Morgunblaðið - 30.05.1987, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1987
Umsjónarmaður Gísli Jónsson
Nú er tekið til, þar sem frá
var horfjð, að greina frá mál-
stefnu ríkisútvarpsins, sjá
síðasta þátt:
„6) Ríkisútvarpinu ber stöð-
ugt að gefa starfsmönnum
sínum kost á að auðga íslensku-
kunnáttu sína og bæta málfar
sitt og framsögn, bæði á nám-
skeiðum og með einstaklings-
fræðslu. Starfsmönnum er skylt
að nýta sér fræðslu ef málfars-
ráðunautur telur það nauðsyn-
legt. Málfarsráðunautur hefur
umsjá með þessari starfsemi
stofunarinnar.
7) Málfarsráðunautur eða
annar sétfróður maður á að vera
starfsmönnum á fréttastofum,
auglýsingastofum og öðrum
slíkum vinnustöðum Ríkisút-
varpsins til halds og trausts,
meðal annars með því að lesa
yfir handrit fýrir útsendingu eft-
ir því sem unnt er.
8) Forðast skal útlent mál í
efni sem samið er til flutnings
í Ríkisútvarpinu, en þegar ekki
verður hjá því komist, svo sem
í fréttum, viðtölum við útlend-
inga og svo framvegis, ber
jafnan að flytja eða sýna
íslenska þýðingu samtímis nema
bein ástæða sé til annars.
9) Sjónvarpsefni sem ætlað
er bömum og unglingum sér-
staklega, skal flutt á íslensku
eftir því sem kostur er.
10) Sémöfn úr erlendum mál-
um ber að fara með í samræmi
við góða íslenska málhefð. Ríki,
lönd, borgir, hémð, höf, fljót,
fjöll, og annað slíkt ber að nefna
hefðbundnum íslenskum heitum,
ef þau eru til, svo sem Hjaltland
(ekki Shetland), Kaupmanna-
höfn eða Höfn (ekki Köbenhavn
eða Köben), Björgvin (ekki
Bergen), Saxelfur (ekki Elbe eða
Elba). Sé þess ekki kostur, ber
að nota eftir því sem unnt er
þau heiti sem íbúar viðkomandi
land tíðka sjálfir, svo sem Nuuk
(ekki Godtháb), Múnchen (ekki
Munich), Nice (ekki Nissa),
Westfalen (ekki Westphalia).
11) Heiti á útlendum mönnum
skal fara með að hætti viðkom-
andi þjóðar eftir því sem unnt
er, nema íslensk hefð sé fyrir
öðm, eins og er um mörg heiti
erlendra þjóðhöfðingja sem erfa
ríki, og heiti páfa. Heiti stofn-
ana, hljómsveita, listaverka og
þess háttar er rétt að íslenska
þegar fært þykir, og gæta þá
samræmis eftir því sem unnt er.
12) Skammstafanir sem eng-
um breytingum taka, fara illa í
mæltu máli í stað nafna á sam-
tökum, fyrirtækjum og stofnun-
um. Þær skal forðast. Rétt er
að nota óstytt heiti í upphafi
frásagnar en síðan stytt heiti
sem lýtur lögmálum tungunnar
fremur en skammstöfun, svo
sem Sambandið fyrir SÍS, Al-
þýðusambandið fyrir ASI og
Bandalagið fyrir BSRB og svo
framvegis.
13) Utvarpsráð vekur athygli
á einhliða áhrifum enskrar
tungu á íslenskt mál um þessar
mundir og telur að bregðast
verði við með markvissum hætti,
meðal annars með starfsemi
Ríkisútvarpsins.
