Morgunblaðið - 30.05.1987, Qupperneq 71

Morgunblaðið - 30.05.1987, Qupperneq 71
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1987 71 „Ég gat ekki fengið betri afmælisgjöf" -sagði Gunnar Skúlason, sem skoraði annað mark KR „í sjöunda himni“ „LEIKURINN var jafn lengi vel, en við gerðum slæm mistök, sem kostuðu tvö mörk, þau gerðu út um leikinn og eftir það var um algjöra einstefnu KR að ræða,“ sagði lan Fleming, þjálfari FH, eftir annað tap liðsins f jafn- mörgum leikjum. Áður en leikurinn hófst færði FH KR blómakörfu að gjöf ásamt árituðum bolta í tilefni vígslu nýju stúkunnar. Auk nafna leikmann- anna stóð á boltanum „von um bjarta framtíð", KR-ingar tóku gestina á orðinu og þökkuðu fyrir sig með sannfærandi sigri. „Bæði liðin lóku vel og FH-ingar sýndu að þeir verða erfiðir í sum- ar. Þetta var spurningin um að skora fyrsta markið," sagði Gor- don Lee, þjálfari KR. FH-ingar sofnuðu á verðinum, Willum, sem nefbrotnaði í leiknum, náði að gefa fyrir markið frá hægri, Guðmundur var einn og óvaldaður í dauða- færi, gaf sér nægan tíma og skoraði örugglega. „Ég gat ekki fengið betri af- mælisgjöf," sagði Gunnar Skúla- son, sem átti 21 árs afmæli í gær, en hann skoraði annað mark KR eftir glæsilegan undirbúning. Will- um stöðvaði sókn FH, gaf stungu- sendingu á Pétur, sem var í dauðafæri, en eigingirndin var ekki til staðar, Gunnar var í enn betra færi og var öryggið uppmálað eftir snilldarsendingu. Pétur var enn á ferðinni í síðasta markinu, en þá var það Björn sem gat ekki annað en skorað eftir nákvæma sendingu frá hægri. KR-ingar voru lengi að ná tökum - sagði Hörður Helgason þjálfari KA „VÍÐIR er erfitt lið heim að sækja, ég átti ekki von á sigri og er því mjög glaður og í sjöunda himni með stigin þrjú,“ sagði Hörður Helgason, þjálfari KA, og róð sér ekki fyrir kæti í leikslok. Þegar á heildina er litið var sig- urinn engu að síður sanngjarn. Leikmenn KA léku betur, voru nett- ari og höfðu Tryggva frammi, sem gat haldið boltanum, þegar á þurfti að halda. Víðismenn siuppu fyrir horn. Bæði liðin fengu góö marktæki- færi, en aðeins eitt mark var skorað. Tryggvi var réttur maður á réttum stað eftir hornspyrnu og skallaði í markið. Víðismenn sóttu grimmt til leiksloka, settu Daníel í fremstu víglínu, en allt kom fyrir ekki, þeim tókst ekki að jafna met- in þrátt fyrir góða tilburöi. Annars var leikurinn frekar leið- inlegur og einkenndist af miklu þófi, einkum í seinni hálfleik. Símamynd/Morgunblaðiö • Hlynur Blrgisson Þórsari í þann mund að skjóta að marki Völs- ungs; til varnar er Birgir Skúlason. • Gunnar Skúlason skorar annað mark leiksins f gær; Halldór Halldórsson kemur engum vömum við. á leiknum, en liðsheildin var sterk. Ungu strákarnir stóðu sig vel og Pétur átti stórleik. FH lék fast og ákveðið til að byrja með, en sóknarleikurinn var bitlaus, miðjan slök og vörnin geröi afdrifarík mistök. Halldór í markinu bjargaði liðinu frá enn stærra tapi og verður ekki sakaður um mörkin. KR-FH 3 : 0 KR-völlur, 1. deild, föstudaginn 29. maí 1987. Mörk KR: Guðmundur Magnússon (36.), Gunnar Skúlason (37.), Bjöm Rafnsson (85.) Gul spjöld: Willum Þór Þórsson KR (44.), Ian Fleming FH (54.), Pétur Pét- ursson KR (60.), Ólafur Kristjánsson FH (61.) Rauð spjöld: Enginn. Áhorfendur: 1225. Dómari: Magnús Jónatansson 5. Lið KR: Páll Ólafsson 3, Gunnar Skúla- son 3, Þorsteinn Halldórsson 3, (Rúnar Kristinsson vm. á 82. mín., lék of stutt), Þorsteinn Guðjónsson 4, Willum Þór Þórsson 3, Jósteinn Einareson 2, Ágúst Már Jónsson 3, Andri Marteinsson 1, Bjöm Rafnsson 2, Pétur Pétureson 4, Guðmundur Magnússon 3. Samtals: 31. Uð FH: Halldór Halldóreson 3, Guðjón Guðmundsson 2, Guðmundur Hilmare- son 2, Ian Fleming 2, Þórður Sveinsson 2, Leifur Garðarsson 2, Kristján Hilm- areson 1, (Hörður Magnússon vm. á 