Morgunblaðið - 04.07.1987, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 04.07.1987, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 1987 Grænland: Leitin að flugvélinni ber ekki árangnr Kaupmannahöfn. Frá Nils Jörgen Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins. GRÆNLENSK stjórnvöld telja, að bandaríska flugvélin, sem hvarf í nágrenni Kulusuk á Austur-Grænlandi á mánu- dag, hafi farist, og er flugmaðurinn talinn af. Um- fangsmikil leit að flugvélinni hefur engan árangur borið. Bandaríski flugrnaðurinn til- kynnti flugvellinum í Syðri- Straumfírði á mánudag, að hann ætti við erfiðleika að etja vegna gangtruflana í vél og mundi reyna að lenda í Kulusuk. Þá var hann um 15 sjómílur frá flugvellinum. Bandaríkjamaðurinn lagði af stað í þessa ferð frá flugvellinum í Frobisher Bay í Kanada og var á leið til Reykjavíkur. Flugvélin, sem var af Piper-gerð, var í eigu fyrirtækisins Orient Air í Minnea- polis í Bandaríkjunum. Um klukkutíma eftir tilkynn- ingu flugmannsins var hafín leit. Stóð hún allan mánudaginn og þriðjudaginn með þátttöku þyrlna, flugvéla og skipa, en bar engan árangur. Reuter * Isól og snjóíSviss Þegar sumarsólin hellir heit- um geislum sínum yfir láð og lög sækjast flestir eftir að geta flatmagað á ströndinni en þeir finnast þó, sem kjósa heldur svalann og hreint fjallaloftið. Þetta fólk, sem var ýmist gangandi eða lét skíðin létta sér leiðina, hittist fyrir nokkrum dögum í rúm- lega 4000 metra hæð í Allalin- horn-fjalllendinu í Sviss og er ekki annað að sjá en bærilega hafi viðrað þá stundina. Deilur vaxa innan Jafn- aðarmannaflokksins Tekst David Owen að afstýra samein- ingn við Frjálslynda flokkinn? Sovétríkin: Karl Linnas léstí fangelsis- sjúkrahúsi Moskvu, Reuter. Stríðsglæpamaðurinn Karl Linn- as, sem var Bandaríkjastjórn framseldi Sovétmönnum í apríl sl., lést i fyrradag á sjúkrahúsi i Leningrad. Kom þetta fram i frétt frá Tass-fréttastofunni so- vésku. í Tass-fréttinni sagði, að Linnas hefði látist úr hjartabilun í fangels- issjúkrahúsi í Leningrad en þangað var hann fluttur frá Tallinn í Eist- landi. Skömmu eftir að Linnas hafði verið framseldur kom í ljós, að hann var alvarlega veikur og þrátt fyrir tvær aðgerðir reyndist ekki unnt að bjarga lífí hans. Linnas, sem var 67 ára að aldri, var dæmdur til dauða í Sovétríkjun- um árið 1962 fyrir að hafa átt þátt í dauða 12.000 manna þegar hann var yfírmaður útrýmingarbúða í eistnesku borginni Tartu á stríðsár- unum. Þegar dómurinn var kveðinn upp var Linnas búsettur í Banda- ríkjunum og hafði verið frá árinu 1951 en í vor ákvað hæstiréttur Bandaríkjanna, að hann skyldi framseldur. Árið 1981 var hann sviptur bandarískum borgararétti og fangelsaður fyrir rúmu ári til að hann gæti ekki flúið land. London, frá Valdimar Unnari Valdimarssyni, MIKLAR deilur hafa nú risið inn- an breska Jafnaðarmannaflokks- ins (SDP) vegna hugmynda um að sameina flokkinn Frjálslynda flokknum. Er David Owen, leið- togi jafnaðarmanna, kominn upp á kant við flesta aðra forystu- menn vegna ágreinings um það með hvetjum hætti skuli unnið með Fijálslynda flokknum á komandi árum. Allt frá því Frjálslyndi flokkur- inn, með David Steel í fararbroddi, tók að vinna að því strax eftir nýaf- staðnar þingkosningar að