, en eðlilegt, að kveða á um
slíkt sérstaklega ef til lagasetningar
kemur.
6. Ólík launakerfi
Hið opinbera, ríkið, er stærsti
atvinnurekandinn í landinu. í krafti
þessarar stöðu getur ríkið haft
veruleg áhrif á stefnumörkun í
launamálum á hvetjum tíma. Að
því er að hyggja í þessu sambandi,
að þar sem launakerfi hins opinbera
og launakerfi á almennum vinnu-
markaði eru um flest ólík er mjög
vandasamt að yfirfæra með beinum
hætti róttækar breytingar á öðru
sviðinu yfir á hitt. Þetta sannaðist
m.a. í kjölfar jólaföstusamning-
anna. A sama hátt gæti yfirfærsla
lágmarkslauna, sem um væri samið
í opinbera geiranum, að vera æði
torveld — eða með öðrum hætti en
til væri ætlast. Bónus- og kaup-
aukagreiðslur af margvíslegu tagi
eru mjög ríkjandi á almennum
markaði, en ekki til í launakerfi
ríkisins. Þessir og aðrir launaaukar
reiknast gjaman ofan á lágan
grunn. Ljóst er að almenni markað-
urinn hefði mjög sterka tilhneigingu
til þess að halda slíkum auka-
greiðslum til streitu þannig að þær
reiknuðust áfram og í sama hlut-
falli, ofan á þann nýja grunn sem
fælist í lágmarkslaununum. Á þessu
vandamáli er ekki unnt að taka
nema með almennri uppstokkun
hliðarkerfanna og þetta var einmitt
ástæða þess, að bónus- og akkorðs-
kerfin voru endurskoðuð í desember
samhliða mikilli hækkun lægstu
launa.
7. Frjáls samningsréttur
Breytingar á launahlutföllum
hinum lægst launuðu í hag kalla
ekki aðeins á vel heppnaða tækni-
lega útfærslu, heldur ekki síður á
almenna samstöðu verkalýðshreyf-
ingar og vinnuveitenda bæði í
kjarasamningum og í ákvörðun um
raunverulega greidd laun. Reynslan
kennir, að ekki þurfa margir hópar
með sterka samningsstöðu að sker-
ast úr leik til þess að allt sé unnið
fyrir gíg.
Fijáls samningsréttur er einn af
homsteinum vestrænna lýðræðis-
þjóðfélaga. Nái löggjafmn ekki
samstöðu með þeim sem fara með
samningsrétt um breytingar á
launahlutföllum er auðvitað hugs-
anlegt að hann beiti til þess því
valdi sem hann hefur, þótt slíkt
kynni að skoðast sem íhlutun í
grundvallarrétt. Ákaflega erfitt er
að sjá fyrir um hvar slík lögbinding
gæti endað og nánast útilokað að
sjá um að slíkum lögum yrði fylgt
eftir.
Nokkur dæmi má taka í þessu
sambandi. Hvað ef faglærðir sætta
sig ekki við launahlutföll milli sín
og ófaglærðra? Hvað ef skólageng-
ið fólk vill fá „viðeigandi" umbun
fyrir sína skólagöngu. Hvað ef mis-
munandi starfshópar telja að störf
með mismunandi ábyrgð eigi ekki
að vera borguð jafnt? Hvað ef ein-
hver hópur vill semja um bónus,
premíu eða afkastahvetjandi launa-
kerfi, þrátt fyrir að slíkt væri
bannað með lögum? Fram hjá þessu
er engan veginn einfalt að komast.
Lögbinding lágmarkslauna getur
kallað á víðtæka takmörkun á
samningsrétti ef hún er ekki niður-
staða af samningum, en útilokað
verður að telja að slík takmörkun
geti í raun og veru verið á dagskrá.
8. Niðurstöður
Hér að framan hefur verið velt
upp ýmsum spumingum varðandi
hugsanlega setningu laga um lág-
markslaun. Fyrsta spumingin hefði
kannski átt að vera sú hvenær íhlut-
un löggjafans í beinar laukaákvarð-
anir á almennum vinnumarkaði
hafi orðið til góðs? Kannski getur
einhver bent á slíkt tilvik, en á
móti má vafalaust telja önnur, sem
jafnvel hafa markað pólitískt skapa-
dægur og verið undirrót upplausnar
á vinnumarkaði.
