Morgunblaðið - 04.07.1987, Side 15
Y8<?t iTl'li. > aiIDAOaAOTTAJ (JKTA.iaVnjDHOW!
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 1987 15
„Maður hangir í lausu lofti. Það
er óþægileg tilfinning vegna þess
að maður hefur lagt kapp á að ná
árangri, vinna að ýmsum hefð-
bundnum málum, taka þátt í
sameiginlegu starfí en ekki hvað
sízt að hafa frumkvæði að atriðum
sem gætu skilað árangri, reyna að
taka upp svolítið ný vinnubrögð.
Þegar maður stendur skyndilega
uppi umboðslaus þá losna svo marg-
ir endar. Þá er ekki sama færi og
áður og hluti af þessari vinnu sem
hlýtur að koma á löngum tíma lend-
ir í óvissu. í raun er þetta eilíf vakt.
Það er erfitt í pólitík að lemja í
borðið og koma einhveiju í gegn á
stundinni. Það eru undantekning-
arnar. Þetta er spuming um að
vera alltaf á vaktinni og finna
smugur fyrir ný sjónarmið og nýjar
leiðir, búa til sprungur, breyta og
bæta. Ef það koma sprungur þarf
maður að vera tilbúinn til að koma
niður plöntu í holuna og gróður-
setja eitthvað nýtt fyrir framtíðina.
Þetta gerist á íöngum tíma. Sumt
náðist fram, annað var komið í far-
veginn eða voru hugmyndir sem
búið var að reifa. I rauninni er
stjómmálamaðurinn eins og garð-
yrkjumaður, hann þarf að fylgja
starfínu eftir, hlú að því og rækta
það upp. Á því byggist starf stjóm-
málamannsins, en ekki alltaf
uppskera. Sumir komast að vísu
hjá því að fara þessa leið og fljóta
stundum merkilega án þess þó að
skila miklu. En þannig er jú
mannlífið, það eru straumaskipti í
þessu eins og öðru.“
— Hvernig getur varaþingmaður
komið að gagni?
„Þó maður sitji ekki á Alþingi
er auðvitað hægt að gera margt.
Það vigtar þó margfalt að sitja þar
fyrir þá sem vilja vinna og hafa
hugmyndir og vilja takast á við
vandamálin, vilja taka af skarið og
bijóta upp nýjar leiðir án þess að
henda öllu því hefðbundna fyrir
borð. Innkomur varaþingmanna
skila litlum árangri og eru í raun
neyðarbrauð að mínu mati.
Utan þings er auðvitað hægt að
fylgja hlutum eftir og vekja at-
hygli á ýmsum þáttum . Allt byggist
þetta á því að menn tali saman og
það er vissulega hægt að reka áróð-
ur og fylgja eftir utan salarkynna
Alþingis. Það eru kannski aðal-
straumamir sem em fyrir utan en
þeir krystallast í starfí stjómmála-
mannanna og fyrir dugmikla stjóm-
málamenn er það lykilatriði að sitja
á þingi.
Ég held að með mína reynslu
geti ég gert eitthvert gagn og fylgt
eftir hlutum þó svo að það sé erfíð-
ara utan þings, en þá er að róa
þeim mun fastar."
Við eignm að tala
hispurslaust
— En verða menn ekki að taka
sér tak eftir svona uppstokkkun?
„Sjálfstæðismenn verða að taka
sér tak í svona stöðu, því tilfínning-
ar fólks verða aldrei hólfaðar niður
í einn stóran sannleika, en Sjálf-
stæðisflokkurinn er og verður
rúmgóður flokkur allra stétta. Það
er margs konar viðmiðun sem spilar
inn í í þeim efnum. Sjálfstæðis-
flokkurinn hlýtur sífellt að vera
sjálfsgagnrýninn, því aðeins þannig
geta menn rímað við þarfír og óskir
samfélagsins. Við eigum kannski
erfítt með að átta okkur á hve vel
okkur hefur vegnað á fáum árum
í átt til sanngjamara þjóðfélags og
eðlilegra, við höfum það tvímæla-
laust betra, meira jafnvægi og meiri
festu og það er af hinu góða. Það
er engin stöðnun, ekkert kyrrt og
dautt vatn. Minni miðstýring og
aukið frelsi hefur skilað okkur áleið-
is til betra þjóðfélags, en við þurfum
samt sem áður að skoða ýmsa þætti
í þessari þróun, það er margt ógert.
Hefur fijálsa álagningin til dæmis
komið jafnt til góða í þéttbýli og
dreifbýli? Þar sem einokun er sums
staðar, átta menn sig á vaxtafyrir-
komulaginu og svo framvegis. Víða
þarf að hyggja að. Menn hafa gagn-
rýnt svokallaða frjálshyggju, en það
er ástæðulaust að láta slíkt fara í
taugamar á sér. í því sem öðru
eigum við að tala hispurslaust út
og þora að segja hluti þótt við séum
ekki endilega sammála hugmynd-
unum. Fyrst er að ræða málin, síðan
að komast að samkomulagi og nota
það sem er nýtilegt í djarfsæknum
hugmyndum. Við verðum að þora
að bijóta upp nýjar leiðir án þess
að taka of mikla áhættu, en órök-
studd aðför að Sjálfstæðisflokknum
er aðför að hjarta þjóðarinnar.
Ákveðinn í að vinna
sætið aftur
— Það sagði maður sem þekkir
þig náið að þú legðir þig allan í þau
verkefni sem þú tækir þér fyrir
hendur — með áhlaupi. Hvert verð-
ur næsta áhlaup og hvar mun Árni
Johnsen hasla sér völl?