14) í Ríkisútvarpinu skulu að
staðaldri vera fræðsluþættir um
íslenskt mál og notkun þess.“
★
Umsjónarmanni þykir rétt að
lesendur geti borið þessa stefnu
saman við framkvæmdina. Hon-
um þykir stefnan góð, en mun
eftir sem áður gagnrýna það
sem honum þykir miður fara í
framkvæmdinni. Hann er sam-
mála íslenskri málnefnd, þar
sem samþykkt útvarpsráðs er
fagnað, og hann er einnig sam-
mála nefndinni, þegar hún vekur
athygli á því „að erlendum
tungumálum hefur .. .verið
gert of hátt undir höfði í auglýs-
ingum, fréttum og íþróttaþátt-
um sjónvarps". (Málfregnir 1,1,
bls. 11.) Sérstaklega vill umsjón-
armaður enn kvarta undan
sumum auglýsingum, ekki síst
þegar talað er til bama. Má ég
enn minna á auglýsinguna um
„Meistara alheimsins" (Masters
of the Universe). Þar hefur
mönnum haldist uppi að ganga
389. þáttur
þvert á yfirlýsta stefnu útvarps-
ráðs. Ekki er nóg, til dæmis, að
heiti eins og Heman sé ekki
þýtt, heldur er þetta lesið rangt
(ekki heman, heldur hímen upp
á ensku). Vandalítið er að láta
veru þessa heita Karlmann eða
Karlmenni. Þarna er ráðist á
garðinn, þar sem hann er lægst-
ur, bömin eru næmust fyrir
málspillingunni, og enn skal
minnst á spakmæli Stephans G.
Stephanssonar:
Ið greiðasta skeið tii að skrílmenna þjóð
er skemmdir á tungvnni að vinna.
Þetta er úr kvæðabálkinum
Kolbeinslagi, og þessum ljóðlín-
um fylgja eftirfarandi línur í bók
Sigurðar Nordals um Stephan
(bls. 61):
„Þetta er uppistaðan í Kol-
beinslagi. Af því að djöfullinn
lítur á alþýðuskáldin sem varð-
menn íslenzkunnar, þykist hann
hafa sál þjóðarinnar í hendi sér,
ef hann geti ráðið niðurlögum
Kolbeins."
Ekki er það sjaldgæft í skól-
um, að nemendur séu hvattir til
að vera stuttorðir og gagnorðir
í úrlausnum, svona í stíl Ara
fróða. Það bar til ekki fyrir löngu
í skóla, að nemendur fengu að
velja um hvorki meira né minna
en 6 ritgerðarefni: 1. Homstein-
ar samfélagsins. 2. Verkfalls-
rétturinn og meðferð hans. 3. I
fjarlægð. 4. Koma syndir feðr-
anna niður á bömunum? 5.
Hamingjan. 6. Sjaldan veldur
einn þá tveir deila.
Skömmu síðar komst á gang
þessi ritsmíð: „Þegar tveir deila
í fjarlægð, verður að fara svo
með verkfallsréttinn, að ham-
ingjan verið einn af homsteinum
samfélagsins, en syndir feðr-
anna komi ekki niður á bömun-
um.“
Og svo er það heilsíðufyrir-
sögnin fræga: LÁTNIR ÞVO
STRÆTISVAGNA Á NÓTT-
UNNI.
Fallega spíraðar útsæðiskartöflur
Á kartöflutíð
Það er allra þjóðlegasti siður/
þetta að pota kartöflunum niður/
úti í garði undir morgunsól . ..