Hvað sem því líður er ljóst, að
aðstæður em aðrar hér á landi en
í ýmsum þeim löndum þar sem lög
um lágmarkslaun hafa verið sett. I
öðru lagi em tæknilegir annmarkar
ákaflega miklir. í þriðja lagi er
meira en líklegt, að slík lög væm
í reynd ávísun á almenna kauplags-
veltu með tilheyrandi verðlags-
sveiflu. En hvað er þá til ráða?
Þeir sem vel em lesnir í sögu
kunna að greina frá því, að mann-
fræðingar hafi komist að raun um,
að þúsund ámm fyrir Krists burð
hafi launahlutföll í Mesópótamíu
verið svipuð og á íslandi nútímans.
Sögunni fylgir líka, að bónuskerfí
hafi í þessu foma menningarsam-
félagi verið svipuð þeim í Súðavík
og á Suðureyri og annars staðar
þar sem fiskvinnsla er stunduð hér-
lendis þijú þúsund ámm síðar.
Af þessu má auðvitað draga mis-
munandi ályktanir. Ekki fer á milli
mála, að breytingar á launastigum
og launakerfum lúta ákveðnum
tregðulögmálum. Hraði breytinga
verður ekki ákveðinn með tilskipun-
um að ofan, þær verða að gerast
með víðtæku samkomulagi, ekki
aðeins í samningum milli atvinnu-
rekenda og launafólks, heldur líka
og ekki síður í innbyrðis sátt meðal
þessara hópa. Á þetta var látið
reyna í síðustu samningum og með
betri árangri en nokkm sinni fyrr.
Þetta er mikilvægt að menn hafi í
huga þegar gagnrýnt er, stundum
frekar af tilfínningu en þekkingu,
hversu lítið hafi áunnist.
Kaupmáttur lægstu daglauna og tímakaups með bónus
1986-1987
F-vísit. L.gstu dagvl. kr. Hreint timak. m/bónus érsfj. kr. KAUPMÁTTUR 1986:100 Lagstu Hr. tlmak. daglaun m/bónus
1986 JAN 166.02 16930 93.5
FEB 167.76 17021 174.78 93.6 92.1
HAR 165.19 17776 98.3
APR 166.20 17776 97.1
HAÍ 169.06 17776 191.86 96.0 99.2
jOn 170.16 18320 98.4
JÚL 170.89 18320 97.6 -
Acú 172.82 18320 196.52 96.5 99.0
SEP 174.87 18942 99.0
0KT 175.62 18942 97.8
NÓV 179.22 18942 223.82 96.4 109.0
DES 180.85 26500 133.5
31/12 182.88
1986 HEÐALTAL 172.17 18797 196.75 100.0 100.0
1987 JAN 185.05 26500 131.2
FEB 187.77 26500 237.00 129.3 109.6
HAR 190.55 27000 129.8
APR 193.20 27000 128.0
HAÍ 195.56 27000 245.00 126.5 108.9
JÚN * 198 27866 128.9
JÚL * 201 27866 127.2
ÁGÚ • 203 27866 250.00 126.0 107.6
SEP « 204 27866 125.0
0KT * 206 29104 129.5
NÓV • 208 29104 260.00 128.3 109.3
DES • 209 29104 127.4
31/12 * 210
1987 HEOALTAL 199.4 27731 248.00 127.4 108.8
* Spá
Hreint tfmakaup meft bónus = meftaltal
allra samkvœmt úrtaki Kjararannsóknar-
nefndar
8
th
co
Metsölubiad á hvetjum degi!
"SRT4^
G
verðurí
veitingahúsinu
NORÐURUÓSIN
(4.hæðíÞórscafé)
sunnudagskvöld 31. maí kl. 19.00-23.30
\
Guilino
BEIJINGa
xian°^ X? ■
\ \S
\ Shanghai
Gómsætir
kínverskir
réttir á aðeins
kr. 985,-
\0Guang/hou
'o'*' i/
kong
Ingólfur Guðbrandsson, forstjóri Utsýnar,
sýnir kvikmynd sem hann tók í nýlegri ferð
sinni til Kína, þar sem hann vann við að
undirbúa ferðina að venju.
Borðapantanir í síma 29099 í dag frá kl.
14-20 og sunnudag f rá kl. 14.00
HEIMSREISUKLÚBBURINN
ÚTSÝN