Morgunblaðið - 30.05.1987, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 30.05.1987, Qupperneq 40
Tónleikar í Borgarbíói ÞAU Martin Berkofsky og Anna Málfríður Sigurðardóttir halda píanótónleika i Borgarbíói í dag, laugardag, kl. 17.00. Á efnisskránni verða verk eftir Schubert, sem Anna Málfríður og Martin leika fjórhent, en á síðari hluta tónleikanna flytur Martin són- ötu í f-moll eftir Johannes Brahms. Öllum ágóða af tónleikunum verður varið til að standa undir kostnaði við píanónámskeið, sem haldið er þessa dagana á vegum Tónlistar- skólans á Akureyri og Martin leiðbeinir á. Miðaverð á tónleikana verður 400 krónur. Námskeiðinu lýkur fostudaginn 5. júní með tón- leikum þátttakenda í Tónlistarskól- anum. 54 sjómenn sóttu slysavarnaskólann Slysavarnaskóli sjómanna hefur verið með námskeið á Akureyri í vikunni fyrir sjómenn hér norðanlands. Námskeiðið sóttu 54 þátttakendur frá Akureyri og úr næstu bæjum og þorpum. Kennsluskipið Sæbjörg hefur legið við bryggju á Akureyri síðan fyrir helgi, en þar fer kennslan fram að stærstum hluta. Félagar úr Slökkviliði Akureyrar voru að leiðbeina um notkun slökkviefna þegar blaðamann bar að garði. Ýmiss konar efni voru prófuð og áhrif þeirra á eldinn svo sem froða, halon, kolsýra, vatn og duft. Starfsfólk fræðsluskrifstofu Norðurlands eystra: Uppbyggingm haldi áfram Passíukórinn verður með vortónleika á Akureyri 1. júní. Vortónleikar Passíukórsins Vortónleikar Passíukórsins á Akureyri verða haldnir í Akur- eyrarkirkju mánudagskvöldið 1. júní og hefjast þeir kl. 20.30. Á efnisskránni eru þijú verk sem flutt verða með kór, einsöngvurum og hljóðfæraleikurum. Þau eru Messa í A-dúr eftir César Franck, Kantata eftir G.P. Telemann og „Oh sing unto the Lord" eftir G.F. Hand- el. Verkin eru öli fyrir þríraddaðan kór, sópran, alt og bariton. Hljóð- færaleikarar koma bæði af Norður- landi og úr Reykjavík. Meðal þeirra eru Oliver Kentish á selló, Úlrik GOLFKLÚBBUR Akureyrar vigði í fyrrakvöld nýtt húsnæði sitt á Jaðri, golfvelli þeirra Akur- eyringa. Húsnæðið, sem er við- bygging við eldri skála, hefur verið stækkað um helming, en í nýbyggingunni er fullkomin eld- húsaðstaða, Iftil húsvarðaribúð, golfverslun í norðurenda ásamt verkstæði og salur hefur verið stækkaður til muna. GA hefur haft á sínum snærum breskan atvinnugolfkennara í rúmt ár og hefur nú verið gerður atvinnu- samningur við hann til þriggja ára til viðbótar. Auk kennslustarfanna sér David Bamwell um golfverslun- ina á Jaðri og gerir við golfvörur. Ný stjóm, sem kosin var á aðal- fundi GÁ sl. haust, ákvað að ráðist skyldi í stækkun á skálanum. Bygg- ingarframkvæmdir hófust þann 4. apríl síðastliðinn með því að gamli bærinn á Jaðri var rifinn. Síðan hef- ur smíðalátunum ekki linnt svo færri félagar hafa komist að en viljað hafa og nú sjö vikum síðar er húsið full- búið, að sögn Gunnars Sólnes, formanns GA. Húsið er byggt úr steyptum einingum frá Möl og Sandi á Ákureyri, en að stórum hluta með vinnu golfaranna sjálfra. Gunnar sagði að kostnaður við bygginguna Ólason á orgel og Monika Aben- droth á hörpu, en hörpuleikur heyrist ekki oft hér á Akureyri. Einsöngvarar á tónleikunum verða þau Margrét Bóasdóttir sópr- an, Þuríður Baldursdóttir mezzo- sópran, Michael J. Clarke tenór og Halldór Vilhelmsson bassi. Þau hafa öll sungið með Passíukómum áður. Passíukórinn er nú á sínu fimmtánda starfsári. Hann hefur frá upphafí einbeitt sér að flutningi stærri kórverka og hefur yfírleitt haldið tvenna tónleika á ári hverju. Roar Kvam hefur stjómað Passíu- kórnum frá stofnun