fijáls- lyndir og jafnaðarmenn sameinuðu krafta sína í einum flokki hafa geis- að deilur innan Jafnaðarmanna- flokksins um viðbrögð við þessari málaleitan. David Owen hefur ávallt verið andvígur slíkri sameiningu en fremur viljað halda áfram á þeirri braut, sem þegar hefur verið mörk- uð með náinni samvinnu flokkanna tveggja um helstu málefni og sam- eiginlegum framboðum. Owen heldur því fram, að enn sé ágrein- ingur fijálslyndra og jafnaðar- manna í nokkrum málum slíkur, að fráleitt sé og ótímabært að stefna að aigerum samruna flokk- anna í nánustu framtíð. Hefur hann einkum skírskotað til vamarmála í þessu sambandi og meðal annars bent á þann mikla nljómgrunn sem hugmyndin um einhliða afvopnun hlaut á landsþingi Fijálslynda flokksins á síðasta ári. David Owen hefur lýst afdráttar- laust yfír því, að hann muni ekki ganga til liðs við nýjan flokk, sem myndaður yrði við samruna þeirra tveggja flokka sem jafnaðarmenn og fijálslyndir skipa nú. Hafa yfír- lýsingar í þessa veru hleypt illu blóði í þá forystumenn Jafnaðarmanna- flokksins sem beita sér nú af alefli fyrir því að flokksmenn leggi bless- un sína yfír samruna í atkvæða- greiðslu, sem fyrirhuguð er síðar á þessu ári. Meðal helstu talsmanna slíks samruna eru þrír þeirra sem ásamt David Owen skipuðu á sínum tíma „fjórmenningaklíkuna" svo- kölluðu, sem sagði skilið við Verkamannaflokkinn með miklum fréttaritara Morgunblaðsins. Gengi gjaldmiðla London. Reuter. GENGI Bandaríkjadollars hækk- aði gagnvart flestum helstu gjaldmiðlum á gjaldeyrismörk- uðum Evrópu í gær. Verð á gulli lækkaði. Síðdegis í gær kostaði sterlings- pundið 1,6125 dollara, en annars var gengi dollars þannig að fyrir hann fengust: 1,3265 kanadískir dollarar, 1,8355 vestur-þýsk mörk, 2,0678 hollensk gyllini, 1,5270 svissneskir frankar, 38,07 belgískir frankar, 6,1175 franskir frankar, 1329 ítalskar lírur, 148,35 japönsk jen, 6,4025 sænskar krónur, 6,7175 norskar krónur, 6,9525 danskar krónur. Gullúnsan kostaði 443,40 doll- David Owen - vill ekki samein- ingu og leggur pólitíska framtíð sína að veði. Bandalagið verði ekki traustvekj- andi kostur í augum kjósenda fyrr en það komi fram sem einn flokkur með einn leiðtoga. Andstaða við samruna muni ekki aðeins vinna Bandalagi fijálslyndra og jafnaðar- manna ógagn, heldur einnig koma í koll Jafnaðarmannaflokknum sjálfum og öllu því, sem hann hefur staðið fyrir. Kostimir séu því skýr- ir, annaðhvort vinni fijálslyndir og jafnaðarmenn saman í einum flokki eða fari hvorir sína leið með þeirri óhjákvæmilegu afleiðingu, að Jafn- aðarmannaflokkurinn legði smám saman upp laupana. Ljóst er, að meðal liðsmanna Jafnaðarmannaflokksins á hug- myndin um samruna við Fijálslynda flokkinn töluverðu fylgi að fagna. Þykir David Owen því tefla djarft er hann lýsir afdráttarlaust yfír, að hann muni hvergi koma nálægt nýjum flokki, sem stofnaður yrði við síkan samruna. Með slíkum yfir- lýsingum hefur þessi leiðtogi Jafnaðarmannaflokksins teflt pólitískri framtíð sinni í mikla tvísýnu því að samþykki flokks- menn samruna við Fijálslynda flokkinn verður Owen staddur á pólitísku flæðiskeri, flokkslaus og áhrifalítill. En David Owen hefur áður tekið pólitíska áhættu, verið dæmdur úr leik en síðan staðið uppi með pálmann í höndunum. Hann