Morgunblaðið - 07.06.1987, Page 22

Morgunblaðið - 07.06.1987, Page 22
4 22 S ffclk í fréttum poor TTXTtr r> orm t. nr rr/t/t tp nio» TCWTmanM MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ 1987 Fegurðar- drottningarí glæsikjólum Æ Aföstudagskvöld voru kynntar í veitingahúsinu Broadway stúlkurnar tíu, sem keppa munu um titlana „Fegurðardrottning ___Islands 1987“ og „Fegnrðardrottning Reykjavíkur 1987“. Við það tækifæri komu stúlkurnar m.a. fram í kvöldkjólum, þeim er hér sjást. Sjálf aðalkeppnin fer fram annað kvöld, annan í hvítasunnu, á svonefndu „gala-kvöldi“. Er ekki að efa að þá verði aldeilis kominn spenningur í stúlkurnar um það hver þeirra hreppi hnossið, en það er ekki ónýt nafnbót að vera kjöriu F egurðardrottning íslands, ekki síst þegar um jafnföngulegan hóp ræðir og líta má hér til hliðar. Má dómurum enda vera vandi á höndum að þurfa að skera úr um hver þessara gullfallegu stúlkna skuli nú teljast fallegust. Gestir voru á einu máli um hversu vel kvöldið hefði heppnast, bæði vegna góðs málsverðar og skemmtiatriða, en ekki síst vegna glæsilegrar frammistöðu keppendanna tíu, sem hér sjást í sínu fínasta stássi. Vöktu kjólamir enda mikla hrifningu gesta, ekki síður en tíguleg framkoma stúlknanna. Uppmni kjólanna er margvíslegur, en gjarnan komu mæður stúlknanna við sögu. Satín og silki vom greinilega vinsæl efni, auk palíettuefnis, sem vitaskuld er kjörið við tækifæri sem þetta, þegar stúlkurnar þurfa bókstaflega að skina af fegurð I sviðsljósinu. Þá er bara að bíða úrslitanna á mánudagskvöld. COSPER OPH — Guð hjálpi mér! Maðurinn minn hefur alveg gleymt að þú ætlaðir að koma f kvöld, Fía frænka — hann er heima. Þóra Birgisdóttir var i kóngabláum kjól úr palíettuefni og silki, sem var hannaður og saumaður af Sigríði Pétursdóttur. Hildur Guðmundsdóttir klæddist einnig kjói eftir Jórunni Karlsdóttur, en sá var dökkbleikur úr sanseruðu thai-silki, skreyttur með palíettum. Hér er Anna Margrét Jónsdóttir á svörtum kjól úr satíni og silki. Kjólinn hannaði hún sjálf, en móðir hennar, Marín Elísabet Samúelsdóttir, saumaði. Skartgripimir, sem hún ber, eru frá Jens. íris Guðmundsdóttir var í hvítum satinkjól, sem Guðný Tryggvadóttir hannaði og saumaði. Skartgripirnir eru hinsvegar frá snyrtivöruversluninni París á Laugavegi. Kristín Jóna Hilmarsdóttir var í fjólubláum kjól úr satini og palíettuefni, en pifan er úr satíni. Það var Guðlaug Hansdóttir, sem hannaði kjólinn og saumaði. Bergrós Kjartansdóttir skrýddist hvitum kjól, en skartgripina fékk hún lánaða hjá Messinu á Laugavegi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.