Morgunblaðið - 30.05.1987, Page 38
mi IAM .08 flUOAaaAOUAJ .fflGAJaMUOHOM
MORGUNBLÁÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1987
Leikfélag
Reykjavíkur:
Síðustu
sýningar
leikársins
SENN líður að lokum leikárs
Leikfélags Reykjavíkur. Aðeins
ein sýning er eftir á „Óánægju-
kórnum," gamanleik eftir breska
leikskáldið Alan Ayckbourn og
verður sú sýning föstudaginn 5.
júní næstkomandi klukkan 20.30.
Sem kunnugt er segir verkið frá
því er áhugaleikhópur æfír Betl-
araóperuna eftir John Gay og
frumsýnir eftir mjög stormasamt
æfíngatímabil.
Á „Degi vonar“ eftir Birgi Sig-
urðsson eru aðeins þtjár sýningar
eftir á þessu leikári, en hugsanlega
verður verkið þó tekið til sýninga
að nýju í haust. „Dagur vonar“ fjall-
ar um reykvíska fjölskyldu á jsötta
áratugi þessarar aldar, ekkjuna
Láru og böm hennar þrjú uppkom-
in, sambýlismann og grannkonu.
Næsta sýning á „Degi vonar“ er
sunnudaginn 31. maí klukkan 20.Ou
í Iðnó.
Morgunblaðið/KGA
Heimilisfólk í
Seljahlíð gengnr
frá munum sem
verða á sýning-
unni.
Morgunblaðið/Matthías Jóhannsson
Lágheiðin opnuð
Siglufirði. ^ ■*-
VEGAGERÐIN hefur lokið við að ryðja Lágheiðina og var hún
opnuð umferð siðastliðinn laugardag. Vegurinn er þurr og góð-
ur og hefur líklega aldrei verið betri. Matthías
Framtíð Skreiðar-
samlagsins er óviss
Hugmynd um sölusamtök skreiðarframleiðenda hafnað
VIÐ eigum um 320 milljónir
króna útistandandi i Nígeríu og
þar af eru að minnsta kosti 20
milljónir tapaðar. Við eigum svo
í málaferlum vegna hluta ann-
arra krafna. Vegna útlitsins á
Nígeríumarkaðnum og gangi
mála að undanförnu, þar sem
sundrung skreiðarframleiðenda
hefur kostað þá stór fé, teljum
við heppilegast framleiðendur
komi sér saman um ein sölusam-
tök. Því hefur þegar verið
hafnað og við höfum leitað til
SÍF með yfirtöku á hluta við-
skipta okkar. Hvort það verður
eða ekki er óljóst og sömuleiðis
er framtíð Skreiðarsamlagsins,"
sagði Ólafur Björnsson í samtali
við Morgunblaðið.
Aðalfundur Skreiðarsamlagsiuns
var haldinn síðastliðinn þriðjudag.
Stjóm Samlagsins var endurkjörin
óbreytt, en framtíðin mikið rædd í
ljósi þróunar mála síðustu misseri.
„Þar sem fyrirsjáanlegt er að fram-
leiðsla á skreið verður ekki mikil í
nánustu framtíð, er ekki grundvöll-
ur til að reka Skreiðarsamlagið á
sama hátt og verið hefur, sem sér-
staka söluskrifstofu," sagði Ólafur
Bjömsson, formaður stjórnar Sam-
lagsins. „Því var samþykkt að leita
eftir samstarfí allra eða sem flestra
framleiðenda um sölu skreiðar.
Brygðist það, eins og menn áttu
von á og raunin varð, skyldi leitað
samstarfs við SÍF, þess efnis að
þeir tækju að sér ýmis sölusambönd
okkar. Þar má til dæmis nefna við-
skiptin við Ítalíu, því þar eru í
mörgun tilfellum sömu aðilarnir,
sem kaupa saltfísk og skreið. Með
því töldum við að nægilegt ætti að
vera að Skreiðarsamlagið hefði á
sínum snæmm einn mann til að
sinna fjármálum og öðmm málum,
sem taka töluverðan tíma, en verð-
ur ekki komið yfir á aðra. Fram-
haldsviðskipti við Nígeríu yrðu svo
að ráðast, en þau yrði tæplega
meira en sala á hertum hausum.
Miðað við það, að allir, sem eiga
telex geta boðið hausana til sölu í
Nígeríu, er ekki áhugavert að taka
þátt í þeim leik.
Á fundinum var einnig gerð grein
fyrir hverri einustu útistandandi
fjárkröfu okkar. Þær nema nú rúm-
um 8 milljónum dollara, 320 millj-
ónum króna. Þar em um 160
milljónir í naímm, sem kaupendur
greiddu strax á sínum tíma, en
hafa ekki fengizt yfírfærðar, þrátt
fyrir margvíslegar tilraunir okkar
og íslenzkra bankamanna. Hluti af
þessum kröfum stendur nú í mála-
ferlum og ljóst er talið að minnsta
kosti um 20 milljónir af því em
tapaðar," sagði Ólafur.
Ólafur sagði, að gangur sölumála
á síðasta ári hefði verið svo, að
þeir, sem lengst hefðu gengið í
undirboðum, hefðu náð þeim
ábyrgðum, sem gamlir og grónir
skreiðarkaupendur og viðskiptavin-
ir íslendinga, hefðu getað opnað.
Flestir þeirra hefðu átt viðskipti við
íslendinga í mörg ár og þekktu því
vel til hér og nýttu sér sundmngu
okkar til hins ítrasta. Þetta væri
því allt með versta móti, en ljós í
myrkrinu væri þó, að greiðslur
væm farnar að berast til landsins
vegna sölu á 32.000 pökkun, sem
fóm utan með Hvalvíkinni fyrir
nokkm.
Seljahlíð:
Hljómsveitin Mánar verður með tónleika í Inghóli í kvöld. Vegna
forfalla eru enn nokkrir miðar lausir.
Lokatónleikar Mána
HLJOMSVEITIN Mánar frá Sel-
fossi hefur undanfarna tvo
mánuði verið að rifja upp tónlist
frá árunum 1965-75 í veitinga-
húsinu Inghóli á Selfossi.
k' Nú er komið að lokatónleikum
hljómsveitarinnar og er allra síðasta
Mánakvöldið í Inghóli í kvöld, 30.
maí. Vegna forfalla em til lausir
miðar á þetta kvöld. Tónleikamir
em fyrir matargesti, en á eftir er
húsið opnað almenningi.
Sýning á handavinnu aldraðra
SYNING verður á handavinnu aldraðra í
Seljahlíð við Hjallasel í dag, 30. maí, og á morg-
un, 31. maí. Sýningin stendur frá kl. 13.30 til
kl. 17.00 báða dagana. Á sýningunni verða þó
nokkuð af mununum til sölu. Seljahlíð hefur
verið starfrækt í tæpt ár og verður eins árs nú
l.júní.
NÚ ER TÆKIFÆRIÐ ÚTSALA
að fá sér skáp fyrir gott verð. / SELKO SKÁPAR
Við seljum takmarkað magn skápa á
stórlækkuðu verði.
Allt að 40% afsláttur á sumum gerðum.
SELKO
SIGURÐUR
ELÍASSON HE
Auöbrekku 1-3 Kópavogi, s: 41380