er vinsæll í röðum flokks- bræðra sinna og tryggð við Owen mun vafalaust hafa áhrif á afstöðu margra liðsmanna Jafnaðarmanna- flokksins er þeir ganga síðar á þessu ári til atkvæða um framtíð flokksins og hugsanlegan samruna við Frjálslynda flokkinn. The Economish ara. . . . og Shirley Williams - féllu af þingi og vilja sameinast Fijáls- lynda flokknum. látum. Þetta eru þau Bill Rodgers, Roy Jenkins og Shirley Williams en ekkert þeirra náði kjöri í nýafstöðn- um þingkosningum. Jafnaðarmannaflokkurinn hreppti einungis fimm þingsæti af þeim 22, sem komu í hlut Banda- lags fijálslyndra og jafnaðarmanna { þingkosningunum. Innan þing- flokks Jafnaðarmannaflokksins gætir lítils stuðnings við hugmynd- ina um samruna við Fijálslynda flokkinn og er raunar vitað, að fjór- ir af fímm þingmönnum jafnaðar- manna eru slíkum samruna andvígir. Með David Owen í broddi fylkingar halda þeir því fram, að verði af samruna flokkanna tveggja muni gerast hvort tveggja í senn, Frjálslyndi flokkurinn muni gleypa Jafnaðarmannaflokkinn með húð og hári og breskur almenningur um leið glata þeim mikilvæga kosti, sem Jafnaðarflokkurinn hafí boðið upp á, lýðræðislegri jafnaðarstefnu. Talsmenn samrunans segja hins vegar, að nú sé að hrökkva eða stökkva. Ljóst sé, að fijálslyndir og jafnaðarmenn nái ekki viðunandi árangri með þeirri losaralegu sam- vinnu sem verið hafi til þessa. Waldheim er folóra- böggull heimsins í BRESKA blaðinu The Economist birtist nýlega leiðari þar sem sú skoðun er látin í Ijós að heimurinn hafi fundið sinn blóraböggul í Kurt Waldheim, forseta Austurríkis. Jóhannes Páll, páfi, hafi, er hann tók á móti Waldheim i páfagarði i siðustu viku, gefið til kynna að hann áliti þetta ekki réttmætt. Blaðið segir að í páfagarði hafí verið gefnar þijár ástæður fyrir því að taka á móti Waldheim: hann hafí verið kosinn forseti í lýðræðis- legum kosningum í landi þar sem meirihluti íbúa sé kaþólskur og páfi ætli að heimsækja á næsta ári; Waldheim hafí staðið sig vel sem framkvæmdastjóri Sameinuðu Þjóðanna og hann hafí sjálfur farið fram á að tekið yrði á móti sér. í páfagarði hafí verið tekið á móti ýmsum gestum þ. á m. Yasser Ara- fat, þrátt fyrir gagnrýni utanað komandi aðila og svo verði gert áfram. The Economist spyr hvort her- ferðin gegn Waldheim sé líkleg til að auka samúð með gyðingum og kemst að þeirri niðurstöðu að svo sé ekki. Það spyr einnig hvort hægt sé að taka gagnrýnina á Waldheim góða og gilda þegar þeir sem að henni standi hafí viðurkennt og við- urkenni stjómir, er menn á borð við Idi Amin, Ferdinand Marcos og Nicolae Ceausescu hafí verið og séu í forsvari fyrir. Að lokum er spurt hvers vegna Waldheim hafi orðið blóraböggull. Að mati blaðsins er svarið að hann hafí legið svo vel við höggi. Honum hafí gengið vel í lífínu og tekist að halda sér í áhrifastöðum, þrátt fyrir fortíð sína er nú hafi verið grafín upp. Waldheim hafí verið svo óheppinn að vera, viðrið- inn nokkur af þeim óhæfuverkum Nasista, er fólk hrylli við enn þann dag í dag, 40 árum eftir að þau voru framin. Hann hafi logið til um gerðir sína á stríðsárunum og sum- ir segi að hann ljúgi enn. En The Economist vekur athygli á því að lögin sem Bandaríkjamenn bera
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.