Morgunblaðið - 30.05.1987, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. MAI 1987
51
í skemmtilegustu smáatriðum hús-
hald og fjölskyldustemmningu
§órða áratugarins þegar, a.m.k. í
minningum Simon, faðirðirinn var
kóngur í ríki sínu, konumar sýsluðu
heimavið á daginn og stóðu í mat-
seldinni, fjölskyldan safnaðist öll
saman við kvöldmatarborðið, pabb-
inn hlustaði á útvarpið á kvöldin
og Eugenear heimsins hlustuðu
gapandi af undrun á stóra bróður
segja frá hinu.
Simon getur verið fyndinn í sam-
tölum og þenkingum persónanna
án þess að drepa neinn úr hlátri,
en hann getur líka verið væmnin
uppmáluð og er það í þessari mynd.
Það er líka spuming hvort hún eigi
ekki meira erindi sem sjónvarpsleik-
rit en hundrað prósent bíómynd.
Hún er stykki sem hægt væri að
hafa gaman af á mánudagskvöldum John Silverman í hlutverki Eugene við tómstundaiðju sína í mynd-
fyrir háttinn. inni Æskuþrautir.
HVERT SEM ÞU FERÐ
- VIÐ HÖFUM GJALDEYRINN
Einkenni gjaldeyrisdeilda okkar er hröð
afgreiðsla á öllum helstu gjaldmiðlum heims.
Visa, ferðatékkar, almennirtékkar, reiðufé.
Komdu við hjá okkur.
-nútim fanti
íslensk og
bandarísk
kennaraskipti
íraungreinum
Fulbright-stofnunin býður upp
á stuðning við kennaraskipti
milli íslensks og bandarísks raun-
greinakennara á framhalds-
skólastigi skólaárið 1988—''89.
Kennaramir þiggja laun hver frá
sínum skóla, en íslenski kennarinn
mun fá viðbótargreiðslu svo laun
hans samsvari launum bandarískra
kennara. Fulbrightstofnunin greiðir
einnig ferðakostnað kennaranna.
Algengt er að kennaramir hafí
einnig skipti á húsnæði. Mennta-
málaráðuneytið og Bandaríkja-
stjóm styður þessi kennaraskipti
og er nú verið að auglýsa eftir kenn-
urum í Bandaríkjunum. Kennarar
sem áhuga hafa, verða að hafa
stuðning skólastjóra. Öllum skóla-
stjórum í íslenskum framhaldsskól-
um hefúr verið send umsóknargögn.
Umsóknir verða að berast Ful-
bright-stofnuninni fyrir 21. sept.
1987.
Minningar Neils Simon
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Æskuþrautir (Brighton Beach
Memoirs). Sýnd í Laugarásbíói.
StjSrnugjöf ☆ ☆.
Bandarísk. Leikstjóri: Gene
Saks. Handrit: Neil Simon. Fram-
leiðandi: Ray Stark. Kvimynda-
taka: John Baiiey. Tóniist:
Michael Small. Aðalhluverk: Jon-
athan Silverman, Bob Dishy,
Blythe Danner, Brian Drillinger
og Judith Ivey.
Eugene (Jonathan Silverman),
sögumaðurinn í gamanmynd Neils
Simon, Æskuþrautir (Brighton
Beach Memoirs), sem sýnd er i
Laugarásbíói, er svolítið eins og
Daddi, hin unga söguhetja breska
rithöfundarins Sue Townsend (Dag-
bókin hans Dadda). Þeir halda
svipaðar dagbækur nema að Eug-
ene lifír og hrærist í gyðingafjöl-
skyldu í Brooklyn í New York um
1937 á meðan Daddi er í Bretlandi
nútímans. Þeir eiga það sameigin-
legt þó að vera mest uppteknir af
sjálfum sér og kvenfólki. Þeirra er
hvolpavitið.
Hugleiðingar Eugene um (kyn)-
lífið og tilveruna í Æskuþrautum
eru skondnar þegar best lætur og
strákslegar í meira lagi. Hann er
piltur sem auðvelt er að hrífast af
(hvaða krakki hefur ekki rejmt að
fela óæti eins og lifur undir kart-
öflumúsinni og þykjast vera búinn
með hana).
Hann er líka eini kómíski hlutinn
af stigvaxandi væminni mynd um
fátæku gyðingafjölskylduna seint á
§órða áratugnum. Eugene verður
vitni að og leiðir okkur inní, með
því að taia beint í myndavélina
(mikið notað bragð orðið), margs-
konar átök innan fjölskyldu sinnar
en þau eru nokkuð einhæf því flest
þeirra virðast sprottin af metingi á
milli eldri og yngri systkina. Þannig
er eldri bróðir Eugene í vinnu til
að afla til heimilisins á meðan Eug-
ene er í skóla; Nóru frænku þeirra,
sem býr á heimilinu með mömmu
sinni og litlu systur, finnst hún vera
útundan af því litla systir er hjart-
veik og fær alla athygli alltaf;
mamma Eugene varð á sama hátt
útundan af því systir hennar
(mamma Nóru) þurfti að hafa það
svo fínt en sá eini sem er systkina-
laus er pabbinn. Hann hefur
áhyggjur af uppgangi nasista í
Evrópu og skyldfólki sínu í Póllandi.
En átökin á milli íjölskyldumeð-
limanna eru ekki langvarandi og
rista ekki djúpt. Það má enginn
skuggi falla á ímynd hinnar dýrð-
legu íjölskyldu sem eftir stendur í
leikslok, sameinuð við litla eldhús-
borðið sitt, nýbúin að fá fréttir um
að skyldmenni þeirra í Póllandi
hafi sloppið úr landi og stefni til
þeirra. >
Það, sem fleytir myndinni tals-
vert áfram auk gamanseminnar í
Eugene, er natni Neils Simon og
leikstjórans, Gene Saks (The Odd
Couple), við að færa okkur aftur í
tímann um hálfa öld og endurskapa
V^terkurog
k-/ hagkvæmur
auglýsmgamiðill!