hans. gæti hafa numið 8 til 10 milljónum króna ef með er talin vinna sjálf- boðaliðanna. GA hefði einnig fengið styrk góðra manna auk þess sem bæjaryfírvöld hefðu styrkt framtak- ið. í GA eru um 500 meðlimir, þar af á annað hundrað konur og unglinga- hreyfíng sem telur um 200 félaga. Þeir njóta allir tilsagnar Barnwells án endurgjalds. Þá starfa hátt í fjör- utíu unglingar á vellinum í sumar við snyrtingu og viðhald og er það starf hluti af unglingavinnu Akur- eyrarbæjar. Golfvöllurinn á Jaðri er stærsti golfvöllur landsins, alls um 70 hekt- arar, og jafnframt nyrsti 18-holu golfvöllurinn. Klúbburinn hefur feng- ið loforð um allt að 20 hektara til viðbótar, en ekki verður ráðist í þær framkvæmdir á þessu ári, að sögn Bjama Ásmundssonar, formanns mótanefndar. „Jaðarvöllur hefur aldrei verið í jafn góðu ásigkomulagi og einmitt nú. Hann hefur oft verið blautur á vorin, en nú er hann skraufaþurr. Ýmislegt hefur verið gert til að hafa völlinn í góðu ásig- komulagi nú ekki síst vegna lands- mótsins, sem haldið verður á Akureyri dagana 26. júlí til 1. ágúst. Búist er við allt að 250 þátttakendum MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi fréttatilkynning frá starfsfólki fræðsluskrifstofu Norðurlandsumdæmis eystra: „Síðan menntamálaráðherra, Sverrir Hermannsson, vék Sturlu Kristjánssyni, þáverandi fræðslu- stjóra, fyrirvaralaust úr starfi þann 13. janúar sl. hefur starfsfólk fræðsluskrifstofu Norðurlands eystra (og fleiri aðilar) ítrekað lýst eftir gild- um rökum fyrir þeirri ákvörðun. Slík rök hefur ráðherra ekki tekist að færa fyrir ákvörðun sinni, en þess í stað haft í frammi dylgjur og per- sónulegan óhróður í garð Sturlu Kristjánssonar auk ýmissa ummæla í garð starfsfólks skrifstofunnar og vissra starfsstétta þar, sem telja má atvinnuróg af versta tagi, þegar sjálf- ur menntamálaráðherra landsins opinberar hleypidóma sína og fáfræði með þeim hætti, sem þjóðin sjálf hefur orðið vitni að í fjölmiðlum und- anfarna mánuði. Starf Sturlu Kristjánssonar á fræðsluskrifstofunni var ekki ein- angiað og úr tengslum við störf annarra þar. Því var hin gerræðislega ákvörðun ráðherrans um brottvikn- ingu Sturlu um leið áfellisdómur á starfsemi skrifstofunnar yfirleitt. á landsmótið." Þá verður Arctic Open, alþjóðlegt mót, haldið á Akureyri 25. og 26. júní. Leikið verður á Jónsmessunótt, frá kl. 21.00 um kvöldið þangað til sólin kemur upp næsta morgun. Meðal keppenda verður aðstoðarrit- stjóri Golf World í Bretlandi og mun hann skrifa greinar í blaðið um mó- tið og um Island í leiðinni. Bjarni sagði að haldin yrðu svokölluð stiga- mót á hveiju fimmtudagskvöldi, alls 17 sinnum. Leiknar verða níu holur með fullri forgjöf og sá sem flest stigin hefur í lok sumars fær utan- landsferð í verðlaun sem er golfferð Ráðuneytið hefur síðan lýst því yfir að sú hafí alls ekki verið ætlunin, ráðuneytið hafí ekkert út á störf starfsfólks að setja. Þar sem embætt- isfærsla er meira en starf eins manns, má síðan draga þá ályktun að eitt- hvað annað hafi ráðið ferðinni þegar ráðherra tók ákvörðun stna um að víkja Sturlu frá. Það var því full ástæða fyrir starfs- fólk að íhuga hvort vinnandi væri undir því ámæli, sem í ákvörðun ráð- herrans fólst sem og seinni ummæl- um hans. Starfsfólk skrifstofunnar er ráðið af fræðsluráði umdæmisins og fyrir tilmæli þess var ákveðið að halda störfum áfram eftir því sem skilyrði leyfðu. I kjölfar brottvikningar Sturlu Kristjánssonar upphófst mikil deila milli menntamálaráðherra/mennta- málaráðuneytis og fræðsluyfirvalda/ skólamanna á Norðurlandi