Þetta hafa Lúdó og Stefán láti
klingja í eyrum okkar um langt
árabil, hressir í bragði og hafa mik-
ið til síns máls. En þó er það nú
svo að þegar kartaflan er sprottin,
upp hún skal og beint ofan í pott-
inn, þá hefur reynslan orðið sú að
það sem ofan í pottinn fer er æði
misjafnt að vöxtum og stundum
sorglega smátt eftir allt puðið. Hún
Margrét, sem hringdi á skrifstofu
GÍ á dögunum og leitaði ráða gegn
ví að fá einlægt „mannhæðarhá
grös og undir þeim aragrúa af kart-
öflum sem væru litlu stærri en
krækiber" er áreiðanlega ekki ein
um svipaða reynslu. Af þessu tilefni
báðum við Einar Inga Siggeirsson,
de. rer. hort., margfróðan um hvað-
eina sem lýtur að kartöflurækt, að
skrifa eftirfarandi pistil:
Áður en kartöflumar eru settar
niður þarf að undirbúa jarðveginn
vel, m.a. að huga að sýrustigi hans,
en fyrir kartöflur er ákjósanlegasta
sýrustig pH 5—6 (ath. sýrustigs-
mælar hafa oft verið fáanlegir hjá
Sölufélagi garðyrkumanna og e.t.v.
í fleiri verslunum). Kartöflur þurfa
djúpan sandblandinn moldaijarðveg
eða vel fúinn mýraijarðveg. Áburð-
arþörf í heimilisgarða er 12—15 kg
af alhliða tilbúnum garðáburði á
100 fermetra, eða þá 5—6 kg af
brennisteinssúru kalí. Hafi fólk tök
á að ná í mykju er áburðarþörfin
800—1000 kg á 100 fermetra, en
í flestum tilfellum er þá rétt að
dreifa líka 1—2 kg af kalksaltpétri
milli kartöflugrasanna þegar þau
NIPPARTS
Pað er sama hverrar
þjóðar bíllinn er.
Við eigum varahlutina.
EIGUM A LAGER:
KÚPLINGAR, KVEIKJUHLUTI/BREMSUHLUTI,
STARTARA, ALTERNATORA, SÍUR,AÐALLJÓS,
BENSÍNDÆLUR, ÞURRKUBLÖÐ ofl.
KREDITKORTA ÞJÓNUSTA
FREMSTIR í VARAHLUTUM
AMERISKAN BIL.
BíLVANGUR Sf=
HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300
eru komin vel upp.
Oft kemur fyrir að kartöflugrös
verða mjog há, e.t.v. meira en metri
á hæð. Stönglarnir þá grannir og
blöðin fremur lítil. Þegar líður á
sumarið vilja þessi háu grös leggj-
ast niður, einkum í roki og rigningu
og rétta sig þá ekki við aftur. Mynd-
ast þá mikil grasaflækja, raki er
mikill í stönglum og blöðum sem
getur leitt til þess að kartöflumygla
geri vart við sig, sérstaklega ef loft-
hitinn er hár. Undir háum grösum
er yfirleitt mikið smælki og í sumum
tilfellum fáar kartöflur en smáar.
Þessi óeðlilegri vöxtur stafar yfir-
leitt af því að í jarðveginum er of
mikið af köfnunarefni (saltpétri),
sem eykur blaðvöxt. Þeir garðrækt-
endur sem hafa slíkan garð ættu
aðeins að nota þrífosfat eða súper-
fosfat og brennisteinssúrt kalí í
garðinn, en sleppa köfnunarefnis-
áburði alveg í 2—3 ár og einnig
búfjáráburði. Hæfilegur skammtur
af þrífosfati er 2—4 kg og 6—9 kg
af brennisteinssúru kalí á 100 fer-
metra. Ef um litia heimilisgarða er
að ræða er ráðlegast að hætta al-
veg kartöflurækt í 2—3 ár og rækta
þá í staðinn blaðgrænmeti sem þarf
mikinn köfununarefnisáburð. Má
þar til nefna blaðsalat, spínat,
grænkál, strandblöðku (silfur-
blöðku eða spínatblöðku) og stein-
selju. Framangreindar tegundir
draga til sín köfnunarefnið úr jarð-
veginum á 2—3 árum og eftir þann
tíma ætti köfnunarefnisjafnvægið
að vera komið f lag svo hægt verði
að rækta þar kartöflur aftur með
góðum árangri.
Munið garðyrkjuþáttinn í sjón-
varpinu í kvöld, 30. maí, kl. 18.
VZterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!