Morgunblaðið - 04.07.1987, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 1987
33
Fiskfóðurverksmiðjan ístess:
800 tonn af fisk-
fóðri til Færejrja
ÍSTESS, fiskfóðurverksmiðjan
við Krossanes, hefur nú fram-
ieitt um 1.500 tonn af fiskafóðri
og þar af hafa um 800 tonn ver-
ið seld til Færeyja. Afgangurinn
fór á innanlandsmarkað.
Pétur Bjamason, markaðsstjóri
ístess, sagði í samtali við blaðið að
tveir þriðju hlutar framleiðslunnar
færu næstu árin til Færeyja, en
kvaðst svo reikna með að hlutur
innanlandsmarkaðar myndi vaxa
Orgeltón-
leikar í Akur-
nokkuð á næstu árum þannig að
þeir færu í auknum mæli að fram-
leiða fyrir hann.
„Markaður í Færeyjum á reyndar
eftir að stækka því þeir eru nú með
seiðamagn, sem samsvarar 6.000
tonnum, þegar seiðunum verður
slátrað eftir tvö ár,“ sagði Pétur.
„Eftir það reikna ég ekki með að
aukning í fiskeldi eigi sér stað hjá
þeim, en á sama tíma má búast við
að markaðurinn hér heima stækki
töluvert."
ístess hefur nú verið starfandi í
tæp tvö ár. Hjá fyrirtækinu starfa
18 manns, þar af einn í Færeyjum.
eyrarkirkju
ORGELTÓNLEIKAR eru fyrstu
tónleikarnir í röð sumartónleika
1987 og hefjast þeir i Akureyrar-
kirkju á morgun, sunnudag,
klukkan 17.00. Þýski organistinn
Gabriele Liebhold leikur þá verk
eftir Bach, Mendelson og fleiri.
Gabriele Liebhold lagði stund á
orgelnám við tónlistarháskólann í
Heidelberg, auk þess sem hún hefur
sótt alþjóðleg námskeið í orgelleik
í öðrum löndum.
Hún mun einnig verða með tón-
leika í Húsavíkurkirkju og Reykja-
hlíðarkirkju og verða þeir
fyrmefndu haldnir mánudaginn 6.
júlí, klukkan 20.30, og þeir síðar-
nefndu verða daginn eftir og hefjast
þeir á sama tíma.
Gabriele Liebhold er núna organisti
við St. Martini-kirkju í Brunsch-
weig.
Morgunblaðið/Krístinn
Eirikur Sigfússon, bóndi á SUastöðum, ásamt dóttur sinni, Auði, að huga að kartöflugrösum.
Uppskeruhorfur á
kartöflum sróðar
Morgunblaðið/Kristinn
Unnið við að sekkja hveitifóður
hjá ístess.
„UPPSKERUHORFUR eru með
eindæmum góðar hérna hjá okk-
ur á félagsbúinu á Sílastöðum
og ef satt skal segja man ég
ekki eftir þeim svona góðum í
langan tíma,“ sagði Eiríkur Sigf-
ússon, bóndi á SUastöðum, i
samtali við Morgunblaðið.
„Þetta hefur verið svo einstakt
vor og þó svo að nokkuð hafi verið
um þurrka þá kom rigningin alveg
á réttum tíma fyrir okkur. Það má
því búast við að kartöflur verði
snemma á ferðinni í vor," sagði
Eiríkur á Sílastöðum.
Það höfðu þó ekki allir sömu
sögu að segja um væntanlega kart-
öfluuppskeru og Eiríkur. Guðmund-
ur Þórisson, bóndi í Hléskógum og
formaður Félags kartöflubænda,
sagði að hæpið væri að segja nokk-
uð um uppskeruna ennþá. „Þurrkar
hafa verið það miklir það sem af
er sumri að grös hafa ekki náð að
Tillögnr menningarmálanefndar um framkvæmdaáætlun 1987-1990:
Reist verði 1000 fm
hús við Amtsbókasafnið
Menningarmálanefnd Akur-
eyrarbæjar hefur lagt fram
tillögur til bæjarstjórnar um
framkvæmdaáætlun fyrir næstu
þrjú ár. í þessari framkvæmda-
áætlun er að finna tillögu um að
1.000 fermetra hús verði reist
norðan til við Amtsbókasafnið
með tengibyggingu milli hús-
anna. Einnig hefur hún lagt til
að Davíðshús og Matthíasarhús
verði lagfærð og að lagfæringum
við „gamla barnaskólann" ljúki
ekki seinna en 1990.
Tillagan um viðbygginguna við
Amtsbókasafnið kveður á um að
það verði hannað með þarfír bóka-
safnsins í huga og jafnframt gert
ráð fyrir u.þ.b. 250 fermetra sal til
sýninga og tónleikahalds.
