Morgunblaðið - 30.05.1987, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 30.05.1987, Blaðsíða 42
42 FÉLAGSLÍF Hótel Örk: Hlaðborð, sund og sauna „Brunch" að amerískum sið á Hótel Örk á sunnudögum milli kl. 12 og 15. Orðið „Brunch" saman- stendur af ensku orðunum break- fast og lunch sem þýða morgun- verður og hádegisverður. Hér er um að rœða hlaðborð með köldum og heitum réttum, s.s. stórsteikum, síld, eggjum.beikoni og ávöxtum. Matargestir fá frítt í sundlaug og sauna. Helmings afsláttur er fyrir börn undir 12 ára aldri. Fastar áætlunarferðir eru farnar frá Umferðamiðstöðinni til Hvera- gerðis. SÖFN Póst- og síma- minjasafnið: Opið á sunnudögum og þriðjudögum Póst- og símamálastofnunin hef- ur opnað safn, Póst- og símaminja- safnið, í gömlu símstöðinni að Austurgötu 11 í Hafnarfirði. Þar getur að líta safn fjölbreytilegra muna og tækja er tengjast póst- og símaþjónustu á íslandi. Fyrst um sinn verður safnið opið á sunnudög- um og þriðjudögum kl. 15-18. Aðgangurerókeypis. Þeirsem vilja skoða safnið utan opnunartíma hafi samband við safnvörð f síma 54321. Þjóðminjasafn íslands: Opið fjóra daga vikunnar Þjóðminjasafn Islands er opið laugardaga, sunnudaga, þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 13.00 til 16.00. Sjóminjasafnið: Lokað vegna breytinga Sjóminjasafn (slands verður lok- að vegna breytinga þangað til í byrjun júní. Þá verður opnað aftur með sýn- ingu um íslenska árabátinn og byggirsú sýning á bókum Lúðvíks Kristjánssonar „Islenskum sjávar- háttum". Til sýnis verða kort og myndir úr bókinni auk veiðarfæra, líkana o.fl. Árbæjarsafn: Opið eftir samkomulagi Enginn fastur opnunartími er í Árbæjarsafni en safnið er opið eftir samkomulagi. Síminn er 84412. IÁM OR f?UíA.IHVíHOflOM MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1987 HVAÐ ERAD GERAST UM Ásmundarsafn: Abstraktlist Ás- mundar Sveinsson- ar Um þessar mundir stendur yfir í Ásmundarsafni sýningin Abstrakt- NstÁsmundarSveinssonar. Þar gefur að lita 26 höggmyndir og 10 vatnslitamyndirog teikningar. Sýn- ingin spannar 30 ára tímabil af ferli Ásmundar, þann tíma sem lista- maðurinn vann að óhlutlægri myndgerð. í Ásmundarsafni erenn- fremur til sýnis myndband sem fjallar um Konuna í list Ásmundar Sveinssonar. Þá eru til sölu bækur, kort, litskyggnur, myndbönd og af- steypurafverkum listamannsins. Safnið verður opið daglega frá kl. 10 til 16 ísumar. Listasafn Einars Jónssonar: Safn og garður Listasafn EinarsJónssonarer opið alla daga nema mánudaga frá kl. 13.30 til 16. Höggmyndagarður- inneropinndaglegafrá kl. 11 til 17. Ásgrímssafn: Opið sunnudaga, þriðjudaga og fimmtudaga Ásgrimssafn er opið sunnudaga, þriðjudaga og fimmtudaga milli kl. 13.30 og i 6. MYNDLIST Gallerí Borg: Vignir Jóhannsson sýnir i Gallerí Borg, Pósthússtræti 9, stendur nú yfir sýning Vignis Jó- hannssonar. Á sýningunni eru olíumyndir og krítarteikningar unnar á þessu ári í Nýju-Mexico, þarsem Vignir er nú búsettur. Sýningunni Iýkur2. júní. Sýning Eddu Jóns- dóttur í nýja sal Gallerí Borgar sýnir Edda Jónsdóttir vatnslitaþrykk og ætingar. Mynoirnareru unnará síðari hluta árs 1986 og þessu ári. Sýningunni lýkur 3. júní. Báðir salirnir eru opnir frá kl. 14 til 18 um helgar, frá kl. 12 til 18 á mánudögum og frá kl. 10 til 18 aðra virka daga. 'gina ? Aðeins þijár sýningar eru eftir á Degi vonar. Leikfélag Reykjavíkur: Dagurvonar - þrjár sýningar eftir Aðeins þrjár sýningar eru eftir á hinni rómuðu sýningu Leik- fólags Reykjavíkur á Degi vonar eftir Birgi Sigurðsson. Hugsanlega verður verkið þó tekið til sýninga í haust. Dagur vonar þykir af mörgum besta verk höfundar til þessa og fjallar það um reykvíska fjölskyldu á sjötta áratug þessarar aldar; ekkjuna Láru og börn hennar þrjú uppkomin, sambýlis- mann og grannkonu. Það er Margrét Helga Jóhannsdóttir sem leikur móðurina, Sigurður Karlsson sambýlismanninn, Sigríður Hagalín grannkonuna og börnin þrjú eru leikin af Guðrúnu S. Gísladóttur, Valdimar Erni Flygenring og Þresti Léo Gunnars- syni. Þórun S. Þorgrímsdóttir hefur gert leikmynd og búninga, Gunnar Reynir Sveinsson samdi tónlistina en leikstjóri er Stef- án Baldursson. Næsta sýning á Degi