eystra. Sú deila er óleyst. Sem yfirmanni menntamála í landinu ber ráðherra að leggja sig fram um að leysa slíkar deilur og ekki síst þegar þær valda jafn alvarlegum trúnaðarbresti milli tveggja afgerandi aðila í framkvæmd skólahalds og hér um ræðir. í yfír- standandi deilu hefur menntamála- ráðherra algerlega brugðist þessari til Skotlands næsta vor. Þá verður Mitzubishi-mót haldið á Jaðri dagana 4. og 5. júlí þar sem fyrstu verðlaun verða bifreið og er það mót öllum opið. Hermann Sigtryggsson, íþrótta- fulltrúi Akureyrarbæjar, sagði félagana hafa staðið sig frábærlega. Fyrir þá hlyti þetta að vera stórt átak, en fyrir bæinn yrði þetta mikil prýði. Hermann sagði golfáhugann mikinn á Akureyri enda dyldist það engum sem séð hefði áhugamennsk- una í verki við framkvæmdimar síðustu tvo mánuðina. skyldu sinni og þar með sýnt af sér vítavert ábyrgðarleysi. Við fullyrðum að engar tilraunir hafí verið gerðar til að leysa þessa deilu og þaðan af síður reyndar til þrautar. Með því að setja sinn mann í fræðslustjórastarfið nú, gegn yfirlýstum vilja heima- manna og landssamtaka kennara og skólastjóra virðist ráðherra hafa fyr- irgert möguleikum sínum til að ná fram friðsamlegri lausn þessarar deilu. Með setningu Ólafs Guðmundsson- ar, skólastjóra á Egilsstöðum og fréttaritara Morgunblaðsins þar eystra, hefur menntamálaráðherra enn á ný hundsað vilja heimamanna og sniðgengið tvo aðra umsælqendur, sem báðir hafa starfsreynslu og menntun umfram Ólaf Guðmundsson til fræðslustjórastarfsins. Við for- dæmum þessi vinnubrögð ráðherrans. Við skorum á Ólaf Guðmundsson að taka ekki við setningu í fræðslu- stjórastarfíð og gefa ráðherra þannig tækifæri til að finna friðsamlega lausn á yfírstandandi deilu. Við aðstæður sem þessar hlýtur starfsfólk fræðsluskrifstofunnar að skoða sína stöðu, stöðu sem einkenn- ist af því að markvisst virðist hafa verið unnið gegn uppbyggingu þjón- ustu við skóla umdæmisins af hálfu miðstýrðs embættisvalds og ráðherra menntamála að þess ráðum. Fjölmiðlar og ráðherra hafa nánast verið að ætlast til þess að starfsfólk segði upp. Engar slíkar yfírlýsingar hafa komið frá starfsfólki, en um þetta rætt innanhúss. Að íhuguðu máli höfum við ákveð- ið að leggja ekki árar í bát. Ef til vill mætti segja að við firrum ráð- herra pólitískri ábyrgð á vítaverðri embættisfærslu í þessu máli með því að halda störfum okkar áfram, en við erum starfsfólk fræðsluráðs, sem hefur ráðið okkur til starfa. Sam- kvæmt lögum um grunnskóla eru fræðsluráð gerð ábyrg fyrir stofn- setningu þjónustu við skóla umdæm- is. Við þá ábyrgð hefur fræðsluráð Norðurlands eystra alltaf staðið og í samræmi við það hefur formaður ráðsins ítrekað þau tilmæli til starfs- fólks að það haldi störfum sínum áfram á sömu braut og hingað til. Fræðsluráð með Sturlu Kristjánsson sem framkvæmdaaðila hefur háð margra ára baráttu til að ná núver- andi þjónustustigi við skólana. Það væri ábyrgðarlaust af okkur að láta þá baráttu verða að engu vegna ger- ræðislegrar ákvörðunar eins ráðherra sem senn er á förum úr embætti. Við teljum okkur einnig sýna Sturlu Kristjánssyni og starfi hans í þágu skóla umdæmisins mesta samstöðu með því að halda áfram á sömu braut og láta ekki deigan síga. Við hvetjum fræðsluráð til að nýta þekkingu og reynslu Sturlu Kristjáns- sonar í þágu áframhaldandi upp- byggingar og þróunar skólastarfs í umdæminu." Golf klúbbur Akureyrar: Byggði 240 fm húsnæði á Jaðri á sjö vikum Golfskálinn að Jaðri Morgunblaðið/Jóhannalngvarsdóttir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.