Morgunblaðið - 30.05.1987, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1987
Það er ár og dagur síðan ég efndi
síðast til vísnaleiks hér í Morgunblaðinu.
Auðvitað liggur beinasf við að hafa þau
formálsorð fyrir því, að ég tek nú þráð-
inn upp að nýju, að ýmsir hafí komið
að máli við mig og sagt þeir sakni vísna-
leiks. Málið er þó ekki þannig vaxið.
Enginn hefur orðað neitt í þá veru. Á
hinn bóginn langaði mig sjálfan til þess
að fást við vísur og vísnagerð og rifja
upp gamlan kunningsskap við Móra.
Móri hefur verið óútreiknanlegur í
sinni vísnagerð og sjálfum hefur mér
oftast þótt hann góður. Kannski svolítið
pöróttur á köflum, en ekki til skaða
samt. Hann hefur gaman af vísnagátum
og hefur m.a. gert þessa:
Líffæri sem lítið er,
líka sjálft sig nemur.
Andstæðu sína í sér ber
eða hálfu skemur.
Það væri auðvitað skemmtilegt ef les-
endur sendu vísnaleik gátur og gætu
um höfund og ráðninguna vitaskuld.
Ég var að blaða í Blöndu á dögunum
og rakst þar á tóbaksvísu síra Einars
Guðmundssonar, sem prestur var á Stað
á Reykjanesi 1619 til 1636 og lifði iengi
eftir það. Vísunni fylgir sú athugasemd,
að hún „kenni manni það, að kvenfólkið
reykti þá tóbak hér á landi ekki síður
en karlmennimir":
Sé ég þann leik í landi hér,
sem lýða veikir skilnings ker,
tóbaksreykjar svælu sér
af sagnar ijúka skemmu;
pella eik og geira grér
því gerir að feykja um vitin á sér,
óttast smeykir kverka kver
með krátans stækri remmu.
Neðanmáls segir um vísu þessa, að í
handriti sé næstneðsta vísuorðið þannig:
„óttast veikir kverka ker“, en þvf er
hafnað þar sem orðin „veikir" og „ker“
hafí áður komið fyrir. „Kver“ merkir hér
„hver“ en er þannig ritað til að tryggja
réttan framburð og „krátans" þýðir
„skrattans".
Það er jafnan vafasamt að leiðrétta
vísur eins og hér er gert, en hitt er
ýmist, hvemig „hv“ er borið fram til
þess að vísa sé rétt kveðin. Stundum
henda iíka skáldin gaman að skrýtnum
framburði, staðbundnum. ísleifur Gísla-
son hefur að yfírskrift: „Framburður
sumra Fljótamanna":
Gengid skídum eg hef á
alla leid úr Fljótum.
Nordanhrídin grimm og grá
graudadi vída um mig þá.
Limran
Mér sýndist ég sjá þetta á 'enni
að svæfi þar piltungi hjá ’enni
svartur á hár.
Og svo leið hálft ár
en síðan kom annar eins frá ’enni.
í síðustu þingveislu flutti forseti Al-
þingis, Þorvaldur Garðar Kristjánsson,
ræðu að venju og kom þar máli sínu,
að hann kvað mikið gjálffí hafa verið á
Þingvölum við Öxará til foma, og þess
vegna gjáiífí. Það varð tilefni þessarar
vísu:
Gjálífí við Öxará
einkum þó á kveldin
þegar sól á heiði há
í hjörtunum kveikti eldinn
olli því að þellu hjá
Þorgeir skreið undir feldinn.
Um svipað leyti hafði það gerst, að
Ólafur Ragnar Grímsson hafði farið vftt
um veröldina, m.a. til Sovétríkjanna, til
þess að láta friðarmál til sín taka og
auðvitað gaf Steingrímur Hermannsson
því homauga, nýbúinn að flytja sig að
vestan í framboð á Reylganesi, þar sem
hann þóttist vera nær alheimstraffíkinni:
Ólafur Ragnar til Rússía
reisu gjörði hann slíka.
Það stenst á endum og stóð ekki á
að Steingrímur fer þangað líka.
Steingrímur kannar heimsins hom,
hér uppi naumast sést ’ann.
Upp úr því hleypir Ólafur Þom
einhesta fyrir vestan.
Að venju fylgir limra vísnaleik og eins
og áður með mynd eftir Valtý Pétursson
listmálara.
Mér væri þökk í því, ef menn sendu
mér vísu til birtingar, — og ekki sakaði
þótt tilefni fylgdi.
Ekki verður meira kveðið að sinni.
