Morgunblaðið - 30.05.1987, Síða 68
68 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1987
ÍÞRÓTTIR UNGLINGA
Framarar verðlaunaðir
Uppskeruhátfð handknattleiks-
deildar Fram var haldin f Tónabœ
sunnudaginn 10. maí. Veittar
voru fjölmargar viðurkenningar í
yngri flokkum félagsins enda var
árangurinn mjög góður sfðastlið-
inn vetur. Unglingasíðan leit inn
á hátfðina er hún stóð sem hœst
og var gott hljóð í mönnum enda
var boðið upp á rjómatertur og
aðrar kræsingar.
Fram náði bestum árangri allra
liða í yngri flokkum á síðastliðnu
•* keppnistímabili. Liðið varð
Reykjavíkurmeistari í þrem flokk-
um og íslandsmeistari í tveim.
Bestum árangri náði 4. fl. félagsins
sem varð íslandsmeistari og 4. fl.
kvenna sem varð Reykjavíkur-
meistari.
Þeir sem hlutu viðurkenningar á
uppskeruhátíðinni voru:
Fékk hann tösku frá Hummel.
Markakóngsbikar Fram og tösku
frá Hummel hlaut Jason Olafsson
en hann skoraði 176 mörk fyrir 4.
fl. karla.
Eftirtaldir leikmenn urðu ís-
landsmeistarar með yngri flokkum
Fram í fyrsta skipti og fengu þeir
sérstakan heiðurspening fyrir.
4. fl. karla:
Haraldur Þ. Egilsson, Benedikt
Hjartarson, Dagbjartur Pétursson,
Einar Tönsberg, Einar P. Kjartans-
son og Reynir Hreinsson.
5. fl. karla:
Sigurður Guðjónsson, Helgi Helga-
son, Hilmar Hauksson, Tómas
Jónsson, Ágúst Pétursson, Jón E.
Malmquist, Friðrik Magnússon,
Flokkar
2. fl. karla
2. fl. kvenna
3. fl. karla
3. fl. kvenna
4. fl. karla
4. fl. kvenna
5. fl. karla
5. fl. kvenna
6. fl. karla
Bestu leikmenn
Júlíus Gunnarsson
Helga Gunnarsdóttir
HalldórJóhannsson
Sólrún Sigurðardóttir
Jason Ólafsson
Díana Guðjónsdóttir
ÞórirJónsson
Inga Kristinsdóttir
Sveinn Jónsson
Besta ástundun
Reynir Hreinsson
Anna G. Halldórsdóttir
Böðvar Þorvaldsson
Þórunn Garðarsdóttir
Andri V. Sigurðsson
Hulda Bjarnadóttir
ValtýrGunnarsson
Hrund Guðjónsdóttir
Guðjón Guðjónsson
Tveir markahæstu leikmenn
yngri flokka Fram voru síðan heiðr-
aðir, Friðrik Nikulásson, sem
skoraði 118 mörk fyrir 5. fl. karla.
Steinarr Björnsson, Þórður Gunn-
arsson, Guðmundur Sveinsson og
þjálfararnir Magnús Sæmundsson
og Maríus Jónasson.
Hér sést allur hópurinn sem hlaut viðurkenningu á uppskeruhátíð handknattleiksdeildar Fram.
Jason Ólafsson, markakóngur
Fram árið 1987, tekur við verð-
launum sínum. Hann er f 4. fl. og
skoraði hvorki meira né minna
en 176 mörk.
Hressir piltar úr 6. fl. bfða eftir kræsingunum.
Morgunblaðiö/Andrós
Mikil aðsókn að
handboltaskólanum
FÆSTIR tengja sól og sumaryi
við handknattleik. En f Hafnarfírð-
inum fór fram handknattleiks-
skóli f umsjá þeirra góðkunnu
handknattleiksmanna Geirs Hall-
steinssonar og Viðars Símonar-
sonar þar sem þetta var
sameinað.
Sextíu krakkar hvaðanæva af
landinu komu til að taka þátt í
þessu námskeiöi á vegum þessara
snjöllu þjálfara. Meiri aðsókn var
að skólanum en þeir gátu sinnt.
Hvorki meira né minna en fimmtíu
af þessum krökkum eru í heimavist
í Lækjarskóla vikuna 25.-29. maí,
en það er sá tími sem námskeiðið
stóð yfir.
Þetta er þriðja árið í röð sem
skólinn fer fram og sumir krakkarn-
ir hafa tekið þátt í öll skiptin. Aö
sögn þeirra Geirs og Viðars er
mikilvægt að krakkarnir fái góða
leiðsögn og telja þeir að námskeið
sem þetta sé mjög mikilvægt ef
við ætlum að halda okkar hlut í
hinni hörðu keppni á heimsmæli-
kvarða. Einnig sé það mikilvægt
fyrir krakka utan af landi sem e.t.v.
fái ekki jafn góða aðstöðu til að
æfa og keppa eins og krakkar á
höfuðborgarsvæðinu. Unglinga-
síðan leit inn hjá skólanum nú einn
morguninn og ræddi við nokkra
af þátttakendunum.
Yngri hópurinn ásamt Geir viö Lækjaskólann
Jón Andri, Lilja og Berglind
Myndbandakennslan góð
( íþróttahúsinu við Strandgötu
tókum viö tali þau Jón Andra
Finnsson, Lilju Þórey Guðmunds-
dótturog Berglindi Omarsdóttur.
Jón Andri er úr Mosfellssveit,
Lilja er frá Grindavík og Berglind
úr Vestmannaeyjum. Þau eru öll
að taka þátt í handknattleiksskól-
anum í þriöja skipti og sögðu þau
að tíminn sem færi í þetta væri
svo sannarlega þess virði. Meiri-
hluta þáttakenda er utan af landi
og m.a. fimm úr Vestmannaeyjum,
níu frá Grindavík og tveir frá Mos-
fellssveit.
Það gekk misjafnlega hjá þeim
krökkunum í mótum vetrarins. Lilj-
as og Berglind sögðu að ílla hefði
gengið hjá þeim en Jón Andri var
nokkuð ánægður með veturinn
enda náð lið hans Afturelding 4.
sæti í hans aldursflokki. Þau sögðu
að sk+olinn væri vel skipulagður
og oft væri glatt á hjalla á kvöld-
vökunum og mjög gaman væri að
sja handboltaleiki á myndbandi
sem þeir Geir og Viðar kenndu
síðan eftir.