vonar verður sunnudaginn 31. maí kl. 20. Listasafn ASI: Norrænn heimilis- iðnaður Nú stendur yfir norræn heimilis- iðnaðarsýning í Listasafni ASÍ við Grensásveg. Sýningin var unnin í tilefni norræns heimilisiðnaðarþings ÍKuopio, Finnlandi. Þema þingsins var vöruþróun í heimilisiðnaði, frá hugmynd til fullmótaðra hluta og tók hvert land mið af því við undir- búning sinn sýningar. Sýningin er mjög fjölbreytt að efni, allt frá textíl- vinnu af ýmsum toga til málm- og beinsmíði. Sýningin er opin virka daga kl. 14 til 20 og um helgar kl. 14 til 22. Athugið að sýningunni lýkur sunnu- daginn 31. maí. Ingólfsbrunnur: Ófeigur Ólafsson sýnir vatnslrtamynd- ir Ófeigur Ólafsson sýnir vatnslita- myndirí Ingólfsbrunni, Miðbæjar- markaðinum. Opið er á verslun- artíma alla virka daga. Sýningin er sölusýning. Norræna húsið: Norski listamaður- inn Yngve Zakarias sýnir Nú stenduryfirsýning á verkum norska myndlistarmannsins Yngve Zakarias í sýningarsölum Norræna hússins. Á sýningunni eru bæði málverk og grafík. Yngve Zakarias hefur haldið einkasýningará Norðurlöndunum og í Þýskalandi og tekið þátt í sam- sýningum í Finnlandi, Júgóslavíu, Þýskalandi og Ítalíu. Sýningin verður opin kl. 14 til 19 alla daga til 14. júní. „ „í smáu formi“ í anddyri Norræna hússins stend- ur yfir sýning á skúlptúrum eftir 5 norræna listamenn: Claes Hake frá Svíþjóö, Finn Hjortskov Jensen frá Danmörku, Veikko Myllerfrá Finn- landi, Michael O'Donnellfrá Noregi og Rögnu Róbertsdóttur frá íslandi. Hér er um farandsýningu að ræða sem kemurfrá Norraenu listamið- stöðinni í Sveaborg. Á sýningunni eru 27 verk, öll í litlu formi og unnin í mismunandi efni; tré, brons, poly- ester, reipi o. fl. Sýningin er opin daglega kl. 9 til 19, nema sunnu- daga kl. 12 til 19. Gallerí Gangskör Skúlptúrsýning Þórdfsar A. Sigurð- ardóttur - síðasta sýning- arhelgi Nú stenduryfirsýning á verkum Þórdísar A. Sigruðardóttur í Gallerí Gangskör. Þetta erfyrsta einkasýn- ing Þórdísaren hún hefurtekiö þátt í nokkrum samsýningum áður. Flest verkin á sýningunni eru unnin á þessu ári. Þau eru aðalega úrjárni, steinsteypu og pappa. Sýningin er opin kl. 12 til 18 virka daga en kl. 14 til 18 um helgar. Gallerf grjót: Samsýning Stein- unnar og Ragnheið- ar Sýning á höggmyndum úr leir, gleri og járni eftir Steinunni Þórarins- dótturog grafíkverkum eftir Ragn- heiði Jónsdóttur stendur nú yfir í Gallery grjót. Verkin voru á nýjaf- stöðnum einkasýningum þeirra. Opið virka daga frá kl. 12 til 18. Krákan: Sýning Snædfsar Þorleifdóttur Sýning Snædísar Þorleifdóttur stendurnúyfirá Krákunni, Laugar- veg 22. Á sýningunni eru 15 pastelverk, olíupastel og þurrpastel, öll unnin árið 1987. Krákan er opin frá kl. 11.30 til 23.30. Nýlistasafnið: KEX Nú stendur yfir í Nýlistasafninu og MÍR salnum norsk sýning. Er sýningarhaldið liður í skiptisýningar áætlun milli íslands, Svíþjóðarog Noregs. Hugmyndin er að hvert þessara landa fái að kynnast því sem ungir listamenn eru að gera í hinum tveimur löndunum. Áður hafa sýningarnar verið til sýnis í Kultur- huset í Stockhólmi og UKS í Osló. Þessi sýningarkeðja hefur hlotið nafnið „KEX". Norsku þátttakendurnir eru þess- ir: Ingrid Book.Svanhild Heggedal, ReidarKraugerud, Hege Lpnne, Gerd Tinglum, Marianne Bratteli, Hilmar Fredriksen og Laila Haugen. Þau munu öll dveljast hér á landi meðan á sýningunni stendur. Gallerí 119 Plaggöt og grafik f Gallerí 119, viðJ.L. húsið, stend- ur nú yfir sýning á plaggötum og grafíkverkum eftir þekkta listamenn. Opið erfrá 12 til 19 virka daga, 12 til 18 laugardaga og 14 til 18 sunnu- daga. Gallérí LangbrókTextíll: Listmunir sýndir að staðaldri Textílgalleríið Langbrók, Bók- hlöðustíg 2, sýnirvefnað, tauþrykk, myndverk, fatnað og fleiri listmuni. Opið þriðjudaga til föstudaga kl. 12-18oglaugardagakl. 11-14. Nýja Galleríið Nikulás Sigfússon sýnir Nikulás Sigfússon heldur sýningu á vatnslita- og akrýlmyndum í Nýja galleríinu Laugarveg 12, annari hæð. Ásýningunni eru um 30 / myndir, flestar málaðar á þessu ári eða síðastliðnu ári. Sýningin verður opin kl. 14 til 22 um helgar en 15 til 22 virka daga til 14. júní.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.