Morgunblaðið - 30.05.1987, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1987
Horft yfir hluta Árbæjarsafns.
Mbl./Emilla
Skeggrætt við fagmenn um húsamálun.
ÍÍ|||f|
ÁRBÆJARSAFN VERÐISJÁLF-
SAGÐUR ÁFANGASTAÐUR í ÚTI-
VISTAR LÍFIFJÖLSKYLDUNNAR
segir Ragnheiöur Þórarinsdóttir borgarminjavörður
Árbæjarsafn, minjasafn
Reykjavíkur, á 30 ára afmæli á
þessu ári og því ef til vill sérstök
ástæða til að vekja athygli á þeirri
starfsemi sem þar fer fram. Það
var stofnað sem útisafn til að gefa
almenningi hugmynd um bygginga-
list og lifnaðarhætti liðins tíma og
síðar sameinað Minjasfni
Reykjavíkur. Höfuðmarkmið Ár-
bæjarsafns er að kanna og kynna
íslenska menningarsögu, og þá
einkum sögu Reykjavíkur.
Safnið og safnsvæðið allt hefur
þegar skipað sér fastan sess í vit-
und borgarbúa og landsmanna enda
fer gestum þar stöðugt fjölgandi,
innlendum sem erlendum. Skóla-
börn fjölmenna einnig í safnið í
fylgd kennara sinna og er þannig
veitt innsýn í menningararfleifð
okkar. En eins og fram kemur í
ársskýrslu Árbæjarsafns fyrir árið
1986 sem Ragnheiður Þórarins-
dóttir, borgarminjavörður, lagði
nýlega fram voru sumargestir á
tímabilinu 1. júní til ágústloka og
um helgar í september tæp 11 þús-
und og er það rúmlega 17% aukning
frá árinu áður.
Eins og gefur að skilja setti 200
ára afmæli Reykjavíkurborgar sinn
svip á starfsemina á árinu 1986.
Lögð var áhersla á að sýna almenn-
ingi úrval safngripa sem eru í eigu
safnsins en hafa ekki áður verið til
sýnis. Sett var upp í því tilefni sýn-
ing í Prófessorsbústaðnum og mun
hún standa áfram þetta ár, en auk
þess verður haldin sýning á líkönum
af byggð í Reykjavík á ýmsum tíma
og verður henni komið fyrir í sama
húsi uppi á háa-loftinu. Um sumar-
starfið að öðru leyti síðasta sumar
má geta þess að í Eimreiðarskemm-
unni var komið upp sýningu um
hafnargerð í Reykjavík og sömu-
leiðis gatnagerð. Auk hinna hefð-
bundnu ferðamannahópa sem
sækja safnið heim var töluvert um
það á síðasta sumri að aðrir hópar
gerðu sér þangað ferð. Má þar til
nefna að hestamenn komu fjöl-
mennir austan úr Rangárvallasýslu
og þáðu kaffi og lummur að göml-
um sið og stigu dans á pallinum
fyrir framan Dillonshús fram á
kvöld. Heyrnleysingjafélagið hélt
grill-hátíð á svæðinu og þar var
hldið þing norrænna þjóðfræðinga
dagana 11.-16. ágúst svo nokkuð
sé nefnt.
Auk borgarminjavarðar, sem
einnig er forstöðumaður safnsins,
starfa í safninu tveir safnverðir,
forvörður í hálfu starfi, skrifstofu-
maður, ráðsmaður og þrír iðnaðar-
menn. Á sumrin bætist við fleira
fólk, sex leiðsögumenn og starfs-
fólk í Dillonshús. Sérstakur starfs-
maður vann við könnun gamalla
húsa í Reykjavík eins og hafði einn-
ig verið 1985. Þetta er afmarkað
verkefni utan þess hefðbundna sem
löngum hefur farið fram á vegum
Árbæjarsafns á könnun eldri húsa
í Reykjavík. Sömuleiðis fékkst §ár-
veiting fyrir starfsmann í rúma 6
mánuði til að ljúka vinnu við útgáfu
á svokölluðu „Byhistorisk Atlas"
sem koma mun út á árinu. Þar er
um að ræða samnorrænt verkefni
sem lengi hefur verið í vinnslu. Þar
er safnað saman frumheimildum
Úr Árbæjarsafni: f.v.: Prófessorsbústaður, Efsti-bær, í baksýn sér á Suðurgötu 7, Laugaveg 62 og
Garðastræti 9. Lengst til hægri er Líkn sem lengst af stóð við Kirkjustræti.
Ragnheiður Þórarinsdóttir, borgarminjavörður.
um sögu Reykjavíkur og þær settar
þannig upp að vel sést hvemig
bærinn hefur byggst upp á árunum
frá 1870-1902. Þegar verkið er
fullunnið verður þar um að ræða
góða heimilda- og vinnubók.
Á árinu var einnig lokið við frum-
skráningu gamalla húsa í Skugga-
hverfí og á Skúlagötusvæði og því
verki flýtt vegna hins nýja deili-
skipulags á svæðinu. Á árunum
1985 og 1986 var húsakönnun lok-
ið á 11 staðgreinireitum innan
Hringbrautar, en geysimikil vinna
liggur að baki slíkrar könnunar.
Þar kemur til saga húsanna, bygg-
ingarsögulegt gildi, rekja þarf
breytingar sem á húsunum hafa
orðið, eigendaskipti og gera úttekt
á ástandi þeirra nú.
Einnig var lokið á árinu húsa-
könnun í Kvosinni i samvinnu við
Jorfusamtökin sem munu gefa út
byggingarsögu Kvosarinnar á þessu
ári.
Þá má geta þess að geymsluhús-
næði hefur verið stórbætt í Árbæj-
arsafni í kjallara Prófessorsbústað-
arins þar sem tekið er á móti
munum til skráningar.
Við innganginn að safnsvæðinu
stendur húsið af Laugavegi 62 þar
sem alla tíð var verslun á jarðhæð.
Þar hefur nú verið lagfærð verslun-
arinnrétting með gamla sniðinu í
miðasölunni. Kirkjan í Árbæjarsafni
var lagfærð og endurhlaðin og gert
við fúa í bitum. Þá fóru einnig fram
margskonar lagfæringar á öðrum
húsum á svæðinu. Öryggisbúnaði
hefur verið komið upp á velflestum
húsunum, bruna- og þjófavamar-
kerfí og loks voru ýmsar lagfæring-
ar gerðar á efra hluta safnsvæðisins
!