70. mín., 1), Magnús Pálsson 1, Pálmi Jóns- son 1, Ólafur Kristjánsson 3, Henning Henningsson 1, (Kristján Gíslason vm. á 64. mfn., 1). Samtals: 20. Víðir-KA 0 : 1 Garðsvöllur, 1. dcild, föstudagur 29. mal 1987. Mark KA: Tryggvi Gunnarsson á 74. mln. Spjöld: Engin. Áhorfendur: 750. Dómari: Þorvarður Bjömsson, 8. Lið Víðis: Gísli Heiðarsson 3, Bjöm Vilhelmsson 2, Vilhjálmur Einarsson 2, Ólasfur Róbertsson 2, Danlel Einarsson 2, Guðjón Guðmund8son 3, Vilberg Þor- valdsson 1, Grétar Einarsson 2, GIsli Eyjólfsson 1, Sævar Leifsson 2, Björg- vin Björgvinsson 1, Svanur Þorseinsson (vm. á 71. mln.) 1. Samtals: 21. Lið KA: Haukur Bragason 3, Friðfinnur Hermannsson 2 (Amar Bragason vm. á 71. mln., 2), Erlingur Kristjánsson 2, Amar Freyr Jónsson 2, Gauti Laxdal 2, Þorvaldur Örlygsson 3, Hinrik Þór- hallsson 2, Jóhannes Valgeirsson 2 (Ámi Hermannsson, vm. á 64. mln., 1), Tryggvi Gunnarsson 3, Steingrlmur Birgisson 2, Jón Sveinsson 2. Samtals: 25. Þór - Völsungur 0:1 Þórevöllur 1. deild, föstudagur 29. maí 1987. Mark Völsungs: Jónas Hall- grímsson á 45. mín. Gul spjöld: Einar Arason, Þór og Sveinn Freysson, Völsungi. Áhorfendur: 1.302. Dómari: Friðgeir Haligrímsson, 5. Lið Þórs: Baldvin Guðmundsson 2, Sveinn Pálsson 2, Árni Stefánsson 2, Júlíus Tryggvason 2, Jónas Róbertsson 3, Nói Bjömsson 1, Einar Arason 2, Guðmund- ur Valur Sigurðsson 1, Halldór Áskels- son 2, Kristján Kristjánsson 1, Hlynur Birgisson 1. Samtals: 19. Lið Völsungs: Þorfínnur Hjaltason 2, Helgi Helgason 2, Sveinn Freysson 2, Ómar Rafnsson 3, Birgir Skúlason 2, Bjöm Olgeireson 2, Snævar Hreinsson 2, Kristján Olgeireson 3, Hörður Benón- ýsson 3, Jónas Hallgrímsson 2, Eiríkur Björgvinsson 2, Skarphéðinn ívareson (vm. á 70. mín.) 1. Samtals: 25. Tryggvi Gunnarsson Víðismenn byrjuðu betur og fengu gott marktækifæri um miðj- an fyrri hálfleik, en Haukur varði vel frá Guðjóni. Eftir það jafnaðist leikurinn og KA fékk besta færið, sem mistókst herfilega. Tryggvi prjónaði sig lag- lega í gegn, hann, Þorvaldur og Hinrik voru fyrir opnu marki, en Texti Björn Blöndal Sanngjarn sigur Völsungs á Þór VÖLSUNGUR vann sanngjarnan ið frá Guðmundi Val. Síðan komst Hörður Benónýsson einn inn fyrir vörn Þórs en Baldvin bjargaði með úthlaupi. Síðan skoraði Jónas eins og áður sagði - Kristján Olgeirsson braust upp vinstri kantinn, upp að endamörkum, sendi á fjærstjöng þar sem Jónas var einn og óvaldað- ur og skallaði í netið af öryggi. Völsungar voru áfram aðgangs- harðari í seinni hálfleik. Hörður komst aftur inn fyrir vörn Þórs og enn bjargaði Baldvin með út- hlaupi. Hann hélt þó ekki knettin- um sem hrökk á ný til Harðar en þá skaut hann naumlega framhjá. Það var svo síðustu tíu mínúturnar sigur á Þór. Jónas Hallgrfmsson skoraði elna markið þegar tfu sekúndur voru eftir af fyrri hálf- leiknum. Mest var um miðjuhn'oð í fyrri hálfleiknum en Völsungar voru þó skárra liðið; og oft brá fyrir allgóð- um samleik hjá þeim. Hvort lið fékk tvö ágætis færi á að skora í fyrri hálfleik, fyrst Kristján Olgeirs- son fyrri Völsung en Baldvin markvörður bjargaði vel, þá Hlynur tvívegis hinum megin, fyrst skaut hann naumlega framhjá og síöan var hann aðeins of seinn að átta sig eftir að sending kom fyrir mark- sem Þórsarar vöknuðu loks til lífsins; þeir fengu þá nokkur ágæt- is færi en tókst ekki að skora. Völsungar voru betri sem fyrr segir, börðust eins og Ijón og upp- skáru eftir því. Þórsarar ollu vonbrigðum og náðu aldrei vel saman. Aðeins tíu mínúturnar sýndu þeir sitt rétta andlit en þá var orðið um seinan. Allir Þórsarar léku undir getu en Jónas Róberts- son var einna sprækastur þeirra.4' Þá varði Baldvin nokkrum sinnum vel. Hjá Völsungi var Kristján Ol- geirsson bestur og Hörður var einnig hress í framlinunni.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.