„Ég er ákveðinn í því að freista
þess í næstu kosningum að vinna
aftur það sæti sem_ ég skipaði
síðasta kjörtímabil. Ég geri það
fyrst og fremst vegna þess að mér
finnst spennandi að vinna á þessu
sviði og fæ víða hvatningu, en ég
er þakklátur fyrir að hafa fengið
tækifæri á undanförnum fjórum
árum til þess að leggja mörgum
góðum málum lið með áræðnum
mönnum sem þora að takast á við
vandamál og erfíð verkefni og sigla
þeim til árangurs. Það hefur verið
ánægjulegt og lærdómsríkt að
vinna með dugmiklum mönnum á
Alþingi.
Ég hverf ekkert af vettvangi
Suðurlandskjördæmis, það er mikið
verk að vinna á svæðinu allt frá
Sandskeiði að Skeiðarársandi og ég
ætla að sinna verkum í Ámessýslu,
Vestmannaeyjum, Rangárvalla-
sýslu og Vestur-Skaftafellssýslu.
Það kemur síðan í ljós hver niður-
staðan verður. Það er næsta víst
að ég verð ekki atvinnulaus lengi.
Sig. Jóns.
Morgunblaðið/Einar Falur
Fimm þeirra niu listamanna sem opna samsýningu á Kjarvalsstöðum í dag. Frá vinstri, Erla Þórarins-
dóttir, Birgir Andrésson, Jón Óskar, ívar Valgarðsson, og Halldór Ásgeirsson.
Kjarvalsstaðir:
Níu listamenn með sam-
sýningu í Vestursalnum
NÍU listamenn opna samsýn-
ingu í Vestursal Kjarvalsstaða
í dag kl. 14.
Listamennirnir níu eru Hulda
SETTUR biskup, sr. Sigurður
Guðmundsson, vígir á morgun,
sunnudag, þijá guðfræðikandid-
ata til prestsstarfa. Það eru þeir
Guðmundur Guðmundsson, sem
ráðinn hefur verið æskulýðsfull-
trúi þjóðkirkjunnar, Hulda Hrönn
M. Helgadóttir, sem valin hefur
verið til starfa sem prestur
Hríseyjarprestakalls og Ægir Sig-
urgeirsson, sem valinn hefur
verið prestur Höfðakaupstaðar-
prestakalls.
Vígsluvottar verða sr. Amgrímur
Jónsson Reykjavík, dr. Einar Sigur-
bjömsson, prófessor, sr. Friðrik
Hjartar, Búðardal, og sr. Gunnþór
Ingason, Hafnarfirði. Vígslan fer
fram í Dómkirkjunni í Reykjavík og
hefst klukkan 11. Dómkórinn leiðir
messusöng en Marteinn Friðriksson
annast kórstjóm og undirleik.
Þau Hulda Hrönn og Ægir eru í
hópi fyrstu prestanna sem valdir em
Hákon, Erla Þórarinsdóttir, Birgir
Andrésson, Jón Óskar, ívar Val-
garðsson, Halldór Ásgeirsson,
Sverrir Olafsson og Kees Wisser.
skv. hinum nýjum lögum um veit-
ingu prestakalla, en þar er kveðið á
um að hópur kjörmanna, þ.e.a.s. það
er sóknamefnd og varamenn þeirra,
velji milli þeirra umsækjenda sem
sækja um prestakallið. Voru þau
bæði valin samhljóða af kjörmönn-
um. Guðmundur Guðmundsson er
hins vegar ráðinn af biskupi til emb-
ættis æskulýðsfulltrúa þjóðkirlqunn-
ar.
í hinum nýju lögum em ákvæði
um að söfnuðir geta kallað prest til
starfa og það hefur þegar gerst.
Nýverið kölluðu söfnuðir Staðarfells-
prestakalls í Köldukinn sr. Björn
H. Jónsson á Húsavík, sem þar hef-
ur verið settur prestur undanfarið
ár. Kölluðu þeir sr. Bjöm til prests-
starfa um eins árs skeið. Einnig
hefur sr. Bjarni Th. Rögnvaldsson
verið kallaður til þjónustuu í Prest-
bakkaprestakalli í Húnavatnspró-
fastsdæmi til tveggja ára.
Á sýningunni eru bæði málverk,
veggmyndir og skúlptúrar.
Gefin hefur verið út mynd-
skreytt sýningarskrá af tilefni
samsýningarinnar og er þar að
fínna upplýsingar um nám og fer-
il listamannanna. Flest eiga þau
það sameiginlegt að hafa á und-
anfömum árum verið við nám og
störf erlendis og haldið þar bæði
einkasýningar og tekið þátt í sam-
sýningum. Inngang i sýningar-
skrána skrifar Hannes Lámsson.
Sýningunni lýkur 20. júlí.
Afhenti
tránað-
arbréf
SVERRIR Haukur Gunnlaugsson
sendiherra afhenti þann 26. júní
síðastliðinn Jan Martenson, fram-
kvæmdastjóra skrifstofu Samein-
uðu þjóðanna í Genf, trúnaðarbréf
sitt sem fastafulltrúi íslands hjá
alþjóðastofnunum í Genf.
Biskup vígir þrjá
til prestsstarfa
IVII55AN PATROL
INGVAR HELGASON HF.
Sýningarsalurinn/Rauðagerði, simi 33560
Eigum til afgreiðslu strax
flestar gerðir af NISSAN
PATROL bæði díesel og
bensín.
Verð á NISSAN PATROL
JEPPUM frá kr. 840.000.-
Verð á NISSAN PATROL
PICK-UP kr. 746.000.-
^ ÍH ^ Munið bílasýningar okkar laugardaga
Jk 1957-1987^)/
% 30 g
^ ára
og sunnudaga kl. 14-17
Verið velkomin - Alltaf heitt á könnunni