í tillögum um lagfæringar á
Davíðshúsi og Matthísarhúsi er
Morgunblaðið/Kristinn
Norðurgafl Amtsbókasafnsins, en lagt er til að við hann tengist 1.000
fermetra hús.
sérstaklega kveðið á um lagfæring-
ar með tvennt í huga: í fyrsta lagi
að aðstaða safnanna verði bætt
þannig að þau standist kröfur sem
gera þarf til safnhúsa af þessu tagi
Nýnemar í MA175
NÝNEMAR á fyrsta ári við
menntaskólann verða að Iíkind-
um 175 í haust. í fyrra voru
nokkru færri nemendur teknir
inn, eða 150, og í vetur verða
nemendur 575 talsins.
Jóhann Siguijónsson, rektor,
sagði að ennþá væru umsóknir um
skólavist að berast, en það væru
umsóknir sem aðrir skólar hefðu
hafnað og kvað hann litlar líkur á
að fleirum yrði veitt innganga að
sinni þar sem 40 umsækjendum
hefði verið vísað frá nú þegar.
Jóhann bætti því við að fjöldi
nemenda við skólann væri orðinn
það mikill núna að það þyrfti að
„skásetja" skólann, eins og hann
orðaði það, en það þýðir að á morgn-
ana byija bekkimir missnemma og
eru þeim mun lengur í skólanum
fram á daginn.
og í öðru lagi að kannaðir verið
möguleikar á að efri hæð Sigur-
hæða fáist keypt og því komið
þannig fyrir að íbúðin þar, ásamt
íbúð á neðri hæð Davíðshúss, verði
lánaðar listamönnum, skáldum og
fræðimönnum.
í tillögum um „gamla bamaskól-
ann“ er farið þess á leit að hann
verði innréttaður með það í huga
að hann gegni í framtíðinni hlut-
verki sem listasmiðja fyrir myndlist
og handíðir. Þar er hægt að koma
fyrir vinnustofum af ýmsum gerð-
um og er hugmynd menningarmála-
nefndarinnar að Akureyrarbær
greiði allan rekstrarkostnað af hús-
inu og úthluti vinnustofunum síðan
til nokkurra mánaða í senn. Er
gert ráð fyrir að viðkomandi lista-
menn greiði þóknun fyrir aðstöðuna
og þá gjaman með eigin verkum.
Morgunblaðið/Kristinn
Jón Kristinsson.
Hjólar til
Reykjavíkur
Jón Kristinsson, 71 árs Akur-
eyringur, ætlar sér að hjóla frá
Akureyri til Reykjavíkur í fjár-
öflunarskyni fyrir hjúkrunarde-
ild, sem verið er að koma upp
við Fjórðungssjúkrahúsið á Ak-
ureyri.
Eins og fram kom í Morgun-
blaðinu í gær, ætlar Jón að leggja
af stað sunnudaginn 12. júlí og
ætlar hann að koma við á helstu
stöðum á leiðinni, jafnframt því að
safna áheitum til styrktar hjúk-
runardeildinni, sem kölluð hefur
verið Sel II.
þroskast eðlilega miðað við hversu
snemma við vorum á ferðinni í vor,“
sagði Guðmundur. „Auk þess hafa
komið frostnætur héma í júlí og
ég man eftir því að grös hafí falliö'
20. júlí. Það er því alltof snemmt
að segja nokkuð til um uppskeruna
að sinni."
Guðmundur var að því spurður
hveijar horfur væru í sölumálum
hjá kartöflubændum og sagði hann
að þær væru ekki sem ákjósanleg-
astar. Neysla hefði dregist saman
allnokkuð og sagði hann að það
væri í og með vegna þess að ekki
væri hugsað nógu vel um vöruna
og einnig væri dreifingu ábótavant.
„Markaðurinn er ekki það stór
að hann geti borið marga aðila. Það
sem þarf að gera er að koma á
meiri og markvissari sölustarfsemi
°g fylgjast með því hvemig farið
er með varninginn í verslunum. Þaö
er alltof mikið um að kartöflur séu
geymdar á of björtum stöðum í of
miklum hita og í of langan tíma.
Ég þekki dæmi þess að kartöflur
hafi spírað í verslunum þannig að
það er ekki furða að neysla dragist
saman þegar verið er að bjóða slíka
vöru,“ sagði Guðmundur að lokum.
Bifreiðastjórar:
Hafið bílbænina íbílnum
og orð hennar hugföst
þegarþiðakið
i Drottinn Guó, veit mér
vernd þina, og lát mig
minnast ábyrgðar minnar
er ég ek þessari bifreið.
I Jesú nafni. Amen.
Fæst í Kirkjuhúsinu,
Klapparstíg 27, í verslun-
inni Jötu, Hátúni 2a,
Reykjavík og í Hljómveri,
Akureyri.
Verð kr. 50.-
Orð dagsins, Akureyri.