Halldór Blöndal
Reiðhöllin í Víðidal vígð 10. júlí:
Fuglabjarg, loðdýra-
bú og fjós á Bú ’87
Morgunblaðið/Börkur
Magnús Sigsteinsson framkvæmdastjóri Bú '87 til hægri og Agnar
Guðnason ritari sýningarstjórnar i Reiðhöllinni i Víðidal, þar sem
landbúnaðarsýningin verður haldin í ágúst.
Ráðsfundur málfreyja
BYGGINGU Reiðhallarinnar í
Víðidal í Reykjavík miðar vel
áfram og verður húsið vigt þann
10. júli. Dagana 14.—23. ágúst
verður þar haldin landbúnaðar-
sýningin Bú ’87 og er nú unnið
að undirbúningi hennar á mörg-
um vígstöðvum. Á sýningunni
verður sett upp fuglabjarg, loð-
dýrabú og fullkomið fjós og
margt fleira óvenjulegt mun
bera þar fyrir augu.
Byggjngarframkvæmdir við
Reiðhöllina hófust í september
1986. Húsið er byggt úr límtré,
3.000 fermetrar að grunnflatar-
máli, og var það fullreist í mars
síðastliðnum. Þessa dagana er unn-
ið að klæðningu þaks þess og
frágangi útisvæðis. Landgræðsla
ríkisins tók að sér sem sýningar-
verkefni að græða upp barma
gamla gijótnámsins, sem Reiðhöllin
er staðsett í. Verður gerð grein
fyrir árangrinum á landbúnaðar-
sýningunni. I höllinni verður sérs-
takt flekagólf, keypt frá Þýska-
landi. Gólfíð má setja í höllina þegar
þar verða sýningar eða aðrar
skemmtanir, en verður fjarlægt
þegar hestamennska er stunduð í
húsinu.
Unnið er að undirbúningi land-
búnaðarsýningarinnar á mörgum
vístöðvum, að sögn Magnúsar Sig-
steinssonar framkvæmdastjóra
sýningarinnar og Agnars Guðna-
sonar ritara sýningarstjómar. Þeir
sýndu blaðmanni sýningarsvæðið.
Það nær yfir mest allt athafna-
svæði hestamanna í Víðidal. Aðal
sýningarsvæðið er í Reiðhöllinni
sjálfri. Þegar gestir koma inn í
anddyri hennar mæta þeir gamla
tímanum, með gömlum sýningar-
gripum, fara í gegn um sögu
landbúnaðarins og enda í framtíð-
inni í tölvudeild. í anddyrinu verður
einnig hlunnindadeild, „frá §öru til
íjalls", þar sem meðal annars verð-
ur sett upp fuglabjarg. í aðaisýn-
ingarsalnum verður fjöldi
sýningarbása. Stærstu deildimar
em frá afurðasölufyrirtækjum
bænda í mjölkuriðnaði og kjötiðn-
aði. Á hveijum degi verða skemmti-
atriði.
Fyrir utan Reiðhöllina verður
fískeldissýning, með seiðum og eld-
islaxi í kemm. Búfjársýning verður
í hesthúsum og einnig verða skepn-
umar sýndar utan dyra. Lögð er
áhersla á Qölbreytni. Sett verður
upp §ós í einu hesthúsanna og
sýndar mjaltir með fullkomnu rör-
mjaltakerfí. Sérstök áhersla verður
lögð á loðdýr og er m.a. unnið að
því að byggja loðdýraskála á svæð-
inu.
Bú ’87 er haldin í tilefni af 150
ára afmæli búnaðarsamtaka í
landinu. Afmælisins verður minnst
á ýmsan hátt á árinu, meðal annars
í tengslum við sýninguna. Sérstakur
hátíðarfundur búnaðarþings verður
haldinn á öðmm degi sýningarinn-
ar, efnt er til hugmyndasamkeppni
um nýjar atvinnugreinar í sveitum
og fleira verður gert til hátíðar-
brigða.
RÁÐSFUNDUR annars ráðs mál-
freyja verður haldinn í Hlégarði,
Mosfellssveit, í dag, laugardag-
inn 30. maí.
Skráning fer fram frá kl. 12.00,
en fundurinn verður settur kl.
13.00. Á fundinum flytur Ingveldur
Ingólfsdóttir, forseti landssamtak-
anna, fræðslu um dagskrárgerð,
einnig verður embættismannaþjálf-
un. Fundarhlé verður gert um kl.
17.00. Kvöldverður verður fram
borinn kl. 19.00 og innsetning nýrr-
ar stjómar fer fram þá.
(Fréttatilkynning.)